Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

11 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 7. gr. laga nr. 77/2000 — Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Landsréttur birt 19. nóvember 2021

466/2020

Persónuvernd (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður) gegn A (Einar Þór Sverrisson lögmaður)

Mál þetta höfðaði A gegn P og krafðist þess að úrskurður P í máli A nr. 2018/538 yrði ógiltur. Með hinum áfrýjaða dómi var á það fallist. Úrskurður áfrýjanda var kveðinn upp í tilefni af kvörtun A vegna vinnslu persónuupplýsinga um hann hjá fyrrum vinnuveitanda. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki færi á milli mála að úrskurður sá sem A krefðist að felldur yrði úr gildi lyti að skyldum fyrrum vinnuveitanda gagnvart A á grundvelli tilvitnaðra ákvæða laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Átti fyrrum vinnuveitandi án nokkurs vafa aðild að málinu hjá P. Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefði því ítrekað verið slegið föstu að þegar krafist væri ógildingar á úrlausn stjórnvalds yrðu þeir sem voru aðilar að stjórnsýslumálinu að eiga aðild að málinu fyrir dómi enda ættu þeir einstaklegra, beinna, verulegra og lögvarinna hagsmuna að gæta. Krafa um ógildingu úrskurðar P hafi einkum verið rökstudd af hálfu A með því að niðurstaða hans fengi ekki staðist efnislega og fyrrum vinnuveitandi bæri ríkari skyldur gagnvart A samkvæmt lögum nr. 77/2000 og 90/2018. Fyrrum vinnuveitandi ætti einstaklegra, beinna, verulegra og lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn þeirrar kröfu. Í því ljósi og þar sem málið var ekki höfðað gegn fyrrum vinnuveitanda varð ekki komist hjá því að vísa málinu frá héraðsdómi án kröfu.

Hæstiréttur birt 11. apríl 2017

544/2016

A (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

A krafðist miskabóta vegna ólögmætrar meingerðar samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. A byggði kröfu sína í fyrsta lagi á því að hann hefði orðið fyrir miska vegna ólögmætrar meðferðar og notkunar á persónuupplýsingum í sjúkraskrá hans af hálfu læknisins B. Í öðru lagi að Heilbrigðisstofnun C hefði ekki viðhaft grunnkröfur við vinnslu persónuupplýsinga skv. 1. mgr. 77. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og í þriðja lagi að málsmeðferð og svör landlæknis meðan mál hans hefði verið til umfjöllunar hjá embættinu hefði ekki falið í sér góða stjórnsýsluhætti. Var talið að þótt stefndi hefði viðurkennt bótaskylda gagnvart A á framangreindum grundvelli yrði með sjálfstæðum hætti að færa sönnur á það ófjárhagslega tjón sem aðili teldi sig hafa orðið fyrir vegna hinnar bótaskyldu háttsemi. Var talið að ekkert slíkt tjón hefði verið staðreynt í málinu ef frá væri talin meðferð læknisins B á persónuupplýsingum um A. Við ákvörðun miskabóta vegna þess þáttar var meðal annars litið til þess að engin viðhlítandi sönnunarfærsla hefði farið fram af hálfu A um það ófjárhagslega tjón sem hann taldi sig hafa orðið fyrir en ekki væri hægt að byggja á einhliða frásögn hans þar að lútandi og að A hefði þegar verið dæmdar bætur fyrir miska sem líta yrði á sem afleiðingar hinnar ólögmætu notkunar B á umræddum upplýsingum. Þá var talið að fjölmiðlaumfjöllun sem hann hefði sjálfur átt aðild að gæti ekki haft áhrif til lækunnar miskabóta en á hinn bóginn gæti slík umfjöllun ekki aukið það tjón sem bætt yrði. Var Í gert að greiða A 200.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. janúar 2017

E-3844/2015

X (Jóhannes Albert Sævarsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)
Lykilorð: Miskabætur. Sýkna.

Stefndi var sýknaður af miskabótakröfu stefnanda sem byggðist á því að hann hefði orðið fyrir miskatjóni vegna uppflettinga í sjúkraskrá hans hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, án sýnilegs læknisfræðilegs tilgangs eða samskipta við stefnanda og samþykkis frá honum. Talið var ósannað að upplýsingum úr sjúkraskrá stefnanda hefði verið miðlað eða að umræddir starfsmenn stofnunarinnar hefðu brotið gegn trúnaðar- og þagnarskyldu sinni. Loks var talið ósannað að umræddar uppflettingar starfsmannanna hefðu orðið til þess að upplýsingar úr sjúkraskrá stefnanda hafi borist óviðkomandi aðilum. Sú háttsemi starfsmanna Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að fletta upp í sjúkraskrá stefnanda hjá stofnuninni á umræddu tímabili var ekki talin hafa falið í sér ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu stefnanda í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2012

E-2585/2011

Jón Magnússon (Jón Magnússon hrl) gegn Persónuvernd (Óskar Thorarensen hrl)

Kröfu stefnanda um að ákvörðun stjórnar Persónuverndar um heimild Seðlabankans til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits yrði dæmd ólögmæt vísað frá dómi. Ekki var talið að stefnandi hefði sýnt fram á einstaklega, beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn dómkröfunnar, eins og hún væri fram sett.

