Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

24 dómar fundust

Lykilorð: Dvalarleyfi

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2025

E-7841/2024

A, B, C, D og E (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Stefndi, Íslenska ríkið, var sýknað af kröfum stefnenda um ógildingu á úrskurði Kærunefndar Útlendingamála, sem staðfesti ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum í málum stefnenda. Var ekki fallist á málsástæður stefnenda um að borið hafi að veita þeim slíka alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi að lögum eins og á stóð eða að málsmeðferð hafi verið þannig áfátt að varðaði ógildingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2025

E-4606/2022

A B (Davor Purusic lögmaður) gegn íslenska ríkinu Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Stefnendur kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun annars stefnandans um dvalaraleyfi og jafnframt að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála um brottvísun og endurkomubann hennar. Stefndu íslenska ríkið og Útlendingastofnun voru sýknaðir af öllum kröfum annars stefnandans vegna aðildarskorts hans að málinu og ekki var fallist á kröfur um ógildingu umræddra stjórnvaldsákvarðana í málum hins stefnandans. Til grundvallar sönnun um umdeild atvik var meðal annars lagður dómur í sakamáli þar sem stefnendur voru bæði fundin sek og dæmd til refsingar fyrir misnotkun skjals og fyrir brot gegn lögum um útlendinga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2025

E-504/2025

A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógiltur yrði með dómi úrskurður Kærunefndar útlendingamála þar sem synjað var umsókn stefnanda um alþjóðlega vernd á Íslandi, ásamt því að honum var þá einnig synjað um dvalarleyfi á grunni 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og vísað frá landinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. desember 2023

S-5227/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Aleksi Koci
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals og brot gegn lögum um útlendinga og gert að sæta fangelsi í 60 daga en fullnustu 30 daga er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. október 2023

S-3877/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Khatuna Danelishvili
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærða sakfelld fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga, lögum um útlendinga og skjalafals. Dæmd í 90 daga fangelsi, þar af voru 60 dagar skilorðsbundnir til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. september 2023

S-3228/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Giorgi Patashuri
Málaflokkur: Útlendingamál

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn útlendingalögum og lögum um atvinnuréttindi útlendinga fyrir að hafa dvalið og starfað í heimildarleysi á Íslandi. Var honum dæmt að sæta fangelsi í 45 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. febrúar 2023

E-4270/2022

A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) gegn Útlendingastofnun (Erna Hjaltested lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem kröfu hans um endurupptöku á synjun um alþjóðlega vernd var hafnað. Stefnandi fékk ekki úrlausn í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er um í 2. mgr. 74. gr. laga 80/2016 en 27 mánuðir liður frá umóknardegi og þar til úrskurður kærunefndar lá fyrir. Ákvörðun kærunefndar byggðist á því að skilyrði um auðkenn og uppruna hefði ekki verið uppfyllt og stefnandi hefði ekki veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Hvorki var fallist á með stefnanda að hinn umdeildi úrskurður væri efnislegar rangur né að brotið hefði verið gegn reglum um meðferð máls. Var kröfu um ógildingu því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. október 2021

E-232/2021

A (Guðmundur Narfi Magnússon lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Kröfu stefnanda var hafnað um að ógilda úrskurð kærunefndar útlendingamála þess efni að hafna umsókn um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Hvorki var fallist á að brotið hefði verið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar né að misskilningur hefði verið eða mistök gerð við meðferð málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. desember 2020

E-6830/2020

A og B og fyrir hönd ólögráða sonar þeirra C (Magnús Davíð Norðdahl lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Krafist ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem hafnað var frestun réttaráhrifa úrskurðar um að synja um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Sýkna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. september 2020

E-5324/2019

Bikthiyar Khattab Omar, Ameerah Ismael Mawlood, Aso Bakthyar Khattab og Helan Bakthyar Khattab (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Hafnað var kröfum stefnenda sem eru írakskir ríkisborgarar um að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála og ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja stefnendum um alþjóðlega vernd á grundvelli 37. og 40. gr. laga nr. 80/2016 og synjun um dvalarleyfi samkvæmt 74. gr. sömu laga á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. mars 2011

E-2693/2010

Dayana Vilas Boas Alves (Stefán Karl Kristjánsson hdl) gegn Íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Stefnanda var synjað um dvalarleyfi með ákvörðun Útlendingastofnunar sem staðfest var með úrskurði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins. Fallist var á kröfu stefnanda um að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. mars 2011

E-4785/2010

Hoa Minh Thi Ðo (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins og á ákvörðun stefnda þar sem henni var synjað um dvalarleyfi. Stefndu voru sýknuð af kröfunni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. mars 2011

E-4784/2010

Anielyn Pantilgon Adlawan (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnanda var synjað um dvalarleyfi þar sem rökstuddur grunur var um að til hjónabands hennar hefði verið stofnað í þeim tilgangi einum að afla henni dvalarleyfis hér á landi. Úrskurður dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, þar sem synjun stefnda Útlendingastofnunar var staðfest, var felldur úr gildi með dóminum

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2011

E-4084/2010

Thi Phuc Bui (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Soffía Jónsdóttir hdl)

Með dóminum var felldur úr gildi úrskurður dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 17. febrúar 2010 þar sem staðfest var ákvörðun stefndu, Útlendingastofnunar, um að synja stefnanda um dvalarleyfi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. desember 2009

E-5225/2009

málinu nr. E-5225/2009, Imelda, Z. Sta. Ana, persónulega og vegna og Löru Alexie Sta. Ana (Guðjón Ólafur Jónsson hrl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnendur kröfðust ógildingar á úrskurði dómsmálaráðherra og ákvörðun Útlendingastofnunar um afturköllun á dvalarleyfi ungrar filippseyskrar telpu. Ekki var fallist á kröfu stefnenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2008

E-4843/2007

Amadou Shernu Daillo (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Með dóminum var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. júní 2006 um að synja umsókn stefnanda um hæli og neita honum um dvararleyfi og að honum skyldi vísað úr landi. Úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 10. janúar 2007, þar sem ákvörðun Útlendingastonunar var staðfest, var einnig felldur úr gildi. Á báðum stigum stjórnsýslunnar hafði þess ekki verið gætt að afla fullnægjandi upplýsinga um aðstæður stefnanda sjálfs í heimalandinu áður en ákvörðun var tekin. Með því var ekki farið að 10. gr. stjórnsýslulaga en samkvæmt þeirri lagagrein ber stjórnvaldi að sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. október 2006

E-7753/2005

Kien Trung Nguyen (Þorbjörg Inga Jónsdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Stefnandi krafðist þess að úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 15. apríl 2005 um að honum skyldi vísað úr landi og bönnuð endurkoma til Íslands næstu tíu árin yrði felldur úr gildi. Stefnandi byggði kröfuna á því að ekki hefði verið staðið rétt að ákvörðun Útlendingaeftirlitsins sem staðfest var með framangreindum úrskurði og að ekki hefðu verið forsendur til að vísa stefnanda úr landi. Á það var ekki fallist og íslenska ríkið var sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðarins.