Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 619/2012"

5 dómar fundust

Landsréttur birt 8. mars 2019

563/2018

Dodda ehf (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

D ehf. sótti um úthlutun byggðakvóta fyrir bát sinn fiskveiðiárið 2011/2012 fyrir Kópasker en D ehf. var með skráð heimilisfang á Húsavík. Skömmu áður hafði sveitarfélagið Norðurþing óskað eftir breytingu á því skilyrði almennra úthlutunarreglna byggðakvóta til fiskiskipa fyrir umrætt fiskveiðiár, að fiskiskip sem sótt væri um byggðakvóta fyrir væri í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Laut beiðni sveitarfélagsins að því að fullnægjandi væri að eigandi viðkomandi skips hefði heimilisfang innan sveitarfélagsins. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði samþykkt slíka breytingu fyrir fiskveiðiárið á undan og hafði D ehf. þá fengið úthlutað hluta af byggðakvóta Kópaskers þrátt fyrir að vera ekki með heimilisfang þar. Ráðuneytið hafnaði aftur á móti beiðni sveitarfélagsins þar sem ekki var talin hætta á að ekki næðist að úthluta byggðakvóta Kópaskers, eins og verið hefði fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Þar af leiðandi var umsókn D ehf. hafnað á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki fyrrgreint skilyrði um heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi. Í málinu krafðist D ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í á tjóni D ehf. vegna höfnunar á úthlutun byggðakvóta Kópaskers fiskveiðiárið 2011/2012 fyrir bát D ehf. Byggði D ehf. kröfu sína meðal annars á því að höfnun ráðuneytisins á beiðni Norðurþings um breytingu á reglum um heimilisfesti útgerða hafi verið ólögmæt stjórnvaldsákvörðun. Niðurstaða Landsréttar var að umrædd ákvörðun hafi átt sér fullnægjandi lagastoð, mat ráðuneytisins hafi verið málefnalegt og gætt hafi verið að ákvæðum stjórnsýslulaga. Þá hefði D ehf. ekki getað haft réttmætar væntingar til þess að fá úthlutað byggðakvóta þar sem ráðuneytið hafði þegar hafnað beiðni Norðurþings um breytingu á skilyrði um heimilisfesti. Þá var D ehf. ekki talinn hafa lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr um lögmæti úthlutunar byggðakvóta til annarra útgerða sem uppfylltu almenn skilyrði til slíkrar úthlutunar. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í af kröfum D ehf. því staðfest.

...0,77. Sama gildi í síðari stjórnvaldsfyrirmælum um það efni, sbr. m.a. reglugerð nr. 619/2012 um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda og þorskígildisstuðla fiskveiðiárið 2012/2013 og reglugerð...

Landsréttur birt 8. mars 2019

540/2018

Birnir ehf Flóki ehf og Sólberg ehf (Jón Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

B ehf., F ehf. og S ehf. kröfðust endurgreiðslu á sérstöku veiðigjaldi, sem þeim var gert að greiða, á grundvelli þágildandi laga nr. 74/2012 um veiðigjöld vegna veiða skipa þeirra á úthafsrækju fiskveiðiárið 2012-2013. Áfrýjendur töldu að álagning veiðigjaldsins fyrir umrætt fiskveiðiár hefði verið ólögmæt þar sem hún hefði ekki verið í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar um skattheimtu, sbr. 72. og 77. gr. og jafnræðisreglu 65. gr. hennar. Í dómi Landsréttar kom fram að hið sérstaka veiðigjald væri skattur í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar og væri markmiðum álagningar þess lýst í 2. gr. laga nr. 74/2012. Með vísan til dóms Hæstaréttar í máli nr. 213/2016, þar sem fram kæmi að löggjafinn hefði með ákvörðun sinni um hið sérstaka veiðigjald tekið rökstudda afstöðu til fjárhæðar gjaldsins og hún verið reist á málefnalegum grunni, væri talið að löggjafanum hefði verið heimilt að leggja til grundvallar þær forsendur sem lágu að baki ákvörðun hins sérstaka veiðigjalds. Gæti afkoma eða arðsemi af rækjuveiðum áfrýjenda á umræddu fiskveiðiári engu breytt um lögmæti álagningar veiðigjaldsins. Þá var með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms hvorki talið að útreikningur hins sérstaka veiðigjalds hefði falið í sér ólögmætt framsal skattlagningarvalds né að álagning veiðigjaldsins hefði brotið gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. Var því íslenska ríkið sýknað af öllum kröfum áfrýjenda.

