Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lög: Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 28/1991

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

867/2024

A (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Isavia Innanlandsflugvöllum ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

A og I ehf. greindi á um hvort A hefði verið mismunað með ólögmætum hætti við starfslok hjá I ehf. Starfslok A áttu rætur að rekja til þess að starfslokaaldur var færður í 67 ár með reglum Isavia samstæðunnar en áður hafði verið miðað við að almennir starfsmenn létu af störfum við 70 ára aldur. Fram kom í dómi Landsréttar að ákvörðun um starfslok A hefði eingöngu byggst á aldri hans og var lagt til grundvallar að um hefði verið að ræða beina mismunun á grundvelli aldurs sem teldist óheimil, sbr. 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 8. gr. laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, en að virtum lögskýringargögnum bæri við túlkun laganna að líta til dóma Evrópudómstólsins sem lytu að skýringu á tilskipun 2000/78/EB. Við mat á því hvort sú mismunun teldist réttlætanleg samkvæmt 12. gr. laganna taldi Landsréttur að ekki yrði annað ráðið af framlögðum gögnum en að ákvörðun stjórnar I ohf. um lækkun starfslokaaldurs yrði rakin til þeirra neikvæðu fjárhagslegu áhrifa sem leiddu af Covid-19 faraldrinum. Eins og málið lá fyrir taldi Landsréttur ekki unnt að fallast á að félagsleg stefnumótun hefði legið til grundvallar ákvörðuninni. Þá var ekki talið að I ehf. hefði lagt fullnægjandi mat á þá ólíku hagsmuni sem vógust á eða kannað hvort unnt væri að beita vægari úrræðum. Með vísan til framangreinds var I ehf. ekki talið hafa sýnt fram á að ákvörðun um starfslok A hefði verið réttlætanleg á grundvelli 12. gr. laganna. Var I ehf. talið bera skaðabótaábyrgð gagnvart A og voru bætur vegna fjárhagslegs tjóns metnar að álitum og I ehf. jafnframt gert að greiða honum miskabætur.

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

866/2024

A (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Isavia ANS ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

A og I ehf. greindi á um hvort A hefði verið mismunað með ólögmætum hætti við starfslok hjá I ehf. Starfslok A áttu rætur að rekja til þess að starfslokaaldur var færður í 67 ár með reglum Isavia samstæðunnar en áður hafði verið miðað við að almennir starfsmenn létu af störfum við 70 ára aldur. Fram kom í dómi Landsréttar að ákvörðun um starfslok A hefði eingöngu byggst á aldri hans og var lagt til grundvallar að um hefði verið að ræða beina mismunun á grundvelli aldurs sem teldist óheimil, sbr. 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 8. gr. laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, en að virtum lögskýringargögnum bæri við túlkun laganna að líta til dóma Evrópudómstólsins sem lytu að skýringu á tilskipun 2000/78/EB. Við mat á því hvort sú mismunun teldist réttlætanleg samkvæmt 12. gr. laganna taldi Landsréttur að ekki yrði annað ráðið af framlögðum gögnum en að ákvörðun stjórnar I ohf. um lækkun starfslokaaldurs yrði rakin til þeirra neikvæðu fjárhagslegu áhrifa sem leiddu af Covid-19 faraldrinum. Eins og málið lá fyrir taldi Landsréttur ekki unnt að fallast á að félagsleg stefnumótun hefði legið til grundvallar ákvörðuninni. Þá var ekki talið að I ehf. hefði lagt fullnægjandi mat á þá ólíku hagsmuni sem vógust á eða kannað hvort unnt væri að beita vægari úrræðum. Með vísan til framangreinds var I ehf. ekki talið hafa sýnt fram á að ákvörðun um starfslok A hefði verið réttlætanleg á grundvelli 12. gr. laganna. Var I ehf. talið bera skaðabótaábyrgð gagnvart A og voru bætur vegna fjárhagslegs tjóns metnar að álitum og I ehf. jafnframt gert að greiða honum miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2018

E-649/2018

A (Áslaug Árnadóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (María Thejll lögmaður)

Stefnandi krafðist miskabóta með vísan til þess að brotið hefðu verið gegn lögum nr. 10/2008 o.fl. við ákvörðun um ráðningu í sumarstörf hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í maí 2016. Lagt var til grundvallar að úrskurður kærunefndar jafnréttismála um að brotið hefði verið gegn lögunum væri bindandi. Aftur á móti var kröfu stefnanda um miskabætur samkvæmt samkvæmt 31. gr. laganna hafnað þar sem skilyrðið um verulegt gáleysi var ekki talið uppfyllt. Að sama skapi fékk krafan ekki stoð í b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, enda ólögmætri meingerð gagnvart stefnanda ekki til að dreifa.

