Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 297/2006"

5 dómar fundust

Landsréttur birt 5. mars 2021

46/2020

Karl Sigurhjartarson (Hlynur Jónsson lögmaður) gegn Veitum ohf (Jóna Björk Helgadóttir lögmaður)

K var kaupandi að heitu vatni af V ohf. til upphitunar á sumarbústað í Borgarfirði. Taldi hann vatnið vera gallað þar sem hitastig þess við afhendingu væri undir tilteknu viðmiði og lægra en hjá öðrum notendum á sama þjónustusvæði. K höfðaði mál á hendur V ohf. til endurgreiðslu kostnaðar að hluta miðað við tiltekið tímabil á þeim grundvelli að hann ætti rétt til afsláttar af því verði sem hann greiddi fyrir vatnið samkvæmt gjaldskrá. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að samningur notanda og hitaveitu kæmist sjálfkrafa á við upphaf viðskipta og að efni slíks samnings réðist af réttarheimildum. K hefði ekki fært fyrir því rök að þær réttarheimildir sem hefðu legið samningssambandinu til grundvallar væru ekki rétt settar eða skorti fullnægjandi lagastoð. V ohf. væri ekki skylt að afhenda K heitara vatn en tilgreint væri í tengiskilmálum að hitaveitan treysti sér til að afhenda notendum í sumarhúsabyggð. V ohf. hefði gert þær ráðstafanir sem ætlast mætti til svo að hitastig þess vatns sem K var afhent héldist í eðlilegu horfi samkvæmt þeim réttarheimildum sem um starfsemi V ohf. giltu og með því móti uppfyllt hitaviðmið samningssambandsins. Var V ohf. því sýknað af kröfum K.

...Hún var felld úr gildi með reglugerð nr. 297/2006 um Orkuveitu Reykjavíkur sem enn leggur grunninn að starfsemi stefnda og viðskiptasambandi hans við viðskiptavini sína. Í 4. mgr. 12...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2019

E-3902/2018

Karl Sigurhjartarson (Hlynur Jónsson lögmaður) gegn Veitum ohf (Íris Lind Sæmundsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Afsláttur. Galli. Samningur.

Stefnandi keypti vatn af stefnda til þess að hita upp sumarbústað sinn í Borgarbyggð. Vatnið sem hann fékk afhent var kaldara en vatn nágranna hans. Hitastig þess var þó hærra en nam almennu viðmiði stefnda. Gjaldskrá stefnda byggðist á magni en ekki á hitastigi. Stefndi taldi sig eiga rétt til afsláttar af gjaldi samkvæmt gjaldskránni vegna þess að vatnið sem stefndi afhendi honum væri gallað. Dómurinn tók fram að efni samningssambands kaupanda og seljanda heits vatns til húshitunar réðist ekki af samningi heldur af réttarheimildum. Stefndi var jafnframt talinn hafa gert þær ráðstafanir sem ætlast má til af honum til þess að halda hitastigi vatnsins sem stefnandi kaupir í „eðlilegu horfi“ samkvæmt þeim réttarheimildum sem giltu um sölu á heitu vatni. Stefndi afhenti vatn sem uppfyllti hitaviðmið samningssambands þeirra og því var vatnið ekki talið gallað. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda um afslátt af kaupverði vatnsins.

...Hún var felld úr gildi með reglugerð nr. 297/2006 um Orkuveitu Reykja- víkur sem enn leggur grunninn að starfsemi stefnda og viðskiptasambandi hans við viðskiptavini sína. Í 4. mgr...

Hæstiréttur birt 21. mars 2013

642/2012

Egilsson ehf (Marteinn Másson hrl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

Deilt var um það hvort OR væri heimilt að gera þann áskilnað fyrir orkusölu til E ehf. að skuld T ehf., sem tekið hafði verið til gjaldþrotaskipta, yrði greidd með vísan til 8. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 297/2006. OR taldi að E ehf. og T ehf. teldust nákomnir aðilar samkvæmt ákvæði reglugerðarinnar, en E ehf. hafði keypt hluta verslana sem T ehf. rak, sami maður var eini stjórnarmaður í E ehf. og T ehf. auk þess sem starfsemi E ehf. var í sama húsnæði og starfsemi T ehf. áður. E ehf. bar því hins vegar við að reglugerðarákvæðið hefði ekki lagastoð. Í dómi Hæstaréttar var m.a. vísað til þess að hvorki í lögum um stofnun OR né lögum á sviði orkumála væri að finna heimild til að leggja skuld vegna orkukaupa á þriðja mann og breytti þar engu þótt hann væri í tengslum af einhverju tagi við orkukaupanda. Skylda af því tagi sem mælt væri fyrir um í 8. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 297/2006 yrði ekki lögð á með reglugerð án þess að fyrir því væri ótvíræð lagastoð. Í þeim efnum nægði ekki almenn reglugerðarheimild. Taldi Hæstiréttur að lagastoð brysti fyrir reglugerðinni að þessu leyti og féllst á kröfu E ehf. um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar sem félagði hafði greitt, með fyrirvara, inn á skuld T ehf.

...Stefndi byggir sýknukröfu sína fyrst og fremst á því að krafa um greiðslu vangoldins kostnaðar vegna dreifingar og sölu raforku sé fullkomlega lögmæt og heimil samkvæmt reglugerð nr. 297/2006...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2012

E-4296/2011

Egilsson ehf (Smári Hilmarsson hdl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Elín Smáradóttir hdl)
Lykilorð: Endurgreiðslukrafa.

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um endurgreiðslu innágreiðslu vegna orkunotkunar félags sem varð gjaldþrota.

...Stefndi byggir sýknukröfu sína fyrst og fremst á því að krafa um greiðslu vangoldins kostnaðar vegna dreifingar og sölu raforku sé fullkomlega lögmæt og heimil samkvæmt reglugerð nr. 297/2006...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. febrúar 2008

S-1814/2007

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn X (Guðmundur Ágústsson hdl)
Lykilorð: Sönnun. Sýkna. Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Karlmaður sýknaður af þjófnaði á orkuforða, sem og fyrir rof á innsiglum Orkuveitu Reykjavíkur.

...Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur einkaleyfi til starfrækslu hitaveitu og einkarétt til sölu og dreifingar rafmagns í Reykjavík samkvæmt reglugerð nr. 297/2006 um Orku­veitu Reykjavíkur. Þar segir meðal annars...