Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

125 dómar fundust

Lykilorð: Umgengni

Landsréttur birt 7. maí 2026 kl. 16:24

827/2025

A (Oddgeir Einarsson lögmaður) gegn B (Þórður Már Jónsson lögmaður)
Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

Í málinu var deilt um hvernig haga skyldi lögheimili tveggja drengja A og B og inntak umgengnisréttar. Með hinum áfrýjaða dómi var ákveðið að lögheimili drengjanna skyldi vera hjá B. Þá var mælt fyrir um að regluleg umgengni A við börnin skyldi vera aðra hverja viku auk þess sem kveðið var á um umgengni í sumarleyfi, um jól, áramót og páska. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að aðstæður hefðu breyst eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms en B hefði flutt frá […], þar sem drengirnir hefðu verið búsettir um árabil, til höfuðborgarsvæðisins. Tengsl A og B við drengina væru góð og þau bæði hæf til að fara með lögheimili þeirra. Þá væru þau sammála um að miða bæri umgengni við langar helgar byggju þau ekki í sama bæjarfélagi. Taldi Landsréttur ekkert benda til annars en að líðan drengjanna væri góð við núverandi aðstæður. Féllst Landsréttur á með héraðsdómi að stöðugleiki ríkti í lífi þeirra og að þeim væri fyrir bestu að sem minnst röskun yrði á högum þeirra. Meðal annars að þessu gættu staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að lögheimili drengjanna skyldi vera hjá B. Að virtri breyttri búsetu A taldi Landsréttur það ekki þjóna hagsmunum drengjanna að dvelja viku og viku í senn hjá hvorum aðila. Í ljósi aðstæðna, þar með talið skólagöngu og fjarlægðar á milli dvalarstaða, þætti það í bestu samræmi við hagsmuni drengjanna að reglubundin umgengni við A miðaðist við langa helgi á fjögurra vikna fresti. Þá var mælt fyrir um umgengni í sumar-, haust- og vetrarleyfum. Loks staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um umgengni um jól, páska og áramót.

Landsréttur birt 20. mars 2026 kl. 4:23

628/2025

A (Helga Vala Helgadóttir Bachmann lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá tveggja barna sinna, C og D, lögheimili þeirra og meðlag. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að B færi ein með forsjá barnanna, lögheimili þeirra yrði hjá henni og A gert að greiða B einfalt meðlag með hvoru barni. Þá var hafnað kröfu um að kveðið yrði á um inntak umgengnisréttar barnanna við A. Í dómi Landsréttar var bent á að börn aðila væru nú á átjánda og fimmtánda aldursári. Fyrir lægi skýrsla dómkvadds matsmanns sem rætt hafi við börnin, sem og skýrsla sérfræðings í málefnum barna sem héraðsdómur hafi aflað til að kanna afstöðu barnanna. Í viðtölum við matsmann og sérfræðing hefðu börnin verið afgerandi um að þau vildu hvorki vera með A né eiga við hann samskipti og sama afstaða hefði komið fram er dómendur í héraði ræddu við börnin. Ekki væru forsendur til að líta fram hjá einarðri afstöðu þeirra að þessu leyti. Þótt taka mætti undir með dómkvöddum matsmanni að B hafi ekki stutt nægilega við börnin í að umgangast A gæti það ekki talist þjóna hagsmunum þeirra að A og B færu sameiginlega með forsjá þeirra eða að lögheimili þeirra yrði fært til A. Hið sama ætti við um þá kröfu A að kveðið yrði á um umgengni við börnin í dómi. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um annað en málskostnað, en málskostnaður var felldur niður á báðum dómstigum.

Landsréttur birt 16. desember 2025

602/2025

A (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Málið varðaði deilu A og B um forsjá, lögheimili og inntak umgengnisréttar vegna tveggja dætra þeirra, C og D, en með hinum áfrýjaða dómi hafði verið kveðið á um að forsjá skyldi vera sameiginleg og að lögheimili dætranna skyldi vera hjá B, auk þess sem kveðið var á um nánar tilgreint inntak umgengnisréttar. Í dómi Landsréttar var meðal annars litið til niðurstaðna dómkvaddra yfirmatsmanna um að tilfinninga- og umönnunartengsl stúlknanna við B hefðu verið sterkari en við A, en tengsl við A hefðu virst góð. Þá hafi yfirmatsmenn lýst því við skýrslugjöf í héraði að þeir teldu að lögheimili dætranna ætti að vera hjá B. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sameiginlega forsjá A og B, að lögheimili dætranna skyldi vera hjá B og um meðlagsgreiðslur. Dómur héraðsdóms um að regluleg umgengni skyldi vera þrír dagar í senn tvisvar sinnum í mánuði frá lokum skóladags á fimmtudegi og fram eftir sunnudegi var staðfestur, en þó þannig að það fyrirkomulag skyldi vara til haustsins 2029, en yrði frá þeim tíma tveir dagar í senn frá lokum skóladags á föstudegi og fram eftir sunnudegi. Þá ákvað Landsréttur einnig, öndvert við niðurstöðu hins áfrýjaða dóms, að regluleg umgengni skyldi falla niður um jól, áramót og páska. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um inntak umgengnisréttar að öðru leyti staðfest. Fyrir Landsrétti gerði B kröfu um ómerkingu hins áfrýjaða dóms að hluta, sem byggðist á því að í dómsorð héraðsdóms hefði skort tilgreiningu á niðurstöðu um meðlags- greiðslur og að niðurstaða um málskostnað hefði verið í ósamræmi við forsendur dómsins. Að því er varðaði álitaefni um meðlagsgreiðslur leit Landsréttur meðal annars til þess að forsendur dómsins væru skýrar, úrlausn um meðlag í málinu réðist af niðurstöðu um lögheimili, auk þess sem málið varðaði ríka hagsmuni þeirra barna sem í hlut áttu sem brýnt væri að leysa úr með skjótum hætti. Hvað varðaði álitaefni um málskostnað taldi Landsréttur að dómsorð væri skýrt um fjárhæð málskostnaðar og ótvíræðar ályktanir yrðu ekki dregnar af forsendum dómsins, auk þess sem héraðsdómi hefði ekki verið gagnáfrýjað. Var ómerkingarkröfu B því hafnað.

Landsréttur birt 16. desember 2025

55/2025

A (Leifur Runólfsson lögmaður, Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður, 3. prófmál) gegn B (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur þeirra, C, lögheimili hennar, meðlag og umgengni. Í dómi héraðsdóms var kveðið á um að forsjá og lögheimili C skyldi vera hjá B en niðurstaða héraðsdóms var byggð á því að forsjárhæfni A, sem hafði verið aðalumönnunaraðili C frá fæðingu, væri háð verulegum annmörkum. Var kveðið á um að A skyldi greiða B einfalt meðlag með barninu til 18 ára aldurs. Þá var kröfum málsaðila um að dómurinn kvæði á um inntak umgengnisréttar vísað frá dómi þar sem ekki lá fyrir að sáttameðferð hefði farið fram um umgengnisrétt barnsins við B áður en málið var höfðað. Við meðferð málsins hjá Landsrétti lögðu málsaðilar fram samning um fyrirkomulag umgengni C við B. Í dómi Landsréttar var rakið að í sálfræðilegri yfirmatsgerð sem aflað var fyrir réttinum kæmi fram að báðir málsaðilar væru með góða forsjárhæfni þótt minna hefði reynt á getu B að því leyti. Í yfirmatsgerðinni var ekki að öllu leyti fallist á niðurstöðu undirmatgerðar um takmarkanir á forsjárhæfni A en yfirmatsmenn töldu áfrýjanda úrræðagóða og sjálfstæða ásamt því að hún sýndi frumkvæði og dug við uppeldi barnsins. B, sem hafði frá fæðingu C notið takmarkaðrar umgengni við hana, upplýsti meðal annars í skýrslugjöf fyrir réttinum að markmið hans með málsókn á hendur A hefði fyrst og fremst verið til að tryggja umgengni barnsins við hann. Þá kom fram í dómi Landsréttar að samskipti A og B hefðu í gegnum tíðina verið erfið af ýmsum ástæðum en yfirmatsmenn og raunar málsaðilar sjálfir staðfest fyrir réttinum að samskiptin hefðu batnað töluvert og að umgengni hefði aukist. Í ljósi þess að viðhorf aðila til réttinda hvors annars og barnsins hefðu breyst til batnaðar frá því að dómur héraðsdóms féll var það mat Landsréttar að A og B væru líkleg til að geta unnið í sameiningu að velferð C og að farsælast væri fyrir barnið og málsaðila sjálfa að þau færu sameiginlega með forsjá þess. Um lögheimili C var litið til þess að það hafði frá fæðingu verið hjá A. Með vísan til tengsla A og C og með hliðsjón af yfirmatsgerð var talið skynsamlegast að viðhalda stöðugleika C og því ákveðið að lögheimili barnsins yrði hjá A. Þá var B gert að greiða A einfalt meðlag með barninu til 18 ára aldurs þess.

