Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

27 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 68. gr. laga nr. 30/1963 — Lyfsölulög

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. nóvember 2021

S-3017/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Guðnýju Báru Tryggvadóttur (Kristján Flygenring lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Játningarmál. Ákærða sakfelld fyrir brot á lyfja- og lyfsölulögum, tollalagabrot og akstur undir áhrifum lyfja.

Landsréttur birt 5. febrúar 2021

808/2019

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Dariusz Stanislaw Lesniak (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

D var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 900 millilítrum af vökva sem innihélt amfetamín. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot gegn tollalögum og lyfjalögum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að D hafði ekki áður gerst sekur um brot sem varðaði refsingu. Var refsing D ákveðin fangelsi í 20 mánuði auk þess sem nánar tilgreind fíkniefni og lyf voru gerð upptæk.

Landsréttur birt 6. nóvember 2020

622/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 6. mars 2020

823/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Valgeir Kristinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

I var sakfelldur fyrir hótunarbrot gagnvart starfsmönnum dýralæknamiðstöðvar með því að hafa ritað og birt tiltekin ummæli á Facebook-síðu sinni. Þá var I sakfelldur fyrir tollalagabrot og brot gegn lyfsölu- og lyfjalögum með því að hafa flutt hingað til lands og reynt að komast hjá því að greina tollyfirvöldum frá sjö ampúlum af lyfseðilsskyldu lyfi sem hann hafði ekki innflutningsleyfi fyrir. Í III. kafla ákæru var I jafnfram gefið að sök brot gegn tolla- og vopnalögum með því að hafa flutt hingað til lands skammbyssu, riffil, magasín ætlað fyrir riffil, tvo brúsa af piparúða og sjö pakka af skotfærum. Héraðsdómur lagði til grundvallar að um eftirlíkingar væri að ræða en ekki raunveruleg vopn, að piparúðanum undanskildum. Með dómi héraðsdóms var vísað frá dómi þeim þætti III. kafla ákæru er laut að ætluðu vopnalagabroti I vegna innflutnings á öðru en piparúða. Með dómi Landsréttar var einnig vísað frá héraðsdómi þeim þætti III. kafla ákæru er laut að ætluðu tollalagabroti I þar sem verknaðarlýsing í ákæru var talin í ósamræmi við heimfærslu til refsiákvæða og málatilbúnað ákæruvaldsins að öðru leyti. Við ákvörðun refsingar var litið til 1. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var einnig litið til þess að dráttur hefði orðið á málinu án þess að I yrði um kennt. Var refsing I ákveðinn fangelsi í 60 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Einnig var I gert að sæta upptöku á sjö ampúlum af lyfseðilsskyldu lyfi og tveim brúsum af piparúða, en kröfu ákæruvaldsins um upptöku var að öðru leyti vísað frá héraðsdómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2019

S-468/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Herði Hákoni Jónssyni (Þröstur Þór Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir fjársvik og umferðar-, lyfja- og tollalagabrot. Sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. september 2018

S-198/2018

Ákæruvaldið (Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótanir, innflutning á lyfseðilskyldu lyfi, tollalagabrot og vopnalagabrot. Frávísun að hluta. Dráttur málsins hafði áhrif á refsiákvörðun. Fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins.

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

309/2016

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Jóni Ásgeiri Ríkharðssyni (Stefán Geir Þórisson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

J var gefið að sök brot gegn lyfja-, lyfsölu-, fjarskipta- og tollalögum með því að hafa, í gegnum einkahlutafélag sem hann starfaði hjá og sá um innflutning fyrir, flutt inn til landsins 1050 stykki af nikótínfilterum í rafsígarettur án leyfis og þrjár spjaldtölvur án CE merkinga. Í dómi Hæstaréttar var því hafnað að J hefði verið ókunnugt um að nikótínfilterarnir hefðu verið í sendingunni. Þá var jafnframt hafnað þeirri viðbáru J að hann hefði ekki þurft að afla leyfis til innflutnings nikótínfilteranna þar sem nikótín gæti ekki talist vera lyf í skilningi lyfjalaga, eða að sú tilhögun, að fela Lyfjastofnun að skera úr um hvað teldust lyf samkvæmt lögunum, væri andstæð þeim kröfum sem gera yrði til skýrleika refsiheimilda. Þá var ekki talið hald í þeirri viðbáru J að hann hefði talið að spjaldtölvurnar hefðu verið CE merktar, enda hefði hann innflutning að atvinnu og mætti því vera ljóst að hann þyrfti að kanna hvort þær bæru slíka merkingu. Það hefði hann hins vegar ekki gert. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu ákærða því staðfest.

