Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir fulltrúi) gegn
Svavari Dalmann Hjaltasyni
Ákærða gerð sekt vegna fíkniefnabrots.
Ákæruvaldið (
Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)
gegn
Almari, Erlingssyni, Evu Hauksdóttur, Hauki Hilmarssyni, Jason Thomas Slade og Sögu Ásgeirsdóttur (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
A, E, H, og S ásamt fjórum öðrum mönnum lokuðu veginum að Hellisheiðarvirkjun við mótmælaaðgerðir. Voru þau ákærð fyrir að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu um að opna veginn aftur fyrir umferð og hverfa af vettvangi. Var háttsemin talin varða við 19. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og ákvæði í lögreglusamþykkt fyrir Árnessýslu. Með vísan til forsendna héraðsdóms staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hans um sakfellingu ákærðu. Var talið að lögfull sönnun væri fram komin, þrátt fyrir neitun ákærðu, að þeim hafi verið gefin skýr fyrirmæli um að víkja af veginum og láta af aðgerðum að því marki sem þau gengu á rétt annarra til að fara um veginn. Töldust aðgerðir lögreglu því nauðsynlegar í umrætt sinn. Var A, E, H og S gert að greiða hvert um sig 50.000 krónur í sekt til ríkissjóðs auk sakarkostnaðar. Þá var J ákærður fyrir húsbrot með því að hafa við áðurgreindar mótmælaaðgerðir klifrað í heimildarleysi upp í byggingarkrana við virkjunina og hafst þar við í skamma stund. Var brot hans talið varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ágreiningslaust var að J fór ekki inn í stýrihús kranans. Ekki var fallist á með ákæruvaldinu að sú háttsemi að „klifra upp í“ kranann félli undir verknaðarlýsingu ákvæðisins. Þá tóku heldur engin ákvæði í lögreglusamþykkt fyrir Árnessýslu til þessarar háttsemi J. Var hann samkvæmt þessu sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var brot X talið varða við 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987. Samkvæmt álitsgerð rannsóknastofu HÍ fannst tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi X en hið virka efni í kannabis, tetrahýdrókannabínól, fannst ekki í blóði hans. Þessi niðurstaða benti til þess að X hefði ekki verið undir áhrifum fíkniefna við akstur í umrætt sinn. Þá bar X því við hjá lögreglu að hann hefði ekki neytt fíkniefna í nokkrar vikur áður en hann var stöðvaður af lögreglu. Í héraðsdómi var X sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar en tilefni þótti til að beita undanþáguheimild í 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga og svipta hann ekki ökurétti. Í dómi Hæstaréttar sagði að í 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga væri undantekningarákvæði þar sem fram kæmi að sleppa mætti sviptingu ökuréttar vegna brota á ákvæðum 1. mgr. 45. gr., sbr. 2. mgr. þeirrar greinar, og 45. gr. a ef sérstakar málsbætur væru og ökumaður hefði ekki áður gerst sekur um sams konar brot eða annað verulegt brot gegn skyldum sínum sem ökumaður. Var ágreiningsefnið fyrir Hæstarétti hvernig túlka ætti framangreint undanþáguákvæði og hvort það gæti átt við í tilviki X. Taldi Hæstiréttur að túlka yrði orðalagið „sérstakar málsbætur“ í greindu ákvæði þannig að undir þær gætu fallið þau atvik þegar ökumanni er refsað á grundvelli 45. gr. a en efni sem finnst eingöngu í þvagi hefur sannanlega ekki haft áhrif á hæfni til aksturs, langt var síðan fíkniefna var neytt og ekkert var athugavert við akstur ákærða. Þá var uppfyllt í málinu það skilyrði 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga að X hafði ekki áður gerst sekur um sams konar brot eða annað verulegt brot gegn skyldum sínum sem ökumaður. Staðfesti Hæstiréttur hinn áfrýjaða dóm.