Hæstiréttur birt 28. maí 2009

575/2008

Lucia Celeste Molina Sierra og Birnir Orri Pétursson (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn Páli Magnússyni, Helga Seljan Jóhannssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhalli Gunnarssyni (Kristján Þorbergsson hrl)

L og B höfðuðu mál til heimtu bóta vegna miska sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna umfjöllunar P, H, J, S og Þ í dægurmálaþættinum Kastljósi og í fréttatímum útvarps og sjónvarps Ríkisútvarpsins um umsókn L um íslenskan ríkisborgararétt. Kjarni umfjöllunarinnar var hvort meðferð umsóknarinnar hefði verið óeðlileg og það helgast af tengslum L við þáverandi umhverfisráðherra. Var málatilbúnaður L og B reistur á því að umfjöllunin hefði falið í sér ólögmæta meingerð í þeirra garð. Taldi Hæstiréttur að ætla yrði fjölmiðlum svigrúm til umfjöllunar um málefni sem þetta, sem ætti erindi til almennings og væri hluti af þjóðfélagsumræðu. Viðleitni H, J, S og Þ til að sýna fram á að afgreiðsla umsóknar L væri tortryggileg og að valdi hefði verið misbeitt hefði ekki beinst að L og B heldur að þáverandi umhverfisráðherra og allsherjarnefnd Alþingis. Hins vegar var talið að umfjöllun H, J, S og Þ í Kastljósi og viðleitni þeirra til að sýna fram á að meðferð og afgreiðsla umsóknar L hefði verið óeðlileg hefði borið ofurliði vilja þeirra til að fara rétt með staðreyndir og til að leiðrétta rangfærslur og gera viðhlítandi grein fyrir lagagrundvelli málsins. Þótt fallast mætti á með L og B að P, H, J, S og Þ hefðu í ýmsum atriðum brotið þær skyldur sem á þeim hvíldu í starfi og ekki sýnt L og B þá tillitssemi sem ætlast hefði mátt til, þá hefði umfjöllunin um persónuleg atriði sem L og B vörðuðu verið svo samofin málefninu að útilokað hefði verið að greina þar skýrlega á milli. Yrðu einstaklingar að nokkru marki að þola að persónuleg málefni, er þá varða, kæmu í slíkum tilvikum til almennrar umfjöllunar. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu af kröfum L og B um miskabætur og að ekki væru skilyrði til að dæma refsingu vegna brota á 228. og 229. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Hæstiréttur birt 3. október 2008

514/2008

Ríkisskattstjóri (Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri) gegn Valitor hf (Ólafur Eiríksson hrl)

Samkvæmt 94. gr. laga nr. 90/2003 laga um tekjuskatt er öllum aðilum, bæði framtalsskyldum og öðrum, skylt að láta skattyfirvöldum í té ókeypis og í því formi, sem óskað er, allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn er þau beiðast og unnt er að láta þeim í té. Á grundvelli þessa ákvæðis úrskurðaði héraðsdómur að V væri skylt að veita R yfirlit yfir hreyfingar á greiðslukortum sem gefin voru út og skuldfærð erlendis, en notuð á Íslandi til úttektar í bönkum eða til greiðslu á vörum og þjónustu á tilteknu tímabili, enda hefði heildarúttekt hvers korts á tímabilinu numið að minnsta kosti 5.000.000 íslenskum krónum. V krafðist þess að hinn kærði úrskurður yrði felldur úr gildi og reisti kröfu sína meðal annars á því að honum væri óheimilt að afhenda umbeðnar upplýsingar vegna lögboðinnar þagnarskyldu sem á honum hvílir samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í dómi Hæstaréttar sagði að þar sem ákvæði 94. gr. laga nr. 90/2003 fæli í sér skyldu til að veita upplýsingar og telja yrði þau sérákvæði gagnvart ákvæðum 58. gr. laga nr. 161/2002 gengju nefnd ákvæði 94. gr. þeim framar. Vegna áskilnaðar lögmætisreglunnar um að íþyngjandi ákvarðanir stjórnvalda yrðu að byggjast á skýrri lagaheimild réðist skýring á valdheimildum R eingöngu af texta 1. mgr. 94. gr. laga nr. 90/2003 en ekki af ákvæði reglugerðar nr. 373/2001 sem vísað var til af hálfu R. Féllst Hæstiréttur á með R að orðalagið „annarra aðila“ í ákvæði 2. málsliðar 1. mgr. 94. gr. laga nr. 90/2003 væri það rúmt að það tæki bæði til nafngreindra og ónafngreindra aðila sem upplýsingagjafi hefði átt samskipti við og hefðu upplýsingar um. Þá var talið að umbeðnar upplýsingar R væru fengnar í yfirlýstum, skýrum og málefnalegum tilgangi og uppfylltu því skilyrði 2. töluliðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd svo sem nauðsynlegt var. Skilyrði 3. töluliðar sama ákvæðis var einnig talið uppfyllt. Á grundvelli framansagðs voru uppfyllt lagaskilyrði til að taka kröfu R til greina og var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. júlí 2008

