Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 7. júlí 2023.
Mál nr. S-3219/2023:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
X
(Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 21. júní sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 15. maí 2023, á hendur X, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 18. febrúar 2023, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist kókaín 160 ng/ml og alprazólam 22 ng/ml) um Vesturlandsveg við Höfðabakkabrú í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, og á sama tíma haft í vörslum sínum 2,64 g af kókaíni, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mg. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr. sbr., 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Jafnframt er krafist upptöku á framangreindu 2,64 g af kókaíni, sem hald var lagt á samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.
Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 15. maí 2023, gekkst ákærði undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt […] 2013 vegna ölvunaraksturs. Ákærði gekkst aftur undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt […] 2015 vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur var ákærða gert að greiða fésekt að fjárhæð 300.000 króna vegna aksturs undir áhrifum hvoru tveggja áfengis og ávana- og fíkniefna, en dómurinn var hegningarauki við framangreinda lögreglustjórasátt frá […] 2015. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 30 daga með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2016 vegna aksturs undir áhrifum hvoru tveggja áfengis og ávana- og fíkniefna, sem og aksturs sviptur ökurétti, en ákærði lauk afplánun dómsins með samfélagsþjónustu […] 2019. Þá gekkst ákærði undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt […] 2017 vegna aksturs sviptur ökurétti, en sú sátt var hegningarauki við framangreindan dóm frá […] 2016. Ákærði gekkst aftur undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt […] 2020 vegna aksturs sviptur ökurétti. Nú síðast hlaut ákærði 45 daga fangelsisrefsingu með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2022, meðal annars vegna aksturs sviptur ökurétti.
Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því við það miðað að ákærði hafi nú í fjórða sinn, innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sem og akstur sviptur ökuréttindum.
Ákærði hefur skýlaust játað sök og vegur það honum til refsimildunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 4 mánuði. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttinda ákærða. Þá skal ákærði jafnframt sæta upptöku á 2,64 g af kókaíni, með vísan til lagaákvæða sem getið er í ákæru.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Kristjáns Gunnars Valdimarssonar lögmanns, 241.056 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 163.540 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari. Karitas Rán Garðarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X, sæti fangelsi í 4 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttinda ákærða. Ákærði sæti upptöku á 2,64 g af kókaíni.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Kristjáns Gunnars Valdimarssonar lögmanns, 241.056 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 163.540 krónur í annan sakarkostnað.
Karitas Rán Garðarsdóttir