Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Þjónusta
Fallist var á að stefnandi, einstaklingur, hefði verið viðsemjandi seljanda glugga og hurða sem hún krafði um skaðabætur fyrir tjón sem hún taldi sig hafa orðið fyrir vegna galla á vöru og fyrir ófagleg vinnubrögð. Því ættu lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 42/2002 um þjónustukaup við um réttarsambandið en ekki lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup.Því var hafnað að galli hefði verið á vörunni en fallist á að hún ætti rétt til bóta fyrir það að gluggar sem hún pantaði voru ekki faglega settir í.
A höfðaði mál gegn L og Í þar sem hann krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður heilbrigðisráðuneytisins þar sem staðfest var gjaldtaka á hendur A vegna notkunar hans á CPAP-öndunarvél. Jafnframt krafðist A þess að L og Í yrði sameiginlega gert að endurgreiða honum oftekin gjöld vegna notkunarinnar. Ágreiningur aðila snerist um lögmæti gjaldtökunnar en A taldi að um væri að ræða þjónustugjald og að ekki væri fullnægjandi lagagrundvöllur fyrir gjaldtökunni. L og Í héldu því hins vegar fram að um væri að ræða styrk fremur en þjónustugjald. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæði 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2018 um sjúkra-tryggingar, sem mælir fyrir um þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við öflun og notkun hjálpartækja, yrði ekki túlkað öðruvísi en svo að um væri að ræða greiðslu-þátttöku Sjúkratrygginga með þeim sem notuðu hjálpartæki á borð við öndunarvélar. Ekki hafi staðið til af hálfu löggjafans að ríkið bæri allan kostnað við öflun og notkun hjálpartækja, enda sé sérstaklega tekið fram í þágildandi reglugerð nr. 1155/2013, að öndunarvélar séu greiddar að fullu en skiptanlegir fylgihlutir og rekstrarvörur fyrir vélarnar ásamt þjónustu séu greiddir að fullu nema fyrir notendur CPAP-öndunarvéla. Notkun A á CPAP- öndunarvél hafi því verið niðurgreidd af Sjúkratryggingum að öðru leyti en því að styrkurinn tók ekki til mánaðarlegs meðalkostnaðar vegna skiptanlegra fylgihluta, rekstrarvöru og þjónustu við vélina umfram 440 krónur sem A bar að greiða í þessu tilviki. Þar sem ekki var um að ræða að L innheimti gjald fyrir veitta þjónustu sem lagaheimild þurfti fyrir voru L og Í sýknuð af kröfum A.
Aðilar deildu um álagningu og innheimtu farþegagjalda vegna hvalaskoðunar. Stefnandi krafðist greiðslu ógreiddra reikninga vegna hvalaskoðunar, en stefndi bar fyrir sig fyrningu auk þess sem hann dró lögmæti gjaldsins í efa. Fallist var á að kröfur stefnanda væru fyrndar að hluta, en sjónarmiðum um ólögmæti gjaldsins var hafnað. Stefnda gert að greiða kröfu stefnanda að því leyti sem hún var ekki fyrnd.
S hf. krafðist endurgreiðslu eftirlitsgjalds sem félagið hafði innt af hendi vegna heilbrigðisskoðunar við slátrun svína frá október 2014 til október 2018, samkvæmt 2. mgr. 11. gr. þágildandi laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og gjaldskrá settri af ráðherra. Byggði S hf. á því að gjaldtakan væri ólögmæt enda væri gjaldið umfram raunkostnað við eftirlit. Í dómi Landsréttar kom fram að eftirlitsgjaldið sem gilti á umræddu tímabili hefði tekið mið af kostnaði Matvælastofnunar við eftirlit fyrir árið 2011 en ekkert lá fyrir um að sá útreikningur hefði verið umfram raunkostnað við eftirlit. Þó að fyrrnefnd gjaldskrá hefði ekki verið endurskoðuð reglulega á umræddu tímabili, svo sem áskilið var með lögum nr. 96/1997, bentu málsgögn ekki til þess að raunkostnaður stofnunarinnar vegna eftirlits með slátrun svína hefði lækkað á tímabilinu eða að S hf. hefði verið krafið um hærri fjárhæðir en sem námu raunverulegum kostnaði við eftirlitið hjá félaginu. Með vísan til þess og forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu íslenska ríkisins af kröfum S hf.