Landsréttur birt 11. desember 2025

393/2025

A (Oddgeir Einarsson lögmaður) gegn B (Ólafur Hvanndal Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Í málinu deildu A og B, foreldrar stúlknanna C og D, um hvoru þeirra skyldi falin forsjá stúlknanna og hjá hvoru þeirra stúlkurnar skyldu hafa lögheimili, auk þess sem bæði kröfðust þess að dæmt yrði um inntak umgengni þeirra við dæturnar. Með hinum áfrýjaða dómi var kveðið á um að forsjáin skyldi vera sameiginleg, að lögheimili stúlknanna skyldi vera hjá A og að B skyldi að greiða einfalt meðlag með dætrunum, auk þess sem kveðið var á um nánar tiltekið inntak umgengnisréttar. Í dómi Landsréttar var litið til þess að í lögskýringargögnum með breytingalögum frá 2012 við barnalög nr. 74/2003 kæmi fram að sameiginleg forsjá foreldra kynni að eiga rétt á sér þótt foreldrar væru ekki sammála um allt og jafnvel þó að ágreiningur á milli þeirra væri slíkur að þeir þyrftu aðstoð við að leysa úr honum. Sameiginleg forsjá kynni að hafa jákvæð áhrif á samstarfsvilja foreldra, vera til þess fallin að hvetja til aukinnar samábyrgðar og þátttöku beggja foreldra og auka líkur á tengslum barns við þá báða. Þá leit Landsréttur til þeirrar niðurstöðu matsgerðar dómkvadds matsmanns að forsjárhæfni beggja foreldra væri góð og án alvarlegra athugasemda, en forsjárhæfni A væri að nokkru leyti sterkari. Að þessu gættu, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að A og B skyldu fara sameiginlega með forsjá dætra sinna. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að lögheimili dætranna skyldi vera hjá A. Var enn fremur staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að B skyldi greiða einfalt meðlag með dætrunum til 18 ára aldurs þeirra. Að lokum leit Landsréttur til þess að sú tilhögun umgengni C og D við A og B sem hafði verið ákveðin í héraðsdómi hefði í öllum meginatriðum gengið vel. Að því gættu, og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms þar um, var staðfest niðurstaða hans um inntak umgengnisréttar.

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

76/2025

Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, lögheimili, umgengni og meðlag. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B færu áfram sameiginlega með forsjá drengsins. Lögheimili C skyldi vera hjá B en hann dvelja viku og viku í senn hjá hvoru foreldri sínu. Þá var A gert að greiða einfalt meðlag með drengnum. Í dómi Landsréttar var talið að ekkert hefði komið fram sem væri til þess fallið að hnekkja því mati héraðsdóms að það væri C fyrir bestu að forsjá yrði áfram sameiginleg og lögheimili hans hjá B. Taldi rétturinn þvert á móti að ný gögn og skýrslur styrktu þá niðurstöðu. Var niðurstaða héraðsdóms er varðaði forsjá, lögheimili og meðlag því staðfest. Landsréttur taldi að það þjónaði best hagsmunum C og stöðugleika í lífi hans að leggja til grundvallar tillögu yfirmatsmanna um að hann yrði meira hjá B en í ríflegri umgengni við A. Var því mælt fyrir um að A nyti umgengni við C aðra hvora viku frá lokum skóla á fimmtudegi eða eftir atvikum klukkan 16 ef ekki væri skóladagur fram til mánudagsmorguns. Einnig var mælt fyrir um umgengni um sumar og á hátíðisdögum um jól og páska en aðilum að öðru leyti látið eftir að semja um umgengni drengsins sín á milli.

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

493/2025

A (Valgeir Kristinsson lögmaður, Þuríður Kristín Halldórsdóttir lögmaður, 2. prófmál) gegn B (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður, Ásta Björk Eiríksdóttir lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá C, lögheimili, meðlag og umgengni. Með vísan til forsendna héraðsdóms staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu að B skyldi fara með forsjá og lögheimili C og að regluleg umgengni og önnur umgengni skyldi vera með nánar tilgreindum hætti. Í dómi héraðsdóms kom fram að eftir skýringar yfirmatsmanna fyrir dómi þætti ekkert fram komið um að ekki mætti líta til yfirmatsgerðar um niðurstöðu málsins. Taldi héraðsdómur að það væri barninu fyrir bestu og mætti best hagsmunum þess að umgengni við A skyldi vera með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 23. október 2025

295/2025

Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá þriggja sona sinna, lögheimili og umgengni. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að B skyldi fara einn með forsjá drengjanna og að lögheimili þeirra yrði hjá honum. Í dómi Landsréttar var talið, meðal annars með vísan til matsgerðar sem lá fyrir í málinu, að forsjárhæfni B væri mun meiri en A. Við meðferð málsins og sönnunarfærslu fyrir Landsrétti kom ekkert fram sem var til þess fallið að hnekkja því mati héraðsdóms að það samrýmdist best högum og þörfum yngri drengjanna tveggja að B færi einn með forsjá þeirra og að lögheimili þeirra yrði hjá honum. Talið var að aðstæður elsta drengsins væru aðrar, en hann hafði flutt til A í byrjun júlí 2025 og hafið nám við framhaldsskóla í sveitarfélaginu. Þá hafði hann lýst eindregnum vilja til að búa áfram hjá A. Að teknu tilliti til atvika og aðstæðna elsta drengsins og vilja hans var það talið helst samræmast hagsmunum hans að A færi ein með forsjá hans og að lögheimili yrði hjá henni. Kveðið var á um inntak umgengni A við yngri drengina í dóminum, en það var ekki talið þjóna hagsmunum elsta drengsins að ákveða umgengni B við hann og var kröfu þar um hafnað.

Landsréttur birt 9. október 2025

925/2024

Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um lögheimili, greiðslu meðlags og inntak umgengnisréttar barns málsaðila, C. Með hinum áfrýjaða dómi var kveðið á um að lögheimili C skyldi vera hjá B, umgengni við A skyldi vera með nánar tilgreindum hætti og regluleg umgengni þriðju hverja helgi. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að við flutning málsins fyrir Landsrétti hefðu lögmenn upplýst að umgengni C við A hefði frá því að dómur gekk í héraði verið önnur hver helgi og að það fyrirkomulag hefði gengið vel fyrir sig. Þá hefðu dómarar málsins rætt við C sem jafnframt væri sátt við fyrirkomulagið en hefði ekki viljað tjá sig um á hvoru heimilinu hún vildi hafa lögheimili. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um lögheimili C og umgengnisrétt að öðru leyti en því að regluleg umgengni skyldi vera aðra hverja helgi.

