Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-11/2012:

E N

D U R R I T

Ú R  D Ó

M A B Ó K

H É

R A Ð S D Ó M S   R E Y K J A V Í K U R

Málið nr.

S-11/2012

Ákæruvaldið

(Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari)

gegn

Dröfn, Erlingsdóttur,

(Grímur Sigurðarson hdl)

Edvin, Karli Benediktssyni,

(Jóhannes Árnason hdl)

Geir Hlöðver Ericssyni,

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)

Kristjáni B. Kröyer Þorsteinssyni,

(Jóhann Karl Hermannsson hdl)

Sævari Sverrissyni og

(Ómar Örn Bjarnþórsson hdl)

Sævari Þór Óskarssyni

(Sigmundur Hannesson hrl)

Sakfellt fyrir fíkniefnabrot ofl.

Árið 2012, föstudaginn 25. maí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í málinu nr. S-11/2012: Ákæruvaldið gegn Dröfn Erlingsdóttur, Edvin Karli Benediktssyni, Geir Hlöðveri Ericssyni, Kristjáni B. Kröyer Þorsteinssyni, Sævari Sverrissyni og Sævari Þór Óskarssyni, en málið var dómtekið 30. f.m.

Málið er höfðað með ákæru Ríkissaksóknara, dagsettri 3. janúar 2012, á hendur:

,,Dröfn Erlingsdóttur, Víkurströnd 10, Seltjarnarnesi, Edvin Karli Benediktssyni, Hvassaleiti 15, Reykjavík, Geir Hlöðveri Ericsson, Fannafold 68, Reykjavík, Kristjáni B. Kröyer Þorsteinssyni, Hátúni 6, Reykjavík, Sævari Sverrissyni, Tunguseli 6, Reykjavík og Sævari Þór Óskarssyni, Ásbúð 93, Garðabæ, fyrir eftirtalin brot framin á árinu 2011:

I.

Gegn ákærðu Geir Hlöðveri og Sævari Þór fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 30. júní, í sameiningu, að Fannafold 68 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 659 g af amfetamíni, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, 6,29 g af hassi og 2,27 g af tóbaksblönduðu hassi, en lögregla fann fíkniefnin við húsleit.

Telst þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001.

II.

Gegn ákærðu Dröfn, Geir Hlöðveri, Sævari Þór og Edvin Karli fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 29. september haft í vörslum sínum kókaín eins og lýst er nánar hér að neðan, en fíkniefnin voru ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni. Jose Alverto Nunez flutti fíkniefnin til landsins og fór með þau að Víkurströnd 10 á Seltjarnarnesi.

  1. 1. Ákærða Dröfn veitti kókaíninu móttöku, alls 255,17 g, á dvalarstað sínum að Víkurströnd 10 á Seltjarnarnesi og hafði milligöngu um að koma fíkniefnunum til meðákærðu Geirs Hlöðvers og Sævars Þórs.
  2. Ákærðu Geir Hlöðver og Sævar Þór sóttu kókaínið til meðákærðu Drafnar, greiddu fyrir það að hluta og óku með fíkniefnin að Hvassaleiti 15 í Reykjavík þar sem ákærðu skildu eftir 243,87 g af fíkniefnunum hjá meðákærða Edvin Karli en ákærði Sævar Þór hafði 11,30 g af fíkniefnunum á brott með sér.
  3. Ákærði Edvin Karl veitti kókaíninu móttöku og hafði 243,87 g af því í vörslum sínum að Hvassaleiti 15 í Reykjavík, þar sem lögregla fann síðar fíkniefnin við húsleit.

    Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

III.

Gegn ákærða Geir Hlöðveri fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 29. september á dvalarstað sínum að Fannafold 68 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 8,16 g af maríhúana sem lögregla fann við húsleit.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

IV.

Gegn ákærða Sævari Þór fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 29. september ekið bifreiðinni OD-217, óhæfur til stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (amfetamín í blóði 545 ng/ml.) frá Víkurströnd 10 á Seltjarnarnesi að Hvassaleiti í Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn við Fannafold 68 í Reykjavík.

Telst þetta varða við 1.,sbr. 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007.

V.

Gegn ákærða Sævari Þór fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 30. september á dvalarstað sínum að Holtsbúð 93 í Garðabæ, haft í vörslum sínum 3,41 g af kókaíni sem lögregla fann við húsleit.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

VI.

