Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

392 dómar fundust

Lykilorð: Akstur án ökuréttar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2026 kl. 16:23

S-3226/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Söndru Rún Raybould (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir m.a. þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum vímuefna án ökuréttinda og fyrir vörslur fíkniefna. Var henni gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og hún svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. desember 2025

S-590/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn Valentin Pintilie (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárás, nytjastuld og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða sekt og hann sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. nóvember 2025

S-5330/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Guðmundi Kristjáni Kristjónssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 45 daga ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. október 2025

S-2685/2025

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Gintaras Vaikutis (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 15. september 2025

S-293/2025

Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Marcis Horns
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti. Hegningarauki. Ekki gerð sérstök refsing.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. ágúst 2025

S-3135/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Nerijus Peciulaitis
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. febrúar 2025

S-6960/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Benedikt Torfa Ólafssyni Zoéga (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnlagabrot. Um var að ræða rof á skilorði fyrra dóms sem var dæmt upp, ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi og sviptur ökruétti í 5 ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. janúar 2025

S-1844/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bjarna Má Jónssyni (Snorri Sturluson lögmaður) og Ragnari Ólafssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærðu sakfelldir fyrir þjófnað en annar þeirra einnig fyrir fíkniefnalagabrot, ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttar, nytjastuld og eignaspjöll. Játningarmál.

Landsréttur birt 17. desember 2024

236/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ívari Aroni Hill Ævarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Í var sakfelldur með dómi héraðsdóms fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og tilraun til ráns með því að hafa stungið A þrisvar sinnum með hnífi og reynt að taka reiðhjól hans. Þá var Í sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, akstur sviptur ökuréttindum og undir áhrifum fíkniefna, vörslur fíkniefna og fjársvik. Fyrir Landsrétti var einungis til endurskoðunar ákvæði hins áfrýjaða dóms um refsingu Í, þóknun verjanda hans og frádrátt gæsluvarðhalds. Við ákvörðun refsingar Í var litið til þess að um var að ræða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og einnig ákvæði 77. gr. sömu laga. Jafnframt var litið til ákvæða 1., 2., 3., 6., og 8. töluliðar 70 gr. almennra hegningarlaga og refsilækkunarsjónarmiða 5. töluliðar. 1. mgr. 70. gr. sömu laga. Þar sem líkamsárás Í var sérstaklega hættuleg og að jafnframt var um að ræða tilraun til ráns, var litið til þess að Í hafði áður hlotið dóma fyrir ofbeldis- og auðgunarbrot. Var því horft til ákvæða 1. mgr. 218 gr. c og 255 gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar. Var refsing Í ákveðin fangelsi í þrjú ár og ákvæði hins áfrýjaða dóms um ævilanga sviptingu ökuréttar og upptaka fíkniefna staðfest. Þá dregst gæsluvarðhaldsvist Í frá refsingu hans.

Landsréttur birt 21. nóvember 2024

38/2024

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Höskuldi Pétri Jónssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) (Þórður Bogason lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var ákærður fyrir hættubrot og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sinni án gildra ökuréttinda og á vítaverðan og ógnandi hátt að bifreið sem A og B voru í, veitt þeim eftirför og gert tilraun til að þvinga þau út af veginum og að hafa með þeirri háttsemi stofnað lífi og heilsu A og B í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt. Þá var H ákærður fyrir brot gegn lögreglulögum og vopnalagabrot. Með hinum áfrýjaða dómi var H sakfelldur samkvæmt öllum liðum ákærunnar. Að virtum gögnum málsins, framburði A og B fyrir héraðsdómi og eindreginni neitun H, var ekki talið sannað að H hefði gerst sekur um hættubrot og var hann sýknaður af því broti. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans um sakfellingu ákærða vegna brota gegn umferðarlögum, lögreglulögum og vopnalögum á hinn bóginn staðfest. Var refsing H ákveðin 100.000 króna sekt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. nóvember 2024

S-249/2023

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Þór Gunnarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og Hólmfríði Lilju Gylfadóttur (Jón Stefán Hjaltalín Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, auk nytjastuldar ökutækis og þjófnað í félagi við H. H var sakfelld fyrir tvær líkamsárásir, nytjastuld ökutækis, mörg þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot, auk þess að hafa í félagi við E gerst sek um þjófnað og nytjastuld. E var dæmdur í fangelsi í 10 mánuði en H dæmd í fangelsi í 14 mánuði auk greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 21. júní 2024

