Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-3655/2016:

Málsóknarfélag hluthafa Landsbanka Íslands

III

(Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

gegn

Björgólfi Thor Björgólfssyni

I

Mál

þetta, sem var tekið til úrskurðar 10. maí sl., var höfðað 25. október 2016 af

Málsóknarfélagi hluthafa Landsbanka Íslands III, Borgartúni 26 í Reykjavík,

gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni, 55 Clarendon Road, London, W11 4JD,

Bretlandi.

Í

málinu krefst stefnandi þess að viðurkennd verði skaðabótaskylda stefnda á

tjóni félagsmanna stefnanda, vegna þess að þeir voru í þeirri stöðu, að

hlutabréf sem þeir, eða aðilar sem þeir leiða rétt sinn frá, eignuðust í

Landsbanka Íslands hf. eftir 30. júní 2006, urðu verðlaus þann 7. október 2008.

Þá krefst stefnandi málskostnaðar að skaðlausu.

Stefndi

gerir kröfu um að málinu verði vísað frá dómi og að honum verði dæmdur

málskostnaður úr hendi stefnanda að skaðlausu. Er krafan sett fram með vísan

til 2. mgr. 99. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.

II

Stefnandi

er málsóknarfélag einstaklinga og lögaðila sem eiga það sammerkt að hafa verið

hluthafar í Landsbanka Íslands hf. 7. október 2008 eða leiða rétt sinn frá

aðila sem átti hlutabréf í bankanum á þeim degi, eins og segir í stefnu. Við

þingfestingu málsins munu 96 félagsmaður hafa verið í málsóknarfélaginu, en

þeir eru allir nafngreindir í stefnu og var listi með nafni og kennitölu þeirra

lagður fram við þingfestingu málsins, ásamt gögnum frá Verðbréfaskráningu Íslands

um hlutabréfaeign félagsmanna stefnanda í Landsbankanum.

Hinn

7. október 2008 var stjórn Landsbanka Íslands hf. tekin yfir af

Fjármálaeftirlitinu á grundvelli heimildar í lögum nr. 125/2008 og bankanum

skipuð skilanefnd. Í stefnu segir að við það hafi hlutabréf hluthafa í bankanum

orðið verðlaus. Byggir stefnandi málshöfðun sína á því að félagsmenn hans hefðu

ekki verið hluthafar í bankanum við fall hans, „og þar með ekki orðið fyrir

tjóni“, ef ekki hefði komið til saknæm og ólögmæt háttsemi stefnda sem lýst er

í stefnunni.

Í

stefnu er gerð grein fyrir kaupum Samsons eignarhaldsfélags ehf. (Samson) á

45,8% hlut í Landsbanka Íslands hf. í lok árs 2002. Þar er því síðan lýst með

hvaða hætti hlutur Samsons í bankanum breyttist samkvæmt því sem upplýst er í

ársreikningum bankans. Jafnframt er þar gerð grein fyrir því hvernig

eignarhaldi Samsons var háttað frá árslokum 2002 til 30. júní 2008. Í stefnu er

því haldið fram að til ársins 2004 hafi stefndi átt 42,74% hlut í Samson í

gegnum félag sem ber heitið Givenshire Equities Limited. Eftir að Samson leysti

á árinu 2005 til sín hlut Magnúsar Þorsteinssonar, sem hafði upphaflega átt

hlut í Samson ásamt stefnda og föður hans, Björgólfi Guðmundssyni, er því

haldið fram í stefnu að hlutur Givenshire í Samson hafi aukist, fyrst í 49,5%

árið 2005, en að hann hafi síðan hækkað í 49,9% árið eftir og hafi haldist

óbreyttur síðan þá. Frá 2006 mun stefndi einnig hafa átt persónulega 0,1% hlut

í Samson. Fram kemur í stefnu að stefndi hafi verið formaður stjórnar Samsons.

Í

stefnu er gerð grein fyrir reikningsskilum bankans frá árinu 2005, en á því ári

varð bankanum skylt að gera reikningsskil sín í samræmi við alþjóðlega

reikningsskilastaðla. Kemur þar fram að meðal þeirra hafi verið staðallinn IAS

24, en hann hafi lagt þá skyldu á bankann að skýra frá viðskiptum hans við

tengda aðila. Í ársreikningum Landsbankans var aldrei gerð grein fyrir

viðskiptum stefnda og tengdra félaga við bankann.

Í

(Reimar Snæfells Pétursson hrl)

Fjártjón. Frávísun frá héraðsdómi. Kröfusamlag. Samlagsaðild.

Máli málsóknarfélags var vísað frá dómi sökum þess að málatilbúnaður félagsmanna gat ekki verið einsleitur, en það leiddi til þess að skilyrðum 1. og 2. mgr. 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 var ekki talið fullnægt.

I

Mál þetta, sem var tekið til úrskurðar 10. maí sl., var höfðað 25. október 2016 af Málsóknarfélagi hluthafa Landsbanka Íslands III, Borgartúni 26 í Reykjavík, gegn   Björgólfi   Thor   Björgólfssyni,   55   Clarendon   Road,   London,   W11   4JD, Bretlandi. Í málinu krefst stefnandi þess að viðurkennd verði skaðabótaskylda stefnda á tjóni félagsmanna stefnanda, vegna þess að þeir voru í þeirri stöðu, að hlutabréf sem þeir, eða aðilar sem þeir leiða rétt sinn frá, eignuðust í Landsbanka Íslands hf. eftir   30.   júní   2006,   urðu   verðlaus   þann   7.   október   2008.   Þá   krefst   stefnandi málskostnaðar að skaðlausu. Stefndi gerir kröfu um að málinu verði vísað frá dómi og að honum verði dæmdur málskostnaður úr hendi stefnanda að skaðlausu. Er krafan sett fram með vísan til 2. mgr. 99. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.

