Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

11 dómar fundust

Lykilorð: Kröfusamlag

Landsréttur birt 10. janúar 2023

621/2022

EC-Clear ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Arion banka hf. (Dóra Sif Tynes lögmaður), SaltPay IIB hf. (Kristín Edwald lögmaður), Íslandsbanka hf. (Hörður Felix Harðarson lögmaður), Landsbankanum hf. (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) og Valitor hf. (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli E ehf. gegn A hf., B hf., Í hf., L hf. og V hf. var vísað frá dómi. Með málshöfðun sinni höfðaði E ehf. í sjötta sinn mál vegna ætlaðs tjóns K ehf. vegna tilgreindrar háttsemi varnaraðila. Landsréttur féllst á það með E ehf. að málatilbúnaður hans væri nú í því horfi að ekki væri ástæða til að vísa málinu í heild sinni frá dómi. Meðal annars kom fram í úrskurði réttarins að aðalkrafa E ehf. fullnægði áskilnaði d-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá fullnægðu þriðja, fjórða og fimmta varakrafa E ehf. áskilnaði sama ákvæðis og samrýmdust 2. mgr. 25. gr. sömu laga. Hins vegar fullnægðu fyrsta og önnur varakrafa E ehf. ekki áskilnaði d-liðar 1. mgr. 80. gr. laganna, enda væri þar krafist greiðslu skaðabóta úr hendi varnaraðila án þess að lýst væri því tiltekna skaðaverki sem bæturnar ættu að koma fyrir. Var fyrstu og annarri varakröfu E ehf. því vísað frá héraðsdómi en að öðru leyti var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. desember 2018

E-1150/2017

A, f.h, ólögráða sonar síns og D (Kristín Ólafsdóttir lögmaður) gegn B (Viktoría Hilmarsdóttir lögmaður) og Allianz Ísland hf. söluumboði (Ástríður Gísladóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnda sýknuð af kröfu stefnanda um að honum yrði greiddur hluti líftryggingar hins látna og greiðsla til rétthafa yrði felld niður að hluta. Hið stefnda söluumboð var sýknað sökum aðildarskorts.

Landsréttur birt 22. mars 2018

239/2018

Norðurturninn hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður) gegn Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. (Helgi Jóhannesson lögmaður) og Kópavogsbæ (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli N á hendur E og K var vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að máli yrði ekki vísað frá dómi vegna þess að skilyrðum aðilasamlags samkvæmt 19. gr. laga nr. 91/1991 eða kröfusamlags samkvæmt 27. gr. sömu laga væri ekki fullnægt, nema stefndi krefðist þess. Þar sem E og K hefðu ekki haft uppi varnir á þeim grunni kæmi ekki til álita að vísa málinu frá dómi af þeim sökum. Þá var talið að N hefði á fullnægjandi hátt gert grein fyrir kröfum sínum á hendur E og K þannig að efnisdómur yrði lagður á þær. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. mars 2018

E-1150/2017

Helena, Bergsveinsdóttir, f.h, ólögráða sonar síns, Gunnars og Breka Hjaltasonar gegn Rakel Rún Karlsdóttur og Allianz Ísland hf
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Máli vísað frá dómi þar sem kröfugerð uppfyllti ekki skilyrði laga um framsetningu kröfugerðar og 80. gr. laga nr. 91/1991

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júní 2017

E-3655/2016

Málsóknarfélag hluthafa Landsbanka Íslands III (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

Máli málsóknarfélags var vísað frá dómi sökum þess að málatilbúnaður félagsmanna gat ekki verið einsleitur, en það leiddi til þess að skilyrðum 1. og 2. mgr. 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 var ekki talið fullnægt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júní 2017

E-3654/2016

Málsóknarfélag hlutahafa Landsbanka Íslands II (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

Máli málsóknarfélags var vísað frá dómi sökum þess að málatilbúnaður félagsmanna gat ekki verið einsleitur, en það leiddi til þess að skilyrðum 1. og 2. mgr. 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 var ekki talið fullnægt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júní 2017

E-3653/2016

Málsóknarfélag hluthafa Landsbankans I (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

Máli málsóknarfélags var vísað frá dómi sökum þess að málatilbúnaður félagsmanna gat ekki verið einsleitur, en það leiddi til þess að skilyrðum 1. og 2. mgr. 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 var ekki talið fullnægt.