768/2023

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var ákærður fyrir hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti utan vegar og olli tjóni á umferðarmerkjum og hafi ákærði yfirgefið vettvang án þess að tilkynna tjónið. X neitaði að hafa ekið bifreiðinni í umrætt sinn og kvað vinkonu sína, A, hafa ekið bifreiðinni en enginn var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Í dómi Landsréttar var rakið að engin vitni hefðu borið um að hafa séð X aka bifreiðinni og engum öðrum gögnum væri til um það að dreifa. Þá var tekið fram að þrátt fyrir að framburður X hjá lögreglu í kjölfar atviksins hafi verið óljós og misvísandi um það hver hefði ekið bifreiðinni og um tildrög þess að viðkomandi hafi farið af vettvangi, yrði ekki horft fram hjá því að A hafi borið um það að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar í umrætt sinn og að hafa farið af vettvangi áður en lögreglan kom. Þá fengi framburður A stoð í trúverðugum framburði föður hennar sem kannaðist við að hafa komið að sækja hana eftir umferðaróhapp. Taldi Landsréttur því með vísan til 1. mgr. 109. gr. laga um meðferð sakamála að ekki væri næg sönnun komin fyrir því að X hefði ekið bifreiðinni, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana-og fíkniefna og slævandi lyfja í umrætt sinn og vanrækt að tilkynna um tjón sem hlaust af akstrinum. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2024

S-523/2024

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir settur saksóknari) gegn Shokri Keryo (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Skotárás. Ákærði sakfelldur fyrir hættubrot, eignaspjöll, umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í fangelsi í 3 ár og 6 mánuði, sviptur ökurétti og dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. apríl 2024

S-7232/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Erlu Ingibjörgu Árnadóttur (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða, sem játaði brot sín, dæmd til refsingar fyrir akstur svipt ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. febrúar 2024

S-7786/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Mohammed EL Amin Amokrane (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 45 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. janúar 2024

S-6868/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ruslan Aliyeu
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals, umferðarlagabrot og brot gegn útlendingalögum og gert að sæta fangelsi í 75 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað í 2 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. október 2023

S-4805/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Siriket Maneenak
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera svipt ökuréttindum ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. september 2023

S-468/2023

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Kristínu Valgerði Gallagher (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og dæmd í 12 mánaða fangelsi. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Játningarmál.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júlí 2023

S-995/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Sigursteini Pétri Steinarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað og nytjastuld, vopnalagabrot, umferðar og fíkniefnalagabrot. Ákærða var gert að sæta 10 mánaða fangelsi og ævlöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júlí 2023

S-3219/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn X (Kristján Gunnar Valdimarsson)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2023

S-3421/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Stefáni Erni Oddssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot. Þá var hann sakfelldur fyrir rangar sakargiftir fyrir að framvísa ökuskírteini í eigu annars manns. Ákærða var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti í 5 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. maí 2023

S-2731/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Erlendi Óla Guðmundssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlaga, fíkniefna og vopnalagabrot og dæmdur til upptöku nánar tilgreindra efna, peninga og ýmissa muna, ásamt því að ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. maí 2023

S-360/2023

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Bjarka Fannari Smárasyni (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Ákærði dæmdur til 19 mánaða fangelsisvistar, hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða 489.482 krónur í sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. janúar 2023

S-1272/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Víði Gíslasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot, þá var einnig um að ræða rof á skilyrðum reynslulausnar og refsing samkvæmt henni dæmd upp. Dæmdur í 12 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. október 2022

S-3515/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Rafni B. Norðdahl (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur til greiðslu sektar og til að sæta sviptingu ökuréttar tímabundið.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 7. apríl 2022

S-66/2021

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Friðriki Stefánssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka í fjórgang sviptur ökurétti og í öll skiptin undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna, auk þess að vera sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. desember 2021

S-4272/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Eydísi Hönnu Ívarsdóttur (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þjófnaðarbrot og nytjastuld. Dæmd til að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. nóvember 2021

S-3749/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Adam Piet
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, skilorðsbundið til 2 ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefni og ákærði sviptur ökurétti í 3 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. júní 2021

S-8558/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Leon Augustus Baptiste (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og sérrefsilagabrot. Gert að sæta fangelsi í 90 daga. Til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem ákærði sætti vegna málsins. Ákærði var sviptur ökurétti í 5 ár. Fíkniefni og vopn gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. mars 2021

S-3014/2020

Ákæruvaldið (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Aroni Vigni Erlendssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir akstur án ökuréttar og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk brota á vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. febrúar 2021

S-1577/2020

Ákæruvaldið (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, gripdeild og akstur án ökuréttar og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. febrúar 2021

S-5096/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Alex Guðbjörnssyni (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot auk hegningar- og fíkniefnalagabrota. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 10 mánuði og hann sviptur ökuréttindum ævilangt. Fíkniefni gerð upptæk.

Hleð fleiri dómum…