II

Stefnandi er málsóknarfélag einstaklinga og lögaðila sem eiga það sammerkt að hafa verið hluthafar í Landsbanka Íslands hf. 7. október 2008 eða leiða rétt sinn frá aðila sem átti hlutabréf í bankanum á þeim degi, eins og segir í stefnu. Við þingfestingu málsins munu 96 félagsmaður hafa verið í málsóknarfélaginu, en þeir eru allir nafngreindir í stefnu og var listi með nafni og kennitölu þeirra lagður fram við   þingfestingu   málsins,   ásamt   gögnum   frá   Verðbréfaskráningu   Íslands   um hlutabréfaeign félagsmanna stefnanda í Landsbankanum. Hinn   7.   október   2008   var   stjórn   Landsbanka   Íslands   hf.   tekin   yfir   af Fjármálaeftirlitinu   á   grundvelli   heimildar   í   lögum   nr.   125/2008   og   bankanum skipuð skilanefnd. Í stefnu segir að við það hafi hlutabréf hluthafa í bankanum orðið verðlaus. Byggir stefnandi málshöfðun sína á því að félagsmenn hans hefðu ekki verið hluthafar í bankanum við fall hans, „og þar með ekki orðið fyrir tjóni“, ef ekki hefði komið til saknæm og ólögmæt háttsemi stefnda sem lýst er í stefnunni. Í stefnu er gerð grein fyrir kaupum Samsons eignarhaldsfélags ehf. (Samson) á 45,8% hlut í Landsbanka Íslands hf. í lok árs 2002. Þar er því síðan lýst með hvaða hætti   hlutur   Samsons   í   bankanum   breyttist   samkvæmt   því   sem   upplýst   er   í ársreikningum bankans. Jafnframt er þar gerð grein fyrir því hvernig eignarhaldi Samsons var háttað frá árslokum 2002 til 30. júní 2008. Í stefnu er því haldið fram að til ársins 2004 hafi stefndi átt 42,74% hlut í Samson í gegnum félag sem ber heitið Givenshire Equities Limited. Eftir að Samson leysti á árinu 2005 til sín hlut Magnúsar Þorsteinssonar, sem hafði upphaflega átt hlut í Samson ásamt stefnda og föður   hans,   Björgólfi   Guðmundssyni,   er   því   haldið   fram   í   stefnu   að   hlutur Givenshire í Samson hafi aukist, fyrst í 49,5% árið 2005, en að hann hafi síðan hækkað í 49,9% árið eftir og hafi haldist óbreyttur síðan þá. Frá 2006 mun stefndi einnig hafa átt persónulega 0,1% hlut í Samson. Fram kemur í stefnu að stefndi hafi verið formaður stjórnar Samsons. Í stefnu er gerð grein fyrir reikningsskilum bankans frá árinu 2005, en á því ári varð   bankanum   skylt   að   gera   reikningsskil   sín   í   samræmi   við   alþjóðlega reikningsskilastaðla. Kemur þar fram að meðal þeirra hafi verið staðallinn IAS 24, en hann hafi lagt þá skyldu á bankann að skýra frá viðskiptum hans við tengda aðila. Í ársreikningum Landsbankans var aldrei gerð grein fyrir viðskiptum stefnda og tengdra félaga við bankann. Í stefnu er umfangi þessara viðskipta bankans við stefnda og félög sem honum tengjast lýst. Þar er því haldið fram að 30. júní 2005 hafi heildarskuldbindingar bankans   gagnvart   stefnda   og   félögum,   sem   að   mati   Fjármálaeftirlitsins   voru fjárhagslega tengd stefnda, numið 53,6 milljörðum króna, en 51,3 milljörðum króna eftir að tekið hafði verið tillit til frádráttar sem heimilaður væri. Hafi þessar skuldbindingar numið 49,7% af eiginfjárgrunni bankans. Í stefnunni er jafnframt vísað til gagna sem gefi til kynna að skuldbindingar stefnda og fjárhagslega tengdra félaga hafi numið 101 milljarði króna um mitt ár 2007 og að þessar skuldbindingar hafi aukist eftir það og numið samtals 141,5 milljörðum króna við fall bankans. Stefnandi telur að skylt hafi verið að gera grein fyrir þessum viðskiptum Landsbankans   við   stefnda   og   félög,   sem   honum   tengdust,   í   reikningsskilum bankans. Vísar stefnandi þá til þess að stefndi hafi átt að teljast tengdur aðili í skilningi fyrrgreinds staðals IAS 24, eins og nánar er rökstutt í stefnu, meðal annars með skírskotun til staðalsins IAS 28. Því er haldið fram í stefnu að þegar mat hafi verið lagt á þessi tengsl hafi einungis verið litið til þess hvort stefndi hafi með óbeinum hætti ráðið yfir meira en 20%   atkvæðisréttar   í   bankanum.   Hafi   þá   verið   stuðst   við   upplýsingar   frá framkvæmdastjóra Samsons um óbeint eignarhald stefnda í Landsbankanum sem stefndi hafi borið ábyrgð á að væru réttar. Er á því byggt af hálfu stefnanda að stefndi hafi með ýmsum hætti komið því til leiðar að villandi og beinlínis rangar upplýsingar   um   þetta   atriði   hafi   verið   lagðar   til   grundvallar   við   reikningsskil bankans fyrir árið 2005, sbr. ársreikning hans sem birtur var 27. janúar 2006, og þar til   yfir   lauk.   Meðal   annars   af   þeim   sökum   hafi   ekki   verið   upplýst   um skuldbindingar stefnda og tengdra félaga við bankann í ársreikningum hans fyrir árin 2005, 2006 og 2007. Að auki hafi það viðgengist við útreikning á óbeinu atkvæðavægi stefnda í Landsbankanum að líta fram hjá eða fara rangt með fjölda hluta sem voru án atkvæðisréttar á hluthafafundum og þannig vanmeta óbeinan atkvæðisrétt stefnda. Í stefnu er því haldið fram að með þessu hafi stefndi með saknæmum og ólögmætum   hætti   komið   því   til   leiðar   að   ekki   var   getið   um   upplýsingar   í framangreindum ársreikningum um tengsl hans við Landsbankann. Þannig hafi verið komið í veg fyrir að viðskipti hans við bankann væru gerð opinber. Með því telur stefnandi að stefndi hafi vísvitandi blekkt lesendur ársreikninganna, en hann hafi vitað eða mátt vita að upplýsingar í reikningum bankans hefðu áhrif á afstöðu þeirra til þess hvort þeir vildu vera hluthafar í bankanum. Af hálfu stefnanda er jafnframt á því byggt að stefndi hafi borið ábyrgð á því að fylgjast með hvort Samson færi með yfirráð yfir Landsbankanum þannig að skylda   til   að   gera   öðrum   hluthöfum   yfirtökutilboð   hafi   orðið   virk.   