Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 56. gr. laga nr. 8/1993 — Samkeppnislög

Hæstiréttur birt 31. janúar 2013

437/2012

Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið (Heimir Örn Herbertsson hrl) gegn Keri hf (Anton Björn Markússon hrl), Olíuverslun Íslands hf (Eyvindur Sólnes hrl) og Skeljungi hf (Hörður F. Harðarson hrl)

Samkeppnisstofnun hóf í desember 2001 rannsókn á ætluðu ólögmætu samráði þriggja olíufélaga sem hefði brotið í bága við 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Á grundvelli rannsóknarinnar tók samkeppnisráð ákvörðun í október 2004, þar sem komist var að niðurstöðu um að félögin hefðu brotið gegn fyrrgreindu ákvæði með yfirgripsmiklu og óslitnu samráði á heildarmarkaði fyrir sölu á olíuvörum hér á landi á tímabilinu 1993 til 2001 og voru félögunum gerðar sektir. Félögin skutu ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp úrskurð í málinu í janúar 2005 þar sem staðfestar voru allar helstu niðurstöður í ákvörðun samkeppnisráðs, en félögunum voru þó gerðar nokkuð lægri sektir. Félögin greiddu sektirnar með fyrirvara um endurheimtu fjárins að gengnu dómsmáli sem hnekkti úrskurðinum. Félögin þrjú, K hf., O hf. og S hf., höfðuðu í kjölfarið í júní 2005 og júlí sama ár hvert sitt málið á hendur íslenska ríkinu til ógildingar á úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála, en til vara niðurfellingar eða lækkunar sektar, sem þar var ákveðin, svo og til endurheimtu hennar. Málin voru í febrúar 2006 sameinuð í eitt, að framkomnum greinargerðum um varnir félaganna þriggja. Í dómi Hæstaréttar voru raktir margvíslegar annmarkar annars vegar á málatilbúnaði félaganna þriggja og hins vegar á meðferð málsins í héraði og hinum áfrýjaða dómi. Í fyrsta lagi var talið að mjög skorti á að í héraðsstefnum væri lýst þeim atvikum sem þyrfti að greina til að samhengi málsástæðna félaganna þriggja yrði ljóst, sbr. e. lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, en í stefnunum hafði lýsing málsatvika einskorðast við gang rannsóknar stjórnvalda og málsmeðferðar fyrir þeim og lítið sem ekkert verið vikið að efni úrlausna þeirra. Í öðru lagi var talið að málatilbúnaður félaganna hefði brotið í bága við fyrrgreint ákvæði laga nr. 91/1991 því málsástæðum var ekki réttilega lýst í stefnum félaganna og víða vísað til málsástæðna, sem hafðar voru uppi af þeirra hálfu á stjórnsýslustigi, án frekari skýringa. Var málatilbúnaður í slíkum búningi að dómstólum var fyrirmunað að henda reiður á hvaða málsástæðum félögin þrjú reistu málsókn sína á. Í þriðja lagi var vísað til bókunar félaganna þriggja undir meðferð málsins í héraði, sem fyrir Hæstarétti var skýrð á þann veg að með henni hefðu félögin fallið frá málsástæðu um að lýsing atvika í úrlausnum samkeppnisyfirvalda væri röng að því er varðaði dómkröfur félaganna um niðurfellingu eða lækkun stjórnvaldssekta á hendur þeim. Talið var að án sönnunarfærslu af hendi félaganna um þessi atriði yrði málatilbúnaður þeirra til stuðnings ógildingar úrlausna stjórnvalda, er laut að því að ekki hefði verið gætt andmælaréttar gagnvart félögunum vegna atvika málsins eða að rannsókn samkeppnisyfirvalda hafi verið áfátt, svo vanreifaður að ekki væri fært að fella efnisdóm á slíkar málsástæður. Í fjórða lagi varð ekki annað ráðið af lýsingu málsástæðna félaganna í hinum áfrýjaða dómi að þau hefðu í flestum atriðum borið sömu atriði fyrir sig til stuðnings dómkröfum sínum, en sú var ekki raunin eftir héraðsdómsstefnum hvers félags. Eftir sameiningu mála félaganna í eitt áttu þau samlagsaðild að því og hafði hvert félag forræði á málsástæðum sínum án tillits til þess sem aðrir samlagsaðilar héldu fram. Að öllu þessu virtu varðaði málið sjálfkrafa frávísun frá héraðsdómi. Verulegar tafir urðu á meðferð málsins í héraði, einkum vegna óútskýrðs dráttar á vinnslu endurtekinna matsgerða sem aðilum varð þó einkum um kennt. Auk þess skorti verulega á að farið hefði verið að 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 við samningu hins áfrýjaða dóms enda var í engu gerð grein fyrir efnisatriðum í úrlausnum stjórnvalda né efni þeirra matsgerða sem aflað var undir meðferð málsins í héraði, en hvoru tveggja hafði eftir atvikum meðal annars þýðingu við ákvörðun viðurlaga. Þá varð ekki af héraðsdóminum ráðið annað en að málsástæða, sem aðeins var svo hald væri í haldið fram af hálfu eins félags, hefði ráðið niðurstöðu málsins fyrir öll þrjú félögin um ógildingu úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. mars 2012