Gegn ákærðu Geir Hlöðveri og Sævari Sverrissyni fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og tolla-, lyfja- og lyfsölulagabrot með því að hafa staðið saman, eins og rakið er hér að neðan í 1. - 4 tölulið, að innflutningi á eftirfarandi fíkniefnum og steralyfjum ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni: 9.908,06 g af amfetamíni, 8.100 töflum af fíkniefninu MDMA, 200,37 g af kókaíni, 11,73 g af fíkniefninu MDMA og vefaukandi steralyf: 8.800 stykki af Metenolon töflum, 100 stykki af Nandrolon stungulyfi, 91 stykki af Primobolan stungulyfi, 100 stykki af Stanozolol töflum, 790 stykki af Sustanon ampúlum, 148 stykki af Testosteron stungulyfi, 1.800 stykki af Teostosteron töflum, 60 stykki af Danazol töflum og 60 millilítrar af Trenbolon stungulyfi og gegn ákærða Kristjáni B. Kröyer fyrir tolla-, lyfja- og lyfsölulagabrot með því að hafa staðið að innflutningi ásamt Geir Hlöðveri á hluta steralyfjanna svo sem nánar er rakið í 2. og 3. tölulið, en fíkniefnin og steralyfin voru flutt til Íslands frá Rotterdam í Hollandi í vörugámi með skipi frá fyrirtækinu Thorship sem lagði að bryggju í Straumsvík í Hafnarfirði þann 10. október og voru samdægurs haldlögð af lögreglu.

  1. Ákærði Geir Hlöðver lagði á ráðin og skipulagði innflutninginn og fékk meðákærða Sævar Sverrisson til að fara til Hollands, sækja fíkniefnin og steralyfin sem voru í kössum hjá tilgreindum manni og koma kössunum fyrir í fyrrgreindum vörugámi á vegum fyrirtækisins Nokk ehf. sem ákærði Sævar starfaði hjá.
  2. Ákærði Geir Hlöðver bauð meðákærða Kristjáni að flytja steralyf, með vörugámnum til Íslands, sem meðákærði átti hjá ótilgreindum pólskum aðila.
  3. Ákærði Kristján þáði boð meðákærða Geirs Hlöðvers og flaug til Hollands í því skyni að nálgast steralyfin, sem voru 790 stykki af Sustanon og 91 stykki af Primobolan og kom þeim til ótilgreinds aðila sem sá til þess að steralyfin færu í fyrrnefndan vörugám á vegum Nokk ehf.
  4. Ákærði Sævar Sverrisson skipulagði innflutninginn ásamt meðákærða Geir Hlöðveri, móttók fíkniefnin og steralyfin hjá tilgreindum aðila í Hollandi og sá til þess að kössunum, með fíkniefnunum og steralyfjunum, var komið fyrir í fyrrnefndum vörugámi.

    Brot ákærðu allra telst varða við 5. mgr., sbr. 1. og 2. mgr. 51. gr., sbr. 1. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963 og 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 32. gr., sbr. 1. mgr. 48. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 ásamt áorðnum breytingum og 1. mgr. 170. gr. tollalaga nr. 88/2005, sbr. 1. mgr. 6. gr., sbr. 7. gr. reglugerðar um innflutning einstaklinga á lyfjum til eigin nota nr. 212/1998, en brot Geirs Hlöðvers og Sævars telst einnig varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001.

VII.

Gegn ákærða Sævari Sverrissyni fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 10. október á dvalarstað sínum að Tunguseli 6 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,06 g af kókaíni sem lögregla fann við húsleit.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

VIII.

Gegn ákærða Kristjáni B. Kröyer, fyrir fíkniefna-, tolla-, lyfja- og lyfsölulagabrot, með því að hafa föstudaginn 18. nóvember að Hátúni 6 í Reykjavík haft í vörslum sínum 9,54 g af kókaíni og 6 stykki af kannabisplöntum sem lögregla fann við húsleit, en jafnframt fundust vefaukandi steralyf, ætluð til söludreifingar, sem ákærði veitti viðtöku frá ónafngreindum manni og vissi eða mátti vita að höfðu verið ólöglega flutt inn. Steralyfin voru sem hér segir: 71 millilítrar af Deca- Durabolin stungulyfi, 900 stykki Deca-Durabolin töflur, 76 Stanozolol töflur, 30 millilítrar af Metandrostentolon stungulyfi, 40 millilítrar af Metandrostentolon töflum, 10 millilítrar af Nandrolon stungulyfi, 6 millilítrar af Sustanon, 300 millilítrar af Testosteron stungulyfi, 90 millilítrar af Trenbolon stungulyfi og 70 millilítrar af Winstrol Depot/Stanazolol stungulyfi.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og 1. mgr. 171. gr. tollalaga nr. 88/2005, sbr. 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 32. gr., sbr. 1. mgr. 48. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 ásamt áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 6. gr., sbr. 7. gr. reglugerðar um innflutning einstaklinga á lyfjum til eigin nota nr. 212/1998 og 5. mgr., sbr. 1. og 2. mgr. 51. gr., sbr. 1. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963.

IX.