Þessu   til stuðnings vísar stefnandi meðal annars til ábendingar í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 3. febrúar 2003, um heimild eigenda Samsons til að fara með virkan eignarhlut í Landsbankanum, og síðari bréfa Fjármálaeftirlitsins um þetta efni. Því er haldið fram í stefnu að eftir 30. júní 2006, þegar Samson hafi aukið við hlutafjáreign   sína   í   Landsbankanum,   hafi   eignarhaldsfélagið   í   raun   farið   með meirihluta atkvæða í Landsbankanum og því átt að teljast móðurfélag hans. Af hálfu stefnanda er þá tekið mið af því að hlutafjáreign Landsbankans í Lúxemborg og svonefndra aflandsfélaga hafi verið óvirk. Stefnandi byggir á því að við þessar aðstæður hafi Samson borið að tilkynna öðrum hluthöfum um þessa breyttu stöðu og gera þeim yfirtökutilboð samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga nr. 33/2003. Hafi vafi leikið   á   þessu   telur   stefnandi   að   allri   óvissu   hafi   verið   eytt   á   aðalfundi Landsbankans 9. febrúar 2007 þegar í ljós hafi komið að hlutafé aflandsfélaganna var undir yfirráðum Landsbankans. Í kjölfarið telur stefnandi að stefnda hafi borið að bregðast við þessum upplýsingum og leggja mat á stöðu Samsons gagnvart Landsbankanum.   Í   síðasta   lagi   hafi   yfirtökuskylda   Samsons   gagnvart   öðrum hluthöfum orðið virk 30. júní 2008 eftir að hlutafé Samsons jókst úr 40,73% í 41,85%. Er þá tekið tillit til þess að líta hafi átt á hlutabréfaeign Straums-Burðaráss í Landsbankanum með hlutafjáreign Samsons í bankanum. Að því gættu hafi legið fyrir að Samson hafi ráðið yfir meirihluta atkvæðisréttar í Landsbanknaum án tillits til hlutabréfaeignar aflandsfélaga í bankanum. Stefnandi byggir viðurkenningarkröfur sínar meðal annars á því að stefnandi hafi með saknæmum og ólögmætum hætti brotið gegn þeirri skyldu sinni að leggja mat á og upplýsa hluthafa í bankanum um að Samson færi með yfirráð yfir honum þegar hinn 30. júní 2006 eða við síðari tímamörk samkvæmt því sem rakið hefur verið.   Hafi   stefnda,   sem   formanni   stjórnar   Samsons,   jafnframt   borið   að   hafa frumkvæði að því að Samson gerði öðrum hluthöfum yfirtökutilboð í síðasta lagi fjórum vikum eftir að skylda til yfirtöku hafi stofnast. Í sérstökum kafla stefnunnar er vikið að því tjóni sem félagsmenn stefnanda telja sig hafa orðið fyrir. Þar er áréttað að hlutabréfin sem þeir áttu við fall Landsbankans 7. október 2008 hafi þá orðið verðlaus. Staðhæft er að félagsmenn stefnanda hefðu ekki kært sig um að vera hluthafar í Landsbankanum ef upplýst hefði verið um að bankinn lyti stjórn Samsons sem teldist móðurfélag hans og ef upplýsingar hefðu legið fyrir um umfangsmiklar lánveitingar bankans til stefnda. Tjón þeirra, sem fólst í því að hlutabréf þeirra urðu verðlaus, hefði ekki orðið að veruleika ef stefndi hefði sinnt þeim skyldum sem á honum hvíldu. Stefnandi áréttar þó að með úrlausn á kröfugerð í máli þessu sé engu slegið föstu um umfang þessa tjóns. Því standi 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, ekki í vegi fyrir að dómurinn skeri úr um viðurkenningarkröfuna. Stefnandi rökstyður þá ályktun sína að orsakatengsl séu milli tjónsins og saknæmrar og ólögmætrar háttsemi stefnda með því að vísa til þess að upplýsingar um hversu mikill óbeinn eignarhlutur stefnda hafi verið í Landsbankanum og um umfangsmiklar lánveitingar til stefnda og tengdra aðila, sem og að bankinn lyti fullum yfirráðum Samsons, séu allar mikilvægar upplýsingar fyrir fjárfesti í banka og skipti sköpum um það hvort hann vilji eiga hlut í honum. Það sé staðfest meðal annars í löggjöf auk þess sem það leiði af eðli máls. Af hálfu stefnanda er meðal annars á því byggt að stefndi verði að bera áhættuna af því að hafa leynt hluthafa upplýsingum um þessar umfangsmiklu lánveitingar. Hafi stefnda mátt vera ljóst að mikilvægt væri að upplýsa um þessi atriði svo hluthafar gætu tekið fjárfestingaákvarðanir á fullnægjandi forsendum. Kveður stefnandi að stefndi hafi vitað eða mátt vita að þessar upplýsingar hefðu almenn áhrif á vilja fjárfesta til að vera hluthafar í Landsbanka Íslands hf. Stefnandi telur því að skilyrðum um orsakatengsl og sennilega afleiðingu milli saknæmrar háttsemi stefnda og tjóns félagsmanna stefnanda sé fullnægt. Þá er á því byggt að stefndi verði að bera sönnunarbyrði fyrir því vilji hann halda því fram að upplýsingar um þessi atriði hefðu ekki haft neikvæð áhrif á vilja félagsmanna stefnanda til að vera hluthafar í Landsbankanum. Vafa um viðbrögð félagsmanna stefnanda við réttum upplýsingum sé ekki unnt að meta stefnda í hag enda verði hann að bera áhættuna af því að hafa brotið gegn skyldum sínum. Jafnframt eru færð rök fyrir því í stefnu að beita beri ströngu sakarmati í málinu.

