G var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Að virtum sakaferli G og í samræmi við dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt þar sem brot hans taldist ítrekað öðru sinni í skilningi 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi)
gegn
Andri Már Elfarsson (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og fyrir vörslur fíkniefna.
S var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að aka bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Að sakaferli S virtum var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga og þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Grétari Eiríkssyni (
Páll Bergþórsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðar-, fíkniefna- og hegningarlögum. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Margréti Völu Steinarsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Ákærða var sakfelld fyrir hegningar- og umferðarlagabrot og var henni gerður hegningarauki við sátt hjá lögreglustjóra frá 13. september á síðasta ári, að því er hluta brota hennar varðaði. Hún játaði brot sín nú og var refsing hennar ákveðin fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, og greiðsla 205.000 króna sektar, auk þess sem hún var svipt ökurétti í tvö ár frá dómsbirtingu að telja. Kröfu hennar um frávísun einkaréttarkröfu var hafnað og var sú krafa tekin til greina að fjárhæð 6.319 krónum, auk vaxta.
Ákærði fundinn sekur um brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana og fíkniefni. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga en fresta skyldi fullnustu 60 daga af refsingunni og var sá hluti hennar skilorðsbundinn í tvö ár.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Magnúsi Þór Jónssyni
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákæruvaldið (
Emil Sigurðsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Hreiðari Péturssyni (
Leifur Runólfsson hdl)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, vopnalögum og lyfjalögum. Hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Sum brotanna framdi hann fyrir uppkvaðningu dóms 22. desember á síðasta ári, þar sem hann var sakfelldur fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni, og var honum að því leyti nú gerður hegningarauki. Önnur þeirra brota sem hann var nú sakfelldur fyrir, framdi hann eftir uppsögu dómsins 22. desember síðastliðinn, en sá dómur hafði ekki verið birtur honum er hann framdi brotin og rauf hann því ekki skilorð þess dóms. Á grundvelli 60. gr. almennra hengingarlaga var refsing dómsins tekin upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi. Sú refsing þótti hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánauði, skilorðsbundið til tveggja ára, auk greiðslu 300.000 króna sektar að viðlagðri 22 daga vararefsingu. Þá var ákærði sviptur ökurétti í þrjú ár frá dómsbirtingu að telja og þá var hann dæmdur til að sæta upptöku á fíkniefnum, lyfjum og vopni, sem hald var lagt á.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Hirti Ólafssyni (
Stefán Þór Ólafsson hdl)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa í fimmgang ekið bifreiðum áhrifum ávana- og fíkniefna. Í tveimur þeirra tilvika hafði hann fíkniefni í fórum sínum og ók þar af í öðru þeirra tilvika án þess að hafa ökuskírteini meðferðis. Hann játaði brot sín og var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, en jafnframt til greiðslu 295.000 króna sektar, fimm ára sviptingar ökuréttar, upptöku fíkniefna og greiðslu sakarkostaðar.
Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaði og umferðarlagabrot samkvæmt tveimur ákærum. Þar af framdi hann sum þeirra brota fyrir uppsögu dóms sem hann hlaut 18. mars á þessu ári vegna þjófnaða og hylmingar og var að því leyti gerður hegningarauki, en með dómnum 18. mars síðastliðinn var hann dæmdur í nítíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Með öðrum þeim brotum sem hann var núna sakfelldur fyrir, rauf hann skilyrði fyrir frestun á fullnustu refsingar dómsins frá 18. mars síðastliðnum og var refsing í því máli því tekin upp og dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var nú gerð. Ákærði var dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til þriggja ára, greiða 450.000 króna sekt til ríkissjóðs og sæta sviptingu ökuréttar í þrjú ár frá birtingu dómsins að telja.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)
gegn
Alexöndru Garðarsdóttur, Brot gegn valdstjórninni. Þjófnaður. Akstur undir áhrifum ávana-, fíkniefna. Umferðalagabrot. Ökuréttarsvipting, A, var ákærð fyrir að hafa tvisvar ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, of hraðan akstur, þjófnað og brot gegn valdstjórninni. Var hún fundin sek um, þau brot sem henni voru gefin að sök. Ekki var talið standa í vegi fyrir sakfellingu, að í ákæru kom fram að A hefði ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna á, tilteknu bifreiðastæði þegar A hafði í raun ekið af bifreiðastæðinu og síðan, stuttan spöl frá því. Var talið að um hefði verið að ræða ónákvæma tilgreiningu, í ákæru á aukaatriði brots, en vörn A hefði ekki verið áfátt af þessum sökum, Var A dæmd í 15 mánaða fangelsi. Þá var hún svipt ökurétti í þrjú ár, en hún og hafði áður verið sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna (
Kristján Stefánsson hrl)
A var ákærð fyrir að hafa tvisvar ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, of hraðan akstur, þjófnað og brot gegn valdstjórninni. Var hún fundin sek um þau brot sem henni voru gefin að sök. Ekki var talið standa í vegi fyrir sakfellingu að í ákæru kom fram að A hefði ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna á tilteknu bifreiðastæði þegar A hafði í raun ekið af bifreiðastæðinu og síðan stuttan spöl frá því. Var talið að um hefði verið að ræða ónákvæma tilgreiningu í ákæru á aukaatriði brots, en vörn A hefði ekki verið áfátt af þessum sökum. Var A dæmd í 15 mánaða fangelsi. Þá var hún svipt ökurétti í þrjú ár, en hún hafði áður verið sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Ákærði var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot, eignaspjöll og líkamsárás. Þá var ákærði sviptu ökurétti í tvö ár og gert á sæta upptöku á fíkniefnum.
