Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 90/2013"
5 dómar fundust
RD ehf. höfðaði mál á hendur R til ógildingar nánar tilgreinds sérákvæðis um gistiþjónustu í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem tók gildi með breytingu á aðalskipulaginu árið 2017 og fól í sér hömlur á gististarfsemi í miðborginni. Umsókn RD ehf. um leyfi til reksturs íbúðargistingar í íbúð í eigu félagsins var synjað á grundvelli neikvæðrar umsagnar R þar sem starfsemin var ekki talin samræmast aðalskipulagi svo breyttu. Ágreiningur aðila laut að gildi nefndrar aðalskipulagsbreytingar. Með hinum áfrýjaða dómi var R sýknað af kröfum RD ehf. Var niðurstaða dómsins á því reist að setning nefnds sérákvæðis hefði ekki farið í bága við skipulagslög nr. 123/2010 þótt gististarfsemi væru settar hömlur í aðalskipulagi í stað deiliskipulags. Þá hefði við málsmeðferð og gerð nefndrar aðalskipulagsbreytingar ekki skort svo verulega á að viðhlítandi rannsóknarskyldu R væri sinnt eða meðalhófs og jafnræðis gætt að um annmarka yrði talið að ræða sem gætu varðað ógildi ákvæðis skipulagsbreytingarinnar. Í dómi Landsréttar var vísað til hlutverks sveitarstjórna vegna framkvæmdar skipulagsmála samkvæmt 3. mgr. 3. gr. laga nr. 123/2010 og að valdheimildir þeirra á sviði skipulagsmála markist af lögum. Samkvæmt því en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.
...Stefnandi bendir á að samkvæmt reglugerð nr. 90/2013 gildi tilteknar reglur um takmörkun á landnotkun. Hann vísar til gr. 1.3 í reglugerðinni þar sem hugtakið landnotkun er skilgreint...
Deilt var um gildi breytingar sem gerð var 2017 á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030 og fól í sér hömlur á gististarfsemi í miðborginni.Stefnandi hugðist reka gististarfsemi í íbúð sinni en var synjað um rekstrarleyfi á grundvelli neikvæðrar umsagnar stefnda Reykjavíkurborgar, þar sem starfsemin var ekki talin samræmast aðalskipulagi svo breyttu. Stefnandi krafðist í málinu ógildingar á aðalskipulagsbreytingunni, en til vara á ákvörðun borgarráðs um að staðfesta hana. Byggt var á því að aðalskipulagsbreytingin hefði ekki samræmst skipulagslöggjöfinni, einkum að óheimilt hefði verið að leggja slíkar hömlur á starfsemi með aðalskipulagi í stað deiliskipulags, auk þess sem málsmeðferð stefnda við undirbúning breytingarinnar hefði ekki samræmst meginreglum stjórnsýslulaga um rannsókn, meðalhóf og jafnræði. Málsástæðum stefnanda var hafnað og var stefndi sýknaður af dómkröfum stefnanda.
...Stefnandi bendir á að samkvæmt reglugerð nr. 90/2013 gildi tilteknar reglur um takmörkun á landnotkun. Hann vísar til gr. 1.3 í reglugerðinni þar sem hugtakið landnotkun er skilgreint...
J o.fl. höfðuðu mál á hendur H og G og kröfðust ógildingar á ákvörðun H þar sem samþykkt var sú breyting á deiliskipulagi að heimila niðurrif friðaðs hús að Hellubraut 7 og að nýtt hús yrði byggt í staðinn og að heimila byggingu húss að Hellubraut 5. Þá kröfðust J o.fl. þess að felldar yrðu úr gildi ákvarðanir byggingarfulltrúa H um að samþykkja umsóknir um byggingarleyfi á lóðunum og gefa út byggingarleyfi á þeim. Sneri deila aðila meðal annars að því hvort Minjastofnun Íslands hefði verið heimilt að binda leyfi til niðurrifs hússins skilyrðum á grundvelli 29. og 30. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar en J o.fl. héldu því fram að deiliskipulagsbreytingin hefði brotið gegn skilyrðum stofnunarinnar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að skilyrði Minjastofnunar Íslands fælu í sér takmörkun á skipulagsvaldi sveitarfélaga samkvæmt 78. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 3. mgr. 3. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá kynnu skilyrðin að leiða til takmörkunar á stjórnarskrárvörðum eignarráðum fasteignareiganda, sbr. 1. mgr. 72. gr. hennar, en vafa um það yrði að skýra honum í hag. Heimild til að binda stjórnvaldsákvörðun skilyrðum yrði að styðjast við skýra og ótvíræða lagaheimild í ljósi lagaáskilnaðarreglna stjórnarskrárinnar og lögmætisreglunnar. Þar sem ekki hagaði svo til í málinu var talið að stofnunina hefði brostið heimild til að binda leyfið umræddum skilyrðum. Þá var talið að deiliskipulagsbreytingin hefði hvorki verið í andstöðu við 2. mgr. 37. gr. skipulagslaga, þar sem mælt sé fyrir um að deiliskipulag skuli mynda heildstæða einingu, né gildandi aðalskipulag, sbr. 3. mgr. 37. gr. og 7. mgr. 12. laganna. Loks var talið að J o.fl. hefðu ekki sýnt fram á að með ákvörðun H um nýtingarhlutfall framangreindra lóða hefði verið brotið gegn 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Voru H og G því sýknaðir af kröfum J o.fl.
...Þá er gert ráð fyrir því í grein 5.2 í skipulags-reglugerð nr. 90/2013 að ef tillaga að deiliskipulagi eða tillaga að breytingu á því taki til svæðis...
J, G, SA og SS höfðuðu mál á hendur H og G og kröfðust ógildingar á tilgreindum ákvörðunum H um breytingar á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Hellubraut 5 og 7 og byggingarleyfi á þeim. Byggðu J, G, SA og SS meðal annars á því að ákvarðanir H hefðu ekki verið í samræmi við skilyrði sem Minjastofnun hefði sett samkvæmt lögum nr. 80/2012 og að við hinar umdeildu skipulagsbreytingar hefði ekki verið gætt ákvæða 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í dómi héraðsdóms kom fram að Minjastofnun hefði ekki haft heimild til þess að setja skilyrði um hvernig nýbyggingu á lóðunum yrði háttað. Í dómi Landsréttar var vísað til forsenda héraðsdóms. Taldi Landsréttur jafnframt að lögvarðir hagsmunir áfrýjenda af úrlausn málsins hefðu ekki fallið niður við það að hús sem áður stóð á lóðinni hefði verið rifið. Þá yrði að telja að H hefði verið heimilt samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að falla frá kynningu á tillögu að breytingu á deiliskipulaginu. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu H og G af kröfum J, G, SA og SS því staðfest.
...Þá er gert ráð fyrir því í grein 5.2 í skipulags-reglugerð nr. 90/2013 að ef tillaga að deiliskipulagi eða tillaga að breytingu á því taki til svæðis...
Stefnendur kröfðust þess að ákvörðun bæjarstjórnar um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi fyrir tilteknar lóðir yrði felld úr gildi. Stefndu voru sýknuð af kröfunni.
...Þá er gert ráð fyrir því í grein 5.2 í skipulags-reglugerð nr. 90/2013 að ef tillaga að deiliskipulagi eða tillaga að breytingu á því taki til svæðis...