Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-2637/2020:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Hörpu Matthíasdóttur

Dómur:

I.

(Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

Akstur án ökuréttar. Akstur án öryggisbeltis. Of hraður akstur. Ölvunarakstur.

Ákærða sakfelld fyrir ölvunarakstur, akstur án ökuréttar, of hraðan akstur og akstur án öryggisbeltis

Mál þetta, sem dómtekið var 18. mars sl., er höfðað af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu með ákæru útgefinni 29. september 2020 á hendur Hörpu Matthíasdóttur, kt. 000000-0000, […], […], ,,fyrir eftirtalin umferðarlagabrot með því að hafa:

I.

Föstudaginn 21. júní 2019 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 0,84‰) um Lyngás við Stórás í Garðabæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2019-38758

II.

Föstudaginn 19. júlí 2019 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti, undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 1,91‰), án þess að hafa notað öryggisbelti og notað farsíma án handfrjáls búnaðar á meðan akstrinum stóð um Nýbýlaveg við Dalveg í Kópavogi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr., 1. mgr. 57. gr., 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 77. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2019-45657

III.

Fimmtudaginn 12. september 2019 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti, undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 0,97‰) og með 106 km hraða á klukkustund um Kringlumýrarbraut við N1 í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, en leyfður hámarkshraði á veginum var 80 km á klukkustund.

Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 4. mgr. 37. gr., 1., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2019-57801

IV.

Laugardaginn 14. september 2019 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 1,58‰) um Tryggvagötu í Reykjavík, þar sem lögregla hafði afskipti af akstrinum.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2019-58300

V.

Laugardaginn 14. september 2019, ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 1,36‰) um Hringbraut í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 007-2019-58305

VI.

Laugardaginn 7. mars 2020 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti, undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 2,01‰) og með 119 km hraða á klukkustund um Reykjanesbraut við Vogastapa í Reykjanesbæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, en leyfður hámarkshraði á veginum var 90 km á klukkustund.

Telst háttsemi þessi varða við 3. mgr. 37. gr., 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. M: 008-2020-2849

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.“

Verjandi ákærðu gerir þá kröfu að ákærða verði dæmd til þeirrar vægustu refsingar sem lög frekast heimila og þá krefst hann málsvarnarlauna skv. mati dómsins.

II.

Ákærða hefur skýlaust játað sakargiftir og telur dómari ekki ástæðu til að draga í efa að játningin sé sannleikanum samkvæm enda er hún í samræmi við rannsóknargögn málsins. Því var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það var tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Brot ákærða eru réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru en þau varða við 2., sbr. 3. og 4. mgr. 37. gr., 1., sbr. 2. og 3. mgr. 49. gr., 1. mgr. 57. gr., 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 77. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Ákærða hefur unnið sér til refsingar skv. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Samkvæmt framlögðu sakavottorði ákærðu dags. 23. september 2020 gekkst hún undir sektargreiðslu og sviptingu ökuréttar í tvo mánuði í september 2013 fyrir ölvunarakstur. Í ágúst 2015 gekkst hún undir sektargreiðslu og sviptingu ökuréttar í 12 mánuði m.a. fyrir ölvunarakstur og í mars 2019 gekkst ákærða undir sektargreiðslu og sviptingu ökuréttar í þrjú ár og sex mánuði m.a. fyrir ölvunarakstur. Ákærða er nú sakfelld fyrir að aka sex sinnum undir áhrifum áfengis og svipt ökurétti og einnig fyrir of hraðan akstur og fyrir að nota ekki öryggisbelti. Refsingu ákærðu ber að ákveða með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þá verður einnig tekið tillit til þess að hún játaði brot sín afdráttarlaust. Með vísan til þessa og sakaferils ákærðu þykir refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði. Þá hefur ákærða unnið sér til sviptingar ökuréttar, sbr. 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Með hliðsjón af fjölda þeirra brota sem ákærða er nú sakfelld fyrir og sakaferli hennar verður hún svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærða greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 141.360 kr. að meðtöldum virðisaukaskatti og annan sakarkostnað 187.386 kr.

Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærða, Harpa Matthíasdóttir, sæti fangelsi í sjö mánuði. Ákærða er svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Ákærða greiði málsvarnarlaun verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 141.360 kr. og annan sakarkostnað 187.386 kr.

Ingi Tryggvason

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 3. mgr. 37. gr.4. mgr. 37. gr.2. mgr. 49. gr.3. mgr. 49. gr.1. mgr. 57. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 77. gr.1. mgr. 94. gr.1. mgr. 95. gr.101. gr.