Hæstiréttur birt 6. desember 2018

843/2017

Helgi H. Sigurðsson (Björgvin Þorsteinsson lögmaður, Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson lögmaður, 4. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður, Ingvi Snær Einarsson lögmaður, 4. prófmál)

H, einn þriggja umsækjenda um starf yfirlæknis á L, höfðaði mál á hendur Í og krafðist miskabóta á þeim grundvelli að með ráðningu annars umsækjanda í starfið hefði hann verið beittur misrétti, sbr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þriðji umsækjandinn, sem ekki fékk starfið, kærði ákvörðun L til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að spítalinn hefði með ráðningunni brotið gegn lögum nr. 10/2008. Höfðaði L í framhaldinu mál á hendur þeim umsækjanda og krafðist þess að úrskurður kærunefndarinnar yrði felldur úr gildi en með dómi Hæstaréttar í máli nr. 364/2014 var hann sýknaður af þeirri kröfu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þrátt fyrir að líta yrði svo á, miðað við forsögu 31. laga nr. 10/2008 og lögskýringargögn, að um sérákvæði um miskabætur væri að ræða vegna mismununar á grundvelli kynferðis þyrfti að vera uppfyllt það almenna skilyrði til greiðslu miskabóta að gáleysi væri verulegt. Hefði stöðunefnd landlæknis samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu lagt faglegt mat á hæfni umsækjenda um starfið, metið þá alla þrjá hæfa til að gegna starfinu og ekki talið ástæðu til að gera upp á milli þeirra. Var því ekki talið að H hefði sýnt fram á að þrátt fyrir annmarka á ráðningu í starfið hefði honum fremur borið starfið en þriðja umsækjandanum sem ekki hlaut það og fjallað var um í fyrrnefndum dómi. Að því virtu og með því að H hefði ekki sýnt fram á að skilyrðinu um verulegt gáleysi væri fullnægt var ekki talið að efni væru til að dæma honum miskabætur. Var Í því sýknað af kröfu H.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. nóvember 2017

E-2203/2016

Helgi Sigurðsson (Björgvin Þorsteinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Stefnandi krafðist miskabóta með vísan til þess að sér hefði verið mismunað við ráðningu í starf yfirlæknis á grundvelli kynferðis. Stefndi var sýknaður með þeim rökum að ekki lægi fyrir að stefnandi hefði orðið fyrir miska við ráðninguna.

Hæstiréttur birt 20. janúar 2005

258/2004

Akureyrarbær (Bjarni Þór Óskarsson hrl, Hákon Stefánsson hdl) gegn Guðrúnu Sigurðardóttur (Sif Konráðsdóttir hrl)

G, sem gegndi starfi deildarstjóra á félagsmálastofnun sveitarfélagsins A, höfðaði mál gegn A til greiðslu skaðabóta vegna brota A á jafnréttislögum. Taldi G starf sitt og starf deildartæknifræðings hjá A jafnverðmæt, en í starfsmati sem fram fór á nokkrum störfum hjá A árið 1996, þar á meðal á framangreindum tveimur störfum, voru störfin metin til sama stigafjölda. Var krafa G reist á því að hún ætti að njóta sömu kjara og deildartæknifræðingur. G var talin hafa leitt verulegar líkur að því, að starf hennar og deildartæknifræðings hafi verið svo sambærileg að inntaki og ytri búnaði, að henni hafi verið mismunað í kjörum hjá A í skilningi ákvæða jafnréttislaga. A yrði að sýna fram á, að svo hafi ekki verið gert á grundvelli kynferðis. A var ekki talinn hafa fært haldbær rök að því, að markaðssjónarmið hafi átt að leiða til svo mismunandi kjara þegar litið væri til stöðu þessara starfa í stjórnkerfi A. Tókst A ekki að sanna, að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafi ráðið kjaramuninum, en mismunandi kjarasamningar gætu ekki réttlætt mismun starfskjara kvenna og karla í skilningi jafnréttislaga. Var því fallist á kröfu G, sem hún var ekki talin hafa glatað fyrir fyrningu eða tómlæti.