Gegn ákærða Sævari Þór fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 7. desember á dvalarstað sínum að Holtsbúð 93 í Garðabæ, haft í vörslum sínum 45,35 g af amfetamíni og 2,85 g af maríhúana, sem lögregla fann við húsleit.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr., vegna amfetamínsins, og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, vegna maríhúana, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og að framangreind fíkniefni og vefaukandi steralyf, sem hald var lagt á, auk þriggja ampúla af stungulyfinu Somatropin, sem fannst í húsleit, sbr. ákærulið nr. I verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og 181. gr. tollalaga nr. 88/2005, 4. mgr. 48. gr. laga nr. 93/1994 og 2. mgr. 68. gr. laga nr. 30/1963. Loks er þess krafist að ákærða Sævari Þór verði gert að sæta sviptingu ökuréttinda, skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“

Undir dómsmeðferð málsins féll ákæruvaldið frá þeim hluta I. kafla ákæru er varðar ætlaðar vörslur ákærða Sævars Þórs á 6,29 g af hassi og 2,22 g af tóbaksblönduðu hassi.

Verjandi ákærðu Drafnar krefst aðallega sýknu en til vara að refsing verði látin niður falla og til þrautavara að dæmd verði vægasta refsing sem lög leyfa. Málsvarnarlauna er krafist samkvæmt framlögðum reikningi.

Verjandi ákærða Edvins Karls krefst aðallega sýknu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa. Málskostnaðar er krafist úr ríkissjóði að mati dómsins.

Verjandi ákærða Geirs Hlöðvers krefst aðallega sýknu af sakarefni í II. og VI. kafla ákæru, en vægustu refsingar sem lög leyfa vegna I. og III. kafla ákæru, sem jafnframt er varakrafa varðandi II. og VI. kafla. Þess er krafist að gæsluvarðhaldsvist ákærða komi til frádráttar á dæmdri refsivist. Málsvarnarlauna er krafist úr ríkissjóði að mati dómsins.

Verjandi ákærða Kristjáns Kröyer krefst vægustu refsingar og að refsivist, ef dæmd verði, verði skilorðsbundin. Málsvarnarlauna er krafist úr ríkissjóði að mati dómsins.

Verjandi ákærða Sævars Sverrissonar krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða komi til frádráttar refsivist. Þess er krafist að sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði, þ.m.t. málsvarnarlaun samkvæmt tímaskýrslu verjanda.

Verjandi ákærða Sævars Þórs krefst sýknu af  I. kafla ákæru, en að dæmd verði vægasta refsing sem lög leyfa vegna sakarefnis á hendur ákærða að öðru leyti. Komi til fangelsisrefsingar er þess krafist að hún verði skilorðsbundin í heild eða að hluta. Þess er krafist að sviptingartíma ökuréttar verði markaður eins skammur tími og lög leyfa. Málsvarnarlauna er krafist að mati dómsins.

Samkvæmt lögregluskýrslu, dagsettri 28. mars 2011, bárust lögreglu ítrekað upplýsingar um ætlað fíkniefnabrot ákærða Geirs Hlöðvers Ericssonar. Eftir það hófst rannsókn þessa máls og var beitt bæði símhlustunum og herbergishlustunum og öðrum rannsóknarúrræðum sem rakin eru í gögnum málsins. Ákærðu voru öll handtekin vegna rannsóknarinnar og sættu ákærðu Geir Hlöðver og Sævar Sverrisson gæsluvarðhaldi undir rannsókn málsins eins og síðar verður rakið.

Nú verður rakinn framburður ákærðu fyrir dómi og hjá lögreglu eins og ástæða þykir og vitnisburður fyrir dómi. Reifaðir verða málavextir varðandi hvern ákærulið um sig og niðurstaða strax á eftir.

Ákæruliður I Ákærðu voru handteknir 30. júní 2011 vegna rannsóknar sakarefnis skv. þessum ákærulið. Sama dag heimilaði ákærði Geir Hlöðver leit á heimili sínu, þar sem lagt var hald á fíkniefnin sem um ræðir í þessum ákærulið. Tekin var skýrsla af ákærða hjá lögreglunni sama dag, þar sem hann greindi frá fíkniefnunum sem hér um ræðir og hann kvað Sævar Sverrisson ekki hafa átt að vita um tilvist efnanna á heimili sínu.

