Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lög: Lög um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum. nr. 85/1991
S ehf. og dótturfélag þess sameinuðust á reikningsárinu 2012 undir nafni og kennitölu S ehf. Við sameininguna færði S ehf. yfirfæranlegt tap dótturfélagsins frá reikningsárunum 2008 og 2009 til frádráttar tekjum í skattframtölum sínum árin 2013 og 2014 og nýtti hið sameinaða félag rekstartapið í skattskilum sínum. Í ágúst 2015 kynnti ríkisskattstjóri S ehf. fyrirhugaða endurákvörðun opinberra gjalda S ehf. árin 2013 og 2014. Með úrskurði í febrúar 2016 felldi ríkisskattstjóri niður ónotað rekstrartap dótturfélagsins frá árunum 2008 og 2009 í skattframtölum S ehf. árin 2013 og 2014 og beitti jafnframt álagi á vanframtalda tekjustofna. Yfirskattanefnd staðfesti þann úrskurð með úrskurði í febrúar 2017 en taldi að fella bæri álagið niður. Í kjölfarið höfðaði S ehf. mál þetta og krafðist þess að úrskurðirnir yrðu felldir úr gildi. Þá var einnig krafist endurgreiðslu þess sem félagið hefði innt af hendi til samræmis við úrskurð yfirskattanefndar. Héraðsdómur féllst á þær kröfur. Í dómi Landsréttar var rakið að ákvæði 54. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt fæli í sér sérreglu gagnvart 51. gr. sömu laga en það hefði að geyma viðbótarskilyrði fyrir því að rekstrartap flyttist við samruna til þess félags sem tæki við. Samkvæmt ákvæðinu þyrftu félögin að hafa með höndum skyldan rekstur og eða starfsemi. Þá flyttist tap ekki milli félaga við sameiningu þegar það félag sem slitið væri ætti fyrir slitin óverulegar eignir eða hefði engan rekstur með höndum. Jafnframt yrði sameining félaga að vera gerð í venjulegum og eðlilegum rekstrartilgangi og hið yfirfærða tap að hafa myndast í sams konar rekstri og það félag sem við tæki hefði haft með höndum. Í ákvæðinu fælist þannig takmörkun á þeirri meginreglu um heimild til frádráttar frá tekjum við samruna sem mælt væri fyrir um í 1. mgr. 51. gr. laganna. Í málinu væri ekki um það deilt að við þann samruna sem til umfjöllunar væri hefði verið uppfyllt það skilyrði að félögin tvö hefðu haft með höndum skyldan rekstur eða starfsemi og að tap yfirtekna félagsins hefði myndast í sams konar rekstri og yfirtökufélagið hefði stundað. Þótt játa yrði hluthöfum töluvert frelsi til að haga skipulagningu hlutafélaga með þeim hætti sem þeir kysu hverju sinni hvíldi á S ehf. að sýna fram á að venjulegur og eðlilegur rekstrartilgangur hafi legið að baki samrunanum. Þegar litið væri til þeirra skýringa sem S ehf. hefur gefið á samrunanum og takmarkaðra umsvifa dótturfélagsins yrði ekki talið að S ehf. hefði tekist það. Þvert á móti væri nærtækast að líta svo á, að öllum atvikum virtum, að tilgangur sameiningarinnar hefði í reynd verið sá að nýta uppsafnað rekstrartap hins yfirtekna félags. Var Í því sýknað af kröfum S ehf.
Stefnandi krafðist þess að úrskurður yfirskattanefndar frá 2017 og úrskurður ríkisskattstjóra frá febrúar 2016, um endurákvörðun opinberra gjalda stefnanda gjaldárin 2013 og 2014, yrði felldir úr gildi og stefnda gert að endurgreiða stefnanda oftekna skatta og gjöld ásamt vöxtum. Fallist var á kröfu stefnanda.
