Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 72. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup
D ehf. höfðaði mál til viðurkenningar á bótaskyldu I ohf. vegna hagnaðarmissis sem leiddi af ákvörðun I ohf. um að semja ekki við D ehf. um verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í kjölfar útboðs sem D ehf. tók þátt í árið 2014. Í dómi Landsréttar var ekki fallist á með D ehf. að I ohf. hefði borið að fylgja stjórnsýslulögum eða öðrum almennum reglum stjórnsýsluréttar við forvalið og útleigu verslunarrýmis í flugstöðinni. Þá var hvorki fallist á að þágildandi lög nr. 84/2007 um opinber innkaup né lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða hefðu gilt um útboð I ohf. Jafnframt væri ósannað að I ohf. eða nefndarmenn í matsnefnd um útboðið hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi við mat og meðferð á tilboði D ehf. Yrði ekki annað ráðið af gögnum málsins en að vandað hefði verið til forvalsins, forsendur þess hefðu legið ljósar fyrir í útboðsgögnum, jafnræðis verið gætt og að lögmæt og málefnaleg sjónarmið hafi ráðið för við mat á tilboði D ehf. Við það mat yrði einnig að hafa í huga tilgang I ohf., sem væri að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu flugstöðvarinnar, og að I væri sem rekstraraðila hennar heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná þeim tilgangi sínum á sem hagkvæmastan hátt. Yrði því að játa I ohf. ákveðið svigrúm við mat á því hvaða tilboð og viðskiptahugmyndir féllu best að tilgangi félagsins þannig að markmiðum þess um þjónustu við farþega og hagnað fyrir rekstur flugstöðvarinnar yrði sem best náð. Skilyrði almennu skaðabótareglunnar um saknæma og ólögmæta háttsemi væru því ekki uppfyllt í málinu og var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna I ohf. af kröfum D ehf.
Sýknað af kröfu um viðurkenningu bótaábyrgðar vegna forvals vegna verslunarreksturs í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
S stóð fyrir útboði á sorphirðu í sveitarfélaginu fyrir árin 2012 til 2016 og skiluðu tveir bjóðendur tilboði í verkið. S ákvað að hafna báðum boðunum sökum annmarka á útboðinu sem það taldi til þess fallna að raska jafnræði bjóðenda. G hf. krafði S um skaðabætur þar sem það taldi að S hefði verið skylt að gera verksamning við það í kjölfar útboðsins. Á miðju ári 2017 framseldi G hf. kröfur sínar til E ehf. og tók E ehf. við aðild G hf. að málinu. Dómkrafa E ehf. tók til ætlaðs missis hagnaðar G hf. vegna áranna 2013 til 2016 en við úrlausn málsins í héraði lágu fyrir matsgerð og yfirmatsgerð. Héraðsdómur sýknaði S á þeim grunni að krafa G hf. hefði þegar verið fyrnd við málshöfðun en fjallaði í kjölfarið jafnframt um aðrar málsálstæður S fyrir sýknu. Í dómi Landsréttar var hafnað kröfu S um ómerkingu héraðsdóms og skírskotað til þess að enda þótt jafnframt hefði verið tekin afstaða til annarra málsástæðna en fyrningar gæti umfjöllun um þær og afstaða til þeirra ekki leitt til ómerkingar dómsins, enda hefði héraðsdómur áður fjallað um málsástæður er lytu að fyrningu og komist að þeirri niðurstöðu að allar kröfur E ehf. væru fyrndar. Þá vísaði Landsréttur meðal annars til þess að í málinu lægi fyrir að S hefði 16. desember 2011 sent G hf. tilkynningu án rökstuðnings um að hafna öllum tilboðum í umrætt verk og 19. sama mánaðar sent G hf. rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun. Fyrningarfrestur skaðabótakrafna byrjaði samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu að líða á þeim degi þegar tjónþoli fengi nauðsynlegar upplýsingar um tjónið og þann sem ábyrgð bæri á því eða bæri að afla sér slíkra upplýsinga. Ákvæðið yrði ekki skilið þannig að upphaf fyrningarfrests miðaðist við það tímamark þegar endanlega væri unnt að meta umfang tjónsins en fyrningarfrestum væri meðal annars ætlað að gefa tjónþola hæfilegt svigrúm til þess að staðreyna umfang tjóns. Þegar G hf. hefði borist tilkynning um að S hefði hafnað tilboði félagsins og rökstuðningur fyrir þeirri ákvörðun hefði félagið þegar haft undir höndum nægar upplýsingar um þær tekjur sem ætla mátti að það færi á mis við á samningstímanum. Jafnframt yrði að ætla að félagið hefði þá einnig haft undir höndum nægilega nákvæmar upplýsingar og útreikninga á væntanlegum kostnaði við verkið og þar með hafi stjórnendur þess getað áttað sig á að félagið hefði orðið fyrir tjóni vegna tapaðrar framlegðar á samningstímanum. Ekki þætti ástæða til að miða við að fyrningarfrestur hefði ekki hafist fyrr en eftir lok fyrirhugaðs samningstíma og var því fallist á með héraðsdómi að allar kröfur G hf. á hendur S hefðu verið fallnar niður fyrir fyrningu þegar málið var höfðað 28. febrúar 2017. Þegar af þeirri ástæðu var niðurstaða héraðsdóms um sýknu staðfest.
Talið var að Ríkiskaup hefðu með því að taka tillit til sérstakra afsláttarkjara eins bjóðanda, án þess að útboðsgögn heimiluðu slík afsláttarkjör, mismunað bjóðendum í útboði á saknæman og ólögmætan hátt. Viðurkennt var að á stefnda, íslenska ríkinu, hvíldi skaðabótaskylda vegna missis hagnaðar sem stefnandi hefði gert líklegt að hann kynni að hafa notið hefðu Ríkiskaup réttilega tekið boði hans.
Stefnda talið hafa brotið gegn lögum um opinber innkaup við útboð á sorphirðu í sveitarfélaginu síðari hluta ársins 2011. Var krafa stefnanda talin fyrnd. Auk þess var stefnandi ekki talinn hafa fært sönnur fyrir ætluðu tjóni sínu og var stefnda sýknað af af skaðabótakröfu stefnanda.
Staðfest að stefnda væri óheimilt að ganga til samninga við stefnanda á grundvelli tilboðs í lokafrágang Björgunarmiðstöðvarinnar á Selfossi þar sem talið var að stefnandi væri í vanskilum með opinber gjöld.