Fyrir dómi játar ákærði Geir Hlöðver sök. Hann kvaðst einn hafa verið vörslumaður fíkniefnanna sem hér um ræðir. Meðákærði Sævar Þór eigi ekki hlut að máli og sé ekki vörslumaður fíkniefnanna. Ákærði kvað Daníel Jón Helgason, kunningja sinn, hafa verið í heimsókn hjá sér að kvöldi 29. júní 2011 er Sævar Sverrisson kom í heimsókn til sín með poka meðferðis. Í pokanum átti að vera hálft kíló af amfetamíni, sem þeir höfðu áður rætt um að ákærði keypti fyrir tvær og hálfa milljón króna. Ákærði Geir Hlöðver kvaðst ekki hafa greitt fyrir efnið þá en ætlað að gera það síðar. Sævar Sverrisson hefði boðið ákærða fíkniefnin til kaups, væntanlega vegna þess að hann vissi að ákærði hefði komið nærri fíkniefnum og beðið sig um að útvega kókaín. Ákærði kvaðst hafa greitt fyrir fíkniefnin með peningum að hluta og með kókaíni að hluta, en hann hafi ekki lokið greiðslu efnisins. Ákærði kvað Sævar Sverrisson hafa gengið hart eftir því að fá skuldina greidda og um 90% af símtölum þeirra, á þessu tímabili, hafi snúist um það að ákærði greiddi þessa skuld. Ákærði kvaðst hafa komið pokanum fyrir í þvottavél í íbúð á heimili sínu, þar sem fíkniefnin fundust daginn eftir.

Fyrir liggur að ákærði Sævar Þór kom á heimili ákærða Geirs Hlöðvers að morgni dagsins sem báðir voru handteknir. Þá sást til ferða þeirra síðar sama dag. Ákærði kvað erindi þeirra hafa verið það að þeir hefðu ætlað saman í líkamsrækt þennan dag og ákærði ekki verið tilbúinn um morguninn og frestað ferðinni þar til síðar sama dag og sótti meðákærði Sævar Þór hann þá á heimili sitt. Fíkniefnin sem fundust á heimili ákærða, m.a. falin í þvottavél, hafi verið efnið sem Sævar Sverrisson kom með á heimili ákærða kvöldið áður og voru þau í þeim umbúðum og ílátum sem Sævar kom með þau í. Ákærði mundi ekki eftir samræðum þeirra meðákærða Sævars Þórs að morgni handtökudagsins, en endurtók að ætlan þeirra hefði verið sú að fara saman í líkamsrækt. Ákærða var kynnt endurrit úr herbergishlustun sem fram fór á heimili hans á þessum tíma. Hann mundi ekki hvert var efni samræðna þeirra Sævars Þórs í þessi skipti en þeir hittist oft og ræði saman ýmsa hluti, án þess að nokkuð sé að marka það sem þeir ræði.

Ákærði Sævar Þór neitar sök og kvaðst ekki hafa verið vörslumaður fíkniefnanna sem hér um ræðir og ekki hafa vitað um fíkniefnin á heimili meðákærða á þessum tíma. Hann kvaðst hafa komið mjög oft á heimili meðákærða Geir Hlöðvers á þeim tíma sem hér um ræðir. Hann kvað ekkert það sem fram kom í herbergishlustun á heimili meðákærða Geirs Hlöðvers, er ákærði var þar í heimsókn, varða fíkniefnin sem í þessum ákærulið greinir. Ákærði mundi ekki eftir dvöl sinni á heimili meðákærða 30. júní 2011 og hann kvað engin fíkniefnatengsl milli þeirra meðákærða Geirs Hlöðvers hafa verið á þeim tíma sem um ræðir.

Vitnið Börkur Árnason rannsóknarlögreglumaður lýsti aðdraganda húsleitarinnar að Fannafold 68, hinn 30. júní 2011, en af herbergishlustun á heimili ákærða Geirs Hlöðvers mátti ráða að ákærðu Geir Hlöðver og Sævar Þór Óskarsson voru þarna staddir. Lögreglan hafi ráðið af hlustuninni að meðhöndlun fíkniefna ætti sér stað og því var farið í húsleitina. Börkur kvað 659 g af amfetamíni, sem í þessum ákærulið greinir, ekki hafa verið í vörslum ákærða Sævars Þórs Óskarssonar en Börkur var viðstaddur leitina er fíkniefnin voru haldlögð.

Vitnið Daníel Helgason kvaðst vera kunningi Geirs Hlöðvers og margsinnis hafa komið á heimili hans, m.a. í lok júní 2011. Hann kvaðst tvisvar sinnum hafa hitt Sævar Sverrisson á heimili Geirs Hlöðvers. Hann var spurður hvort mögulegt væri að hann hefði hitt Sævar þar hinn 29. júní 2011. Daníel kvaðst ekki muna það en hann kvaðst hafa verið á heimili Geirs Hlöðvers er Sævar Sverrisson kom þangað með poka og þeir Geir Hlöðver hefðu rætt saman frammi á gangi. Daníel kvaðst ekkert vita um innihald pokans.

Undir aðalmeðferð málsins voru leiknar hljóðupptökur frá hlustun á heimili ákærða Geirs Hlöðvers og þær bornar undir ákærðu. Ákærðu ýmist kváðu upptökurnar ekki tengjast málinu, þeir myndu ekki eftir því sem rætt var, þekktu sig ekki af upptökum eða heyrðu ekki það sem sagt var.