III

Í greinargerð stefnda eru færð rök fyrir því að vísa beri málinu frá dómi. Bendir stefndi á að stefnandi höfði þetta mál að nýju eftir að Hæstiréttur Íslands hafi vísað fyrra máli stefnanda frá með dómi 2. maí 2016. Með þessari nýju málsókn freisti stefnandi að bæta úr þeim annmörkum sem rétturinn hafi álitið einkenna fyrra málið. Stefndi telur þær breytingar gera illt verra og telur því óhjákvæmilegt að vísa þessu máli einnig frá dómi. Rétt er að rekja helstu málsástæður stefnda fyrir þeirri niðurstöðu. Í fyrsta lagi er á því byggt að dómkrafa stefnanda feli ekki sér afmörkun á því hver sú háttsemi stefnda geti verið sem eigi að leiða til bótaskyldu. Að þessu leyti sé kröfugerðin svo óviss og ómarkviss að ekki verði lagður á hana efnisdómur. Í öðru lagi byggir stefndi á því að málið sé vanreifað af hálfu stefnanda. Því til stuðnings vísar stefndi m.a. til þess að það sé óskýrt hverja dómur eigi að binda. Í kröfugerðinni sé krafist viðurkenningar á réttindum félagsmanna stefnanda vegna hlutabréfa   sem   „þeir,   eða   aðilar   sem   þeir   leiða   rétt   sinn   frá,   eignuðust“   í Landsbankanum eftir 30. júní 2006. Ekki sé útskýrt hverjir þessir aðrir „aðilar“ séu. Möguleg aðild sé því vanreifuð. Þá megi, þrátt fyrir þessa afmörkun, ráða af gögnum málsins að meðal félagsmanna séu aðilar sem falli utan hennar. Á lista yfir félagsmenn sé jafnvel að finna félaga sem eignast hafi hluti sína eftir að hlutir Landsbankans hafi verið orðnir óvirkir til viðskipta eftir 7. október 2008. Þetta veki enn   frekari   álitamál   að   mati   stefnda   um   vanreifun   á   aðild   félagsmanna   að sakarefninu. Stefndi bendir einnig á að tilgangur stefnanda sé að reka dómsmál vegna „tjóns sem   félagsmenn   urðu   fyrir   sem   hluthafar“   í   Landsbankanum.   Samþykktirnar heimili þannig stefnanda ekki að höfða mál í þágu félagsmanna sem ekki hafi orðið fyrir tjóni sem hluthafar, heldur „leiða rétt sinn frá“ slíkum hluthöfum. Að lokum skorti verulega á að staðfestingar á félagsaðild séu í traustu horfi, en slíkt hljóti að vera forsenda málatilbúnaðar sem þessa. Stefndi   reisir   röksemdir   sínar   um   vanreifun   málsins   einnig   á   því   að nauðsynlegt hafi verið að fjalla um það hvenær og á hvaða verði félagsmenn hans hafi átt viðskipti með hluti í Landsbankanum. Án þeirra upplýsinga sé útilokað að slá neinu föstu um afkomu félagsmanna af viðskiptunum og ætlað tjón þeirra af þeim.   Bendir   stefndi   á   að   gera   verði   ráð   fyrir   því   að   umtalsverður   fjöldi félagsmanna hafi selt af eignarhlut sínum í Landsbankanum eftir að hin meinta bótaskylda háttsemi eigi að hafa hafist. Þannig kunni vel að hugsast að þessir félagsmenn hafi notið jákvæðrar afkomu af viðskiptum með hluti bankans. Í stefnu sé hvergi gerð grein fyrir þessu atriði. Þannig sé m.a. engin grein gerð fyrir fjölda hluta í eigu félagsmanna stefnanda 30. júní 2006 eða 7. október 2008 þó að kröfugerð taki sérstakt mið af þessum dagsetningum. Enn síður sé gerð grein fyrir viðskiptum þeirra frá upphafi til loka þessa tímabils. Nánar er vikið að þessu í samhengi við málshöfðun málsóknarfélaga I og II í greinargerð. Telur stefndi að þrjár málshöfðanir félagsmanna stefnanda gegn stefnda leiði samanlagt til þess að stefnandi geri sér enga grein fyrir því á hvaða forsendum málin byggist varðandi tjón einstakra félagsmanna. Stefndi telur jafnframt á það skorta að stefnandi geri grein fyrir því hvaða forsendur og ástæður hafi búið að baki kaupum og sölu félagsmanna á hlutum í Landsbankanum á þeim tíma sem um er deilt. Stefndi byggir á því að nauðsynlegt hafi verið að fjalla í stefnu t.d. um: a) hver hafi verið fjárhagsstaða einstakra félagsmanna, b) hvort þeir hafi notið ráðgjafar við viðskiptin og þá, eftir atvikum, hjá hverjum, c) hvort þeir hafi fjármagnað viðskiptin með eigin fé eða lánsfé, d) hversu   stór   hluti   eigna   þeirra   hafi   verið   bundinn   í   hlutum   bankans,   e)   hvort fjárfesting hafi verið ætluð til skamms eða langs tíma og f) hvort um hafi verið að ræða spákaupmennsku eða langtímafjárfestingu. Stefndi byggir enn fremur á því að málsreifun stefnanda um tjón félagsmanna sinna sé einnig ruglingsleg. Í upphafi stefnu komi fram að byggt sé á því að félagsmenn hans hefðu ekki kosið að vera hluthafar nema fyrir hina bótaskyldu háttsemi. Stefndi kveður þetta orðalag vera sérkennilegt, en að það skýrist e.t.v. af viðurkenningu stefnanda að það fullnægi ekki kröfum 19. gr. a laga nr. 91/1991 ef félagsmenn héldu því fram annars vegar að sumir þeirra hefðu selt hluti en aðrir hefðu ekki keypt. Orðalagið „hefðu ekki kosið að vera hluthafar“ virðist hins vegar ætlað að merkja það sama, þ.e. „hefðu selt eða ekki keypt“. Að mati stefnda sýni þetta hversu hæpinn málatilbúnaður stefnanda sé og hversu létt hann ætli að skauta fram hjá þeim grundvallarmun sem sé á stöðu manna eftir því hvort þeir hafi átt hluti áður en hin ætlaða bótaskylda háttsemi átti sér stað eða eftir. Stefndi telur þó ljóst að stefnandi byggi ekki á því að stefndi beri ábyrgð á því að hlutir bankans hafi orðið verðlausir 7. október 2008. Aðrar óskyldar ástæður hafi valdið því. Þá telur stefndi ljóst að stefnandi ætli ekki að reisa bótakröfur á einhverju verði sem yfirtökutilboð hafi átt að miðast við. Með vakni áleitnar spurningar að mati stefnda um hvaða þýðingu málatilbúnaður hans um skyldu til að gera yfirtökutilboð og verðfall bréfanna 7. október 2008 hafi yfirleitt. Stefndi reisir frávísunarkröfu sína í þriðja lagi á því að stefnandi hafi ekki sýnt fram á að félagsmenn hans hafi lögvarða hagsmuni af því að fá viðurkennda skaðabótaábyrgð annars manns samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Skilyrði þess sé að stefnandi leiði nægar