Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 5. gr. laga nr. 33/2003 — Lög um verðbréfaviðskipti

Hæstiréttur birt 30. mars 2017

489/2016

Þorsteinn Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Landsbankanum hf (Ólafur Örn Svansson hrl)

L hf. krafði Þ um greiðslu vegna yfirdrátta á þremur myntveltureikningum sem stofnaðir höfðu verið árið 2007. Þ hafði uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar sem byggðist á því hann hefði orðið fyrir fjártjóni af völdum starfsmanna LÍ hf. vegna saknæmrar og ólögmætrar háttsemi þeirra og ætti því rétt á skaðabótum eftir almennum reglum. Þá hafði Þ einnig uppi fjárkröfu vegna meintra ólögmætra þóknana og ráðstöfunar L hf. á innlausn úr peningamarkaðssjóði og sölu af andvirði bréfa í S hf. sem var í eigu hans upp í skuldir G ehf. en Þ hafði sett þau verðmæti sín til tryggingar skuldum félagsins. Var ekki fallist á með Þ að LÍ hf. hefði einhliða yfirdregið myntveltureikninga Þ með ólögmætum hætti og án heimildar m.a. með vísan til þess að Þ hefði sýnt af sér stórfellt tómlæti með því að hafa ekki gert athugasemdir við L hf. fyrr en tæpum sjö árum eftir stofnun reikningana. Var því krafa L hf. tekin til greina. Þá var talið að LÍ hf., sem L hf. leiddi rétt sinn frá, hefði ekki bakað sér bótaskyldu gagnvart Þ í lögskiptum þeirra og af því leiddi að ekki stofnaðist til kröfu af hálfu Þ sem skuldajafnað yrði við kröfu L hf. Hins vegar var gagnkrafa Þ er varðaði endurgreiðslu ólögmætra þóknana tekin til greina.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

182/2014

Anna Laufey Sigurðardóttir (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess, þar á meðal A sem átti sæti í stjórn B ehf., en hún var eiginkona B. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. A lýsti kröfu við slit G hf. sem reist var á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og hefði A beðið tjón af þeim sökum vegna skuldbindinga sem enn hvíldi á henni vegna ábyrgða á lánum í tengslum við kaupin eða rekstur V A/S og dótturfélaga þess. A reisti jafnframt kröfu sína á því að samkvæmt samningi B við G hf. um einkabankaþjónustu og á grundvelli 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða B að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfurnar og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð A á mismunandi stigum málsins. Taldi rétturinn að með aðalkröfu A í kröfulýsingu hefði hún leitast við að fá sig leysta undan skyldu, sem hún taldi sig standa í gagnvart G hf., svo sem heimilt væri samkvæmt 2. málslið 2. mgr. 117. gr. laga nr. 21/1991, en í sama ákvæði væri engin heimild til að hafa uppi kröfu um skaðabætur án þess að fjárhæð væri tiltekin, svo sem A hafði gert til vara í kröfulýsingunni. Yrði því að líta svo á að í raun hefði þar engin krafa verið gerð til vara. Með því að A hefði í greinargerð fyrir héraðsdómi einungis krafist viðurkenningar kröfu sinnar tiltekinnar fjárhæðar við slit G hf., hefði hún ráðstafað sakarefninu á þann veg að fallið hefði verið frá aðalkröfu í kröfulýsingu auk þess sem A var ekki talin geta haft uppi varakröfuna, enda yrðu samkvæmt ákvæðum 5. þáttar laga nr. 21/1991 og 118. gr. sömu laga ekki hafðar uppi auknar kröfur fyrir dómi frá þeirri sem gerð var í kröfulýsingu. Þar sem A gerði við svo búið ekki lengur nokkra dómkröfu í málinu um annað en málskostnað var því vísað frá héraðsdómi án kröfu.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

181/2014

Þórir Jónsson og Herkúles ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. Þ og H ehf. lýstu sameiginlega kröfum við slit G hf. sem reistar voru á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og hefðu Þ og H ehf. beðið tjón af þeim sökum vegna tapaðra fjárframlaga til kaupanna og skuldbindinga sem enn hvíldu á þeim vegna ábyrgða á lánum í tengslum við kaupin eða rekstur V A/S og dótturfélaga þess. Þ og H ehf. reistu jafnframt kröfur sínar á því að samkvæmt 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða Þ að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfurnar og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir nánar tilgreindir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð Þ og H ehf. á mismunandi stigum málsins. Að endingu taldi Hæstiréttur, án þess að nokkuð þyrfti frekar að gæta að því hvort Þ og H ehf. kynnu, annað eða bæði, að hafa eignast kröfu í tilefni af áðurgreindum viðskiptum, sem að auki yrði réttilega beint að G hf., að þau hefðu sýnt af sér stórfellt tómlæti um að gera athugasemdir við G hf. vegna þessara verðbréfaviðskipta á meðan enn gæti hafa talist raunhæft að hlutabréf í V A/S hefðu eitthvert verðgildi í viðskiptum, sbr. dóm Hæstaréttar 28. janúar 2014 í máli nr. 719/2013. Með því hefðu Þ og H ehf. brugðist tillitsskyldu sinni gagnvart G hf., sbr. til hliðsjónar dóm réttarins 27. febrúar 2003 í máli nr. 305/2002, og þar með glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem þau gætu hafa átt á hendur G hf. af þessu tilefni. Var því þegar af þeirri ástæðu hafnað að viðurkenna kröfur þeirra við slit G hf.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

180/2014

Sigurjón Sighvatsson og Ofanleiti ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. S og O ehf. lýstu sameiginlega kröfum við slit G hf. sem reistar voru á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og hefðu S og O ehf. beðið tjón af þeim sökum vegna tapaðra fjárframlaga til kaupanna og skuldbindinga sem enn hvíldu á þeim vegna ábyrgða á lánum í tengslum við kaupin eða rekstur V A/S og dótturfélaga þess. S og O ehf. reistu jafnframt kröfur sínar á því að samkvæmt samningi þeirra við G hf. um einkabankaþjónustu og á grundvelli 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða S að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfurnar og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir nánar tilgreindir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð S og O ehf. á mismunandi stigum málsins. Að endingu taldi Hæstiréttur, án þess að nokkuð þyrfti frekar að gæta að því hvort S og O ehf. kynnu, annað eða bæði, að hafa eignast kröfu í tilefni af áðurgreindum viðskiptum, sem að auki yrði réttilega beint að G hf., að þau hefðu sýnt af sér stórfellt tómlæti um að gera athugasemdir við G hf. vegna þessara verðbréfaviðskipta á meðan enn gæti hafa talist raunhæft að hlutabréf í V A/S hefðu eitthvert verðgildi í viðskiptum, sbr. dóm Hæstaréttar 28. janúar 2014 í máli nr. 719/2013. Með því hefðu S og O ehf. brugðist tillitsskyldu sinni gagnvart G hf., sbr. til hliðsjónar dóm réttarins 27. febrúar 2003 í máli nr. 305/2002, og þar með glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem þau gætu hafa átt á hendur G hf. af þessu tilefni. Var því þegar af þeirri ástæðu hafnað að viðurkenna kröfur þeirra við slit G hf.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

179/2014

Heimiliskaup ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess auk þess sem HK ehf., sem S, Þ og B fóru fyrir, kváðust hafa lagt V A/S og dótturfélögum þess til verulegar fjárhæðir. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. HK ehf. lýsti kröfu við slit G hf. sem reist var á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og bæri G hf. skaðabótaskyldu af þeim sökum, ekki aðeins gagnvart kaupendum, heldur einnig sér sem látið hefði af hendi fé af ástæðum sem rekja mætti til kaupanna. HK ehf. reisti jafnframt kröfu sína á því að samkvæmt 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða S, Þ og B að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfuna og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir nánar tilgreindir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð HK ehf. á mismunandi stigum málsins. Að endingu taldi Hæstiréttur, án þess að nokkuð þyrfti frekar að gæta að því hvort HK ehf. kynni að hafa eignast kröfu í tilefni af áðurgreindum viðskiptum, sem að auki yrði réttilega beint að G hf., að kaupendur V A/S hefðu sýnt af sér stórfellt tómlæti um að gera athugasemdir við G hf. vegna þessara verðbréfaviðskipta á meðan enn gæti hafa talist raunhæft að hlutabréf í V A/S hefðu eitthvert verðgildi í viðskiptum, sbr. dóm Hæstaréttar 28. janúar 2014 í máli nr. 719/2013. Með því hefðu kaupendurnir brugðist tillitsskyldu sinni gagnvart G hf., sbr. til hliðsjónar dóm réttarins 27. febrúar 2003 í máli nr. 305/2002, og þar með glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem þeir gætu hafa átt á hendur G hf. af þessu tilefni. Með því að HK ehf. teldi sig geta leitt kröfu sína á hendur G hf. af réttarsambandi hans við kaupendurna, gæti HK ehf. í þeim efnum ekki notið ríkari réttar en þeir. Var því þegar af þeirri ástæðu hafnað að viðurkenna kröfu HK ehf. við slit G hf.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

178/2014

Birgir Hannes Þórisson og Blikanes ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. B og B ehf. lýstu sameiginlega kröfum við slit G hf. sem reistar voru á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og hefðu B og B ehf. beðið tjón af þeim sökum vegna tapaðra fjárframlaga til kaupanna og skuldbindinga sem enn hvíldu á þeim vegna ábyrgða á lánum í tengslum við kaupin eða rekstur V A/S og dótturfélaga þess. B og B ehf. reistu jafnframt kröfur sínar á því að samkvæmt samningi B við G hf. um einkabankaþjónustu og á grundvelli 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða B að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfurnar og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir nánar tilgreindir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð B og B ehf. á mismunandi stigum málsins. Að endingu taldi Hæstiréttur, án þess að nokkuð þyrfti frekar að gæta að því hvort B og B ehf. kynnu, annað eða bæði, að hafa eignast kröfu í tilefni af áðurgreindum viðskiptum, sem að auki yrði réttilega beint að G hf., að þau hefðu sýnt af sér stórfellt tómlæti um að gera athugasemdir við G hf. vegna þessara verðbréfaviðskipta á meðan enn gæti hafa talist raunhæft að hlutabréf í V A/S hefðu eitthvert verðgildi í viðskiptum, sbr. dóm Hæstaréttar 28. janúar 2014 í máli nr. 719/2013. Með því hefðu B og B ehf. brugðist tillitsskyldu sinni gagnvart G hf., sbr. til hliðsjónar dóm réttarins 27. febrúar 2003 í máli nr. 305/2002, og þar með glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem þau gætu hafa átt á hendur G hf. af þessu tilefni. Var því þegar af þeirri ástæðu hafnað að viðurkenna kröfur þeirra við slit G hf.

Hæstiréttur birt 17. apríl 2013

222/2013

Glitnir hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl) gegn Ottó Birni Ólafssyni (Arnar Þór Stefánsson hrl)

Ó lýsti tveimur skaðabótakröfum við slit G hf. sem slitastjórn félagsins hafnaði og var ágreiningi aðila vísað til úrlausnar héraðsdóms. Ó, sem gert hafði samning um einkabankaþjónustu við G hf., hélt því fram að starfsmenn G hf. hefðu valdið honum tjóni með saknæmri háttsemi sinni annars vegar í tengslum við kaup Ó á skuldabréfi útgefnu af L ehf. og hins vegar vegna framvirkra kaupa Ó á skuldabréfi og samnings um gjaldeyrisstýringu sem endað hafi með tapi. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans, kom fram að í dómi Hæstaréttar í máli nr. 472/2012 hefði því verið slegið föstu í sambærilegu máli að G hf. hefði brotið gegn 4., 5., 6. og 9. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti í tengslum við útboð skuldabréfa L ehf. Engin rök væru til þess að horfa framhjá fordæmisgildi þess dóms og var því talið sannað að starfsmenn G hf. hefðu valdið Ó tjóni vegna kaupa á umræddu skuldabréfi L ehf. Var því fallist á fyrri skaðabótakröfu Ó eins og hún var sett fram og hún viðurkennd sem almenn krafa við slit G hf. Hins vegar var talið að G hf. hefði sýnt fram á að Ó hafi aldrei greitt þá fjármuni sem hann krafðist bóta fyrir vegna framvirkra kaupa á skuldabréfi og framlags til gjaldeyrisstýringar í tengslum við uppgjör á þeim kaupum og að Ó hefði því ekki orðið fyrir tapi. Var seinni skaðabótakröfu Ó af þeim sökum hafnað. Í málinu hafði G hf. uppi gagnkröfu sem laut að óuppgerðu tapi sem varð á áðurgreindum afleiðuviðskiptum en hluti þeirra skulda hafði verið færður inn í samning um gjaldeyrisstýringu. Var talið, að túlka yrði forsendur áðurgreinds dóms Hæstaréttar á þann veg, að G hafi við gerð samnings um afleiðuviðskipti aðila í þessu máli brotið gegn 4., 5. og 9. gr. laga nr. 33/2003. Var samningurinn af þeim sökum talinn óskuldbindandi fyrir Ó og krafa hans um sýknu af gagnkröfu G hf. tekin til greina.