Niðurstaða ákæruliðar I Sannað er með skýlausri játningu ákærða Geirs Hlöðvers að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í þessum kafla ákæru greinir og er brot hans rétt fært til refsiákvæðis í ákærunni.

Ákærðu eru gefnar að sök sameiginlegar vörslur en ákærði Sævar Þór neitar sök. Lagt var hald á fíkniefnin á heimili ákærða Geirs Hlöðvers. Vitnið Börkur Árnason rannsóknarlögreglumaður, sem vann að húsleitinni á heimili ákærða Geirs Hlöðvers hinn 30. júní 2011, ásamt fleirum, bar fyrir dómi að amfetamínið sem lagt var hald á hafi ekki verið í vörslum ákærða Sævars Þórs. Af rannsóknargögnum og af framburði ákærðu má ráða að ákærði Sævar Þór var tíður gestur á heimili ákærða Geirs Hlöðvers á þeim tíma sem hér um ræðir.

Hljóðupptökur sem vísað var til að framan eru mjög óskýrar og verður ekki af þeim ráðið með vissu hvort það sem hljóðritað var tengist þessu sakarefni. Sumt af því sem þar kemur fram kvað sækjandi málsins lögreglu leggja tiltekinn skilning í og að þær upplýsingar tengist málinu. Það er mat dómsins að ekkert verði með vissu ráðið af þessu. Ekkert á upptökunum er þannig að af þeim sé unnt að slá því föstu, gegn neitun beggja ákærðu, að ákærði Sævar Þór hafi verið vörslumaður amfetamínsins sem um ræðir.

Að þessu virtu og öðrum gögnum málsins er ósannað gegn eindreginni neitun ákærða Sævars Þórs að hann hafi verið vörslumaður amfetamínsins ásamt meðákærða Geir Hlöðveri. Samkvæmt þessu er ákærði Sævar Þór sýknaður af þessum ákærulið.

Ákæruliður II Ákærði Sævar Þór játar sök samkvæmt þessum kafla ákærunnar. Hann kvaðst hafa verið vörslumaður fíkniefnanna en ekki meðákærði Geir Hlöðver. Ákærði lýsti því er hann sótti fíkniefnin að Víkurströnd 10 þennan dag, eftir að hafa verið í samskiptum við erlendan mann vegna þessa. Samskiptin fóru fram á skype á netinu, en þeir meðákærði hafi báðir rætt þar við mann vegna þessa. Hugsanlegt sé að meðákærði hafi rætt við manninn einnig, eða fyrir sig, en hann muni þetta ekki þar sem hann hafi stundað mikla óreglu á þessum tíma. Er hann fékk upplýsingarnar um að efnið væri komið sótti hann það að Víkurströnd 10, eins og í ákæru greinir, hjá meðákærðu Dröfn. Hann kvaðst hafa farið einn inn í húsið og sótt fíkniefnin en Dröfn hafi ekki verið heima, en hann kvaðst hafa hitt hana einu sinni áður og lýsti hann því að sá fundur tengdist málinu ekki. Meðákærði Geir Hlöðver hefði farið með sér er hann sótti fíkniefnin, en hann hafi ekki átt aðild að málinu.

Ákærði Sævar Þór kvað hafa verið algera skyndiákvörðun hjá sér að fara með fíkniefnin að Hvassaleiti 15. Hann sjái mjög mikið eftir því. Hann kvaðst þar hafa misnotað vináttu þeirra meðákærða Edvins Karls, kunningja síns til margra ára, og kvaðst ákærði skammast sín mjög fyrir þessa ákvörðun sína. Ástæða þess að hann fór þangað með efnið hafi verið sú að klukkan hafi verið orðin margt og hann ekki verið spenntur fyrir því að aka með fíkniefnin um bæinn. Heimili meðákærða Edvins Karls hafi nánast verið í leiðinni og hann því stokkið þar inn, eins og ákærði bar, og bað hann Edvin Karl um að koma út í bílskúr sem hann gerði. Hann hefði spurt Edvin Karl hvort hann mætti skilja eftir poka sem hann sækti morguninn eftir. Ákærði kvaðst í raun ekki hafa gefið Edvin Karli færi á því að andmæla þessari bón sinni, og hann hafi ekki greint honum frá innihaldi pokans sem meðákærði Edvin Karl vissi ekki hvert var. Ákærði kvað þetta hafa gerst svo snöggt að hann telji Edvin Karl ekki hafa vitað hvert innihald pokans var og hann hvorki haft tækifæri til að segja já eða nei við bón ákærða. Edvin Karl hafi aldrei tekið við pokanum.

Ákærða Dröfn neitar sök. Hún kvað Jose, vin Davids fyrrum unnusta síns, hafa komið á heimili sitt að Víkurströnd 10 með poka sem hún vissi ekki hvað innihélt, með þeim fyrirmælum að pokann ætti hún að setja í þvottavélina, sem hún gerði. Við síðari skýrslutöku fyrri dóminum greindi hún svo frá að Jose hefði sett pokann í þvottavélina. Hún lýsti sambandi þeirra Davids, sem hún kvaðst háð félagslega.