líkur að því að hann hafi orðið fyrir tjóni af nánar tilteknu tilefni og geri grein fyrir því í hverju tjónið felist og hver tengsl þess séu við atvik máls. Telur stefndi skorta verulega á að gerð sé grein fyrir þessum atriðum í stefnu. Í málatilbúnaði hans felist þvert á móti að ekkert tjón geti hafa orðið af hinni ætluðu saknæmu háttsemi. Í fyrsta lagi byggi stefnendur ekki á því að hin ætlaða saknæma háttsemi stefnda hafi leitt til þrots Landsbankans 7. október 2008. Það þrot hafi orðið af öðrum og óskyldum ástæðum. Í öðru lagi byggi stefnendur ekki á því að nokkur saknæm háttsemi hafi átt sér stað þegar félagsmenn hans hafi eignast hluti sína. Í þriðja lagi byggi stefnendur á því að þeir hefðu ekki keypt hluti sem þeir byggi síðan á að þeir hefðu selt. Í   fjórða   lagi   er   frávísunarkrafa   stefnda   á   því   reist   að   málshöfðanir málsóknarfélagsins í þessu máli séu ósamrýmanlegar málshöfðun tveggja annarra félaga með sama nafni og stefnandi en með númerunum I og II. Bendir stefndi á að sumir félagsmanna stefnanda hafi einnig gerst félagsmenn í félögum I og II. Þessir félagsmenn hafi því veitt þremur mismunandi lögaðilum fullt forræði á málarekstri þeirra gegn stefnda vegna sama sakarefnis. Þá teljist þeir hafa höfðað tvö, sumir hverjir þrjú, mál gegn stefnda. Stefndi telur að þessi háttur á málshöfðun samrýmist ekki fyrirmælum 19. gr. a laga nr. 91/1991 og því beri að vísa málinu frá af þessum sökum. Að auki sé þetta til þess fallið að gera málatilbúnað stefnanda verulega óskýran. Stefndi vísar t.d. til þess að stefnendur í málum I og II byggi á því að allir félagsmenn hans hefðu getað selt hlutabréf sín á verði sem „svarar til þess verðs sem greitt hefði verið fyrir hlutabréfin á almennum markaði“ á þeim tíma sem til bótaskyldu   hafi   stofnast.   Í   þessum   málatilbúnaði   kveður   stefndi   felast   að   við birtingu hinna umdeildu upplýsinga hefði birtingin að lágmarki kallað fram jafn mikla eftirspurn og falist hafi í framboði hluta félagsmanna stefnanda. Í þessu máli sé aftur á móti byggt á hinu gagnstæða. Þar haldi þessir sömu félagsmenn því fram að birting upplýsinganna hefði leitt til þess að sumir félagsmanna hefðu ekki keypt, og þar með hafi a.m.k. þeir ekki orðið til að grípa þau bréfi sem hinir hafi viljað kaupa. Eins taki stefnandi ekkert tillit til þess framboðs sem félagsmenn í félögum I og II byggi á að þeir hefðu sett á markað við sama tilefni.  Þar sem mál fálaganna allra séu að hluta milli sömu aðila telur stefndi að tormerki séu á því að samþýða málflutningsyfirlýsingar þessara þriggja félaga. Það veki t.d. áleitnar spurningar um hvernig beri að beita 5. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991. Stefndi telur sig eiga lögmætar væntingar um að ekki sé staðið með þessum hætti að málarekstri gegn honum. Þessi málatilbúnaður sé andstæður grundvallarreglum laga nr. 91/1991, sbr. t.d. undirstöðurök reglunnar um litis pendens, sbr. t.d. 116. gr. laganna. Í fimmta lagi er á því byggt af hálfu stefnda að með málshöfðuninni sé ekki fullnægt því skilyrði 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 að krafan eigi rætur í sama atviki, aðstöðu eða löggerningi. Því til stuðnings vísar stefndi til þess að stefnandi kefjist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda gagnvart hverjum félagsmanni fyrir sig vegna atvika sem varði rekstur Landsbanka Íslands hf. og þeir telja hafa valdið sér fjártjóni.  Atvik   að   baki   kröfu   hvers   og   eins   séu   hins   vegar   að   öðru   leyti mismunandi.   Þannig   hafi   viðskipti   þeirra   með   hluti   bankans   farið   fram   á mismunandi tímum og þá eftir fyrirmælum og forsendum hvers og eins þeirra. Kunni mismunandi atvik, sem varði hvern og einn þeirra sérstaklega, að hafa áhrif við mat á skaðabótaábyrgð stefnda á þeim grundvelli sem stefnandi miði kröfu sína við. Telur stefndi að huga verði að réttarstöðu hvers félagsmanns sjálfstætt við mat á hugsanlegri skaðabótaskyldu stefnda gagnvart þeim. Í   sjötta   lagi   telur   stefndi   að   með   málshöfðun   stefnanda   sé   ekki   fullnægt áskilnaði 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 að málsóknarfélag reki „í einu lagi“ mál um kröfur allra félagsmanna. Feli það í sér kröfu um að málatilbúnaður allra sé samhljóða. Mál verði ekki rekið á þessum grundvelli ef aðstæður eru með því móti að   tíunda   verði   sérstaklega   réttindi   hvers   og   eins,   enda   sé   þá   viðbúið   að málatilbúnaður þeirra allra sé ekki einsleitur eins og áskilið sé. Bendir stefndi á að óhjákvæmilegt sé í málinu að fjalla um það hvort einstakir félagsmenn hafi orðið fyrir tjóni, gera grein fyrir í hverju tjón þeirra sé fólgið og hver séu tengsl þess við atvik máls. Eðli málsins samkvæmt geti þetta ekki gerst „í einu lagi“ enda séu forsendur hvers félagsmanns mismunandi. Sumir kunni að hafa tekið lán fyrir hlutum sínum, aðrir kunni að hafa bæði keypt og selt hluti á tímanum sem um ræðir, aðrir kunni að hafa stundað spákaupmennsku á breiðari grundvelli, o.s.frv. Eins megi gera ráð fyrir að að eignarhald félagsmanna og viðskipti með hluti frá 27. janúar 2006 til 7. október 2008 hafi verið afar mismunandi án þess að nokkuð sé skýrt hvað hafi ráðið gerðum einstakra félagsmanna. Þá gildi sérstök sjónarmið um mál þeirra sem „leiða rétt sinn frá“ hluthöfum en voru ekki hluthafar sjálfir. Enn fremur kunni atvik að horfa við með mismunandi hætti eftir því hvenær félagsmenn hafi eignast hluti sína miðað við mismunandi málsástæður stefnanda um hvenær hin ætlaða bótaskylda háttsemi eigi að hafa hafist. Loks þurfi svo að gera sérstaka grein fyrir skörun mála þeirra sem hafi nú höfðað tvö og jafnvel þrjú mál gegn stefnda sem þátttakendur í öðrum málssóknarfélögum.

