Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Líkamsáverkar

Hæstiréttur birt 29. mars 2001

5/2001

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Guðmundi Óla Gunnarssyni (Ólafur Sigurgeirsson hrl)

X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.

Hæstiréttur birt 23. nóvember 2000

237/2000

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn Kim Björgvin Stefánssyni (Ástráður Haraldsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

K lenti í árekstri er hann ók bifreið sinni fram úr annarri bifreið yfir óbrotna línu skömmu áður en komið var að blindhæð. Áreksturinn leiddi til líkamsáverka á farþegum í bifreið K. Fyrir héraðsdómi viðurkenndi K þau brot, sem hann var ákærður fyrir, og lauk héraðsdómari málinu eftir 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu og viðurlög og taldi síðbúnar athugasemdir K um annmarka á rannsókn málsins engu breyta um að sök hans hafi verið nægilega sönnuð, meðal annars með skýlausri játningu hans fyrir héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 21. október 1999

266/1999

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn Valgarði Daða Gestssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð: Bifreið. Líkamsáverkar.

V var ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi með því að hafa ekið bifreið sinni yfir óbrotna línu, fram úr annarri bifreið og framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Var hann dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar auk sektar og ökuleyfissviptingar.

Hæstiréttur birt 21. október 1999

141/1999

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Einari Sigurði Sigursteinssyni (Jónatan Sveinsson hrl)
Lykilorð: Bifreið. Líkamsáverkar.

E var ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi með því að hafa ekið fram úr tveimur bifreiðum og framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Var hann dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar auk sektar og ökuleyfissviptingar.