Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 44. gr. a laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 2. október 2025

845/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Með hinum áfrýjaða dómi var X ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa eigi getað framvísað að ósk lögreglu útprentun úr ökurita hópbifreiðar sem hann ók. Með dómi Landsréttar var ekki fallist á að sú háttsemi sem lýst var í ákæru hefði, eins og atvikum máls háttaði, falið í sér refsiverða háttsemi í skilningi 1. mgr., sbr. 2. mgr. 54. gr. umferðarlaga, sbr. 1. mgr. 94. gr. sömu laga og b-lið 33. gr., sbr. 55. gr. reglugerðar nr. 605/2010. Var X því sýknaður af þeirri háttsemi sem honum var gefin að sök.

Héraðsdómur Suðurlands birt 5. febrúar 2016

S-167/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn A (Óskar Sigurðsson hrl)

Karlmaður dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af voru 9 mánuðir skilorðsbundnir í 2 ár fyrir brot gegn valdstjórninni, brot gegn nálgunarbanni, akstur undir áhrifum fíkniefna og líkamsárás. Svipting ökuréttar í 2 ár.

Hæstiréttur birt 29. apríl 2014

251/2014

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn X (Óskar Sigurðsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem ákæru á hendur X var vísað frá dómi. Með dómi Hæstaréttar var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar. Talið var að ákæran uppfyllti skilyrði c. liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og að verknaðarlýsing hennar væri fullnægjandi, enda væri óhjákvæmilegt að lýsa afleiðingum ætlaðra árása, sem áttu að hafa verið tvær sama daginn, með þeim hætti sem gert var í ákæru. Þá var ekki talið að vísa bæri frá ákæru vegna ætlaðs húsbrots og eignaspjalla á þeim forsendum að málshöfðunarskilyrði a. liðar 2. töluliðar 242. gr. og 3. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 væru ekki uppfyllt. Lægi enda skýrlega fyrir að húsráðandi hefði við skýrslugjöf lögreglu farið fram á refsingu á hendur ákærða vegna þess sem gerst hefði.

Hæstiréttur birt 15. mars 2012

541/2011

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn Árna Valberg Margeirssyni (Steingrímur Þormóðsson hrl)
Lykilorð: Vöruflutningar. Bifreið.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Á var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa sem ökumaður vöruflutningabifreiðar í þrígang brotið gegn reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Á bar fyrir sig að í öllum tilvikum hefði verið um að ræða akstur með fiskúrgang, sem honum hefði verið refsilaus á grundvelli þágildandi reglugerðar nr. 662/2006 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Á var sakfelldur og gert að greiða 280.000 krónur í sekt til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 12. mars 2009

S-19/2008

Ákæruvaldið (Jón Fannar Kolbeinsson fulltrúi) gegn Daníel G. Ingimundarsyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Þá var ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll og að hafa ekið hópferðabifreið án skráningarmerkja. Refsing 60 daga skilorðsbundið fangelsi.