Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Söndru Rún Raybould (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir m.a. þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum vímuefna án ökuréttinda og fyrir vörslur fíkniefna. Var henni gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og hún svipt ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn
Valentin Pintilie (sjálfur)
Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás, nytjastuld og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Guðmundi Kristjáni Kristjónssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 45 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Gintaras Vaikutis (enginn)
Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Marcis Horns
Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti. Hegningarauki. Ekki gerð sérstök refsing.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Nerijus Peciulaitis
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn
Tom Dedaj
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Benedikt Torfa Ólafssyni Zoéga (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnlagabrot. Um var að ræða rof á skilorði fyrra dóms sem var dæmt upp, ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi og sviptur ökruétti í 5 ár.
Ákærðu sakfelldir fyrir þjófnað en annar þeirra einnig fyrir fíkniefnalagabrot, ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttar, nytjastuld og eignaspjöll. Játningarmál.
Í var sakfelldur með dómi héraðsdóms fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og tilraun til ráns með því að hafa stungið A þrisvar sinnum með hnífi og reynt að taka reiðhjól hans. Þá var Í sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, akstur sviptur ökuréttindum og undir áhrifum fíkniefna, vörslur fíkniefna og fjársvik. Fyrir Landsrétti var einungis til endurskoðunar ákvæði hins áfrýjaða dóms um refsingu Í, þóknun verjanda hans og frádrátt gæsluvarðhalds. Við ákvörðun refsingar Í var litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og einnig ákvæði 77. gr. sömu laga. Jafnframt var litið til ákvæða 1., 2., 3., 6., og 8. töluliðar 70 gr. almennra hegningarlaga og refsilækkunarsjónarmiða 5. töluliðar. 1. mgr. 70. gr. sömu laga. Þar sem líkamsárás Í var sérstaklega hættuleg og að jafnframt var um að ræða tilraun til ráns, var litið til þess að Í hafði áður hlotið dóma fyrir ofbeldis- og auðgunarbrot. Var því horft til ákvæða 1. mgr. 218 gr. c og 255 gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar. Var refsing Í ákveðin fangelsi í þrjú ár og ákvæði hins áfrýjaða dóms um ævilanga sviptingu ökuréttar og upptaka fíkniefna staðfest. Þá dregst gæsluvarðhaldsvist Í frá refsingu hans.
H var ákærður fyrir hættubrot og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sinni án gildra ökuréttinda og á vítaverðan og ógnandi hátt að bifreið sem A og B voru í, veitt þeim eftirför og gert tilraun til að þvinga þau út af veginum og að hafa með þeirri háttsemi stofnað lífi og heilsu A og B í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt. Þá var H ákærður fyrir brot gegn lögreglulögum og vopnalagabrot. Með hinum áfrýjaða dómi var H sakfelldur samkvæmt öllum liðum ákærunnar. Að virtum gögnum málsins, framburði A og B fyrir héraðsdómi og eindreginni neitun H, var ekki talið sannað að H hefði gerst sekur um hættubrot og var hann sýknaður af því broti. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans um sakfellingu ákærða vegna brota gegn umferðarlögum, lögreglulögum og vopnalögum á hinn bóginn staðfest. Var refsing H ákveðin 100.000 króna sekt.
E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Martins Arvis Kaimins
Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals og umferðarlagabrot.
