Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 14. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2023

E-3744/2022

A (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður) gegn Eimskip Íslandi ehf. og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Einar Baldvin Axelsson lögmaður)

Stefndi Eimskip og vátryggjandi félagsins voru sýknaðir af bótakröfu starfsmanns sem varð fyrir líkamstjóni við ákeyrslu dráttarklárs á gám á athafnasvæði Eimskips. Var Eimskip ekki talið hafa brotið gegn tilkynningarskyldu til Vinnueftirlitsins skv. 79. gr. laga nr. 46/1980 og ekki fallist á að sönnunarbyrði skyldi snúið við af þeim sökum. Var slysið talið hafa orðið vegna ógætilegs aksturslags stefnanda, þ.e. þess aðgæsluleysis hans að aka allt of nálægt gámaröðinni sem hann ók meðfram þannig að breiðasti hluti dráttarklárins sem hann ók kræktist í gáminn í gámaröðinni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. október 2022

E-705/2022

Sjöfn Garðarsdóttir (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennt var að stefnda bæri að greiða stefnanda helming af munatjóni hennar, sem orsakast hafði af árekstri í hópakstri bifhjólamanna.

Hæstiréttur birt 1. júní 2017

636/2016

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Þorbjörgu Lilju Jónsdóttur og Stefáni Magnússyni (Heimir Örn Herbertsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelld fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því hafa ekið bifreið í hálku og krapi án þess að gæta nægilegrar aðgæslu, of hratt miðað við aðstæður í afturdrifi og á slitnum hjólbörðum sem hvoru tveggja hafði slæm áhrif á aksturseiginleika bifreiðarinnar. Missti Þ stjórn á bifreiðinni og fór hún yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hún lenti á tveimur bifreiðum og slösuðust ökumaður og farþegi í þeim. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Var hún auk þess svipt ökurétti í þrjá mánuði. Þá var S sakfelldur fyrir brot gegn 59. gr. laga nr. 50/1987 fyrir að hafa sem skráður eigandi bifreiðarinnar ekki gætt þess að bifreiðin væri í lögmæltu ástandi. Var S gert að greiða 20.000 króna sekt í ríkissjóð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. desember 2015

S-428/2015

Ákæruvaldið (Grímur Hergeirsson fulltrúi) gegn Þorbjörgu Lilju Jónsdóttur og Stefáni Magnússyni (Heimir Örn Herbertsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelld fyrir umferðar- og hegningarlagabrot á Hellisheiði. Var refsing ákveðin í 30 daga fangelsi, en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þ var svipt ökurétti. Í málinu var S einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur til sektargreiðslu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 19. apríl 2006

S-24/2006

Ákæruvaldið (Daði Jóhannesson fulltrúi) gegn Baldri Bergmann Heiðarssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur og honum gerð sektarrefsing fyrir brot gegn umferðar- og lögreglulögum.

Hæstiréttur birt 14. mars 2002

453/2001

Ákæruvaldið gegn Agnari Víði Bragasyni (Sigurður Georgsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

B hlaut alvarlega líkamsáverka er bifreið, sem hún var farþegi í, valt utan vegar. Ökumaðurinn A, sem ákærður var fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi, auk umferðarlagabrota, lýsti aðdraganda slyssins svo, að hann hefði brennt sig við að missa logandi sígarettu milli læra sinna og hafi viðbrögð hans verið þau að kippa í stýri bifreiðarinnar sem þá hafi farið yfir á öfugan vegarhelming og þaðan út af veginum. Ekkert var komið fram í málinu um að A hefði ekið of hratt eða óvarlega miðað við aðstæður. Varð því að leggja frásögn A til grundvallar. Gegn neitun A þótti ósannað að slysið yrði rakið til gáleysis hans. Var hann því sýknaður af broti gegn 219. gr. laga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga nr. 50/1987. Með vísan til 78. gr. laga nr. 19/1940 var honum ekki gerð sérstök refsing fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. laga nr. 50/1987.

Hæstiréttur birt 29. mars 2001

5/2001

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Guðmundi Óla Gunnarssyni (Ólafur Sigurgeirsson hrl)

X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.

Hæstiréttur birt 9. desember 1999

200/1999

Helga Sigurðardóttir og Vátryggingafélagi Íslands hf (Hákon Árnason hrl) gegn Bergljótu Hermundsdóttur (Sigurður Sigurjónsson hrl)

Árekstur varð milli bifreiðanna OM-420 og IH-511 á Fljótshlíðarvegi við heimreið að Litla-Moshvoli. Atvikið varð þegar ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar kom að þjóðveginum eftir heimreiðinni og beygði inn á veginn til vesturs í sömu mund og síðarnefndu bifreiðinni var ekið eftir þjóðveginum til austurs yfir ávalan ás og greip ökumaður hennar þá til þess úrræðis að sveigja yfir á nyrðri vegarhelming. Um ábyrgð á árekstrinum var til þess litið, að bifreiðinni OM-420 hafði verið ekið inn á þjóðveginn af heimreið og hefði ökumanni hennar borið að veita umferð á veginum forgang samkvæmt 3. mgr. 25. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Yrði að álykta, að ökumaður þeirrar fyrrnefndu hefði ekki veitt veginum næga athygli. Jafnframt yrði ekki séð, að ökumaður IH-511 hefði getað afstýrt árekstri með því að halda bifreið sinni á eigin vegarhelmingi. Yrði samkvæmt þessu að telja, að ökumaður OM-420 ætti sök á árekstrinum og mætti líta á aðgæsluskort af hans hálfu sem frumorsök að slysinu. Á hinn bóginn varð ekki séð, að ökumaður IH-511 hefði dregið úr hraða eða gætt nægilegrar varúðar þegar hann ók upp á ásinn, en vegna hinnar takmörkuðu vegsýnar hefði honum borið sérstök skylda til að aka nægilega hægt miðað við aðstæður. Þegar þetta var virt ásamt öðrum atvikum málsins þótti hann einnig eiga sök á óhappinu. Með vísan til 89. gr. umferðarlaga var ábyrgð á árekstrinum skipt með þeim hætti, að hún félli á B, eiganda OM-420, að 2/3 hlutum, en H, eigandi IH-511, bæri 1/3 hluta hennar. Voru H og ábyrgðartryggjandi hennar V því dæmd sameiginlega til þess að greiða B 1/3 hluta eignatjóns hennar.

Hæstiréttur birt 30. september 1999

213/1999

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Daníel Orra Einarssyni (Atli Gíslason hrl)

D var ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot, með því að hafa ekið bifreið sinni á röngum vegarhelmingi, með þeim afleiðingum að hann lenti í árekstri við bifreið sem kom úr gagnstæðri átt og ökumaður hennar lést samstundis. Talið var að rannsókn slyssins hefði ekki verið sem skyldi. Viðhlítandi skoðun á sprungnum hjólbarða og felgu á bifreið D hefði getað gefið vísbendingar um hvort hjólbarðinn hefði sprungið og orsakað slysið, eins og D hélt fram. Þótti á það skorta að fram væru komin gögn til að unnt væri að telja nægilega sannað, að slysið yrði rakið til gáleysis D. Var D því sýknaður af ákæru fyrir brot gegn 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 14. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.