Hún kvaðst ekki geta skýrt hvers vegna hún gerði þetta. Eftir þetta hefðu þau Jose farið á nálægan bar. Er hún kom til baka hefði pokinn ekki verið í þvottavélinni, en hún kvaðst ekki hafa vitað hvað var í pokanum. Hún hefði ekki skoðað innihald hans eða gert sér grein fyrir því að í pokanum kynnu að hafa verið fíkniefni. Hún hefði ekki gert sér þetta ljóst fyrr en eftir að fíkniefnalögreglan kom á heimili hennar sama dag. Hún kvaðst hvorugan meðákærða, Geir Hlöðver eða Sævar Þór, hafa séð á heimili sínu þennan dag. Hún kvað þessa tvo menn báða hafa komið á heimili sitt löngu áður en hún viti ekki hvert erindi þeirra þá var, þar sem hún muni þetta tímabil illa sökum ölvunar.

Við skýrslutöku hjá lögreglunni kvaðst Dröfn hafa gert sér grein fyrir því að í pokanum hafi verið fíkniefni. Fyrir dómi skýrði hún framburð sinn svo að henni hefði orðið þetta ljóst við skýrslutökuna hjá lögreglu, en ekki áður. Hún kvaðst hafa verið illa fyrirkölluð í skýrslutöku hjá lögreglunni og hún hafi ekki verið búin að taka lyf sem hún noti. Þannig sé rétt það sem þar komi fram um að David hafi beðið hana um að fá að nota íbúðina að Víkurströnd 10 í því skyni að tveir aðilar gætu sótt þangað fíkniefni og skilið eftir peninga.

Dröfn kom aftur fyrir dóminn og voru bornar undir hana skýrslur hjá lögreglu. Hún mundi lítið eftir skýrslunum og virtist muna þessa atburði illa fyrir dóminum.

Vitnið Jose Alverto Nunes hefur hlotið dóm fyrir innflutning fíkniefnanna sem í þessum ákærulið greinir. Hann lýsti því að hann hefði ekki verið í samskiptum við nokkurn mann hér á landi vegna þessa. Hann kvaðst hafa átt að afhenda fíkniefnin á heimili hér á landi sem hann vissi ekki deili á. Jose kvaðst ekki muna hvar í húsnæðinu hann skildi fíkniefnin eftir en hann kvað konu hafa verið í húsnæðinu, en hann viti ekki nafn hennar. Eftir að hafa skilið fíkniefnin eftir hefði hann farið með konunni á nálægt veitingahús. Jose kvaðst ekki vita hvort konan sem um ræðir hafi vitað af því að pokinn sem hann skildi eftir á heimili hennar innihélt fíkniefni. Hann kvað konuna hafa verið hissa er hún sá hann þarna og hann telji og hún hafi ekki átt von á honum.

Vitnið Magnús Guðmundsson rannsóknarlögreglumaður lýsti því er gerð var húsleit að Víkurströnd 10 á þessum tíma. Ákærða var handtekin á vettvangi. Hann lýsti því er miði fannst í ruslakörfu, en á honum stóð á ensku að peningarnir kæmu á morgun. Ákærða hafi enga skýringu gefið á miðanum eða öðru sem fannst. Hún hafi verið áberandi ölvuð.

Undir rannsókn málsins gekkst ákærða Dröfn undir geðrannsókn hjá Tómasi Zoëga geðlækni. Skýrsla Tómasar um geðrannsóknina er dagsett 12. mars 2012. Niðurstöðukaflinn er svofelldur:

,,Óumdeilt er að Dröfn hefur á tímabilum síðastliðin rúmlega 10 ár haft virk einkenni geðklofasjúkdóms með ranghugmyndum og ofskynjunum. Auk þess hefur hún átt við alvarlegan áfengisvanda að stríða auk þess að misnota lyf.

Engin merki voru um geðrof hjá henni í lok ágúst 2011 er hún hitti geðlækni sinn Ómar Hjaltason. Engin slík einkenni voru til staðar er hún lagðist inn á geðdeild í febrúar 2012. Ekkert bendir til þess að Dröfn hafi haft geðrofseinkenni í lok september 2011.

Vegna sjúkdóms síns hefur Dröfn sýnt lítið frumkvæði mörg undanfarin ár. Samband hennar og Davids er sjúklegt. Hún er mjög háð honum á ýmsan hátt og allt frumkvæði kemur frá honum.

Í bréfi frá Huldu Elsu Björgvinsdóttur saksóknara frá 15. febrúar 2012 kemur fram að geðrannsóknin sé gerð til þess að gera dóminum betur kleift að meta sakhæfi ákærðu eftir atvikum á grundvelli 15. eða 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þ.e. sakhæfi ákærðu á verknaðarstundu þann 29. september 2011, sbr. II. ákærulið.