IV

Mál   þetta  er   höfðað   til  viðurkenningar  á   skaðabótaskyldu  stefnda   á   tjóni félagsmanna stefnanda er hlaust af því að þeir voru í þeirri stöðu, að hlutabréf sem þeir, eða aðilar sem þeir leiða rétt sinn frá, eignuðust í Landsbanka Íslands hf. eftir 30. júní 2006, urðu verðlaus 7. október 2008. Málshöfðunin um þessa kröfu er í senn reist á heimild í 19. gr. a í lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála, varðandi   aðild   stefnanda,   og   2.   mgr.   25.   gr.   sömu   laga   að   því   er   lýtur   að kröfugerðinni. Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 er þremur aðilum eða fleiri, sem eiga kröfur á hendur sama aðila, heimilt að láta málsóknarfélag, sem þeir eiga hlut að, reka í einu lagi mál um kröfur þeirra allra. Skilyrði þess að höfða megi mál á þessum grundvelli er að kröfur félagsmanna málsóknarfélagsins eigi rætur að rekja til sama atviks, aðstöðu eða löggernings. Í ákvæðinu eru síðan settar ákveðnar reglur um stofnun og tilgang slíks félags sem og um félagsskrá. Í 2. mgr. sömu greinar er kveðið á um að þótt málsóknarfélag eigi aðild að máli eigi félagsmenn hver fyrir sitt leyti þá hagsmuni sem málið varðar og njóti þar sömu stöðu og aðilar að því leyti sem annað leiði ekki af ákvæðum greinarinnar. Þá segir þar að í stefnu skuli dómkrafa gerð í einu lagi í nafni félagsins en greint skal allt að einu frá félagsmönnum, svo og hvern hlut hver þeirra eigi í kröfu sé hún um greiðslu peningafjárhæðar. Í 3. mgr. greinarinnar er síðan að því vikið hvernig fari gangi nýr aðili í málsóknarfélag eftir að mál hefur verið höfðað. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 117/2010, sem lögfesti heimild   19.   gr.   a   í   lögum   nr.   91/1991,   er   gerð   grein   fyrir   megininntaki frumvarpsins. Þar segir orðrétt eftirfarandi:

Í frumvarpinu felst sú grundvallarregla að um mál sem er höfðað og rekið af málsóknarfélagi gilda allar reglur réttarfarslaga að því marki sem ekki er beinlínis vikið frá þeim með reglum frumvarpsins.