Hæstiréttur birt 17. desember 2015

265/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Gísla Val Gíslasyni (Jónas Jóhannsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 5. maí 2015

291/2015

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Geir Þórisson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X ehf. var gert skylt að afhenda L allar upplýsingar, sem hann hafði undir höndum, um þrjú nánar tilgreind netföng sem X ehf. hýsti á tilteknu tímabili.

Hæstiréttur birt 21. janúar 2015

19/2015

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X, Y (Páll Arnór Pálsson hrl) og Z (Ólafur Björnsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

LH höfðaði mál fyrir héraðsdómi Suðurlands gegn X, Y og Z fyrir áfengis, lyfja- og tollalagabrot. Í úrskurði héraðsdóms var ákærunni vísað frá dómi þar sem LH hefði brostið heimild til þess að höfða málið í öðru umdæmi án þess að hafa fengið fyrirmæli þar um frá R, sbr. 2. og 4. mgr. 24. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með setningu laga nr. 88/2008 hefði ekki verið breytt því fyrirkomulagi eldri laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að lögreglustjóri höfði einvörðungu mál fyrir þeim héraðsdómi sem ætti lögsögu í umdæmi lögreglustjórans. Var varnarþingsreglum VI. kafla laga nr. 88/2008 leiddi að málið bar að höfða í öðru umdæmi, en það hefði hann gert án þess að R hefði tekið ákvörðun þar um. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2012

S-11/2012

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Dröfn og Erlingsdóttur (Grímur Sigurðarson hdl), Edvin og Karli Benediktssyni (Jóhannes Árnason hdl), Geir Hlöðver Ericssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl), Kristjáni B. Kröyer Þorsteinssyni (Jóhann Karl Hermannsson hdl), Sævari Sverrissyni (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl) og Sævari Þór Óskarssyni (Sigmundur Hannesson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnabrot ofl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. febrúar 2012

S-7/2012

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir fulltrúi) gegn Steini Ómari Sveinssyni (Brynjar Níelsson hrl)
Lykilorð: Tolllagabrot.
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar vegna tollalagabrots.

Héraðsdómur Austurlands birt 1. nóvember 2007

S-127/2007

Ákæruvaldið (Lárus Bjarnason sýslumaður) gegn Ólafi Ingvari Guðjónssyni (sjálfur)
Lykilorð: Lyf. Tolllagabrot. Upptaka.
Málaflokkur: Skattaréttur

Karlmaður sakfelldur fyrir tolla- og lyfjalagabrot með því að hafa flutt ólöglega til landsins talsvert magn ýmis konar lyfja.

Héraðsdómur Suðurlands birt 28. september 2007

S-200/2007

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Ívari Smára Guðmundssyni (Jón Egilsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákært fyrir vörslur taflna með anabólískri verkan og amfetamíns. Ákærða ekki gerð sérstök refsing þar sem um hegningarauka var að ræða. Efnin gerð upptæk og ákærða gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. febrúar 2007

S-421/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Guðmundi Frey Magnússyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður dæmdur í sextán mánaða fangelsi, til að sæta upptöku á fíkniefnum, sviptur ökurétti ævilangt og til að greiða allan sakarkostnað fyrir skemmdarverk, vörslu, sölu og dreifingu á fíkniefnum, akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna, hótanir og vörslur á sterum. Skaðabótakröfu var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 13. febrúar 2007

S-3/2007

Ákæruvaldið (Kristín Þórðardóttir ftr) gegn Þórði Eric Þórðarsyni (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Karlmaður dæmdur til greiðslu 50.000 króna sektar og til að sæta upptöku á 78 töflum af anaboliskum sterum.