Landsréttur birt 2. október 2025

232/2025

Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barns síns, C, sem og lögheimili þess, umgengni og greiðslu meðlags. Fyrir Landsrétti var einungis deilt um hvernig haga skyldi lögheimili, greiðslu meðlags og reglulegri umgengni. Í dómi Landsréttar var rakið að við meðferð málsins og sönnunarfærslu fyrir Landsrétti hafi ekkert komið fram sem væri til þess fallið að hnekkja mati héraðsdóms að það væri barninu fyrir bestu að lögheimili hennar væri hjá B. Var því staðfest með vísan til forsendna niðurstaðna hins áfrýjaða dóms er varðaði lögheimili barnsins. Þá var kveðið á um umgengni A við C aðra hverja viku, frá föstudegi til mánudags, með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 2. október 2025

156/2025

A (Magnús Jónsson lögmaður) gegn B (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Með dómi héraðsdóms var B falin forsjá barna aðila og A gert að greiða einfalt meðlag með börnunum frá uppkvaðningu dóms og þar til þau yrðu fullra 18 ára að aldri. Þá var mælt fyrir um umgengni barnanna við A á tveggja vikna fresti, fjórar klukkustundir í senn, með nánar tilgreindum hætti og undir eftirliti sérfræðings í málefnum barna. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að verulega skorti á að tekin hefði verið rökstudd afstaða til matsgerðar, sem aflað var undir rekstri málsins í héraði, og þeirra málsástæðna A er henni tengdust en þær lutu einkum að ágöllum á matsgerðinni og hugsanlegu vanhæfi matsmannsins. Var dómurinn að þessu leyti ekki talinn samræmast áskilnaði e- og f-liðar 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá taldi Landsréttur rökstuðning héraðsdóms fyrir niðurstöðu hans um að umgengni barnanna við A skyldi fara fram undir eftirliti svo ófullkominn að færi gegn áskilnaði f-liðar 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991, sbr. einnig 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í þeim efnum vísaði Landsréttur meðal annars til þess að niðurstaða héraðsdóms að þessu leyti hefði ekki verið sérstaklega rökstudd og til að mynda ekki útskýrt hvernig hið matskennda skilyrði 4. mgr. 47. gr. barnalaga nr. 76/2003, um sérstaka ástæðu, ætti við. Hinn áfrýjaði dómur var því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.

Landsréttur birt 25. september 2025

10/2025

A (Leifur Runólfsson lögmaður) gegn B (Gísli Kr. Björnsson lögmaður, Húnbogi J. Andersen lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barna sinna C og D, sem og lögheimili þeirra, umgengni og meðlag. Í dómi Landsréttar var rakið að sú niðurstaða leiddi af heildarmati á forsjárhæfni foreldra og þarfa barnanna að B færi ein með forsjá þeirra. Af því leiddi að lögheimili þeirra yrði hjá B. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um forsjá og skyldu A til að greiða B einfalt meðlag. A krafðist fyrir Landsrétti endurskoðunar á niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um rétt til umgengni við börnin. Krafðist hann þess að fá umtalsvert rýmri rétt til umgengni, auk þess sem hann sætti ekki eftirliti. Með dómi Landsréttar var talið að sá hluti hins áfrýjaða dóms er varðaði umgengni við börn málsaðila væri haldinn slíkum annmörkum að óhjákvæmilegt væri að ómerkja hann og vísa þeim þætti málsins til héraðsdóms til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.

Landsréttur birt 5. júní 2025

16/2025

A (Gísli Kr. Björnsson lögmaður, Húnbogi J. Andersen lögmaður, 1. prófmál) gegn B (Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur sinnar C, lögheimili og umgengni. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B færu áfram sameiginlega með forsjá stúlkunnar. Lögheimili C skyldi vera hjá A en kveðið var á um umgengni B við stúlkuna með tilgreindum hætti. Í dómi Landsréttar var talið að eins og málið lægi fyrir réttinum yrði engu slegið föstu um ætlað ofbeldi sem A kvaðst hafa orðið fyrir af hálfu B eða að C stafaði hætta af B. Lagt var til grundvallar að A og B væru bæði hæf til að fara með forsjá stúlkunnar. Þá taldi rétturinn mega ráða af gögnum málsins að þau hefðu leitast við að efla forsjárhæfni sína að gengnum dómi héraðsdóms og bæta samskipti sín í kringum umgengni B við C. Einnig taldi Landsréttur að ekki yrði horft framhjá áhyggjum sem dómkvaddur matsmaður lýsti í skýrslu sinni fyrir réttinum af umgengni B við barnið ef A færi ein með forsjá þess. Að öllu virtu féllst Landsréttur á það með héraðsdómi að það þjónaði hagsmunum C best að A og B færu áfram með sameigin- lega forsjá hennar og að lögheimili hennar héldist óbreytt. Mælt var fyrir um nánari tilhögun þeirrar umgengni sem ákveðin var í hinum áfrýjaða dómi en niðurstaða hans um umgengni var að öðru leyti staðfest með vísan til forsendna.

Hæstiréttur birt 15. maí 2025

26/2025

B (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn A (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms um að sonur aðila skyldi tekinn úr umráðum A með beinni aðfarargerð og afhentur B með nánar tilgreindum hætti. Hæstiréttur féllst ekki á að öryggi barnsins eða hagsmunum væri stefnt í hættu með umgengni B við þær aðstæður sem uppi voru í málinu. Var því fallist á kröfu B um að umgengi hans við barnið yrði komið á með beinni aðfarargerð.

Landsréttur birt 27. febrúar 2025

795/2024

A (Helga Vala Helgadóttir Bachmann lögmaður) gegn B (Elimar Hauksson lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um skipan lögheimilis dóttur þeirra, C, inntak umgengnisréttar þess foreldris sem ekki færi með lögheimili dóttur þeirra og greiðslu meðlags. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að í lífi B hefði ríkt óstöðugleiki hvað varðaði fjölskyldulíf og búsetu. Þá sýndu gögn málsins að skólasókn C hefði ekki verið sinnt nægilega vel þegar C dvaldi hjá B en fjarvistir frá skóla hefðu verið tíðari þegar C dvaldi hjá B en hjá A. Jafnframt hefði B ekki sinnt tómstundaiðkun C. Í dóminum var rakið að ef lögheimili C flyttist til A myndi það leiða til meiri festu og stöðugleika í lífi hennar. A og eiginkona hans, sem gegnt hefði mikilvægu uppeldishlutverki í lífi C, væru komin í framtíðarhúsnæði þar sem aðstæður væru góðar og tryggt yrði að C þyrfti ekki að skipta um grunnskóla, gæti myndað varanleg vinatengsl og samfella yrði í tómstundaiðkun hennar. Ráðstöfunin yrði jafnframt til þess að styrkja tengsl C við bróður sinn, þar sem systkinin myndu alast upp í sama sveitarfélagi og við sömu aðstæður að mestu leyti og ganga í sama grunnskóla. Jafnframt lá fyrir að C hefði þegar myndað góð félagsleg tengsl í heimabæ A og flutningur lögheimils hennar þangað ætti því ekki að valda henni miklu raski. Því þótti það henta best hagsmunum og þörfum C að lögheimili hennar yrði hjá A. Var B gert að greiða einfalt meðlag með C til A og kveðið var á um að umgengni B við C skyldi vera aðra hverja viku með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 12. desember 2024

531/2024

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn B (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, sem og lögheimili hans, umgengni og meðlag. Héraðsdómur hafði komist að þeirri niðurstöðu að forsjárhæfni A væri verulega skert en forsjárhæfni B væri góð. Þá hefði drengurinn sterkt tengsl við A og grunntengsl við B sem hefðu eflst eftir að hann var tekinn úr umsjá A. B væri líklegri til að viðhalda reglulegri umgengni drengsins við báða foreldra. Taldi héraðsdómur að hagsmunum drengsins væri best borgið með því að B færi með forsjá hans og lögheimili. Í dómi Landsréttar kom fram að þau gögn sem lögð hefðu verið fyrir réttinn, sem og viðtal dómenda við drenginn, bentu ekki til þess að samskipti aðila hefðu breyst svo máli skipti frá uppkvaðningu héraðsdóms. Þá veittu gögnin ekki vísbendingu um að drengurinn sætti ofbeldi á heimili B. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Landsréttur birt 12. desember 2024

481/2024

A (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður, Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður, 3. prófmál)
Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um lögheimili dóttur sinnar, C, og umgengni við hana. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að lögheimili C skyldi vera áfram hjá B og kveðið á um hvernig umgengni A við hana skyldi háttað. Í niðurstöðu dómsins var meðal annars vísað til þess að C væri fyrir bestu að sem minnst röskun yrði á lífi hennar og að ekki yrði horft fram hjá því að aðstæður föður í dag byðu upp á tryggara og öruggara umhverfi fyrir hana en aðstæður móður. Í ljósi niðurstöðu dómsins um lögheimili var kröfu A um greiðslu meðlags hafnað. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur og A gert að greiða B málskostnað fyrir Landsrétti.

