Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Munnlegur framburður

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. febrúar 2023

S-360/2022

Héraðssaksóknari (Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Gareese Joshua Gray (Leifur Runólfsson lögmaður) (Sunna Axelsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Talið var sannað með munnlegum framburðum fyrir dómi að ákærði hefði gerst sekur um kynferðisbrot, sem heimfært var til 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (brot gegn blygðunarsemi) í samræmi við dómaframkvæmd, en ekki 194. gr. laganna, líkt og ákæruvaldið krafðist. Brotaþola dæmdar miskabætur að fjárhæð 1.100.000 krónur og ákærða gert að greiða allan sakarkostnað.

Héraðsdómur Austurlands birt 5. janúar 2017

S-8/2016

Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltrúi) gegn X (Stefán Þór Eyjólfsson hdl)

Ákærði var sakfelldur fyrir ólöglega framleiðslu áfengis. Dæmdur til greiðslu sektar, auk þess sem haldlagt áfengi o.fl. var gert upptækt. Hafnað var m.a. málsástæðum ákærða um ólögmæta húsleit, skort á ásetningi og að ósannað teldist að vökvinn uppfyllti skilyrði áfengislaga til að geta talist áfengi. Þá var því hafnað að refsing hans yrði felld niður vegna lögvillu.

Héraðsdómur Austurlands birt 1. desember 2016

S-23/2016

Finnboga Vikar (Helgi Jensson fulltrúi) gegn hótað A, hafnarverði, sem var við skyldustörf, lífláti, og skömmu síðar ýtt við, A með efri hluta líkama síns með ógnandi hætti.“, Í og ákæruskjali er þetta talið varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga (Þórður Már Jónsson hdl)

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni er beindist að starfsmanni sveitarfélags. Dæmt 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.