Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 1. gr. laga nr. 21/1992 — Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2020

Y-7537/2019

A (Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Hildur Þórarinsdóttir lögmaður)

Kröfu sóknaraðila um ógildingu kröfuábyrgða var vísað frá dómi af sjálfsdáðum. Þá var hafnað kröfu sóknaraðila um að fella úr gildi aðfarargerð sýslumanns sem lauk með árangurslausu fjárnámi.

Hæstiréttur birt 18. október 2018

190/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Pétur Örn Sverrisson lögmaður, Þórir Júlíusson lögmaður, 3. prófmál) gegn Auði Dungal Jónsdóttur (Ólafur Örn Svansson lögmaður, Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður, 2. prófmál)

A höfðaði mál á hendur L og krafðist þess að felld yrði úr gildi sjálfskuldarábyrgð sem hún hafði veitt með undirritun sinni á skuldabréf vegna námslána dóttur sinnar M. Fyrir lá að áður en A gekkst í ábyrgðina lagði L ekki annað mat á greiðslugetu M en það, sem fólst í mati á því hvort hún teldist lánshæf í skilningi úthlutunarreglna L, en við það kom í ljós að M var á vanskilaskrá. Í dómi Hæstaréttar kom fram að mat L á lánshæfi umsækjanda um námslán eftir úthlutunarreglum hans væri bundið við athugun á því hvort umsækjandinn væri í vanskilum við L vegna eldra láns, hvort bú umsækjandans væri til gjaldþrotaskipta og hvort hann gæti af öðrum sökum talist bersýnilega ótryggur lántaki. L hefði ekki gert grein fyrir því hvort könnun á síðastnefnda atriðinu tæki til nokkurs annars en athugunar á vanskilaskrá. Væri lagt til grundvallar að ekki væri gætt að öðru í tengslum við það skilyrði færi því fjarri að mat L á lánshæfi væri reist á upplýsingum meðal annars um áætlaðar tekjur umsækjanda á endurgreiðslutíma láns, aðrar skuldir hans og endurgreiðslur af þeim, eignir hans og áætlaðan framfærslukostnað, svo sem gera yrði við greiðslumat eftir viðurkenndum viðmiðum í skilningi 1. mgr. 4. gr. laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn. Var því ekki talið að L hefði réttilega uppfyllt skyldu sína samkvæmt ákvæðinu til að leggja mat á greiðslugetu M. Ekkert lægi fyrir í málinu um fjárhag M, efnahag hennar eða tekjur, hvorki nú né þegar A tók skuldbindinguna á sínar herðar, og yrði því ekkert ráðið um hvað kynni að hafa verið leitt í ljós með réttilega gerðu greiðslumati. Þótt ætla yrði að almennt hlyti ábyrgðarmaður í þeim fjölskyldutengslum við lántaka, sem A væri við M, að búa yfir nokkurri vitneskju um aðstæður hans og fjárhag væri ófært að byggja á því að greiðslumat hefði ekki í þessu tilviki getað leitt í ljós atriði, sem áhrif gætu haft á töku ákvörðunar um hvort stofna ætti til ábyrgðarskuldbindingar. Var því talið óhjákvæmilegt að víkja til hliðar yfirlýsingu A um sjálfskuldarábyrgð á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga og krafa A því tekin til greina.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

731/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Silvíu Rós Sigurðardóttur (Einar Hugi Bjarnason hrl, Þorsteinn I. Valdimarsson hdl, 1. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur S samkvæmt skuldabréfi sem hún gaf út til L vegna námslána. Bú S var tekið til gjaldþrotaskipta í desember 2014 og við lok þeirra 2. mars 2015 hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur S háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að S hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skuldar við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

730/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Skuldabréf Gjaldþrotaskipti Fyrning (Skúli Bjarnason hrl, Guðmundur Pétursson hdl, 4. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur J samkvæmt tveimur skuldabréfum sem hún gaf út til L vegna námslána. Bú J var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar 2013 og við lok þeirra 14. ágúst sama ár hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur J háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að J hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skulda við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