Landsréttur birt 3. september 2024

598/2024

A (Oddgeir Einarsson lögmaður) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá sonar þeirra, lögheimili og umgengni. Í úrskurði Landsréttar var vísað til ákvæða í barnalögum nr. 76/2003 og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Samkvæmt þeim réttarheimildum bæri í dómsmálum sem varða hagsmuni barns að leita eftir afstöðu þess og taka réttmætt tillit til þeirrar afstöðu. Héraðsdómi hefði því borið að leita eftir afstöðu sonar aðila, áður en ráðið var til lykta ágreiningi þeirra um forsjá hans, lögheimili og umgengni til bráðabirgða. Þar sem það hefði ekki verið gert yrði ekki komist hjá því að fella hinn kærða úrskurð úr gildi og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar og uppkvaðningar úrskurðar að nýju.

Landsréttur birt 22. mars 2024

637/2023

Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, og umgengni. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að B færi ein með forsjá C og kveðið á um inntak umgengni A um jól og áramót. Í dómi héraðsdóms var sérstaklega horft til þess að samskiptum aðila hefði verið þannig háttað, bæði fyrir og eftir fæðingu C, að ólíklegt væri að þau gætu átt með sér þá foreldrasamvinnu sem væri nauðsynleg forsenda sameiginlegrar forsjár. Í dómi Landsréttar kom fram að þau gögn sem lögð hefðu verið fyrir Landsrétt eftir uppkvaðningu héraðsdóms bæru á ýmsan hátt merki þess að samskipti aðila færu batnandi og að þau hefðu getu til að eiga farsæla samvinnu um uppeldi og umönnun sonar síns. Í skýrslum aðila fyrir dómi hefði aftur á móti komið fram að samskipti þeirra um C væru skrifleg og að þau hittust aldrei. Þá yrði ráðið af sömu gögnum að takmarkað traust ríki á milli aðila. Telja yrði ljóst að sú skipan mála sem ákveðin var í hinum áfrýjaða dómi hefði að öðru leyti haft góð áhrif á samskipti aðila. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Landsréttur birt 3. nóvember 2023

181/2023

A (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B skyldu áfram fara sameiginlega með forsjá dóttur sinnar, C, en lögheimili hennar vera hjá B og A skyldi greiða meðlag með barninu. Þá var umgengni A við barnið ákveðin með nánar tilgreindum hætti. Fyrir Landsrétti deildu A og B um lögheimili C og um meðlag og umgengni við barnið. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða héraðsdóms væri meðal annars grundvölluð á matsgerð dómkvadds matsmanns sem hefði komist að þeirri niðurstöðu að forsjárhæfni B væri góð en hnökrar væru á forsjárhæfni A. Fyrir Landsrétti hefði A aflað yfirmatsgerðar og væri þar komist að þeirri niðurstöðu að lögheimili barnsins væri mun betur fyrir komið hjá B og að ekkert hefði komið fram við athuganir matsmanna sem kallaði á að fyrirkomulagi umgengni yrði breytt. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Landsréttur birt 23. júní 2023

87/2023

Lykilorð: Börn. Forsjá. Umgengni. Meðlag.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, umgengni og meðlag. A og B bjuggu aldrei saman og fór A ein með forsjá C þar til hinn áfrýjaði dómur gekk. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B færu sameiginlega með forsjá drengsins og skyldi lögheimili hans vera hjá A og B gert að greiða meðlag með honum. Loks var kveðið á um inntak umgengni. Í dómi Landsréttar var rakið að í barnalögum nr. 76/2003 væru ekki reistar skorður við því að foreldri, sem aldrei hefði haft forsjá barns, öðlaðist með fulltingi dómstóla hlutdeild í forsjá þess þótt hitt foreldrið væri því andvígt. Skilyrði þess væri að þær aðstæður væru fyrir hendi að breytt skipan forsjár þjónaði betur hagsmunum barnsins. Í málinu var talið að verulegrar tortryggni gætti milli A og B og hefðu þau bæði kennt hinu um samskiptavanda þeirra og slæm áhrif þessa á C. Samkvæmt fyrirliggjandi matsgerð dómkvadds matsmanns byggju þau aftur á móti bæði yfir styrkleikum. C væri 12 ára og bæri ágætt skynbragð á eigin þarfir og langanir og bæri að taka réttmætt tillit til afstöðu hans. Ekkert hefði komið fram í málinu sem gæfi tilefni til að álykta að hann væri því andvígur að B axlaði þá ábyrgð sem fælist í forsjárskyldum foreldra. Þá virtist ágreiningur aðila ekki rista djúpt um meginatriði í uppeldi C. Taldi Landsréttur ekki efni til að hnekkja því áliti héraðsdóms að það þjónaði betur hagmunum C að A og B færu sameiginlega með forsjá hans. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um annað en reglulega umgengni B við C og umgengni um jól og áramót.

Landsréttur birt 26. maí 2023

28/2023

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður, Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður, 3. prófmál) gegn B (Þyrí Halla Steingrímsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um lögheimili dóttur þeirra, C, umgengni við hana og greiðslu meðlags. Með dómi héraðsdóms var kveðið á um að C skyldi eiga lögheimili hjá B. Þá var mælt fyrir um umgengni C við A með tilgreindum hætti og skyldu A til að greiða meðlag með C. Við meðferð málsins í Landsrétti áttu dómendur samtal við C. Í dómi réttarins kom fram að það væri enn vilji C að lögheimili hennar væri hjá A líkt og fram hefði komið við meðferð málsins í héraði. Þrátt fyrir þá afstöðu hefði ekkert komið fram sem gæfi til kynna að flutningur lögheimilis C frá A til B í janúar 2023 hefði raskað hagsmunum C á þann hátt að af þeirri ástæðu væri rétt að endurskoða niðurstöðu héraðsdóms um lögheimili. Yrði ekki annað ráðið af gögnum málsins en að flutningur lögheimilisins hefði gengið eins vel og væntingar hefðu getað staðið til, þótt ágreiningslaust væri að hann hefði verið erfiður fyrir C. Þá hefðu engin gögn verið lögð fram í málinu fyrir Landsrétti sem hnekktu þeirri niðurstöðu dómkvadds matsmanns í héraði sem lögð var til grundvallar í niðurstöðu héraðsdóms um að vilji C til að hafa lögheimili sitt hjá A frekar en B réðist af neikvæðri afstöðu A til B frekar en raunverulegum vilja C. Gilti hið sama um þá niðurstöðu matsmanns og héraðsdóms að B væri líklegri en A til að viðhalda og stuðla að góðu og heilbrigðu sambandi C við hitt foreldrið. Að teknu tilliti til þessa og aldurs og þroska C yrði ekki fallist á eins og atvikum málsins væri háttað að unnt væri að leggja yfirlýsingu C um hvar hún vildi hafa lögheimili til grundvallar niðurstöðu málsins. Af hálfu A og B hefði ekki verið bent á neina hnökra á fyrirkomulagi umgengni samkvæmt héraðsdómi að því gefnu að niðurstaða um lögheimili C yrði óbreytt. Samkvæmt þessu þóttu ekki efni til að breyta því fyrirkomulagi sem þar hefði verið kveðið á um. Gilti hið sama um ákvörðun meðlags. Var héraðsdómur því staðfestur.

