Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lagagrein: 29. gr. laga nr. 47/2003 — Lög um eftirlit með skipum

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2021

S-5653/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Lúðvík Bergvinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sýknaður af broti gegn löggjöf um farþegaskip.

Landsréttur birt 16. febrúar 2018

14/2018

Ákæruvaldið gegn Stefáni Guðmundssyni (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður), Aðalsteini Steinþórssyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Ingimar Eydal Óskarssyni (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Karli Óskari Geirssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

S, A, I og K voru gefin að sök brot gegn lögum um eftirlit með skipum, reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, siglingalögum, lögum um lögskráningu sjómanna, reglugerð um lögskráningu sjómanna og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, sem skipstjórar á hvalaskoðunarbátum G ehf. Með dómi Landsréttar voru þeir allir sakfelldir fyrir að hafa siglt með of marga farþega, en S jafnframt sakfelldur fyrir að bera ábyrgð á því sem fyrirsvarsmaður G. Á hinn bóginn voru S og K sýknaðir af þeim sakargiftum að hafa siglt án þess að lögskrá áhöfn áður en farið var á sjó. Auk þess var A sakfelldur fyrir að hafa siglt án skipskjala, en sýknaður af því að hafa ekki verið með vélavörð um borð. Þeim var öllum gerð sektarrefsing fyrir þá háttsemi sem þeir voru sakfelldir fyrir.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 16. júlí 2013

S-59/2012

Ákæruvaldið (Kristján Óskar Ásvaldsson fulltrúi) gegn Hauki Vagnssyni (Snorri Sturluson hdl)
Lykilorð: Skýrslugjöf. Vitni.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn siglingalögum, lögum um eftirlit með skipum, lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa og hótanir.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. október 2010

S-678/2010

Ákæruvaldið (Óli Ásgeir Hermannsson fulltrúi) gegn Karli Grétari Karlssyni
Lykilorð: Sektir. Sjómenn. Útivist.

Ákærði var dæmdur til að greiða sekt fyrir brot á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.

Héraðsdómur Austurlands birt 15. janúar 2008

S-4/2008

Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn Jóhanni S Steindórssyni (enginn)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Sakfellt fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa og lögum um eftirlit með skipum. Sekt.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 20. september 2006

S-43/2006

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Agnari Þór Sigurðssyni
Lykilorð: Skipstjóri.

Skipstjóri var dæmdur til greiðslu sektar fyrir að sigla skipi óhaffæru vegna þess að gildistími haffæriskírteinis var útrunninn