Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 745/2019"

3 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2026

E-4891/2025

A (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Landsbankanum hf (Hrannar Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Einstaklingur átti í viðskiptum við banka. Eftir að einstaklingurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um margvísleg brot, þar á meðal peningaþvætti, sagði bankinn upp viðskiptasambandinu í mars 2024. Árið 2025 fór einstaklingurinn fram á að opnað yrði aftur fyrir bankaviðskipti, en hann þyrfti á bankareikningi að halda til að geta fengið greidd laun. Bankinn hafnaði þeirri beiðni, meðal annars með vísan til óbreytts áhættumats á grundvelli laga og reglna um peningaþvætti. Höfðaði einstaklingurinn þá mál þetta gegn bankanum og krafðist þess að honum yrði gert skylt að opna aftur fyrir bankaviðskiptin. Í ljósi umfangs og alvarleika þeirra brota sem einstaklingurinn lá undir rökstuddum grun um að hafa framið taldi dómurinn að fallast mætti á þann málatilbúnað bankans að synjun hans á beiðni einstaklingsins um stofnun nýs bankareiknings teldist eiga sér næga stoð í lögum nr. 140/2018, sbr. einnig ákvæði 3. mgr. 14. gr. laga nr. 5/2023.

...Einnig sé fjallað um áhættuflokkun viðskiptavina í reglugerð nr. 745/2019 um áreiðanleikakönnun vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Loks er í bréfinu vísað til fyrra bréfs stefnda frá...

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. september 2025

E-1169/2024

Talk Liberation ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn Íslandsbanka hf (Arnar Þór Stefánsson lögmaður)

Stefnandi krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hans til skaðabóta úr hendi stefnda vegna tjóns sem hann sagði hafa leitt af þeirri ákvörðun stefnda að loka fyrir viðskipti um bankareikning stefnanda og slíta viðskiptasambandi aðila í kjölfarið. Munu umræddar aðgerðir hafa komið til í kjölfar þess að há millifærsla barst inn á reikning stefnanda sem stefndi taldi í ósamræmi við upplýsingagjöf hans í áreiðanleikakönnun um mánaðarlega veltu. Í dómi héraðsdóms kom fram að aðgerðir bankans hefðu samrýmst lögum nr. 140/2018 um peningaþvætti og aðgerðir gegn hryðjuverkum og almennum skilmálum stefnda, sem stefnandi hafði skuldbundið sig til að hlíta. Stefnandi hefði að öðru leyti ekki sýnt fram á að brotið hefði verið gegn rétti hans með ólögmætum og saknæmum hætti. Loks var það mat dómsins að meint tjón stefnanda væri með öllu ósannað. Var stefndi því sýknaður af kröfum stefnanda.

...Í reglugerð nr. 745/2019 um áreiðanleikakannanir vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er nánar mælt fyrir um skyldur fjármálafyrirtækja í framangreinda veru og verklag við að framfylgja ákvæðum...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júlí 2025

E-1768/2023

A (Guðmundur Óli Björgvinsson lögmaður) gegn ríkisskattstjóra og íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Stefnandi, fasteignasala, krafðist þess aðallega að felld yrðu úr gildi ákvörðun ríkisskattstjóra þess efnis að sekta stefnanda fyrir brot gegn lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ríkisskattstjóri var sýkn af aðalkröfu en fallist var á varakröfu stefnanda og sektin lækkuð verulega.

...Í reglugerð nr. 745/2019 er í b-lið 7. gr. vísað til þess að mat á því hvað séu viðeigandi ráðstafanir ráðist af þeirri áhættu sem sé talin stafa...