Hæstiréttur birt 7. nóvember 2002

240/2002

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Friðriku Hörpu Ævarrsdóttur (Jónas Haraldsson hrl)

F, sem er lögfræðingur að mennt, réðist til starfa sem fulltrúi sýslumannsins á Akureyri árið 1994. Í nóvember 1996 fór F í barnsburðarleyfi og um rétt hennar til launa í slíku leyfi fór samkvæmt þágildandi reglugerð um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. F taldi umsamda 30 klukkustunda fasta yfirvinnu á mánuði hafa verið kaupauka við grunnlaun samkvæmt kjarasamningi, sem aukið vinnuframlag hafi ekki komið fyrir, og þannig hluti þeirra dagvinnulauna sem hún ætti rétt á í barnsburðarleyfi. Talið var sannað að vinnuframlag umfram dagvinnu skyldi ekki koma fyrir greiðslu fyrrgreindra 30 yfirvinnustunda á mánuði. Var lagt til grundvallar niðurstöðu í málinu að umsamið endurgjald F fyrir átta stunda vinnudag skyldi vera laun samkvæmt viðeigandi launaflokki og andvirði 30 yfirvinnustunda. Var talið fullt tilefni til að taka fram í umræddri reglugerð að um dagvinnulaun samkvæmt kjarasamningi væri að ræða, hafi önnur laun fyrir dagvinnu ekki átt að koma til greiðslu í barnsburðarleyfi starfsmanna. Fallist var á kröfu F en enginn tölulegur ágreiningur var í málinu. Þá var miðað við að vanefnd hafi orðið af hálfu Í 1. desember 1998, eða mánuði eftir að F gerði athugasemdir við greiðslu launa í barnsburðarleyfinu, og var krafan látin bera dráttarvexti frá þeim tíma. Aðfinnsluvert þótti hvernig héraðsdómsstefna og héraðsdómur voru úr garði gerð.

Hæstiréttur birt 10. október 2002

121/2002

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Kolbrúnu Sævarsdóttur (Gylfi Thorlacius hrl)

K sótti um embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli ásamt sex körlum en utanríkisráðherra skipaði einn þeirra, J, í embættið. Krafðist K þess að viðurkennt yrði að skipunin hefði brotið gegn lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Tekið var fram að við úrlausn málsins yrði að meta hvort ráðherra hefði reist ákvörðun sína á lögmætum sjónarmiðum. Var talið að auglýsing um embætti sýslumannsins hefði veitt ákveðna forsögn um það hvernig umsóknirnar yrðu metnar en þar var að finna lýsingu á meginverkefnum sýslumanns er brá ljósi á sérstætt eðli embættisins vegna staðsetningar þess á varnarsvæðinu og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi um landamæraeftirlit. Var með þessu talið vera gefið til kynna að önnur reynsla og þekking en af hefðbundnum störfum sýslumanna, svo sem starfsreynsla á erlendum vettvangi, myndi geta haft töluvert vægi við mat umsókna. Þótti auglýsingin hafa verið eðlilega úr garði gerð enda ekki falið í sér ólögmæt hæfisskilyrði en við veitingu embættisins hefði ekki verið byggt á öðrum atriðum en ráða mátti af henni. Var fallist á að Í hefði fært fram gild rök um sérstöðu embættisins sem hlaut að skipta miklu máli við val milli umsækjenda. Drjúg reynsla J í alþjóðasamskiptum af ýmsum toga var talin til þess falin að treysta hæfni hans til að takast á við meginviðfangsefni embættisins. Þegar allt var virt var talið réttmætt að starfsreynsla hans hefði vegið þyngra en K við hæfnismat. Þá var K ekki talin hafa sýnt fram á að menntun hennar og starfsreynsla hefðu nýst henni þannig að hún yrði talin hafa verið J jafnhæf eða hæfari til að gegna starfinu. Voru sjónarmið utanríkisráherra við veitingu embættisins því talin eðlileg og málefnaleg og ekki fallist á að K hefði verið mismunað eftir kynferði. Var Í því sýknað af kröfum K.