E-4965/2005

D Ó M U R og Héraðsdóms Reykjavíkur 22. mars 2012 í máli og nr. E-4965/2005: og Ker hf. (Telma Halldórsdóttir hdl), Olíuverslun Íslands hf. (Eyvindur Sólnes hrl) og Skeljungur hf og . (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu Íslenska ríkinu (Heimir Örn Herbertsson hrl)

Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála nr. 3/2004 var felldur úr gildi. Málið var á sama tíma rannsakað bæði hjá samkeppnisyfirvöldum og lögreglunni og nutu stefnendur ekki lögbundins andmælaréttar síns.

Hæstiréttur birt 19. febrúar 2004

323/2003

Skífan hf (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn samkeppnisráði (Reimar Snæfells Pétursson hrl)

Kvartað var til Samkeppnisstofnunar vegna samninga S við A um sölu á geislaplötum í verslunum reknum undir nafninu H og B. Lauk meðferð málsins fyrir samkeppnisyfirvöldum með úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála 13. febrúar 2002 þar sem staðfest var að S hefði gerst brotlegur við 11. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993. Var samningur S við A felldur úr gildi og honum gert að greiða sekt. Freistaði S þess í málinu að fá þeirri niðurstöðu hnekkt. Ekki var fallist á að formlegir annmarkar hefðu verið á málsmeðferð fyrir samkeppnisyfirvöldum sem leiða ættu til ógildingar á niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Var talið að með samningnum við A hafi S nánast útilokað keppinauta sína með öllu frá því að eiga viðskipti sem heildsalar við verslanir H og B, auk þess sem hann hafi fengið verulegt forræði á því hvaða geislaplötur yrðu boðnar þar til sölu. Hafi hann þannig misnotað sér markaðsráðandi stöðu sína með gerð samningsins og brotið með því gegn 11. gr. samkeppnislaga. Ekki var fallist á að bannregla 11. gr. samkeppnislaga væri of óljós til að ákvörðun viðurlaga yrði reist á henni og voru ekki talin efni til að fallast á lækkun þeirrar sektar sem S hafði verið ákveðin.

Hæstiréttur birt 16. janúar 2003

572/2002

Skífan hf (Hörður F. Harðarson hrl) gegn Samkeppnisstofnun (Karl Axelsson hrl)

S lagði beiðni um aðför fyrir héraðsdóm til að afla heimildar til fjárnáms fyrir sekt sem S hf. hafði verið gert að greiða með úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála. S hf. mótmælti því að fjárnám yrði heimilað fyrir innheimtuþóknun lögmanns S og öðrum kostnaðarliðum vegna aðgerða til innheimtu sektarinnar. Talið var að S skorti til þess lagastoð að fella kostnað af innheimtu sektar á gjaldanda. Gæti S því ekki leitað fjárnáms hjá S hf. fyrir öðru en fjárhæð sektarinnar sem slíkrar.

Hæstiréttur birt 18. mars 1999

441/1998

Greiðslumiðlun hf. - Visa Ísland (Árni Vilhjálmsson hrl) gegn samkeppnisráði (Karl Axelsson hrl)

V krafðist ógildingar á þeim úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála, að staðfesta bæri ákvörðun S um að banna skilmála í samstarfssamningum V og greiðsluviðtakenda þess efnis að þeim síðarnefndu væri skylt að veita korthöfum VISA sömu viðskiptakjör og þeim sem greiddu með reiðufé. Þótt Samkeppnisstofnun væri talin hafa brotið gegn andmælarétti V undir rannsókn málsins, var það ekki talið eiga að leiða til ógildingar úrskurðarins, enda hefði V gefist nægur kostur á að koma fram sjónarmiðum sínum áður en úrskurðurinn var kveðinn upp. Að virtum gögnum málsins þótti ekki hafa verið sýnt fram á, að skilmálar sambærilegir þeim, sem hér um ræddi, væru almennt óheimilir í helstu viðskiptaríkjum Íslendinga, þannig að heimilt væri að banna þá á grundvelli 2. mgr. 37. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993. Talið var skorta á að viðhlítandi rök hefðu verið færð að því, í ákvörðun S og úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála, að ákvæði 17. gr. samkeppnislaga ætti við um skilmála V, svo sem að fjallað væri um þann markað, sem um ræddi, og stöðu V á þeim markaði. Eins og ákvörðun S og úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála var háttað komu önnur ákvæði samkeppnislaga ekki til álita. Var því fallist á kröfu V um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi.