Héraðsdómur Austurlands
Dómur 15. janúar 2008.
Mál nr. S-4/2008:
S-4/2008:
Ákæruvaldið
(Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)
gegn
Jóhanni S Steindórssyni
(enginn)
Lykilorð
Atvinnuréttindi. Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.
Útdráttur
Sakfellt fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa og lögum um eftirlit með skipum. Sekt.
Mál þetta, sem dómtekið var fyrr í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Eskifirði, útgefinni 28. desember 2007 á hendur Jóhanni Steindórssyni, kt. 000000- 0000, Sæbergi 11, Breiðdalshreppi “fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa og lögum um eftirlit með skipum, með því að hafa þriðjudaginn 20. nóvember 2007, sem skipstjóri á fiskiskipinu Friðfinni SU-23, skipaskrárnúmer 2438, sem er 7,75 brúttórúmlestir að stærð, 9,50 metra langur og með 275,8 kw aðalvél, verið á línuveiðum á skipinu fyrir mynni Breiðdalsvíkur, á stað 64° 45´N-013°46´V, án þess að í áhöfn skipsins væri vélavörður og án þess að hafa gilt haffærniskírteini fyrir skipið, sem þar með taldist óhaffært.
Telst þetta varða við b. lið 1. mgr. 2. gr., sbr. 14. gr. laga nr. 113/1984, um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, sbr. 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða, sbr. 1. mgr. 15. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa nr. 76/2001 og 1. mgr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 1. tl. 17. gr., sbr. 29. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”
Ákærða var birt fyrirkall 11. janúar sl. þar sem þess var getið að sækti hann ekki þing mætti hann búast við að fjarvist hans yrði metin til jafns við að hann viðurkenndi að hafa framið brot það, sem hann er ákærður fyrir. Ákærði hefur ekki komið fyrir dóm. Með vísan til framanritaðs og samkvæmt heimild í 126. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð opinberra mála metur dómurinn fjarvist ákærða sem viðurkenningu hans á því að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og er réttilega heimfært til refsiákvæða í ákærunni. Gögn málsins styðja og þessa niðurstöðu.
Ákærði hefur ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað.
Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 55.000 króna sekt, sem greiðist til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, ella sæti ákærði fangelsi í 4 daga.
Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Jóhann S. Steindórsson, greiði 55.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Ragnheiður Bragadóttir