Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lykilorð: Launþegi
Launþegi krafðist viðurkenningar á forgangi vegna krafna í þrotabú. Launþeginn byggði á því að raunverulegt tjón sem samþykkja ætti sem forgangskröfu tæki einnig til yfirvinnu sem hann hefði að jafnaði unnið fyrir félagið fyrir gjaldþrot þess. Staðfest niðurstaða skipastjóra um að samþykkja einungis föst laun á uppsagnarfresti sem miðuðust við dagvinnu, en kröfu vegna yfirvinnu sem ágreiningslaust var að var ekki unnin, hafnað.

Fallist á að starfsmanni sem var sagt upp störfum vegna skipulagsbreytinga ætti rétt á launum vegna yfirvinnu síðustu fjögur ár, þar sem heildarlaun hans á tímabilinu næðu ella ekki lágmarkskjörum samkvæmt kjarasamningi. Kröfum hans vegna meints ógreidds orlofs og um skaðabætur vegna meintrar ólögmætrar uppsagnar var hins vegar hafnað.
Slökkviliðsstjóri gerði kröfu um greiðslu fyrir bakvaktir vegna starfa fyrir slökkvilið frá 2018-2022 á grundvelli reglugerðar nr. 747/2018 um starfsemi slökkviliða. Sýkna.
Vátryggingafélag gat að mati dómsins ekki hafnað frekari greiðslu bóta á grundvelli váryggingaskilmála sem kváðu á um að örorku skyldi meta innan þriggja ára frá slysdegi. Litið svo á að félagið hafi í verki samþykkt að halda málinu opnu eftir lok frestsins.
Kröfu launþega um forgang við gjaldþrotaskipti samkvæmt 112. gr. laga nr. 21/1991 var hafnað.