Landsréttur birt 12. maí 2023

2/2023

A (Björgvin Halldór Björnsson lögmaður) gegn B (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður, Sigrún Jóhannsdóttir lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur sinnar, C, lögheimili hennar og umgengni. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að B færi ein með forsjá C og skyldi lögheimili hennar vera hjá B og A gert að greiða meðlag með henni. Loks var kveðið á um inntak umgengni. Í dómi Landsréttar var rakið að í viðtali við dómara fyrir aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti hefði C, sem nú væri á fjórtánda aldursári, lýst þeirri afstöðu sinni á skýran og afdráttarlausan hátt að ekki yrði breytt núverandi fyrirkomulagi á reglulegri umgengni og væri ekkert fram komið sem benti til þess að afstaða hennar væri lituð af öðrum viðhorfum en hennar eigin. Bæri því við úrlausn málsins að taka réttmætt tillit til afstöðu C. Þá vísaði Landsréttur til þess að ráða mætti af matsgerð dómkvadds matsmanns að báðir aðilar væru hæfir til að fara með forsjá C. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Landsréttur birt 22. mars 2023

155/2023

A (Þórdís Bjarnadóttir lögmaður) gegn B (Ólafur Hvanndal Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A á hendur B var vísað frá dómi. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið leitað sátta um forsjá barna málsaðila, lögheimili þeirra, greiðslur meðlags eða inntak umgengnisréttar fyrir málshöfðunina í skilningi 33. gr. a í barnalögum og var því kröfum málsaðila þar að lútandi vísað frá dómi. Að fenginni þeirri niðurstöðu þótti ljóst að ágreiningur aðila um forsjá barnanna væri ekki lengur til meðferðar hjá lögmæltum yfirvöldum í skilningi 2. mgr. 44. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og var því jafnframt vísað frá dómi kröfu aðila um veitingu leyfis til skilnaðar að borði og sæng.

Landsréttur birt 24. febrúar 2023

577/2022

A (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) gegn B (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Lykilorð: Börn. Forsjá. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar þeirra, C, og umgengni. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans staðfest um forsjá C hjá B. Að því er umgengni varðar var í dómi Landsréttar rakið að niðurstaða héraðsdóms um inntak og fyrirkomulag umgengni hafi tekið mið af forsögu A og þess hversu nýlega hann hefði hætt neyslu vímuefna. Af gögnum sem lögð voru fram við áfrýjun málsins lægi á hinn bóginn fyrir að A hafi verið fallinn á vímuefnabindindi sínu um það leyti sem hinn áfrýjaði dómur var kveðinn upp. Mætti slá því föstu að niðurstaða héraðsdóms varðandi umgengni A við barnið hefði verið önnur ef sú staðreynd hefði legið fyrir við dómsuppkvaðningu. Einnig hefðu komið fram atriði í málinu sem teldust veita vísbendingar um að A hafi neytt vímuefna eftir fall sitt í maí og júní 2022. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum lægi fyrir að A hefði unnið töluvert í sínum málum frá því hann féll sannanlega á vímuefnabindindi sínu. Þá væri augljós innileg löngun hans til að taka þátt í lífi C og umhyggja hans í garð barnsins. Ekki yrði annað ráðið en að með A og C hafi myndast hlýleg tengsl sem mikilvægt væri að varðveita og styrkja og að A væri fær um að skapa því öruggt og uppbyggilegt umhverfi, héldi hann sig frá neyslu. Það væri mikilvægt að A fengi tækifæri til að umgangast barn sitt reglulega, ekki síst í ljósi hagsmuna barnsins og réttar þess til að þekkja og njóta samvista við föður sinn. Með hliðsjón af framansögðu, fyrirliggjandi gögnum, vætti aðila og vitna, sem og þess skamma tíma sem liðinn væri síðan A féll sannanlega á vímuefnabindindi sínu væri nauðsynlegt að umgengni hans við C færi fyrst um sinn fram undir eftirliti og með þeim hætti sem í dómsorði greinir.

Landsréttur birt 9. desember 2022

422/2022

Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar þeirra, C, og utanlandsferðir B með hann til upprunalands B. Í dómi héraðsdóms var kveðið á um að forsjá C skyldi vera sameiginleg. Þá var viðurkenndur réttur B til að fara með drenginn í utanlandsferðir til upprunalands hans frá og með sumri 2022. Í dómi Landsréttar var rakið að dómkvaddur matsmaður teldi ágreining og samskiptavanda aðila ekki vera þess eðlis að hann ætti að hindra sameiginlega forsjá. Þrátt fyrir hnökra í samskiptum bæru þau virðingu fyrir hvort öðru og hefðu trú á að hvort um sig myndi annast drenginn vel. Hagur drengsins væri í fyrirrúmi hjá þeim báðum. Taldi Landsréttur ljóst að málsaðilum væri fyrst og fremst mikið í mun að hagsmuna drengsins væri gætt í hvívetna. Samskipti þeirra um drenginn væru kurteis þótt þau hefðu í gegnum tíðina viðrað mismunandi skoðanir á því hvernig umönnun hans væri háttað. Fallist var á það mat héraðsdóms að ágreiningur málsaðila væri ekki með þeim hætti að hann ætti að koma í veg fyrir sameiginlega forsjá. Staðfest var því niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sameiginlega forsjá. Varðandi kröfu B um viðurkenningu á rétti hans til að fara með drenginn í utanlandsferðir til upprunalands síns hafnaði Landsréttur frávísunarkröfu A þar sem dómstólar hefðu samkvæmt 5. mgr. 34 . gr. barnalaga nr. 76/2003 vald til að kveða á um inntak umgengnisréttar. Í dómi héraðsdóms sem staðfestur var með vísan til forsendna í Landsrétti kom fram að dómurinn teldi með vísan til 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar, 1. mgr. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, svo og tilgreindra ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins að feðgarnir ættu rétt til þess að fara saman í sumarleyfi til upprunalands B frá og með sumri 2022 þegar þeir nytu sumarumgengi samkvæmt úrskurði sýslumanns.

Landsréttur birt 2. desember 2022

509/2022

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður, Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður, 2. prófmál) gegn B (Helgi Birgisson lögmaður)
Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B skyldu fara sameiginlega með forsjá tveggja barna sinna, lögheimili þeirra skyldi vera hjá B og A skyldi greiða með þeim meðlag með nánar tilgreindum hætti. Þá skyldi umgengni A við börnin aukin smám saman þannig að frá og með 21. júlí 2023 dveldu börnin aðra hverja viku hjá A. Fyrir Landsrétti laut ágreiningur A og B að ákvörðun um lögheimili barnanna, auk þess sem A krafðist þess að vikulangri umgengni aðra hverja viku yrði komið á strax frá og með uppkvaðningu dóms Landsréttar. Í dómi Landsréttar kom fram að ekkert hefði komið fram við meðferð málsins og sönnunarfærslu þess fyrir réttinum sem væri til þess fallið að hnekkja því mati héraðsdóms að það væri börnunum fyrir bestu að lögheimili þeirra beggja væri hjá B og að regluleg umgengni barnanna við A yrði aukin smám saman með þeim hætti sem kveðið var á um í héraðsdómi. Var niðurstaða héraðsdóms að því er varðaði lögheimili barnanna, meðlagsgreiðslur og umgengni staðfest með vísan til forsendna hans.

Landsréttur birt 30. september 2022

556/2022

A (Þyrí Halla Steingrímsdóttir lögmaður) gegn B (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá dóttur þeirra, umgengni og greiðslu meðlags. Í úrskurði héraðsdóms kom fram að við úrlausn bráðabirgðakröfu A um sameiginlega forsjá bæri fyrst og fremst að líta til þess hvort slíkt fyrirkomulag væri í þágu hagsmuna telpunnar, eða hvort hagsmunir hennar krefðust þess. Fyrir lá að telpan hefði alla tíð verið undir forsjá B einnar og haft heimili sitt hjá henni. Þættu ekki hafa verið færð fram rök um það af hálfu A að hagsmunir telpunnar krefðust þess að breyting yrði gerð á því, þannig að aðilar færu saman með forsjána meðan málinu væri ólokið. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar féllst Landsréttur á að ekki væru efni til að verða við kröfu A um breytta skipan forsjár barnsins til bráðabirgða. Þá kom fram í úrskurði Landsréttar að óháð sönnun um reglusemi A þætti umgengnisréttur hans hæfilega ákveðinn í hinum kærða úrskurði. Yrði samkvæmt því ekki fallist á að forsendur væru að svo stöddu til að ákvarða honum rýmri umgengnisrétt en þar var gert. Ákvæði hins kærða úrskurðar um meðlagsgreiðslur til B var staðfest.

