Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Vátryggingar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2025

E-2084/2025

Hagavagninn ehf (Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Deit var um uppgjör byggt á túlkun ákvæða í vátyggingarskírteini og í vátryggingarskilmálum í kjölfar uppgjörs stefnda tryggingafélags við stefnanda vegna rekstrartjóns hjá stefnanda í kjölfar bruna hjá stefnanda. Var talið að stefnandi hafi hér ekki sýnt fram á að honum hafi borið frekari bætur en hann hafði þegar fengið greiddar og var hið stefnda félag því sýknað af dómkröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. október 2025

E-6392/2024

A (Hjördís Edda Harðardóttir lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Viktoría Hilmarsdóttir lögmaður)

Stenda, vátryggingarfélag, var sýknað af bótakröfum stefnanda, vegna líkamstjóns, sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna tveggja umferðarslysa, en stefnandi aflaði og lagði fram í málinu einhliða matsgerð án aðkomu stefnda, til að reyna sýna fram á tjón sitt og tengsl þess við umrædd slys. Féllst dómurinn, m.a. með vísan til dómafordæma, ekki á að fyrirliggjandi gögn og þar á meðal umrædd matsgerð, teldust vera til þess fallin að sanna nægilega umrædd orsakatengsl, sem leiddi þá til sýknu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. apríl 2021

E-62/2021

A (Óðinn Elísson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Gísli Örn Reynisson Schramm lögmaður)

Vátryggingafélag gat að mati dómsins ekki hafnað frekari greiðslu bóta á grundvelli váryggingaskilmála sem kváðu á um að örorku skyldi meta innan þriggja ára frá slysdegi. Litið svo á að félagið hafi í verki samþykkt að halda málinu opnu eftir lok frestsins.