Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Veiðigjald

Landsréttur birt 8. mars 2019

540/2018

Birnir ehf Flóki ehf og Sólberg ehf (Jón Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

B ehf., F ehf. og S ehf. kröfðust endurgreiðslu á sérstöku veiðigjaldi, sem þeim var gert að greiða, á grundvelli þágildandi laga nr. 74/2012 um veiðigjöld vegna veiða skipa þeirra á úthafsrækju fiskveiðiárið 2012-2013. Áfrýjendur töldu að álagning veiðigjaldsins fyrir umrætt fiskveiðiár hefði verið ólögmæt þar sem hún hefði ekki verið í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar um skattheimtu, sbr. 72. og 77. gr. og jafnræðisreglu 65. gr. hennar. Í dómi Landsréttar kom fram að hið sérstaka veiðigjald væri skattur í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar og væri markmiðum álagningar þess lýst í 2. gr. laga nr. 74/2012. Með vísan til dóms Hæstaréttar í máli nr. 213/2016, þar sem fram kæmi að löggjafinn hefði með ákvörðun sinni um hið sérstaka veiðigjald tekið rökstudda afstöðu til fjárhæðar gjaldsins og hún verið reist á málefnalegum grunni, væri talið að löggjafanum hefði verið heimilt að leggja til grundvallar þær forsendur sem lágu að baki ákvörðun hins sérstaka veiðigjalds. Gæti afkoma eða arðsemi af rækjuveiðum áfrýjenda á umræddu fiskveiðiári engu breytt um lögmæti álagningar veiðigjaldsins. Þá var með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms hvorki talið að útreikningur hins sérstaka veiðigjalds hefði falið í sér ólögmætt framsal skattlagningarvalds né að álagning veiðigjaldsins hefði brotið gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. Var því íslenska ríkið sýknað af öllum kröfum áfrýjenda.

Hæstiréttur birt 23. mars 2017

213/2016

Vinnslustöðin hf (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Ágreiningur aðila laut að því hvort V hf. ætti rétt á endurgreiðslu sérstaks veiðigjalds, sem lagt hafði verið á vegna aflaheimilda og landaðs afla skipa hans fiskveiðiárið 2012/2013 og Í hafði innheimt hjá honum á grundvelli laga nr. 74/2012 um veiðigjöld. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með hliðsjón af því hve skatthugtakið hefði verið skýrt rúmt í 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar yrði að líta svo á að umrætt veiðigjald væri skattur í merkingu þeirra stjórnarskrárákvæða. Breytti í því efni engu þótt gjaldinu væri öðrum þræði ætlað að fela í sér endurgjald fyrir nýtingu á þeirri þjóðareign, sem nytjastofnar á Íslandsmiðum væru, svo sem mælt væri fyrir um í 1. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Sökum þess að um væri ræða endurgjald fyrir afnot þessara takmörkuðu náttúruauðlinda úr hendi þeirra, sem fengið hefðu aðgang að þeim gæðum fyrir atbeina ríkisvaldsins, veitti það löggjafanum rýmri heimild en ella til að skattleggja arð af slíkri nýtingu. Að virtum lögskýringagögnum var fallist á með Í að löggjafinn hefði með ákvörðun sinni um hið sérstaka veiðigjald tekið rökstudda afstöðu til fjárhæðar gjaldsins og hún því verið reist á málefnalegum grunni, auk þess sem gjaldinu hefði verið í hóf stillt. Þá var talið að það hefði stuðst við málefnaleg rök af hálfu löggjafans að ákveða að lækka tímabundið og jafnvel fella niður hið sérstaka veiðigjald hjá gjaldendum vegna fjármagnskostnaðar af lánum sem þeir höfðu tekið fyrir gildistöku laganna til kaupa á aflaheimildum af öðrum. Af þeim sökum hefði ekki falist í bráðabirgðaákvæðum laganna slík mismunun gagnvart V hf., sem ekki hafði skuldsett sig með þessum hætti, að með þeim væri brotið gegn jafnræðisreglu 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var Í sýknað af endurgreiðslukröfu V hf.

Hæstiréttur birt 28. janúar 2016

461/2015

Halldór fiskvinnsla ehf (Jón Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Í málinu krafðist H ehf. endurgreiðslu veiðigjalda sem hann greiddi fiskveiðiárið 2012/2013 vegna landaðs afla í fisktegundum sem ekki sættu ákvörðun um heildarafla, en um var að ræða tindaskötu, hlýra, rauðmaga og grásleppu. Taldi hann að veiðigjöld af þessu tagi væru skattar og að skattlagningin uppfyllti ekki skilyrði stjórnarskrár um skattlagningu, jafnræði og vernd eignarréttar. Talið var að veiðar H ehf. á umræddum tegundum hefðu verið háðar stjórn fiskveiða í skilningi laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða og því skylt samkvæmt 20. gr. þeirra að greiða veiðigjöld af þessum tegundum, svo sem í lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld greindi. Ekki var fallist á með H ehf. að það að miða gjaldstofn veiðigjalds við þorskígildi hefði falið í sér ólögmætt framsal á skattlagningarvaldi til stjórnvalda þannig að færi í bága við 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Þá var talið að sú málsástæða H ehf. að umrædd gjaldtaka stæðist ekki ákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar væri engum haldbærum rökum studd og var henni því hafnað. Við mat á því hvort skattlagningin hefði farið í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar var litið til þess að aðstaða H ehf., sem gerði út aflamarksbát, og þeirra sem gerðu út báta með krókaaflamarki hefði á umræddum tíma verið ósambærileg varðandi tegundirnar tindaskötu, hlýra og rauðmaga. Hefðu álögð veiðigjöld á H ehf. vegna þessara tegunda því ekki brotið í bága við 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Á hinn bóginn var talið að aðstaða þeirra væri sú sama þegar um væri að ræða veiðar á grásleppu þar sem við stjórn þeirra veiða hafði ekki verið gerður munur á þessum tvenns konar bátum, auk þess sem veiðarfærin gætu í báðum tilvikum verið þau sömu. Talið var að í þessu hefði falist ómálefnaleg mismunun sem hefði verið í andstöðu við 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var Í því gert að greiða H ehf. nánar tilgreinda fjárhæð.