Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 13. febrúar 2007.
Mál nr. S-3/2007:
S-0003/2007
Ákæruvaldið
(Kristín Þórðardóttir ftr)
gegn
Þórði Eric Þórðarsyni
svofelldur
d ó m u r :
(enginn)
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu 50.000 króna sektar og til að sæta upptöku á 78 töflum af anaboliskum sterum.
Mál þetta, sem þingfest var þann 8. febrúar sl., og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Hvolsvelli, dagsettri 21. desember 2006 á hendur Þórði Eric Þórðarsyni, kt. 000000-0000, Furuhlíð 15, Hafnarfirði, ,,fyrir brot gegn tolla- og lyfsölulögum með því að hafa einhvern tímann á árinu 2006, veitt viðtöku af ónafngreindum manni 78 töflur með anabolískri verkan (tælenskur boli) sem ákærði vissi eða mátti vita að hefði verið ólöglega innfluttar og hafa síðdegis föstudaginn 16. júní 2006 haft í vörslum sínum 78 töflur af ofangreindri gerð, er lögreglan fann við leit í bifreiðinni RT-700, sem ákæri ók umrætt sinn.
Ákæruvaldið telur þessa háttsemi varða við 1. mgr. 171. gr. sbr. 169. gr. tollalaga nr. 88/2005 sbr. 2. ml. 1. tl. 3. mgr. 9. gr. reglugerðar um tollmeðferð vara sem ferðamenn og farmenn mega hafa með sér við komu til landsins nr. 526/2000 og 5. mgr., sbr. 1. og 2. mgr. 51. gr., sbr. 1. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Einnig er þess krafist að framangreind hormónalyf, sem haldlögð voru ofangreint sinn verði gerð upptæk skv. 4. mgr. 48. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 og 2. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963 og 1. mgr. 181. gr. tollalaga nr. 88/2005.“
Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru ásamt fyrirkalli þann 2. febrúar sl., þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum mætti hann ekki fyrir dóm. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og það er réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakarvottorði sem liggur fram í málinu var ákærði dæmdur þann 21. desember 2000 fyrir brot gegn 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þann 27. nóvember 2002 gerði ákærði sátt vegna þjófnaðarbrots og greiddi 10.000 króna sekt og þann 19. febrúar 2003 var ákærði dæmdur til tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár fyrir þjófnað og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Refsing ákærða er ákveðin með hliðsjón af magni efna sem ákærði var með í fórum sínum og með hliðsjón af sakarferli hans og þykir hæfilega ákveðin 50.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í fjóra daga.
Samkvæmt 2. mgr. 68. gr. lyfsölulaga og 1. mgr. 181. gr. tollalaga hlíti ákærði upptöku á 78 töflum af anaboliskum sterum, sem haldlagðar voru í málinu.
Enginn sakarkostnaður var af máli þessu.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Þórður Eric Þórðarson, greiði 50.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í fjóra daga.
Ákærði sæti upptöku á 78 töflum af anaboliskum sterum.
Ástríður Grímsdóttir.