645/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Guðrúnu Ósk Ásmundsdóttur (Björn Jóhannesson hrl, Arnór Halldórsson Hafstað hdl, 2. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur G samkvæmt skuldabréfi sem hún gaf út til L vegna námslána. Bú G var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar 2013 og við lok þeirra 31. maí sama ár hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur G háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að G hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skuldar við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

644/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Kristni L. Aðalbjörnssyni (Óskar Sigurðsson hrl, Hulda Árnadóttir hdl, 1. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur K samkvæmt skuldabréfi sem hann gaf út til L vegna námslána. Bú K var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar 2013 og við lok þeirra 31. maí sama ár hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur K háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að K hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skuldar við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2016

E-554/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Sylvíu Rós Sigurðardóttur (Sigurður Árnason hdl)

Ágreiningur var uppi um hvort skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. um sérstaka hagsmuni af fyrningarslitum væri fullnægt, sem og skilyrði um hvort líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfu á fyrningartíma. Var hvorugu skilyrðinu talið fullnægt. Var kröfu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um fyrningarslit á kröfu á grundvelli námsláns því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2016

E-2226/2015

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Z (Björn Jóhannesson hrl)

Bú stefnda hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 3. mgr. 165 gr. laga nr. 21/1991, sbr. 1. gr. laga nr. 142/2010, fyrntust á tveimur árum allar kröfur sem hafði verið lýst við skiptin og ekki fengist greiddar nema kröfuhafi höfðaði mál á hendur þrotamanni innan fyrningarfrests og sýndi fram á að hann hefði sérstaka hagsmuni af því að rjúfa fyrningu kröfu sinnar, svo og að líkur væru á fullnustu kröfunnar á nýjum fyrningartíma. Því var hafnað að stefnandi, Lánasjóður íslenskra námsmanna, hefði sýnt fram á sérstaka hagsmuni sína af því að rjúfa fyrningu þeirrar kröfu sem hann lýsti við skipti á búi stefnda en fékk ekki greidda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2016

E-2225/2015

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Y (Óskar Sigurðsson hrl)

Bú stefnda hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 3. mgr. 165 gr. laga nr. 21/1991, sbr. 1. gr. laga nr. 142/2010, fyrntust á tveimur árum allar kröfur sem hafði verið lýst við skiptin og ekki fengist greiddar nema kröfuhafi höfðaði mál á hendur þrotamanni innan fyrningarfrests og sýndi fram á að hann hefði sérstaka hagsmuni af því að rjúfa fyrningu kröfu sinnar, svo og að líkur væru á fullnustu kröfunnar á nýjum fyrningartíma. Því var hafnað að stefnandi, Lánasjóður íslenskra námsmanna, hefði sýnt fram á sérstaka hagsmuni sína af því að rjúfa fyrningu þeirrar kröfu sem hann lýsti við skipti á búi stefnda en fékk ekki greidda.

Hæstiréttur birt 19. febrúar 2015

481/2014

Edda Olgeirsdóttir (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Lykilorð: Lánssamningur. Ábyrgð.

L höfðaði mál gegn H og E til heimtu skuldar samkvæmt skuldabréfi sem H gaf út til L árið 1998 og E gekk í sjálfskuldarábyrgð fyrir. Í dómi héraðsdóms voru kröfur L teknar til greina. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þegar virt væri hlutverk L eins og það væri markað í 1. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og hafðar væru í huga ástæður þær er lágu að baki ákvörðun E um að gerast sjálfskuldarábyrgðarmaður umrætt sinn, yrði ekki séð að líkur hefðu verið að því leiddar að mat á hæfi H til að standa í skilum með lánið hefði neinu breytt um þá ákvörðun E að gangast í sjálfskuldarábyrgð. Gæti samkvæmt þessu ekki komið til álita að ógilda ábyrgðarskuldbindinguna með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga á þeim grundvelli að ósanngjarnt væri af L að bera ábyrgðina fyrir sig. Þá var talið að L hefði í endanlegri kröfugerð sinni tekið fullt tillit til þeirra greiðslna sem E hafði innt af hendi til L inn á skuld H áður en hún var gjaldfelld. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.