Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta, tolla og gjöld (samsköttun félaga, takmörkun á frádrætti vaxtagjalda, leigutekjur, virðisaukaskattur, vörugjald af grindarbílum o.fl.). nr. 59/2017

Landsréttur birt 10. júní 2022

300/2021

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Lúðvík Örn Steinarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

X var ákærð fyrir tollalagabrot á árunum 2016 til 2018 í tengslum við innflutning A ehf. og B ehf. á nautakjötsafurðum. Landsréttur taldi sannað að X hefði komið því til leiðar að tollmiðlari tilgreindi afurðir ranglega í aðflutningsskýrslum fyrir tollafgreiðslu undir tollskrárnúmeri 0202.2009 sem kjöt með beini í stað réttrar tilgreiningar undir tollskrárnúmeri 0202.3009 sem beinlaust kjöt. Í því hafi falist að veittar voru rangar upplýsingar um tegund vöru, sbr. 1. mgr. 172. gr. tollalaga nr. 88/2005. Þá var talið sannað að X hefði gert sér grein fyrir því að þær upplýsingar sem hún gaf kynnu að vera rangar en látið sér það í léttu rúmi liggja og veitt upplýsingarnar eigi að síður. Skilyrði um ásetning væru þar með uppfyllt. Var X því sakfelld samkvæmt ákæru og dæmd til greiðslu sektar að fjárhæð 39.179.512 krónur en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. nóvember 2021

S-3883/2021

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Mosad Badr Abdel Salam Mansour (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Kristínu Jónsdóttur (Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir tollalagabrot og hlutdeild í tollalagabroti. Sýknað af einum ákærulið vegna sakarfyrningar.