X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var brot X talið varða við 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987. Samkvæmt álitsgerð rannsóknastofu HÍ fannst tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi X en hið virka efni í kannabis, tetrahýdrókannabínól, fannst ekki í blóði hans. Þessi niðurstaða benti til þess að X hefði ekki verið undir áhrifum fíkniefna við akstur í umrætt sinn. Þá bar hann því við hjá lögreglu að hann hefði ekki neytt fíkniefna í að minnsta kosti þrjár til fjórar vikur áður en hann var stöðvaður af lögreglu. Í héraðsdómi var X sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar en tilefni þótti til að beita undanþáguheimild í 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga og svipta hann ekki ökurétti. Í dómi Hæstaréttar sagði að í 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga væri undantekningarákvæði þar sem fram kæmi að sleppa mætti sviptingu ökuréttar vegna brota á ákvæðum 1. mgr. 45. gr., sbr. 2. mgr. þeirrar greinar, og 45. gr. a ef sérstakar málsbætur væru og ökumaður hefði ekki áður gerst sekur um sams konar brot eða annað verulegt brot gegn skyldum sínum sem ökumaður. Var ágreiningsefnið fyrir Hæstarétti hvernig túlka ætti framangreint undanþáguákvæði og hvort það gæti átt við í tilviki X. Taldi Hæstiréttur að túlka yrði orðalagið „sérstakar málsbætur“ í greindu ákvæði þannig að undir þær gætu fallið þau atvik þegar ökumanni er refsað á grundvelli 45. gr. a en efni sem finnst eingöngu í þvagi hefur sannanlega ekki haft áhrif á hæfni til aksturs, langt var síðan fíkniefna var neytt og ekkert var athugavert við akstur ákærða. Þá var uppfyllt í málinu það skilyrði 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga að X hafði ekki áður gerst sekur um sams konar brot eða annað verulegt brot gegn skyldum sínum sem ökumaður. Staðfesti Hæstiréttur hinn áfrýjaða dóm.
J var sakfelldur fyrir að aka tvisvar sinnum undir áhrifum áfengis og vera án ökuskírteinis í fyrra sinnið en sviptur ökuréttindum í seinna skiptið. J krafðist þess að kröfu ákæruvalds um lengri ökuréttarsviptingu en ákveðin var í héraði yrði vísað frá Hæstarétti þar sem fullnustu sviptingarinnar var lokið. Talið var að engin lagaákvæði takmörkuðu heimild ákæruvalds til að krefjast þyngingar viðurlaga þegar fullnustu þeirra viðurlaga sem ákveðin voru með héraðsdómi lyki áður en dómur Hæstaréttar gengi. J krafðist sýknu af því að hafa ekið sviptur ökuréttindum í síðara sinnið sem hann var stöðvaður af lögreglu, en við fyrra sinnið hafði hann verið sviptur ökurétti til bráðabirgða. Talið var að sviptingin hefði ekki verið fallin niður, en hún var ótímabundin og J hafði ekki gert neinn reka að því að fá hana fellda niður. Fortakslaus lagabreyting á 102. gr. umferðarlaga var talin leiða til þess að dómvenju um sviptingu ökuréttar yrði vikið til hliðar. Samkvæmt því var J gert að greiða sekt í ríkissjóð og sæta sviptingu ökuréttar í 19 mánuði.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Frank Norman Eyþórssyni (enginn)
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna og tilraunar til smygls.
Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir fulltrúi) gegn
Þórði Sigurjónssyni
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna. Hegningarauki.
Ákæruvaldið (Einar Laxness fulltrúi) gegn
Sigþór Fannari Guðmundssyni
Dæmd sekt fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Hegningarauki.
Ákæruvaldið (Einar Laxness fulltrúi) gegn
Tómasi Sigurði Friðjónssyni
Dæmd sekt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Marijus Siaurokas (enginn)
Ákært og sakfellt fyrir fíkniefnakstur og vörslur á 18 MDMA töflum.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Ívari Heimissyni (enginn)
Ákært og sakfellt fyrir vörslur fíkniefna og að aka sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Sigurði Þór Sigurðssyni (enginn)
Ákært fyrir vörslur fíkniefna og fíkniefnaakstur. Ákærða ekki gerð sérstök refsing þar sem um hegningarauka var að ræða. Ákærði var sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (Jón Einarsson fulltrúi) gegn
Samkaup hf og Bergvini Eyþórssyni
Fyrirtæki og starfsmaður þess sakfelldur fyrir að hafa ráðið útlending til starfa án tilskilinna leyfa.
Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn
Gunnari Frey Benediktssyni (enginn)
sakfellt fyrir vörslur fíkniefna. Hegningarauki
Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn
Einari Hans Jakobssyni (enginn)
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn
Gísla Hrafni Ólafssyni (enginn)
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn
Andra Þór Magnússyni (enginn)
sakfelt fyrir vörslur fíkniefna. Hegningarauki.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Frey Frímannssyni (enginn)
Sakfellt fyrir fíkniefnaakstur og vörslur fíknefna.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Einari Páli Benediktssyni (enginn)
sakfellt fyrir vörslur fíkniefna
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Ragnari Fjalari Lárussyni (enginn)
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Heiðari Snæ Magnússyni (enginn)
sakfellt fyrir fíkniefnaakstur og vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Kristjáni Karli Einarssyni (enginn)
Sakfellt fyrir vopnalagabrot.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Þóri Baldvini Björgvinssyni (enginn)
Sakfellt fyrir fíkniefnaakstur, vörslur, hraðakstur og að sinna ekki stöðvunarmerki lögreglu.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Olgeiri Má Brynjarssyni (enginn)
Ákært fyrir fíkniefnaakstur og vörslur fíkniefna. Refsing 190.000 króna sekt, svipting ökuréttar í tólf mánuði.