Hæstiréttur birt 31. maí 2000

11/2000

Akureyrarbær (Árni Pálsson hrl) gegn kærunefnd, jafnréttismála, vegna (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) og Ragnhildar Vigfúsdóttur (Sif Konráðsdóttir hdl)

R gengdi starfi jafnréttis- og fræðslufulltrúa hjá sveitarfélaginu A frá september 1995 þar til í apríl 1998. Var hún ráðin samkvæmt kjarasamningi A við STAK, en við röðun í launaflokka hjá A samkvæmt umræddum kjarasamningi var tekið mið af starfsmati. Samkvæmt skipuriti A heyrði starf jafnréttis- og fræðslufulltrúa beint undir bæjarstjóra ásamt starfi atvinnumálafulltrúa og bæjarlögmanns. Við samanburð á starfi jafnréttis- og fræðslufulltrúa og atvinnumálafulltrúa við óformlegt starfsmat á árinu 1996 fékk staða jafnréttis- og fræðslufulltrúa 167 stig, en staða atvinnumálafulltrúa 170 stig. Í framhaldi af matinu óskaði R eftir leiðréttingu á kjörum sínum með hliðsjón af kjörum atvinnumálafulltrúa, sem tóku mið af kjarasamningi verkfræðinga, þótt verkfræðingar gegndu ekki alltaf þeirri stöðu. Á þessum tíma gegndi H, sem var verkfræðingur og karlmaður, stöðu atvinnumálafulltrúa. Var launakjörum svo háttað í mars 1997 að mánaðarlaun jafnréttis- og fræðslufulltrúa voru 172.895 krónur auk greiðslna fyrir 22 fasta yfirvinnutíma og akstur samkvæmt akstursbók, en mánaðarlaun atvinnumálafulltrúa voru 250.891 króna auk greiðslna fyrir 33 fasta yfirvinnutíma og 600 km akstur á mánuði. Kærunefnd jafnréttismála (K) komst að þeirri niðurstöðu í febrúar 1998, að kynferði hefði ráðið þeim verulega muni, sem verið hefði á launum og öðrum kjörum jafnréttis- og fræðslufulltrúa annars vegar og atvinnumálafulltrúa hins vegar og hafi A ekki fylgt ákvæðum jafnréttislaga við umræddar launaákvarðanir. Fór K þess á leit við A að R yrði bættur umræddur munur. Hafnaði A þeirri kröfu og höfðaði K þá mál á hendur A vegna R. Talið var að við úrlausn þess, hvort störf teldust jafnverðmæt og sambærileg í skilningi jafnréttislaga, yrði að byggja á heildstæðu mati og því gæti verið um slík störf að ræða þótt einstaka þættir þeirra kynnu að vera ólíkir. Þá næðist markmið jafnréttislaga ekki, ef launajöfnuður ætti einungis að ná til fólks innan sömu starfsstéttar, en óhjákvæmilegt væri, að samningsfrelsi á vinnumarkaði sætti þeim takmörkunum, er leiddi af ákvæðum jafnréttislaga þannig skýrðum. Talið var að K hefði leitt verulegar líkur að því, að störf jafnréttis- og fræðslufulltrúa og atvinnumálafulltrúa hjá A hefðu verið svo sambærileg að inntaki og ytri búnaði, að R hefði verið mismunað í kjörum hjá A. Nægðu þær til þess samkvæmt almennum sönnunarreglum, að A yrði að sýna fram á að svo hafi ekki verið gert á grundvelli kynferðis. Var A ekki talinn hafa sannað að hlutlægar og málefnalegar ástæður hefðu í hvívetna ráðið kjaramuninum og voru mismunandi kjarasamningar einir ekki taldir geta réttlætt mismun starfskjara kvenna og karla. Þá var fallist á niðurstöðu héraðsdóms um yfirvinnu- og akstursgreiðslur, en A var ekki talinn hafa sýnt fram á, að í þessu máli ættu við önnur sjónarmið um þá þætti starfskjaranna en föst laun. Var því fallist á kröfu K vegna R um að viðurkennt yrði með dómi að sá munur, sem var á launum og öðrum starfskjörum jafnréttis- og fræðslufulltrúa og atvinnumálafulltrúa A, hafi frá ráðningu R og fram í mars 1997, brotið gegn lögum nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Ekki voru talin efni til að dæma R sérstakar miskabætur.