Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Réttarheimildir

Landsréttur birt 5. mars 2021

46/2020

Karl Sigurhjartarson (Hlynur Jónsson lögmaður) gegn Veitum ohf (Jóna Björk Helgadóttir lögmaður)

K var kaupandi að heitu vatni af V ohf. til upphitunar á sumarbústað í Borgarfirði. Taldi hann vatnið vera gallað þar sem hitastig þess við afhendingu væri undir tilteknu viðmiði og lægra en hjá öðrum notendum á sama þjónustusvæði. K höfðaði mál á hendur V ohf. til endurgreiðslu kostnaðar að hluta miðað við tiltekið tímabil á þeim grundvelli að hann ætti rétt til afsláttar af því verði sem hann greiddi fyrir vatnið samkvæmt gjaldskrá. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að samningur notanda og hitaveitu kæmist sjálfkrafa á við upphaf viðskipta og að efni slíks samnings réðist af réttarheimildum. K hefði ekki fært fyrir því rök að þær réttarheimildir sem hefðu legið samningssambandinu til grundvallar væru ekki rétt settar eða skorti fullnægjandi lagastoð. V ohf. væri ekki skylt að afhenda K heitara vatn en tilgreint væri í tengiskilmálum að hitaveitan treysti sér til að afhenda notendum í sumarhúsabyggð. V ohf. hefði gert þær ráðstafanir sem ætlast mætti til svo að hitastig þess vatns sem K var afhent héldist í eðlilegu horfi samkvæmt þeim réttarheimildum sem um starfsemi V ohf. giltu og með því móti uppfyllt hitaviðmið samningssambandsins. Var V ohf. því sýknað af kröfum K.