Hæstiréttur birt 1. júní 2017

445/2016

Guðjón Sigurðsson, Eiríkur Sigurðsson Guðrún Sigurðardóttir (Sigurður Sigurjónsson hrl) og Hafdís Sigurðardóttir (Reynir Karlsson hrl) gegn Björk Sigurðardóttur (Hilmar Magnússon hrl)

B krafðist riftunar á afsölum SG og HE annars vegar á hesthúsi til GS, ES, GUS og HS og hins vegar á íbúð til GS og HV og hafði uppi endurgreiðslukröfu í báðum tilvikum. Féllst héraðsdómur á kröfur B. Undir meðferð málsins fyrir Hæstarétti féll B frá kröfu sinni um riftun á síðarnefndu afsali. Í dómi Hæstaréttar 9. mars 2017 var vísað til þess að þar sem kröfurnar hefðu hvorki verið á hendur sömu aðilum né hefðu þær átt rætur að rekja til sama atviks, aðstöðu eða löggernings hefðu skilyrðum 1. mgr. 27. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála um kröfusamlag ekki verið fullnægt og þar með ekki heldur til samlagsaðildar, sbr. 1. mgr. 19. gr. sömu laga. Þar sem B hefði í reynd með breyttri kröfugerð fallist á að fyrrnefndum skilyrðum hefði ekki verið fullnægt og fallið frá síðari dómkröfu sinni var þeim hluta málsins vísað frá héraðsdómi en málið að öðru leyti látið bíða efnisdóms réttarins. Í dómi Hæstaréttar 1. júní 2017 kom fram að B reisti riftunarkröfu sína annars vegar á 131. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. og hins vegar á 141. gr. sömu laga. Í dóminum var vísað til þess að GS, ES, GUS og HS hefðu innt af hendi umsamda greiðslu fyrir hesthúsið og selt það síðan aftur á sama verði. Hefði salan því ekki leitt til eignaraukningar hjá þeim og því ekki talið að um gjöf hefði verið að ræða sem væri riftanleg eftir ákvæðum 131. gr. laga nr. 21/1991. Þá var talið að riftunarskilyrði 141. gr. laganna væri ekki fullnægt þar sem ráðstöfunin hefði ekki ótilhlýðilegan hátt verið kröfuhafa til hagsbóta á kostnað annarra eða hefði leitt til þess að eignir þrotamanna yrðu ekki til reiðu til fullnustu kröfuhöfum né til skuldaaukningar þeim til tjóns. Voru því GS, ES, GUS og HS sýknuð af kröfum B.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. mars 2016

E-3540/2015

Málsóknarfélag hluthafa Landsbanka Íslands (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

Máli vísað frá dómi þar sem ekki lá fyrir að félagsmenn málsóknarfélags hefðu lögvarða hagsmuni af úrlausn viðurkenningarkrafna sinna.

Hæstiréttur birt 21. febrúar 2000

48/2000

Samtök atvinnulífsins (Jakob R. Möller hrl) gegn Verkalýðs-, sjómannafélagi, Álftfirðinga, Verkalýðsfélaginu Baldri, Aðalheiði Steinsdóttur, Jóni Helga Gíslasyni, Sigríði Bragadóttur, Trausta Magnúsi Ágústssyni, Veturliða Arnari Gunnarssyni (Björn Lárus Bergsson hrl) og Valsteini Heiðari Guðbrandssyni (Guðni Ásþór Haraldsson hrl)

Kærumál. Félagsdómur. Dómstólar. Kröfugerð. Samlagsaðild. Kröfusamlag. Vanreifun. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Gjafsókn. Samtök atvinnulífsins (SA) stefndu tveimur verkalýðsfélögum og nokkrum einstaklingum til greiðslu skaðabóta vegna tjóns, sem SA töldu stefndu hafa valdið með ólögmætum hætti við verkfallsvörslu. Hafði SA fengið kröfurnar framseldar frá félagsmanni sínum. Héraðsdómur vísaði málinu frá á þeirri forsendu að sakarefnið ætti undir Félagsdóm. Þar sem ekki var ágreiningur um lögmæti þess verkfalls sem stóð yfir í umrætt sinn þótti sérákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur um verkefni Félagsdóms ekki eiga við heldur ætti málið undir hina almennu dómstóla. Ekki þóttu aðrir gallar á málatilbúnaði SA eiga að leiða til frávísunar og var frávísunarúrskurðurinn því felldur úr gildi.