X var ákærður fyrir hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti utan vegar og olli tjóni á umferðarmerkjum og hafi ákærði yfirgefið vettvang án þess að tilkynna tjónið. X neitaði að hafa ekið bifreiðinni í umrætt sinn og kvað vinkonu sína, A, hafa ekið bifreiðinni en enginn var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Í dómi Landsréttar var rakið að engin vitni hefðu borið um að hafa séð X aka bifreiðinni og engum öðrum gögnum væri til um það að dreifa. Þá var tekið fram að þrátt fyrir að framburður X hjá lögreglu í kjölfar atviksins hafi verið óljós og misvísandi um það hver hefði ekið bifreiðinni og um tildrög þess að viðkomandi hafi farið af vettvangi, yrði ekki horft fram hjá því að A hafi borið um það að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar í umrætt sinn og að hafa farið af vettvangi áður en lögreglan kom. Þá fengi framburður A stoð í trúverðugum framburði föður hennar sem kannaðist við að hafa komið að sækja hana eftir umferðaróhapp. Taldi Landsréttur því með vísan til 1. mgr. 109. gr. laga um meðferð sakamála að ekki væri næg sönnun komin fyrir því að X hefði ekið bifreiðinni, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana-og fíkniefna og slævandi lyfja í umrætt sinn og vanrækt að tilkynna um tjón sem hlaust af akstrinum. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
Héraðssaksóknari (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Shokri Keryo (
Leó Daðason lögmaður)
Skotárás. Ákærði sakfelldur fyrir hættubrot, eignaspjöll, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fangelsi í 3 ár og 6 mánuði, sviptur ökurétti og dæmdur til greiðslu skaðabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Erlu Ingibjörgu Árnadóttur (
Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Ákærða, sem játaði brot sín, dæmd til refsingar fyrir akstur svipt ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Mohammed EL Amin Amokrane (
Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 45 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Adamka Przemyslaw (
Ólafur Kjartansson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðan akstur án ökuréttar og fyrir hraðakstur. Einnig skjalafals vegna ökuskírteinis.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Ruslan Aliyeu
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals, umferðarlagabrot og brot gegn útlendingalögum og gert að sæta fangelsi í 75 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað í 2 ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Siriket Maneenak
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera svipt ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristínu Valgerði Gallagher (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og dæmd í 12 mánaða fangelsi. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Játningarmál.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (Margrét María Sigurðardóttir lögreglustjóri) gegn
Böðvari Magnússyni
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot. Ítrekun.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Denis Dinu
Ákærða var gert að sæta fangelsi í 45 daga fyrir akstur sviptur ökurétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Sigursteini Pétri Steinarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og nytjastuld, vopnalagabrot, umferðar og fíkniefnalagabrot. Ákærða var gert að sæta 10 mánaða fangelsi og ævlöng svipting ökuréttar áréttuð.
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Stefáni Erni Oddssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot. Þá var hann sakfelldur fyrir rangar sakargiftir fyrir að framvísa ökuskírteini í eigu annars manns. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti í 5 ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Karlottu Lind Skúladóttur (
Skúli Hansen lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðalagabrot og dæmd í 45 daga fangelsi. Jafnframt var hún svipt ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Svövu Anne Sveinsdóttur
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og dæmd til 75 daga fangelsi. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Birni Bender
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökuréttindum ævilangt. Dæmdur til að sæta 7 mánaða fangelsisrefsingu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóhanni Elvari Sveinbjörnssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði er sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og ævilöng svipting ökuréttar er áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Erlendi Óla Guðmundssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlaga, fíkniefna og vopnalagabrot og dæmdur til upptöku nánar tilgreindra efna, peninga og ýmissa muna, ásamt því að ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Piotr Banach
Ákærði er sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökuréttindum ævilangt.
Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Ákærði dæmdur til 19 mánaða fangelsisvistar, hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða 489.482 krónur í sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðmundi Víði Gíslasyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot, þá var einnig um að ræða rof á skilyrðum reynslulausnar og refsing samkvæmt henni dæmd upp. Dæmdur í 12 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti tímabundið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Davíð Rafni B. Norðdahl (
Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og til að sæta sviptingu ökuréttar tímabundið.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Aron Romanik (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur án ökuréttinda, ítrekuð þjófnaðarbrot og hylmingu.
Lögreglustjórinn á Austurlandi (
Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari)
gegn
A (
Hilmar Gunnlaugsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot. Ítrekun
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, þ.e. ítrekaðan sviptingarakstur
Ákæruvaldið (
Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi)
gegn
Guðmundi Friðriki Stefánssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka í fjórgang sviptur ökurétti og í öll skiptin undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna, auk þess að vera sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eydísi Hönnu Ívarsdóttur (
Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þjófnaðarbrot og nytjastuld. Dæmd til að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Adam Piet
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, skilorðsbundið til 2 ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefni og ákærði sviptur ökurétti í 3 ár.
Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Smára Fannari Kristjánssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Ákærði sýknaður af ákæru um ölvun við akstur og akstur án ökuréttar
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Leon Augustus Baptiste (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og sérrefsilagabrot. Gert að sæta fangelsi í 90 daga. Til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem ákærði sætti vegna málsins. Ákærði var sviptur ökurétti í 5 ár. Fíkniefni og vopn gerð upptæk.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
Smára Fannari Kristjánssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og vörslur fíkniefna
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Hörpu Matthíasdóttur (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir ölvunarakstur, akstur án ökuréttar, of hraðan akstur og akstur án öryggisbeltis
Ákæruvaldið (
Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Aroni Vigni Erlendssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Sakfellt fyrir akstur án ökuréttar og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk brota á vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, gripdeild og akstur án ökuréttar og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alex Guðbjörnssyni (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot auk hegningar- og fíkniefnalagabrota. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 10 mánuði og hann sviptur ökuréttindum ævilangt. Fíkniefni gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hafsteini Thorberg Pálssyni (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir akstur án ökuréttar og of hraðan akstur