Frumvarpið nær til þeirra tilvika þar sem hver og einn sem telur til réttar á hendur öðrum hefði getið rekið mál fyrir dómi upp á sitt eindæmi eða með því að standa ásamt fleirum að málsókn með samlagsaðild samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga um meðferð einkamála. Þess í stað er með frumvarpinu lögð til heimild til stofnunar málsóknarfélags í því skyni að félagið komi fram og reki dómsmál en ekki þeir sem eiga þá hagsmuni sem leitað er fyrir dómi.

Í skýringum með 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins sagði enn fremur eftirfarandi:

Einnig er áskilið með sama hætti og á við um samlagsaðild að félagsmenn í málsóknarfélagi eigi allir kröfur á hendur sama aðila sem eiga rætur að rekja til sama atviks, aðstöðu eða löggernings. Með öllu er ógerlegt að víkja frá þessu skilyrði enda verður ekki rekið í einu lagi mál þar sem sakarefnið er ekki eins gagnvart öllum sem eiga í hlut þannig að málatilbúnaður allra sé samhljóða.

Við   sömu   málsgrein   í   frumvarpinu   kemur   fram   að   ef   nauðsynlegt   er   af einhverju tilefni að reka fleiri mál fyrir dómi væri hægt að stofna samtímis fleiri málsóknarfélög um hvert sakarefni og tæki þá aðild að hverju félagi mið af því hverjir ættu þá hagsmuni sem málareksturinn stendur um. Þá er þar að finna eftirfarandi umfjöllun til útskýringar á því hvernig málatilbúnaður á þessum grunni getur verið ólíkur eftir því hvernig kröfugerð er hagað:

Þegar málsóknarfélag hefur verið myndað rekur það í einu lagi mál um kröfur allra félagsmanna. Í þessu felst að peningakröfur félagsmanna verða lagðar saman þannig að úr verði ein heildarkrafa sem beint verður að þeim sem málið er höfðað gegn. Ef málsóknarfélag gerir á hinn bóginn aðeins viðurkenningarkröfu er gert ráð fyrir því að sú krafa sé höfð uppi fyrir alla félagsmenn í senn án þess að þar sé gerður nokkur greinarmunur. Þannig yrði mál ekki rekið á þessum grundvelli ef aðstæður væru með því móti að tíunda   yrði   sérstaklega   réttindi   hvers   og   eins,   enda   er   þá   viðbúið   að málatilbúnaður   þeirra   allra   sé   ekki   einsleitur   eins   og   áskilið   er   í frumvarpinu.