Ákæruvaldið (Jón Fannar Kolbeinsson fulltrúi) gegn
Shane La Mont Harvell
Karlmaður sakfelldur fyrir fíkniefnabrot og dæmdur til greiðslu sektar.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Gauta Þór Gíslasyni (enginn)
Ákært fyrir vörslur fíkniefna og fíkniefnaakstur. Refsing 130.000 króna sekt og svipting ökuréttar í þrjá mánuði.
Karlmaður sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, ölvunarakstur, eignaspjöll og brot gegn náttúruverndarlögum. Ákærði dæmdur til greiðslu sektar og hann jafnframt sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Sveini Tómassyni
Maður sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Linda Ósk Wiium ftr) gegn
Ísidóri Hinriki Ísidórssyni (enginn)
Ákært og sakfellt fyrir hraðakstur, fíkniefnaakstur og vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Sigurði Þór Sigurðssyni
Maður sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Daníel Ásgeiri Ólafssyni
Maður sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið gegn
Akstur undir áhrifum fíkniefna. Sekt. Ökuréttarsvipting. Ítrekun Á var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið (
Kristinn Bjarnason hrl)
Á var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið 14. apríl 2007 undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Í málinu var deilt um það hvort dómur sem Á hlaut fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna 11. apríl 2007, en birtur honum 20. sama mánaðar, skyldi hafa ítrekunaráhrif samkvæmt 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga. Í dómi Hæstaréttar voru rakin almenn skilyrði 71. gr. almennra hegningarlaga um ítrekun. Var talið að orðalag ákvæðisins vísaði til þess að ítrekunaráhrif væru miðuð við það tímamark þegar dómur félli auk þess sem það væri viðtekin túlkun á ákvæðinu og þyrfti dómurinn því ekki að hafa verið birtur til þess að hafa ítrekunaráhrif. Samkvæmt þessu hafði dómurinn frá 11. apríl því ítrekunaráhrif við ákvörðun um sviptingu ökuréttar G. Var ákvörðun hins áfrýjaða dóms um refsingu og ökuréttarsviptingu leiðrétt og G dæmdur til greiðslu 180.000 króna sektar og sviptur ökurétti í 2 ár.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X og Z
Dæmd fjársekt fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir fulltrúi) gegn
Ottó Erni Þórðarsyni
Ákærði sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Sveini Þorleifssyni
Maður sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Kristín Völundardóttir lögreglustjóri) gegn
Andra Rafni Kristjánssyni
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn siglingalögum og lögum um eftirlit með skipum.
Ákæruvaldið (Daði Jóhannesson fulltrúi) gegn
Arnar Ingi Ingólfssyni Sigurjón Guðmundssyni
Maður sakfelldur fyrir að veiða í landi sveitarfélags án leyfis.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Lúðvík Karlssyni
Maður sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Kristín Völundardóttir lögreglustjóri)
gegn
Elsayed Mohamed El S Abouraya (
Tryggvi Guðmundsson hdl)
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn tollalögum, lögum um útlendinga, lögum um verslunaratvinnu og lögeglusamþykkt Ísafjarðarbæjar.
Ákært fyrir nytjastuld. Sakfellt.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Jóhannesi Héðinssyni
Karlmaður sakfelldur og dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Óskari Herði Gíslasyni
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Alberti Þ. Jónssyni
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson fulltrúi) gegn
Ómari Inga Ómarssyni
Piltur sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og í sama skipti haft í vörslum sínum 0.93 grömm af hassi og 0.75 grömm af tóbaksblönduðu hassi, sem lögregla lagði hald á.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Almari Erlingssyni, Evu Hauksdóttur, Hauki Hilmarssyni, Jason Thomas Slade, Sögu Ásgeirsdóttur, Anne Sofie Tagö, Beatrijs Van Elsander, Emmu Phipps og Mette Trier Henten (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Ákært fyrir brot á lögreglulögum og hegningarlögum. Sakfellt.
Ákæruvaldið (Karl Gauti Hjaltason sýslumaður) gegn
Hauki Jakobi Kjartanssyni (enginn)
Ákærði dæmdur til greiðslu fjársektar fyrir brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf.
Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason fulltrúi) gegn
Hauki Haukssyni
Ákærði dæmdur til 220.000 króna sektar og ökuréttarsviptingar í 2 ár vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna. Fíkniefnin gerð upptæk.
Ákæruvaldið (Guðný Ösp Ragnarsdóttir fulltrúi) gegn
Einari Darra Einarssyni
Maður sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn
Tönju Björk Þorsteinsdóttur
Ákvörðun refsingar ákæruð var frestað skilorðsbundið í 2 ár.