Dæmt 10 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot og akstur undir áhrifum slíkra efna. Ökuréttarsvipting
X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið án þess að hafa til þess gild ökuréttindi og ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna, sbr. 1. mgr. 48. gr. og 45. gr. a. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Í héraði var falið með málið sem útivistarmál og ákærða gerð sektarrefsing, auk þess sem hann var sviptur ökurétti. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að hvorki yrði séð að ætluð brot ákærða skyldu einungis varða sektarrefsingu, né hefði ákærði komið fyrir dóm við rannsókn máls og játað skýlaust þá háttsemi sem honum var gefin að sök, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Væru því ekki lagaskilyrði til að fallast á kröfu ákæruvaldsins fyrir Hæstarétti um þyngri refsingu ákærða. Var hinn áfrýjaði dómur því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar að nýju.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)
gegn
Aldísi Ósk Egilsdóttur (
Sveinn Andri Sveinsson hrl)
A var sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í máli sem dæmt var í héraði samkvæmt heimild í 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákæruvaldið krafðist mildunar refsingar fyrir Hæstarétti. A hafði áður gerst sek um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en var þá ekki fullra 18 ára. Refsing hennar var því ákveðin eins og um fyrsta brot væri að ræða og hún talin hæfileg 140.000 krónur í sekt. Eldra brot A gat í ljósi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ekki haft ítrekunaráhrif í samræmi við 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Fór því um ökuréttarsviptingu A eftir 4. mgr. ákvæðisins en ekki 6. mgr. þess og henni gert að sæta sviptingu ökuréttar í 12 mánuði.
Dæmt skilorðsbundið fangelsi, sekt og ökuréttarsvipting fyrir líkamsárás og umferðarlagabrot
Ákærði sakfelldur fyrir innbrot, þjófnað og að aka, sviptur ökurétti undir áhrifum fíkniefna. Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, sviptur ökurétti á fimm ár, til að sæta upptöku á fíkniefnum og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
A var sakfelld fyrir að aka bifreið undir áhrifum amfetamíns og að hafa í vörslum sínum 0,87 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni. Var A dæmd til sektar og sviptingar ökuréttar og til að sæta upptöku framangreindra fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi, Birna Kristín Einarsdóttir sýslumannsfulltrúi)
gegn
Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur (
Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl)
A var sakfelld fyrir að hafa í tvígang ekið svipt ökurétti og að hafa í bæði skiptin í blekkingarskyni framvísað ökuskírteini þrátt fyrir að vera svipt ökuréttindum. Þá var hún sakfelld fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var A dæmd til að greiða sekt og var svipt ökurétti.
Ákæruvaldið (Jón Einarsson fulltrúi) gegn
Friðgeiri Stefánssyni
Maður sakfelldur fyrir að aka án ökuréttinda, undir áhrifum fíkniefna og fyrir að hafa í vörslum sínum ólögmætt vopn.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
Sturlaugi Fannari, Þorsteinssyni og Jóni Rúnari Gíslasyni (enginn)
Tveir ungir karlmenn sakfelldir. Annar fyrir vörslur fíkniefna en hinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.
Bifreiðir. Svipting ökuréttar. Útivist í héraði. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ítrekunaráhrif. A var sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í máli, sem dæmt var í héraði samkvæmt heimild í 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. A krafðist mildunar refsingar fyrir Hæstarétti. Niðurstaða héraðsdóms um viðurlög byggðist öðrum þræði á matsgerð tveggja sérfræðinga um magn ávana- og fíkniefna í blóði og þvagi A. Málsmeðferðin í héraði leyfði ekki að sérfræðingarnir kæmu fyrir dóm til að staðfesta matsgerðina og svara spurningum um hana. Talið var að ekki yrði með vissu ráðið af málsgögnum hvernig meta skyldi það magn fíkniefna sem mældist í líkama A og var óvissa um það metin A í hag. Hann hafði áður gerst sekur um ölvunarakstur en þá ekki náð18 ára aldri. Refsing hans var því ákveðin eins og um fyrsta brot væri að ræða og hún talin hæfileg 140.000 króna sekt. Eldra brot A gat í ljósi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ekki haft ítrekunaráhrif í samræmi við 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Fór því um ökuréttarsviptingu A eftir 4. mgr. ákvæðisins en ekki 6. mgr. þess og honum gert að sæta 12 mánaða sviptingu ökuréttar.