Að mati undirritaðs kemur ekkert fram við skoðun og sögu sem bendir til þess að Dröfn Erlingsdóttir hafi hinn 29. september 2011 verið haldin neinum þeim einkennum sem eru talin upp í 15. gr. almennra hegningarlaga sem hafi orðið til þess að hún hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum.

Með vísan til 16. grein sömu laga er ekki með vissu hægt að sýna fram á að fangelsisvist verði henni skaðleg verði hún fundin sek í máli þessu.“

Tómas Zoëga geðlæknir gaf skýrslu símleiðis frá Bandaríkjunum og skýrði og staðfesti rannsókn sína.

Ákærði Geir Hlöðver neitar sök og kvaðst ekki hafa haft þessi fíkniefni í vörslum sínum. Hann kvaðst hafa farið með meðákærða Sævari Þór að Víkurströnd 10 á þessum tíma. Þar hafi Sævar Þór einn farið inn, komið til baka og ekið að Hvassaleiti 15 þar sem hann hefði stokkið inn í hús og inn í bílskúr með einhverjum manni sem ákærði viti ekki hver sé. Ákærði hafi ekki tekið eftir því hvort meðákærði Sævar Þór hafði eitthvað meðferðis er hann kom til baka eftir heimsóknina að Víkurströnd 10. Ákærði kvaðst eftir þetta hafa farið á heimili sitt þar sem ákærðu voru handteknir. Ákærði kvaðst ekki hafa vitað hvert erindi Sævars Þórs var að Víkurströnd og hann hafi ekki hitt meðákærðu Dröfn þar á þessum tíma. Ákærði kvaðst aldrei hafa komið inn í húsnæðið að Víkurströnd 10. Beri meðákærða Dröfn um það, hljóti hún að hafa séð ákærða úti í bifreiðinni þar fyrir utan. Ekki geti verið önnur skýring á því. Ákærði lýsti því að fyrir ferðina að Víkurströnd hafi erlendur aðili verið í tölvusamskiptum við meðákærða Sævar Þór á heimili ákærða. Ákærði kvað erlenda manninn og Sævar Þór hafa verið að ákveða fund sem ákærði viti ekkert frekar um. Ákærði kvaðst hafa verið í samskiptum við erlenda aðilann fyrir Sævar Þór, en hann geti ekki útskýrt það sem fram fór og hluta samskiptanna muni hann ekki. Meðákærði Sævar Þór þurfi að skýra samskiptin, þótt ákærði geri sér grein fyrir því að gögn sem borin voru undir hann um þetta varði ferð meðákærða Sævars Þórs að Víkurströnd á þeim tíma sem hér um ræðir.

Undir aðalmeðferðinni voru bornar undir ákærðu Geir Hlöðver og Sævar Þór hljóðupptökur frá heimili ákærða Geirs. Af hálfu ákæruvaldsins kom fram að það sem hlýtt var á væri gert til að varpa ljósi á ætlaðar sakargiftir ákærða Geirs Hlöðvers samkvæmt þessum ákærulið. Hljóðupptökurnar eru frá 28. og 29. september 2011 og voru þær bornar undir báða ákærðu. Þeir ýmist könnuðust ekki við upptökur, mundu ekki eftir efni samtala, eða gátu ekki slegið því föstu að þeir væru að ræða saman. Ákærðu voru spurðir að því hvort hljóðupptökurnar sem leiknar voru tengdust sakarefni þessa ákæruliðar. Ákærði Geir Hlöðver ítrekaði neitun sína um að hafa verið vörslumaður fíkniefnanna sem hér um ræðir og ákærði Sævar Þór kvaðst þegar hafa játað sinn hluta samkvæmt þessum ákærulið og að meðákærði Geir Hlöðver ætti ekki hlut að máli.

Hljóðupptökurnar eru mjög óskýrar og slitrótt það sem heyrist. Það sem fram kemur er sundurlaust og ekki með vissu hægt að slá neinu föstu um það hvort það sem þar kemur fram tengist þessum ákærulið, þannig að það verði notað sem sönnun um vörslur ákærða Geirs Hlöðvers á fíkniefnunum sem hér um ræðir.

