Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 47. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2025

E-7532/2023

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Lögregla stöðvaði stefnanda við reglubundið umferðareftirlit skv. umferðarlögum þar eð hann ók á ofsahraða. Fallist var á það að mál á hendur stefnanda hefði verið fellt niður í skilningi 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þegar fíkniefnapróf sýndi að ekki mældust fíkniefni í þvagi hans. Einnig var fallist á að þegar stefnandi fylgdi lögreglunni á lögreglustöð til þess að gefa sýni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna hefði hann verið handtekinn í skilningi 1. mgr. 90. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 363/2024. Það var einnig skilgreint sem líkamsrannsókn í skilningi 77. gr. sömu laga þegar stefnandi gaf lögreglu þvagsýni. Því var hins vegar hafnað að bifreið stefnanda hefði verið haldlögð enda voru ökuréttindi hans runnin út þegar lögregla stöðvaði hann. Stefnanda voru dæmdar miskabætur.

Landsréttur birt 12. desember 2024

363/2024

Íslenska ríkið (Þorvaldur Hauksson lögmaður) gegn A (Leó Daðason lögmaður)

A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. nóvember 2022

E-3001/2022

A (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)

Stefndi íslenska ríkið sýknað af bótakröfum stefnanda vegna lögregluafskipta, þar sem stefnandi lét í té munnvatnssýni, og kröfum stefnanda um ómerkingu ummæla vegna skráningar í gagnagrunn lögreglu.

Landsréttur birt 17. desember 2021

538/2020

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður, Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður, 4. prófmál) gegn A persónulega, fyrir hönd, B, C og D (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)

A krafði Í um miskabætur, bæði persónulega og fyrir hönd barna sinna B og C, og D, vegna aðgerða lögreglu í tengslum við handtöku E og aðgerða í og við heimili þeirra 22. nóvember 2018 vegna rannsóknar á fíkniefnalagabroti sem E var síðar dæmdur til refsingar fyrir. E var þáverandi maki A og faðir B, C og D. Byggðu A, B, C og D á því að þau ættu rétt til bóta vegna húsleitar á heimili þeirra auk þess sem þau hefðu verið handtekin meðan á húsleitinni stóð. D byggði til viðbótar á því að hann ætti rétt til bóta þar sem hann hefði verið handtekinn og sætt líkamsrannsókn eða líkamsleit er hann kom akandi að heimili þeirra. Í dómi Landsréttar kom fram að húsleit fæli óhjákvæmilega í sér röskun á friðhelgi einkalífs, bæði húsráðenda og annarra heimilismanna. Var talið að A, B, C og D hefðu öll þolað húsleit á heimili sínu umrætt sinn og hefðu þegar af þeirri ástæðu orðið fyrir miskatjóni sem Í bæri hlutlæga bótaábyrgð á samkvæmt 3. mgr., sbr. 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ekkert væri upplýst í málinu um að A, B, C og D hefðu sjálf valdið eða stuðlað að húsleitinni. Því var hins vegar hafnað að A, B, C og D hefðu verið handtekin við húsleitina og að D hefði verið handtekinn og sætt líkamsrannsókn eða líkamsleit er hann kom akandi að heimili þeirra. Var Í dæmt til að greiða A, B, C og D hverju fyrir sig 50.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2021

S-1556/2020

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti, hylmingu, fjölda umferðarlagabrota, brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum o.fl. Refsing var skilorðsbundin, ekki síst í ljósi þess að ákærði hafði ekki áður hlotið refsidóm. Þá var ákærði sviptur ökurétti í fimm ár. Synjað var um upptöku á tveimur bifreiðum í eigu ákærða, en fjöldi annarra verðmæta gerður upptækur til ríkissjóðs.