Landsréttur birt 22. september 2022

123/2022

A (Jónína Guðmundsdóttir lögmaður) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar þeirra, C, umgengni og greiðslu meðlags. Í dómi Landsréttar kom fram að eins og ágreiningi aðila væri háttað kæmi ekki til þess að unnt væri að dæma sameiginlega forsjá. Jafnframt var rakið að af málsgögnum yrði ekki annað ráðið en að í fyrirliggjandi matsgerð dómkvadds matsmanns hafi verið fjallað um A á jákvæðari hátt en efni stæðu til. Þá virtist niðurstaða hins áfrýjaða dóms hafa haft góð áhrif á samskipti aðila og líðan drengsins. Samkvæmt framangreindu var staðfest niðurstaða héraðsdóms um forsjá, meðlag og umgengni A og B við C.

Landsréttur birt 24. júní 2022

63/2022

A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) gegn B (Leifur Runólfsson lögmaður, Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

Ágreiningur A og B laut að skipan lögheimilis dóttur þeirra, greiðslu meðlags með henni og inntaki umgengisréttar við það foreldri sem ekki skyldi fara með lögheimili hennar. Í dómi héraðsdóms var kveðið á um að lögheimili dóttur málsaðila skyldi vera hjá B. Þá var kveðið á um að umgengni A með dóttur aðila skyldi vera aðra hverja viku og að A skyldi greiða meðlag með henni. Í dómi Landsréttar var greint frá efni bréfs lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 6. maí 2022 þar sem rakin voru atvik þar sem lögreglan hafði afskipti af málefnum A. Þá var vísað til þess að við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti hefði komið fram að barnaverndaryfirvöld hefðu nýlega tekið málefni A á ný til skoðunar vegna atvika frá maí 2022 og farið þess á leit við B að dóttir málsaðila færi ekki í umgengni til A á meðan málefni hennar væru til skoðunar. Að gættum þeim gögnum sem lögð voru fyrir Landsrétt en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Landsréttur birt 24. júní 2022

48/2022

A (Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður, Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður, 1. prófmál) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur þeirra, C, lögheimili hennar, meðlag og umgengni. Í dómi héraðsdóms var kveðið á um að forsjá C skyldi vera sameiginleg. Þá var kveðið á um að lögheimili C skyldi vera hjá B en A skyldi greiða meðlag með henni. Loks skyldi C njóta jafnrar umgengni við báða foreldra. Í dómi Landsréttar var rakið að í sálfræðilegri matsgerð kæmi fram að báðir aðilar væru hæfir til að fara með forsjá telpunnar. Með vísan til matsgerðarinnar sem og tveggja viðbótarmatsskýrslna var fallist á að báðir aðilar væru hæfir til að fara með forsjá telpunnar. Þrátt fyrir að A hefði framan af tálmað umgengni hefði hún að mestu lagað sig að niðurstöðu dómstóla, þótt hún hefði á stundum farið að ráðgjöf aðila sem hefðu ráðlagt henni á annan veg. Hún hefði lýst því yfir í skýrslu sinni fyrir Landsrétti að hún myndi una niðurstöðu Landsréttar. Því væri ekki tilefni til að gera upp á milli forsjárhæfi aðila. Aðilar hefðu sýnt að þau gætu átt í ágætum samskiptum ef þau snerust aðeins um dóttur þeirra. Taldi Landsréttur að ágreiningur aðila væri ekki líklegur til að koma í veg fyrir, hindra eða draga úr möguleikum telpunnar til að alast upp við þroskavænleg skilyrði, umfram það sem væri ef forsjá yrði óskipt. Aðilar höfðu farið sameiginlega með forsjá telpunnar frá fæðingu. Í niðurstöðu viðbótarmats sem aflað var fyrir Landsrétti kom fram að dóttir aðila hefði dafnað vel og sýnt góðar framfarir í líkamlegum og vitrænum þroska sem bæri með sér að hún byggi við hvetjandi og ástríkar aðstæður hjá foreldrum sínum. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms að ákvörðun um sameiginlega forsjá aðila yfir dóttur sinni væri til þess fallin að friður gæti skapast milli þeirra og að telpan fengi notið þess að eiga foreldra sem gætu átt í uppbyggilegu samstarfi um hagsmuni hennar, heilsu og velferð. Þá taldi Landsréttur að það fyrirkomulag á lögheimili og umgengni sem komst á með hinum áfrýjaða dómi hefði gefið góða raun. Væri ekkert fram komið í málinu sem gæfi tilefni til að raska því. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms að lögheimili telpunnar skyldi vera hjá B. Með sama hætti var staðfest niðurstaða hans um fyrirkomulag á umgengni og greiðslu meðlags.

Landsréttur birt 24. júní 2022

497/2021

A (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður, Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður, 1. prófmál)
Lykilorð: Börn. Umgengni. Gjafsókn.
Málaflokkur: Barnaréttur

Með dómi Landsréttar 19. nóvember 2021 var kveðið á um að A og B skyldu fara sameiginlega með forsjá barna sinna D og E, en lögheimili D skyldi vera hjá B og lögheimili E hjá A. Með dómi Hæstaréttar 25. maí 2022 í máli nr. 5/2022 var sá hluti dóms Landsréttar er varðaði úrlausn á tilhögun umgengni barna málsaðila við það foreldri sem barn byggi ekki hjá ómerktur og vísað aftur til Landsréttar. Með dómi Landsréttar var mælt fyrir um inntak umgengni barnanna við það foreldri sem það býr ekki hjá með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 3. júní 2022

52/2022

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barna sinna sinna, C og D, umgengni og greiðslu meðlags. Í dómi héraðsdóms kom fram að með vísan til gagna málsins og matsgerða væru ekki efni til að gera upp á milli forsjárhæfni A og B. Eins og aðstæðum í málinu væri háttað hentuðu styrkleikar og veikleikar aðila í foreldrahlutverkinu börnunum á afar ólíkan hátt. Með dómi héraðsdóms var A falin forsjá dóttur þeirra, C, en B falin forsjá sonar þeirra, D, auk þess sem kveðið var á um meðlag og umgengni. Fyrir Landsrétti var einungis deilt um hvernig haga skyldi forsjá, lögheimili, meðlagi og umgengni vegna D. Í dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms að það væri D fyrir bestu að B færi með forsjá hans. Auk þess var staðfest niðurstaða héraðsdóms um meðlag með honum og umgengni A við hann.

Landsréttur birt 3. júní 2022

10/2022

A (Valborg Þ. Snævarr lögmaður) gegn B (Jón Auðunn Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá fjögurra barna sinna, C, D, E og F, lögheimili þeirra, meðlag og umgengni. Í dómi Landsréttar kom fram að af lýsingum A og B á ágreiningi sínum yrði ekki ráðið að hann væri mjög djúpstæður og var hann ekki talinn standa því í vegi að þeim yrði dæmd sameiginleg forsjá. Rétturinn vitnaði til niðurstöðu dómkvadds matsmanns um að bæði A og B væru hæf til að fara með forsjá barnanna en styrkleikar þeirra væru mismunandi. Börnin væru samkvæmt niðurstöðum matsmanns mjög tengd báðum foreldrum sínum og þau hefðu bæði sýnt þeim hlýju og umhyggju í uppeldinu. Þá fengju börnin mjög góð meðmæli frá kennurum og öðrum fagaðilum sem hefðu tjáð sig um þau. Jafnframt lægi fyrir að eftir fyrirhugaðan búferlaflutning A myndu foreldrar búa nálægt hvort öðru og skóla barnanna. Samkvæmt öllu þessu var talið börnunum fyrir bestu að A og B færu áfram sameiginlega með forsjá þeirra. Þá var ákveðið að lögheimili allra barnanna yrði hjá A og var B gert að greiða einfalt meðlag með hverju þeirra frá uppsögu dómsins en ekki þóttu efni til að ákveða meðlagsgreiðslur aftur í tímann. Þá var mælt fyrir um umgengni barnanna við málsaðila.