Í málinu var deilt um heimild stefnanda, sbr. 8. tl. 31. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, til að nýta rekstrartap, sem myndast hafði í ferðaskrifstofurekstri stefnanda á árunum 2000 og 2001, til lækkunar á rekstarhagnaði hans, rekstrarárin 2004, 2005 og 2006, en á þeim árum hafði stefnandi haft með höndum kaup og sölu verðbréfa, fyrir eigin reikning. Ekki var fallist á heimild stefnanda til að nýta rekstrartöpin með þessum hætti.
Fyrirtækin Kirkjusandur hf. (K) og Matvælaiðjan Strýta hf. (M) sameinuðust á árinu 1996 undir nafni M. Hið nýstofnaða M sameinaðist þann 1. júlí 1996 fimm öðrum fyrirtækjum undir nafni S, sem tók þá yfir skattaleg réttindi og skyldur M. Við samruna M og K var ætlunin að færa uppsafnað tap K yfir til M og var það gert með þeim hætti að hluti tapsins var nýttur til frádráttar skattskyldum tekjum M gjaldárið 1996 og afgangurinn gjaldárið 1997 í framtali S. Með úrskurði ríkisskattstjóra frá 16. desember 1997 var meðal annars kveðið á um að skilyrði 57. gr. A laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignaskatt hefðu ekki verið uppfyllt vegna gjaldársins 1997 og því væri fellt niður tap sem fært hefði verið til frádráttar tekjum M. Hæstiréttur féllst hins vegar á það með héraðsdómi að skilyrðum nefnds ákvæðis hefði verið fullnægt. Um skyldan rekstur umræddra fyrirtækja hefði verið að ræða, auk þess sem skilyrðum 57. gr. A um eignastöðu og rekstur K, svo og því skilyrði, að hið yfirfærða tap hafi myndast í sams konar rekstri, væri fullnægt. Þá var einnig fallist á það að samruninn hefði verið gerður í eðlilegum og venjulegum rekstrartilgangi, en ekki í þeim eina tilgangi að ná fram skattalegu hagræði. Samkvæmt því var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að fella úr gildi þann hluta úrskurðar ríkisskattstjóra, sem laut að endurákvörðun opinberra gjalda S vegna gjaldársins 1997.
Hluthafar í hlutafélaginu F keyptu í árslok 1990 öll hlutabréf í hlutafélaginu H á nafnverði. Hlutafélagið H var síðan strax sameinað hlutafélaginu F og fengu hlutafarnir aukið hlutafé fyrir. Tveimur dögum síðar voru allar eignir og skuldir sem tilheyrt höfðu H seldar nýju félagi, Þ, en eigendur þess voru að mestu leyti þeir sömu og áður höfðu átt H. Var tilgangur þessara eignayfirfærslna sá einn, að nýta yfirfæranlegt tap H á móti rekstrarhagnaði F við álagningu tekjuskatts. Var tilgangi þessum m.a. lýst í kaupsamningi sem fylgdi skattframtali F vegna rekstrarársins 1990. F nýtti tapið vegna álagningar árin 1991, 1992 og 1993 en árið 1994 lagði skattstjóri tekjuskatt vegna þessara ára að nýju á F og taldi að óheimilt hefði verið að nýta tapið þar sem ekki hefði verið um að ræða algjöran samruna í skilningi skattaréttar. Féllst yfirskattanefnd á hina breyttu álagningu í úrskurði. F stefndi ríkinu til að fá álagningu þessari hnekkt. Taldi hann álagninguna vera efnislega ranga auk þess sem tveggja ára frestur skattstjóra til að endurskoða fyrri álagningu sína hefði verðið liðinn. Talið var að ekki hefði verið um algjöran samruna að ræða. Þá var talið að í framtali ársins 1991 og fylgigögnum þess hefði ekki verið að finna fullnægjandi upplýsingar til að byggja á rétta álagningu skattsins. Hefði skattstjóri því haft sex ára frest til að endurskoða álagningu sína. Var ríkið því sýknað af kröfum F.