Fyrir liggur að Málsóknarfélag hluthafa í Landsbanka Íslands höfðaði mál gegn stefnda 12. ágúst 2015. Með dómi Hæstaréttar Íslands 2. maí 2016 í málinu nr. 235/2016 var staðfestur úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa bæri því máli frá dómi. Í dómi Hæstaréttar Íslands var skírskotað til framangreindra ákvæða og ummæla í lögskýringargögnum. Tekið var fram að af 1. og 2. mgr. 19. gr. a laga nr. 91/1991 leiddi að málsóknarfélagi væri heimilt, í samræmi við tilgang sinn, að höfða mál í eigin nafni og krefjast viðurkenningar í einu lagi á skaðabótaskyldu þess sem stefnt væri á tjóni félagsmanna sinna, enda væru uppfyllt skilyrði 1. mgr. 19. gr. og 2. mgr. 25. gr. laganna. Áskilið væri að kröfur félagsmanna væri af sömu rót runnar og því yrði sami bótagrundvöllur að búa að baki kröfunum þannig að málatilbúnaður allra félagsmanna væri einsleitur. Styddust kröfur þeirra t.d. við ólíkar málsástæður væri af þeim sökum ekki unnt að beita þessu málsóknarúrræði. Ef leiddar væru hins vegar nægar líkur að því að félagsmenn málsóknarfélags hefðu orðið fyrir tjóni, svo sem vegna sömu atvika, jafnframt því sem gerð væri grein fyrir í hverju tjón þeirra fælist og hver tengsl þess væru við atvik máls, þannig að fullnægt væri áskilnaði 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um lögvarða hagsmuni „væri ekkert því til fyrirstöðu að félagið krefðist í einu lagi viðurkenningar á bótaskyldu gagnvart félagsmönnunum án tillits til bótafjárhæðar sem kæmi í hlut hvers og eins þeirra“. Niðurstaða Hæstaréttar Íslands varð sú að kröfugerð í framangreindu máli, þar sem   teflt   hafði   verið   fram   þremur   aðalkröfum,   sem   byggðust   á   mismunandi málsástæðum,   og   við   það   miðað   að   þær   gætu   hver   fyrir   sig   átt   við   suma félagsmanna málsóknarfélagsins en ekki aðra, væri í andstöðu við 1. og 2. mgr. 19. gr.   a   í   lögum   nr.   91/1991,   eins   og   þau   ákvæði   yrði   að   skýra   samkvæmt framansögðu. Því var staðfestur úrskurður héraðsdóms um að vísa málinu frá dómi. Stefnandi í því máli sem hér er til umfjöllunar telur sig hafa bætt úr þeim ágöllum sem ollu því að fyrra málinu var vísað frá dómi. Það sé gert með því að þeir einir geti átt aðild að stefnanda sem hafi eignast hlutabréf í Landsbankanum eftir 30. júní 2006. Enn fremur hafi dómkröfunni verið breytt þannig að hún felur ekki lengur í sér mismunandi málsástæður. Eins og rakið hefur verið hafnar stefndi því að málatilbúnaður stefnanda sé kominn í það horf að fullnægt sé áskilnaði 1. og 2. mgr. 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 um einsleitan málsgrundvöll félagsmanna stefnanda. Sú breyting sem gerð hafi verið á kröfugerð og aðild breyti t.d. engu um að málið horfi með mismunandi hætti   við   með   tilliti   til   viðskipta   hvers   félagsmanns   stefnanda   með   hluti   í Landsbankanum og hvað ætla megi um tjón þeirra og tengsl þess við ætlaða bótaskylda háttsemi stefnda. Í máli þessu gengur stefnandi út frá því að öll hlutabréf félagsmanna stefnanda í Landsbanka Íslands hf. hafi orðið verðlaus í kjölfar þess að stjórn bankans var yfirtekin   af   Fjármálaeftirlitinu   í   október   2008.   Eignir   þeirra   hafi   því   farið forgörðum við fall bankans. Stefnandi heldur því þó ekki fram að hin ætlaða skaðabótaskylda háttsemi stefnda hafi valdið því að eignir félagsmanna stefnanda hafi orðið verðlausar, eins og algengt er í skaðabótamálum. Aftur á móti er á því byggt að félagsmenn stefnanda hefðu ekki tapað fjárfestingum sínum í bankanum ef stefndi hefði veitt þær upplýsingar sem byggt er á að honum hafi verið skylt að gera   og   eftir   atvikum   gert   félagsmönnum   stefnanda   yfirtökutilboð.   Hefðu félagsmenn stefnanda þá verið búnir að selja hlutabréf sín í bankanum áður en þau urðu   verðlaus   eða   aldrei   fjárfest   í   þeim.   Að   þessu   leyti   er   mögulegt   tjón félagsmanna   stefnanda   háð   ætluðum   viðbrögðum   þeirra   á   markaði   við   þeirri upplýsingagjöf og tilboði sem stefnendur álíta að hefði átt að koma fram. Samkvæmt reglum skaðabótaréttar er það skilyrði skaðabótaskyldu að tjón hafi orðið sem tjónvaldur beri skaðabótaábyrgð á. Getur engu breytt í því sambandi þó að   kröfugerð   stefnanda   sé   hagað   á   þann   veg   að   krafist   sé   viðurkenningar   á skaðabótaskyldu tjónvalds í stað þess að krefjast dóms um tiltekna bótafjárhæð. Sú tilhögun á kröfugerð getur t.d. ekki komið í veg fyrir að tekið sé til varna með vísan til þess að þessu skilyrði skaðabótaskyldu sé ekki fullnægt. Við umfjöllun um tjón sem talið er að hlotist hafi af viðskiptum með hlutabréf verður að hafa í huga að slík viðskipti eru áhættusöm í þeim skilningi að þau geta ýmist haft í för með sér tap eða hagnað fyrir þann sem á í þeim. Ekki er sjálfgefið að   fjárfestir   hafi   orðið   fyrir   tjóni   í   merkingu   skaðabótaréttar   þótt   hann   tapi fjármunum við það að hlutabréf í hans eigu verði verðlaus. Í því efni getur m.a. þurft að líta til annarra viðskipta hans með hluti í sama félagi eða öðrum félögum og á hvaða forsendum hann tekur þátt í slíkum viðskiptum. Þá verður almennt að ganga út frá því að viðbrögð fjárfesta við atvikum, sem eru til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þeirra á markaði, séu einstaklingsbundin og helgist af áherslum þeirra í viðskiptum. Séu þessar almennu forsendur settar í samhengi við það mál sem hér er til úrlausnar þá liggur fyrir að nokkuð langur tími leið frá því að ætluð saknæm háttsemi stefnda átti sér stað þar til tjón félagsmanna stefnanda á að hafa orðið. Kunna einhverjir þeirra að hafa selt meira af hlutabréfum í bankanum á þessum tíma og allt til þess að bankinn féll í október 2008, en þeir sátu uppi með í lokin. Því er ekki unnt að útiloka að einhverjir félagsmenn stefnanda hafi í raun hagnast af því að stefndi lét hjá líða að gera það sem stefnandi telur að honum hafi verið skylt að gera, enda hefði sú ráðstöfun átt að leiða til lækkunar á verði hlutabréfanna miðað við forsendur í stefnu. Við umfjöllun um tjón í þessu samhengi verða ætluð viðbrögð félagsmanna við þeim upplýsingum, sem stefnandi telur að hafi skort, ekki heldur afgreidd með einhliða yfirlýsingu stefnanda um að félagsmenn hans hefðu allir sem einn ekki kært sig um að vera hluthafar í bankanum og þeir því látið hjá líða að kaupa og/eða selt alla hluti sína í honum. Eins   og   mál   þetta   er   vaxið   telur   dómurinn   því   að   málatilbúnaður   allra félagsmanna stefnanda geti ekki verið einsleitur að þessu leyti þó að þættir er lúti að hinni ætluðu bótaskyldu háttsemi stefnda séu það. Skilyrði 1. og 2. mgr. 19. gr. a í lögum nr. 91/1991 er því ekki fullnægt að þessu leyti þannig að höfða megi málið í þeim búningi sem þar er kveðið á um. Því er óhjákvæmilegt að vísa málinu frá dómi. Með vísan til 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað sem þykir hæfilega ákveðinn 200.000 krónur. Dregist hefur að kveða upp úrskurð í máli þessu en dómari og aðilar töldu ekki ástæðu til þess að endurflytja málið. Ásmundur Helgason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Máli þessu er vísað frá dómi. Stefnandi, Málsóknarfélag Landsbanka Íslands III, greiði stefnda, Björgólfi Thor Björgólfssyni, 200.000 krónur í málskostnað.

Ásmundur Helgason (sign.)

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 1. mgr. 19. gr. a2. mgr. 19. gr. a