Hæstiréttur birt 25. maí 2022

5/2022

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B höfðu deilt um forsjá tveggja barna sinna, meðlag með þeim, lögheimili og umgengni. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að A og B skyldu fara sameiginlega með forsjá barna sinna, lögheimili dóttur málsaðila skyldi vera hjá A en lögheimili sonarins hjá B. Í dómsorði Landsréttar sagði um umgengniskröfur A og B að aðilar skyldu vinna að því að koma á reglulegri umgengni barnanna við það foreldri sem þau byggju ekki hjá. Hæstiréttur tók fram að þótt dómur gæti ákveðið að engin umgengni skyldi fara fram milli foreldra og barns og jafnframt hafnað því að ákveða inntak umgengni, sbr. 5. mgr. 34. gr. barnalaga nr. 76/2003, sbr. 1. og 2. mgr. 47. gr. þeirra, yrðu forsendur og dómsorð að vera með þeim hætti að ekki orkaði tvímælis hvort fallist væri á ákveðna umgengi eða henni hafnað. Hæstiréttur vísaði til þess að í málinu væri gerð krafa um að dómur tæki ákvörðun um hvernig umgengni barna aðila við þau skyldi vera háttað en hvorki yrði ráðið af forsendum hins áfrýjaða dóms né dómsorði að leyst hafi verið úr þeirri kröfu með ótvíræðum og skýrum hætti. Þá endurspeglaði dómsorð hins áfrýjaða dóms á engan hátt forsendur dómsins að þessu leyti. Þar sem áfrýjun málsins var einvörðungu samþykkt að því er varðaði niðurstöðu um umgengni og málið varðaði ríka hagsmuni barnanna sem brýnt væri að leysa úr með skjótum hætti var einungis sá hluti dómsins er varðaði niðurstöðu um umgengni ómerktur og vísað aftur til Landsréttar.

Landsréttur birt 8. apríl 2021

528/2021

A (Gísli Kr. Björnsson lögmaður) gegn B (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Börn. Forsjá. Lögheimili. Umgengni.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá þriggja barna sinna, C, D og E, lögheimili þeirra og umgengni við þau. Tvö eldri börnin, C og D, bjuggu hjá A en E bjó hjá þeim til skiptis, viku í senn. Í dómi Landsréttar kom fram að þótt framlögð gögn og framburðir málsaðila bæru með sér að samskipti þeirra hefðu á stundum verið erfið yrði ekki séð að það hefði haft veruleg áhrif á umgengni barnanna við þau. Aftur á móti væri ljóst að ummæli A um andlegt ofbeldi B gegn bæði A og börnunum, sem A birti á Facebook-síðu sinni í kjölfar uppkvaðningar héraðsdóms, hefði haft neikvæð áhrif á samskipti málsaðila og samskipti C og D við B. Landsréttur taldi að fullyrðingar A fengju ekki haldbæra stoð í gögnum málsins og töldust þær því ósannaðar. Ekki hafði verið lögð fram matsgerð um forsjárhæfni málsaðila og var lagt til grundvallar að þau væru jafnhæf til að fara með forsjá barnanna. Taldi rétturinn hvorki að ágreiningur milli aðila væri svo djúpstæður að hann væri líklegur til að hafa áhrif á börnin né ylli hann því að líklegt væri að aðilar gætu ekki unnið í sameiningu að velferð barna sinna. Taldi Landsréttur að það þjónaði hagsmunum barnanna best að málsaðilar færu áfram sameiginlega með forsjá þeirra og að lögheimili þeirra og umgengni héldust óbreytt í samræmi við niðurstöðu héraðsdóms.

Landsréttur birt 14. mars 2022

83/2022

A (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá og lögheimili sonar þeirra, umgengni og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna. Aðilar undu niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að þau færu til bráðabirgða sameiginlega með forsjá sonar síns. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að lögheimili drengins skyldi til bráðabirgða vera hjá B. Þá úrskurðaði Landsréttur að A skyldi greiða einfalt meðlag með honum. Dómurinn taldi að ekki væru að svo stöddu efni til að hrófla við gildandi fyrirkomulagi á umgengni.

Landsréttur birt 11. febrúar 2022

734/2021

Málaflokkur: Barnaréttur

Með dómi héraðsdóms var B falin forsjá C, dóttur A og B, og skyldi lögheimili hennar vera hjá B. Þá var mælt fyrir um umgengni A og B við C. Í úrskurði Landsréttar kom fram að í málinu væri deilt um forsjárhæfni málsaðila og það hvers konar fyrirkomulag forsjár og umgengni væri dóttur þeirra fyrir bestu. Hefði héraðsdómi því verið rétt að kveðja sérfróðan meðdómsmann til setu í dómi, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá var jafnframt vísað til þess að við meðferð málsins fyrir héraðsdómi hefði dómurinn falið sálfræðingi, sem ekki var dómkvaddur sem matsmaður í málinu, önnur verkefni en að kanna viðhorf C og skila álitsgerð um það til dómsins. Með þessu hefði héraðsdómur farið út fyrir þær heimildir sem honum væru fengnar með 1. mgr. 43. gr., sbr. 3. mgr. 42. gr. barnalaga nr. 76/2003. Hinn áfrýjaði dómur var því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar á ný.

Landsréttur birt 24. september 2021

245/2021

A (Þórður Már Jónsson lögmaður) gegn B (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, umgengni og meðlag. Með hinum áfrýjaða dómi var B falin forsjá drengsins auk þess sem kveðið var á um umgengni og meðlag. Í málinu lá fyrir matsgerð dómkvadds matsmanns sem aflað var undir rekstri málsins í héraði þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að B byggi yfir ríkari forsjárhæfni en A. Féllst Landsréttur á þá niðurstöðu héraðsdóms að ekki væru forsendur til að aðilar færu áfram saman með forsjá sonar þeirra. Í dómi Landsréttar kom fram að matsgerðinni hefði ekki verið hnekkt og á henni væru engir slíkir annmarkar að ekki yrði á henni byggt. Samkvæmt því yrði að leggja til grundvallar að hæfni foreldra og tengsl barns við báða foreldra mæltu með því að B yrði falin forsjáin. Sjónarmið um stöðugleika í tengslum og í uppeldi mæltu einnig með hinu sama. Áform B um fimm ára dvöl erlendis gætu ekki ein og sér leitt til þess að kröfu hennar um forsjá yrði hafnað. Var niðurstaða heildarmats á því hvað væri drengnum fyrir bestu að hagsmunir hans stæðu til þess að B færi með forsjána. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Landsréttur birt 17. september 2021

119/2021

A (Oddgeir Einarsson lögmaður) gegn B (Ólafur Örn Svansson lögmaður)
Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni. Meðlag.
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að lögheimili sonar A og B yrði hjá B, að A skyldi greiða með honum einfalt meðlag til 18 ára aldurs og að regluleg umgengni sonarins við A og B yrði jöfn. Á hinn bóginn var talið að í dómsorði hins áfrýjaða dóms hefði tilhögun umgengni ekki verið lýst þannig að kröfum 2. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála væri fullnægt. Úr því var bætt með dómi Landsréttar.

