Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 17. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 20. mars 2025

162/2024

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Árekstur varð með tveimur ökutækjum, bifreið og bifhjóli lögreglu sem var að fylgja sjúkrabifreið í neyðarakstri með sjúkling á sjúkrahús. Bifreiðin var tryggð lögboðnum ábyrgðar- og slysatryggingum hjá S hf. en bifhjólið var tryggt með sömu tryggingum hjá V hf. S hf. greiddi bætur vegna líkamstjóns ökumanna bifreiðarinnar og bifhjólsins og vegna tjóns á bifreiðinni og endurkrafði V hf. um helming þeirra fjárhæða. Byggði S hf. á því að ökumennirnir bæru jafna ábyrgð á árekstrinum og því bæri að skipta tjóninu jafnt með vísan til ákvæðis 89. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. V hf. hafnaði greiðsluskyldu og taldi að sá lögreglumaður sem ók bifhjólinu umrætt sinn hefði ekki sýnt af sér sök með akstri sínum. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að engin umferð hefði verið á þeirri akrein sem bifhjólið ók eftir og bifreiðar á hinni akreininni hefðu verið kyrrstæðar. Þar sem skilyrði 7. gr. reglna nr. 643/2004 um neyðarakstur hefðu verið uppfyllt og engin umferð á þeirri akrein sem bifhjólið ók á hefði ökumanni þess verið heimilt að víkja frá hátternisreglum umferðarlaga við aksturinn. Ökumaður bifhjólsins hefði ekki mátt gera ráð fyrir því að kyrrstæð ökutæki á hinni akreininni myndu beygja yfir óbrotna línu inn á þá akrein þar sem hann var og í veg fyrir bifhjólið. Var það því ekki metið ökumanni bifhjólsins til sakar að hafa vikið frá hátternisreglum umferðarlaga við aksturinn. Taldist hann af þeirri ástæðu ekki hafa sýnt af sér sök. Voru skilyrði 89. gr. þágildandi umferðarlaga fyrir skiptingu tjóns þar með ekki uppfyllt. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu V hf. af kröfum S hf.

Landsréttur birt 3. febrúar 2023

708/2021

Vátryggingafélag Íslands hf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður) gegn A (Hilmar Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

V hf. höfðaði mál vegna endurkröfu á hendur A vegna greiðslu úr húftryggingu bifreiðarinnar X en V hf. taldi að A hefði fyrir sitt leyti valdið tjóninu með stórfelldu gáleysi. Í dómi Landsréttar var rakið að niðurstaða greiningar sem lögregla aflaði á ökuhraða bifreiðarinnar væri sú að ætlaður hraði bifreiðarinnar hafi verið 102 kílómetrar á klukkustund, mögulegur lágmarkshraði 96 kílómetrar á klukkustund og mögulegur hámarkshraði 110 kílómetrar á klukkustund. Niðurstaða skýrslunnar fengi jafnframt stoð í vitnisburði C og B. Dómstólar hefðu margoft lagt hraðaútreikninga sem lögregla aflar við rannsókn mála til grundvallar dómsniðurstöðu. Stefndi hefði hvorki bent á hnökra í greiningu skýrsluhöfundar né freistað þess að hnekkja niðurstöðu hans. Var niðurstaða hennar því lögð til grundvallar og þótti sannað að stefndi hafi umrætt sinn ekið á að minnsta kosti 96 kílómetra hraða á klukkustund eða 36 kílómetrum yfir leyfilegum hámarkshraða. Þá taldi Landsréttur að slá mætti því föstu í ljósi þess hraða sem A hafi verið á og á grundvelli framburða vitnanna Þ og B, að A hefði ekki gætt nægilega að sér, ekki fylgst með umferð framundan og skipt um akrein of seint. Hefði akstur stefnda verið mjög háskalegur og hann með háttsemi sinni sýnt af sér stórkostlegt gáleysi í skilningi 2. mgr. 19. gr. skaðabótalaga. Þá var ekki fallist á að krafa V hf. væri fallin niður sökum samsömunar í skilningi 29. og 39. gr. laga nr. 30/2004. Ekki var heldur fallist á að V hf. hefði sýnt af sér tómlæti við innheimtu kröfunnar þannig varði niðurfellingu kröfu hans á hendur A. Loks þóttu ekki skilyrði til að lækka kröfu V hf. á grundvelli 24. gr. eða 2. málsliðar 2. mgr. 25. gr. skaðabótalaga. Var því fallist á kröfur V hf. og A gert að greiða V hf. endurkröfufjárhæðina ásamt tilgreindum vöxtum, auk málskostnaðar á báðum dómstigum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. október 2022

E-705/2022

Sjöfn Garðarsdóttir (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennt var að stefnda bæri að greiða stefnanda helming af munatjóni hennar, sem orsakast hafði af árekstri í hópakstri bifhjólamanna.

Landsréttur birt 5. apríl 2019

182/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Arnari Frey Logasyni (Hildur Sólveig Pétursdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

AF var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa ekið hjólabát aftur á bak án nægjanlegrar aðgæslu þannig að hjólabáturinn hafnaði á gangandi vegfaranda, A, með þeim afleiðingum að hún lést. Var refsing AF ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var AF sviptur ökurétti í sex mánuði.

Héraðsdómur Austurlands birt 10. janúar 2018

S-29/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Arnari Frey Logasyni (Áslaug Gunnlaugsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem bakkaði hjólabát á gangandi vegfaranda með þeim afleiðingum að hann lést, var sakfelldur fyrir hegningarlagabrot (manndráp af gáleysi) og umferðarlagabrot. Refsing var ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti í sex mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. október 2011

E-127/2011

Ian Stuart Stephenson (Hjördís Edda Harðardóttir hrl) gegn A 1988 hf og Tryggingamiðstöðinni hf. til réttargæslu
Lykilorð: Skaðabætur. Vinnuslys.

Viðurkennd var óskipt skaðabótaábyrgð stefnda, A 1988 hf. (áður Eimskip hf.,), vegna slyss er stefnandi varð fyrir, við árekstur tveggja gámadráttarbifreiða, á vinnusvæði stefnda í febrúar 2008.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2006

100/2006

Rúnar Þröstur Grímsson og Jóna Magnúsdóttir (Jón Einar Jakobsson hdl) gegn Þorleifi Jónssyni og Tryggingamiðstöðinni hf (Guðmundur Pétursson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þann 16. janúar 2004 varð árekstur bifreiða, sem ekið var suður Kringlumýrarbraut í Reykjavík. R ók bifreið sinni á miðakrein, af þremur akreinum, en ákvað að skipta yfir á vinstri akrein þar sem mun minna var af ökutækjum og umferðin gekk greiðar. Þ sagðist ekki hafa átt von á að ökutæki væri ekið svo skyndilega út á þá akrein sem hann ók um og keyrði hann því aftan á bifreið R. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti, segir að meginorsök harkalegs áreksturs bifreiðanna hafi verið sú að R hafi ekki gætt þess áður en hann skipti um akrein að ganga úr skugga um að það væri að teknu tilliti til aðstæðna unnt án hættu fyrir aðra, sbr. 2. mgr. 17. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Hins vegar var talið að Þ hefði mátt búast við að bifreiðar skiptu yfir á vinstri akreinina, líkt og hann hafði sjálfur gert skömmu fyrir áreksturinn. Einnig þótti sýnt að áreksturinn hefði að hluta orsakast af því að Þ hefði ekið of hratt miðað við aðstæður. Var sök hans því metin að einum þriðja en R og J báru tvo þriðju hluta sakarinnar.