E-7167/2007

Lucia Celeste Molina Sierra Birnir Orri Pétursson (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn Páli Magnússyni, Helga Seljan Jóhannssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhalli Gunnarssyni (Hlynur Halldórsson hdl)

Stefndu voru sýknuð af refsi-og bótakröfum stefnenda út af umfjöllun í Kastljósi og fréttum RUV vegna umsóknar stefnanda um íslenskan ríkisborgararétt.

Hæstiréttur birt 25. október 2007

67/2007

Hrefna Kristmundsdóttir Júlíus Jón Þorsteinsson (Atli Gíslason hrl) og Elí Sigursteinn Þorsteinsson (Karl Ólafur Karlsson hdl) gegn Ríkisútvarpinu ohf (Kristján Þorbergsson hrl, Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl)

Árið 2002 sýndi R kvikmynd í sjónvarpi úr þáttaröð er framleidd var af félaginu H. Efni myndarinnar var sótt í þann atburð þegar Þ eiginmanni áfrýjanda HK og föður annarra áfrýjenda, var ráðinn bani á vinnustað sínum í Reykjavík. Áfrýjendur byggðu á því að eins og fjallað hefði verið um efnið í myndinni hefði verið vegið harkalega að friðhelgi einkalífs þeirra og kröfðust þau því miskabóta úr hendi R. Áfrýjendur höfðuðu málið upphaflega gegn R og B, sem var þá nýtt heiti á félaginu H, en fyrir aðalmeðferð máls í héraði var B tekið til gjaldþrotaskipta. Óumdeilt var í málinu að félagið H, sem var framleiðandi myndarinnar, réði efnistökum og framsetningu hennar og að nafns H var getið í lok myndarinnar. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að a. liður 26. gr. útvarpslaga verði ekki skýrður á annan veg en þann að félagið hefði verið flytjandi í merkingu ákvæðisins og réði þar engum úrslitum að það hefði ekki jafnframt lagt til þá tækni, sem þyrfti til að dreifa efninu til áhorfenda. Með vísan til meginreglu 26. gr., um að sá sem flytur sjálfur efni í eigin nafni beri ábyrgð á því, bar félagið H ábyrgð á myndinni. Ábyrgð stefnda gat því aðeins komið til að enginn annar væri fyrir hendi skv. a. til c. lið 26. gr., en 26. gr. útvarpslaga yrði ekki skýrð svo að ógjaldfærni eða andlát þess, sem ber ábyrgð samkvæmt a. lið greinarinnar gæti leitt til þess að ábyrgð, sem ekki var fyrir hendi í upphafi, yrði síðar lögð á útvarpsstjóra sbr. d. lið 26. gr. Að öllu virtu var R sýknaður af kröfum áfrýjenda vegna aðildarskorts.

Hæstiréttur birt 6. september 2005

294/2005

Hrefna Kristmundsdóttir Júlíus Jón Þorsteinsson og Elí Sigursteinn Þorsteinsson (Atli Gíslason hrl) gegn Ríkisútvarpinu (Kristján Þorbergsson hrl) og þrotabúi Brautarholts 8 ehf (Karl Axelsson hrl)

H, J og E höfðuðu mál til greiðslu miskabóta úr hendi R og B. Vísuðu þau til 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála um heimild til aðilasamlags. Fallist var á að skilyrði aðilasamlags væru fyrir hendi í málinu til sóknar og varnar. H, J og E gáfu hins vegar þær skýringar á kröfugerð sinni fyrir dómi að um væri að ræða sameiginlega kröfu þeirra þriggja á hendur R og B. Talið var að til að neyta fyrrgreindrar heimildar til aðilasamlags hefði þeim H, J og E verið nauðsyn að gera hvert fyrir sig sérstaka kröfu og þar sem það hefði ekki verið gert væri krafa þeirra ódómtæk og var málinu vísað frá dómi af sjálfsdáðum.