Landsréttur birt 8. september 2021

478/2021

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Helgi Birgisson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um forsjá og lögheimili dóttur þeirra, umgengni hennar við málsaðila og greiðslu meðlags með henni. Landsréttur vísaði til þess að af gögnum málsins yrði ráðið að aðilar hafi aðeins í eitt skipti verið boðaðir til sáttameðferðar áður en vottorð um sáttameðferð var gefið út. Það væri í andstöðu við fyrirmæli 5. mgr. 33. gr. a barnalaga. Af þeim sökum var málinu vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 8. september 2021

477/2021

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Helgi Birgisson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um forsjá og lögheimili tveggja barna þeirra, umgengni þeirra við málsaðila og greiðslu meðlags með þeim. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um forsjá barnanna, lögheimili þeirra og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna. Héraðsdómur hafði hafnað kröfu A um umgengni en Landsréttur taldi mikilvægt að börnin nytu samvista við móður sína á meðan forsjármál aðila væri til lykta leitt og héldu þannig tengslum við báða foreldra. Var því mælt fyrir um umgengni barnanna við A með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 23. júní 2021

212/2021

A (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður) gegn B (Valgerður Dís Valdimarsdóttir lögmaður, Feldís Lilja Óskarsdóttir lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barna sinna, lögheimili og umgengni. Með hinum áfrýjaða dómi var B einni falin forsjá barnanna auk þess sem kveðið var á um lögheimili, meðlag og umgengnisrétt. Niðurstaða héraðsdóms byggðist á því að frumtengsl barnanna við B væru ótvírætt sterkari og fengi það stoð í matsgerð dómkvadds matsmanns. Þá væru samskipti aðila erfið og fyrirsjáanlegt, vegna djúpstæðs ágreinings og vantrausts þeirra á milli, að þau myndu ekki geta tekið sameiginlegar ákvarðanir í skjóli forsjár. Var það ekki talið þjóna hagsmunum barnanna að aðilarnir færu sameiginlega með forsjá þeirra. Fyrir Landsrétti krafðist A frávísunar málsins frá héraðsdómi á þeim grundvelli að sáttameðferð aðilanna hefði ekki fullnægt skilyrðum 1. mgr. 33. gr. a barnalaga nr. 76/2003. Með hliðsjón af fyrirliggjandi sáttavottorði taldi Landsréttur að fullnægjandi sáttameðferð hefði farið fram og hafnaði frávísunarkröfu A. Með vísan til fyrirliggjandi lögregluskýrslna og læknisvottorða en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var staðfest niðurstaða hans um að ekki væru skilyrði til þess að aðilar færu sameiginlega með forsjá barnanna og að B skyldi ein fara með forsjá þeirra. Að því virtu kom lögheimili barnanna ekki til úrlausnar dómsins. Þá staðfesti Landsréttur ákvæði héraðsdóms um inntak umgengnisréttar.

Hæstiréttur birt 16. júní 2021

8/2021

A (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) gegn B (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur sinnar og umgengni en B hafði sakað A um að hafa brotið kynferðislega gegn barninu og tálmað umgengni. Að öllu því virtu sem komið hefði fram í málið var lagt til grundvallar að barninu stafaði ekki hætta af A. Við úrlausn um forsjá var vísað til þess að heildarmat á hæfi A og B til að fara með forsjána og þarfir barnsins leiddu til þeirrar niðurstöðu að hagsmunir þess stæðu til þess að B væri falin forsjáin. Eins og málið væri vaxið hefði hæfi B sem uppalanda, tengsl barnsins við hana og mikilvægi þess að varðveita stöðugleika í lífi þess meira vægi en önnur atriði. Á hinn bóginn var talið rétt að barnið nyti ríflegrar umgengi við A til að viðhalda og efla tengsl þeirra og lögð á það rík áhersla að B bæri að hlíta því og stuðla að umgengninni í þágu barnsins.

Landsréttur birt 19. febrúar 2021

547/2020

A (Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður, Jónína Guðmundsdóttir lögmaður, 4. prófmál) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barna sinna, umgengni og meðlag. Í dómi Landsréttar kom fram að gögn málsins og framburðir aðila fyrir dómi gæfu ótvírætt til kynna að samskiptavandi þeirra væri mikill og djúpstæður. Ekki væru því forsendur fyrir sameiginlegri forsjá. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að A hefði í gegnum tíðina borið mun meiri ábyrgð á uppeldi barnanna og væri þeim mjög náin. Þá létu bæði börnin eindregið í ljós vilja til að vera í umsjá A og eiga lögheimili hjá henni. Enn fremur hefði annað barnið átt við mjög alvarleg áfallastreitueinkenni að stríða að undanförnu og tengdist það meðal annars ótta þess við að fara í umsjá föður síns. Með hliðsjón af framangreindu var A falin forsjá barna þeirra. Þá taldi Landsréttur að það þjónaði ekki hagsmunum barnanna að kveða á um umgengni þeirra við B. Ákvæði hins áfrýjaða dóms um meðlag og lögheimili voru staðfest.

Landsréttur birt 11. desember 2020

356/2020

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur sinnar, umgengni og greiðslu meðlags. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður aðila fyrir dómi og gögn málsins bæru ótvírætt með sér að samskiptavandi aðila væri mikill og þau ræddu ekki saman um málefni barnsins. Væru því ekki forsendur fyrir því að þau færu saman með forsjána. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að báðir foreldrar væru hæfir til þess að fara með forsjá barnsins. Var það mat dómsins að það samrýmdist betur högum og þörfum barnsins að A færi ein með forsjá þess enda þótt fyrir lægi að hún hefði tálmað umgengni barnsins við B. Í ljósi þess að barnið hafði lítið umgengist B síðastliðin tvö ár og ekki myndað tengsl við sambýliskonu hans og hálfsystur sem byggju á sama heimili var talið nauðsynlegt að aðlögun ætti sér stað í sex mánuði frá uppkvaðningu dómsins. Í ljósi aðstæðna var það mat dómsins að nauðsynlegt væri að foreldrar nytu stuðnings eftirlitsaðila, sbr. 4. mgr. 47. gr. barnalaga nr. 76/2003, á aðlögunartímanum til að stuðla að því að umgengnin til lengri tíma yrði barninu áreynslulaus eða áreynslulítil.

Landsréttur birt 18. september 2020

130/2020

A (Björgvin Jónsson lögmaður, Ómar R. Valdimarsson lögmaður, 1. prófmál) gegn B (Katrín Theodórsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur sinnar, lögheimili og umgengni. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður aðila fyrir dómi og gögn málsins bæru með sér að samskiptavandi þeirra væri mikill og þau ræddu ekki saman um málefni dóttur þeirra. Jafnframt væri fram komið að ekki hefði dregið úr þeim vanda þeirra en samskiptin færu að mestu fram með aðstoð fjölskyldu B. Taldi Landsréttur að forsendur sameiginlegrar forsjár þeirra með stúlkunni væru því brostnar. Í málinu lá fyrir matsgerð um forsjárhæfni A og B sem aflað var undir rekstri málsins í héraði og var þar komist að þeirri niðurstöðu að báðir aðilar væru hæfir til að fara með forsjá stúlkunnar en að veikleikar væru í forsjárhæfni A. Féllst Landsréttur á það með héraðsdómi að það samræmdist best högum og þörfum stúlkunnar að B færi ein með forsjá hennar. Þá taldi Landsréttur ekki efni til að breyta því fyrirkomulagi um umgengni sem héraðsdómur ákvað. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Landsréttur birt 31. ágúst 2020

392/2020

A (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Katrín Theodórsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um forsjá tveggja barna þeirra, lögheimili þeirra, umgengni þeirra við málsaðila og greiðslu meðlags með þeim. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki væri efni til þess að breyta tilhögun forsjár til bráðabirgða meðan mál út af ágreiningi aðila um forsjá og lögheimili barnanna væri til meðferðar fyrir héraðsdómi. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að lögheimili barnanna yrði á sama tíma hjá B sem og að börn málsaðila skyldu búa hjá þeim á víxl, viku í senn. Þá var A gert að greiða einfalt meðlag með hvoru barni um sig uns endanlega hefði verið leyst úr forsjárdeilu aðila fyrir dómi.

Hleð fleiri dómum…