Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum. nr. 38/2000

Landsréttur birt 22. apríl 2026 kl. 16:18

343/2025

Mótx ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Bryndísi Haraldsdóttur (Ingvi Hrafn Óskarsson lögmaður)

M höfðaði mál gegn B og krafðist þess að ógiltur yrði kaupsamningur M og B um allt hlutafé í einkahlutafélaginu Skientia ehf. og að B greiddi M 5.500.000 krónur auk dráttarvaxta. Til vara krafðist M þess að staðfest yrði riftun fyrrgreinds kaupsamnings og að B yrði gert að greiða M 5.500.000 krónur, auk dráttarvaxta. Í gagnsök krafðist B sýknu af kröfum M en til vara verulegrar lækkunar á þeim. Þá krafðist B þess að M yrði, í samræmi við framangreindan kaupsamning, gert að greiða henni 19.089.743 krónur auk dráttarvaxta, að frádreginni innborgun að fjárhæð 5.500.000 krónur. Með hinum áfrýjaða dómi var B sýknuð af kröfum M í aðalsök og fallist á fjárkröfu hennar í gagnsök. Hinn áfrýjaði dómur var staðfestur með vísan til forsendna hans.

Hæstiréttur birt 12. maí 2011

527/2010

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Iceland, Excursions og Allrahanda ehf (Björn Ólafur Hallgrímsson hrl)

I krafðist bóta vegna tjóns sem hann taldi að orðið hefði vegna ólögmætrar málsmeðferðar samgönguráðuneytisins við úthlutun á sérleyfisleið á Vestfjörðum á árinu 1997. Talið var að I hefði fært fullnægjandi sönnur fyrir því að tjón hefði leitt af hinni ólögmætu ákvörðun samgönguráðuneytisins vegna markaðsstarfs sem unnið var af hálfu félagsins á umræddum árum en nýttist ekki eftir 1997. Það var talið réttilega metið í matsgerð sem lá fyrir í málinu og var sá kröfuliður því tekinn til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2010

E-1911/2007

Iceland Excursions Allrahanda ehf (Björn Ólafur Hallgrímsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefnandi krafðist bóta vegna tjóns sem hann hafði orðið fyrir þegar brotnar voru reglur um úthlutn sérleyfis á Vestfjörðum af hálfu samgönguráðuneytisins. Varakrafan um bætur vegna kostnaðar sem hafði fallið til vegna markaðssetningar en nýttist ekki var tekin til greina en sýknað af aðalkröfu.

Hæstiréttur birt 28. september 2006

553/2005

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Iceland Excursion Allrahanda ehf (Björn Ólafur Hallgrímsson hrl)

A krafði Í um greiðslu skaðabóta á þeim forsendum að hann hefði með saknæmum og ólögmætum hætti veitt öðrum en A sérleyfi til fólksflutninga, á milli byggðakjarnanna á norðanverðum Vestfjörðum og Ísafjarðar. A hafði sérleyfi á umræddri leið frá 20. mars 1992 til 1. september 1997. Með bréfi 1. september 1997 veitti samgönguráðuneytið Ísafjarðarbæ sérleyfi á leiðinni. Var talið að slíkir hnökrar hefðu verið á stjórnsýslumeðferð ráðuneytisins að bakað hefði Í bótaskyldu vegna þess tjóns sem af því kynni að hafa leitt að A fékk ekki sérleyfið. A studdi fjárkröfur sínar við greinargerð löggilts endurskoðanda. Var ekki talið unnt að byggja á greinargerðinni í málinu þar sem hún var reist á ótraustum grunni og að sumu leyti hæpnum forsendum. Einnig voru dómkvaddir menn til að meta fjárhagslegt tjón A en ekki var talið unnt að leggja matsgerðina til grundvallar ákvörðun bóta. Var talið að þrátt fyrir að það kynni að vera erfiðleikum bundið að færa nákvæmar sönnur á fjárhæð tjóns gagnáfrýjanda hefði honum verið í lófa lagið að leggja fram ítarlegri gögn sem hefðu getað orðið viðhlítandi grunnur mats á fjártjóni hans. Þar sem það var ekki gert var ekki ljóst hvort hann hefði orðið fyrir tjóni vegna aðgerða Í, né þá hvaða fjárhæð tjónið hefði numið. Var málið vanreifað að þessu leyti og því talið óhjákvæmilegt að vísa því sjálfkrafa frá héraðsdómi.