...Um þorskígildisstuðla vegna úthafsrækju fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 hafi verið fjallað í reglugerð nr. 619/2012 sem eigi sér stoð í 19. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. febrúar 2017

E-599/2017

Birnir ehf Flóki ehf og Sólberg ehf (Jón Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Hafnað var kröfu stefnenda um endurgreiðslu sérstaks veiðigjalds sem lagt var á úthafsrækjuafla skipa þeirra fiskveiðiárið 2012/2013, samkvæmt a. lið bráðabirgðaákvæði I í lögum nr. 74/2012, um veiðigjöld. Ekki var fallist á þá málsástæðu að skattheimtan væri ólögmæt, í andstöðu við nánar greind ákvæði stjórnarskrár eða að um ólögmætt framsal skattlagningarvalds væri að ræða.

...Um þorskígildisstuðla vegna úthafsrækju fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 hafi verið fjallað í reglugerð nr. 619/2012 sem eigi sér stoð í 19. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006...

Hæstiréttur birt 28. janúar 2016

461/2015

Halldór fiskvinnsla ehf (Jón Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Í málinu krafðist H ehf. endurgreiðslu veiðigjalda sem hann greiddi fiskveiðiárið 2012/2013 vegna landaðs afla í fisktegundum sem ekki sættu ákvörðun um heildarafla, en um var að ræða tindaskötu, hlýra, rauðmaga og grásleppu. Taldi hann að veiðigjöld af þessu tagi væru skattar og að skattlagningin uppfyllti ekki skilyrði stjórnarskrár um skattlagningu, jafnræði og vernd eignarréttar. Talið var að veiðar H ehf. á umræddum tegundum hefðu verið háðar stjórn fiskveiða í skilningi laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og því skylt samkvæmt 20. gr. þeirra að greiða veiðigjöld af þessum tegundum, svo sem í lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld greindi. Ekki var fallist á með H ehf. að það að miða gjaldstofn veiðigjalds við þorskígildi hefði falið í sér ólögmætt framsal á skattlagningarvaldi til stjórnvalda þannig að færi í bága við 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Þá var talið að sú málsástæða H ehf. að umrædd gjaldtaka stæðist ekki ákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar væri engum haldbærum rökum studd og var henni því hafnað. Við mat á því hvort skattlagningin hefði farið í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar var litið til þess að aðstaða H ehf., sem gerði út aflamarksbát, og þeirra sem gerðu út báta með krókaaflamarki hefði á umræddum tíma verið ósambærileg varðandi tegundirnar tindaskötu, hlýra og rauðmaga. Hefðu álögð veiðigjöld á H ehf. vegna þessara tegunda því ekki brotið í bága við 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Á hinn bóginn var talið að aðstaða þeirra væri sú sama þegar um væri að ræða veiðar á grásleppu þar sem við stjórn þeirra veiða hafði ekki verið gerður munur á þessum tvenns konar bátum, auk þess sem veiðarfærin gætu í báðum tilvikum verið þau sömu. Talið var að í þessu hefði falist ómálefnaleg mismunun sem hefði verið í andstöðu við 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var Í því gert að greiða H ehf. nánar tilgreinda fjárhæð.

...Þorskígildisstuðlar vegna fiskveiðiársins hvíldu á reglugerð nr. 619/2012, um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda og þorskígildisstuðla fiskveiðiárið 2012/2013. Skipting milli einstakra tegunda var með eftirfarandi hætti: Tegund Afli...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. maí 2015

E-2568/2014

Halldór fiskvinnsla ehf (Jón Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Álögð veiðigjöld.

...Þorskígildisstuðlar vegna fiskveiðiársins hvíldu á reglugerð nr. 619/2012, um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda og þorskígildisstuðla fiskveiðiárið 2012/2013. Skipting milli einstakra tegunda var með eftirfarandi hætti: Tegund            Afli...