Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Fannari Daníel Guðmundssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás, ólögmæta meðferð fundins fjár, nytjastuld, umferðar-, fíkniefna-, og vopnalagabrot
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Adam Piet
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði, skilorðsbundið til 2 ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefni og ákærði sviptur ökurétti í 3 ár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Alin Luca (
Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Ákærði dæmdur í 60 daga skilorðsbundð fangelsi fyrir m.a. þjófnaðar- og umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Haldlögð fíkniefni voru jafnframt gerð upptæk.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Orri Sigurðsson lögmaður)
Ákærði sýknaður af fjársvikum og ólögmætri meðferð fundins fjár.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Stefáni Svani Sigurðssyni (
Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og auðgunarbrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arthur Geir Ball (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir hegningar-, vopna- og umferðarlagabrot.
Ákærði var sakfelldur fyrir hótanir, ólögmæta meðferð fundins fjár og umferðar- og fíkniefnalgabrot.
Þ var sakfelldur fyrir fjögur þjófnaðarbrot, tilraun til þjófnaðar, tilraun til fjársvika, nytjastuld, ólögmæta meðferð á fundnu fé og akstur bifreiðar sviptur ökurétti. Einum ákærulið þar sem Þ voru gefin að sök fjársvik var hins vegar vísað frá héraðsdómi þar sem verknaðarlýsing var ekki talin uppfylla kröfur c. liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þá var Þ sýknaður af ákærulið þar sem honum var gefið að sök að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis. Við ákvörðun refsingar Þ var litið sakarferils hans auk þess sem tekið var tillit til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Rhonica, Rae og Reynisson (
Haukur Örn Birgisson hrl)
R var ákærð fyrir brot gegn 246. gr. almennra hegningarlaga um ólögmæta meðferð fundins fjár með því að hafa í heimildarleysi kastað eign sinni á 810.000 krónur sem B lagði ranglega inn á bankareikning hennar en hún tók fjárhæðina út af reikningum sama dag og millifærði hana inn á tvo aðra reikninga, annan í eigu X. R krafðist sýknu og hélt því fram að sú háttsemi sem henni var gefin að sök yrði ekki heimfærð undir umrætt refsiákvæði þar sem innstæða á bankareikningi gæti ekki talist brotaandlag samkvæmt því. Byggði R sýknukröfu sína einnig á því að háttsemin hefði ekki verið framin í auðgunarskyni. Hæstiréttur vísaði til þess að miklar breytingar hafi orðið á viðskiptum frá því almenn hegningarlög voru sett með tilkomu rafrænna viðskiptahátta. Yrði að telja eðlilegt, miðað við upphaflegt markmið ákvæðisins, að skýra það svo að það næði til ólögmætrar ráðstöfunar á fé, sem ranglega hefði borist viðtakanda, án tillits til þess hvort um væri að ræða reiðufé eða fjárhæð sem lögð hefði verið inn á bankareikning viðtakanda. Taldi Hæstiréttur því að háttsemin félli undir 246. gr. almennra hegningarlaga. Þá var jafnframt talið að R hafi framið háttsemina í auðgunarskyni. Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu R.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Guðmundi Jakobi Jónssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
G var meðal annars sakfelldur fyrir rán, þjófnað, líkamsárás, fjársvik, hylmingu, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, samkvæmt fjölmörgum ákæruliðum tilgreindum í fjórum ákærum á hendur honum. G játaði sök vegna hluta brotanna. Hins vegar þótti ekki fram komin lögfull sönnun um að hann hefði haft í fórum sínum tvær stolnar fartölvur og var hann því sýknaður af hluta ákæru fyrir hylmingu. Var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sviptingu ökuréttar G, upptöku ávana- og fíkniefna svo og um fangelsisrefsingu hans, en G var gert að sæta fangelsi í tvö ár og sex mánuði.
B var sakfelldur fyrir fjögur þjófnaðarbrot og fyrir ólögmæta meðferð fundins fjár. Tekið var fram að B hefði endurtekið gerst sekur um auðgunarbrot. Með hliðsjón af 71. gr., 72. gr., 77., 78. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.
Nytjastuldur. Skjalabrot. Þjófnaður. Gripdeild. Fjársvik. Ólögleg meðferð á fundnu fé. Tilraun. Ávana- og fíkniefni. Akstur án ökuréttar. Stjórnsýsla. E var sakfelldur í Hæstarétti fyrir skjalabrot, tilraun til þjófnaðar, fjársvik og R fyrir þátttöku í nytjastuldi. Hins vegar var E sýknaður af sakargiftum um gripdeild og að hafa ekið bifreið án gildra ökuréttinda í þrjú skipti. Hafði hann verið sviptur ökurétti með dómi 1998 í 15 mánuði. Eftir að sviptingartími samkvæmt dóminum rann út hafði hann aldrei gengist undir hæfnispróf til þess að mega öðlast ökurétt að nýju svo sem lög áskilja. Sjálfur kvaðst hann hins vegar hafa fengið skírteini sitt afhent hjá lögreglu. Eftir þetta hafði honum í nokkur skipti verið gert að sæta sviptingu ökuréttar og hefðu yfirvöld þannig lagt til grundvallar að hann hefði slík réttindi. Hefði hann því fengið fullt tilefni til að telja sig mega aka bifreið, þó að ljóst væri að hann hafði ekki uppfyllt lagaskilyrðin. E og R höfðu einungis áfrýjað til Hæstaréttar hluta þeirra sakargifta sem þeir voru ákærðir fyrir. Var niðurstaða héraðsdóms um refsingu E og R, þar sem þeim var gert að sæta fangelsi í 15 og 12 mánuði, staðfest með vísan til 1. mgr. 159. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Úlfari Ólafssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Ú var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og hilmingu, svo og ólögmæta meðferð fundins fjár. Brot þessi voru umfangsmikil. Húsleit var tvívegis gerð á heimili Ú haustið 1999 og fannst í bæði skiptin mikið þýfi. Við ákvörðun refsingar var og til þess litið að Ú átti að baki langan brotaferil. Að þessu gættu þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði og hafði þá verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa frá eldri dómum fyrir auðgunarbrot.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Róbert Cassis (
Páll Arnór Pálsson hrl)
R var ákærður fyrir ólögmæta meðferð fundins fjár með því að hafa kastað eign sinni á íþróttatösku sem hann fann. Talið sannað gegn andmælum ákærða að hann hafi gerst brotlegur við 246. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.