Ákærði Edvin Karl neitar sök á þeim forsendum að hann hafi ekki vitað að pokinn sem meðákærði Sævar Þór kom með á heimili hans á þessum tíma hafi innihaldið fíkniefni. Hann kvað óvænt hafa verið bankað á dyr á heimili hans að Hvassaleiti 15 á þessum tíma. Í ljós kom að meðákærði Sævar Þór var þar kominn. Hann hefði spurt hvort hann mætti henda poka inn í bílskúr hjá ákærða. Hann myndi sækja pokann í fyrramálið. Ákærði kvaðst hafa verið mjög upptekinn við vinnu á heimili sínu og hann hafi ekki hugsað neitt er hann samþykkti bón meðákærða Sævars Þórs. Hann opnaði því næst bílskúrinn þar sem meðákærði henti pokanum inn, en þetta hafi allt gerst mjög hratt og ákærði ekki verið með hugann við þetta heldur vinnuna sem hann lýsti og hann hafi strax farið inn aftur á heimili sitt að sinna vinnunni. Ákærði kvað mann hafa verið með Sævari Þór og hafi Sævar Þór sagt að það væri Geir. Eftir um 10-15 mínútur kom lögreglan á heimili hans og spurði um pokann sem ákærði vísaði á. Hann hafi hvorki snert pokann né vitað um innihald hans. Hann kvað lögregluna hafa komið svo stuttu eftir að Sævar Þór fór að honum hafi ekki unnist tími til að velta fyrir sér hvert innihald pokans var, en ákærði bar ítrekað að hann hefði verið með hugann við vinnu sína, eins og rakið var. Ákærði kvað dóttur sína hafa fengið bílskúrslykilinn eftir að meðákærði Sævar Þór fór, en áður en lögreglan kom, 10-15 mínútum eftir brottfor Sævars. Hún hefði sótt hjólið sitt í bílskúrinn. Ákærði kvað að þetta hefði ekki gerst hefði hann vitað af fíkniefnunum í pokanum í bílskúrnum. Hann kvað þá meðákærða Sævar Þór hafa þekkst í mörg ár og fíkniefni komi þar ekki við sögu.

Niðurstaða ákæruliðar II Sannað er með framburði Jose Alverto Nunes að hann flutti fíkniefnin sem hér um ræðir til landsins og fór með þau að Víkurströnd 10 á Seltjarnarnesi.

Ákærða Dröfn neitar sök. Í skýrslutöku af henni hjá lögreglunni 30. september 2011 greindi hún svo frá að David, unnusti sinn, hefði beðið sig um að fá að nota íbúðina að Víkurströnd 10 til að tveir aðilar gætu komið þangað og sótt fíkniefni og skilið eftir peninga. Þá bar hún að Jose, vinur Davids, hefði komið með efni að heimili hennar kvöldinu áður og Jose hafi beðið hana um að geyma fíkniefnin í þvottavélinni, sem hún hefði gert. Þá bar Dröfn um það að Jose hefði komið á heimili hennar um kl. 18:30 til 19:30 kvöldið áður með fíkniefni í glærum plastpoka, sem hún hefði komið fyrir inni í þvottavélinni og að í pokanum hafi verið litlar kúlur. Kvaðst hún hafa gert sér grein fyrir því að í pokanum væru fíkniefni.

Við skýrslutöku af Jose Alverto Nunes hjá lögreglu, 17. október 2011, vildi hann lítið tjá sig, en kvað ofangreindan framburð ákærðu Drafnar réttan.

Framburður ákærðu Drafnar fyrir dómi er mjög óstöðugur og hún man atburði illa að því er virðist.

Að öllu ofanrituðu virtu er sannað með framburði ákærðu Drafnar hjá lögreglu og að hluta fyrir dómi, og með framburði Jose Alverto Nunes hjá lögreglu og fyrir dómi að hluta og með stoð í framburði meðákærða Sævars Þórs sem kvaðst hafa sótt fíkniefnin á heimili ákærðu að Víkurströnd 10 en gegn neitun ákærðu að hluta fyrir dómi, að hún hafi gerst sek um háttsemina sem hér er ákært fyrir. Ákærða vissi mjög lítið um það sem fram fór og fram kemur í geðrannsókn sem rakin var að ákærða er mjög háð David, unnusta sínum, félagslega. Ekkert er fram komið um það að hún hafi vitað um hvernig fíkniefnunum yrði ráðstafað og gegn neitun hennar er ósannað að hún hafi vitað að fíkniefnin voru ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni og er hún sýknuð af þeim hluta þessa ákæruliðar.

Sannað er með skýlausri játningu ákærða Sævars Þórs að hann hafi framið háttsemina þá sem í þessum kafla ákæru greinir og er brot hans rétt fært til refsiákvæðis í ákærunni.

Ákærði Geir Hlöðver neitar sök. Báðir ákærðu hafa borið að þeir hafi farið saman að Víkurströnd 10, þar sem ákærði Sævar Þór fór einn inn. Lögreglumenn sem fylgdust með ferðum ákærðu frá heimili ákærða Geirs Hlöðvers að Víkurströnd 10 báru fyrir dómi að enginn hefði séð ákærða Geir Hlöðver fara inn að Víkurströnd 10. Ákærða Dröfn var ekki heima er efnið var sótt og gat því ekki borið um þetta. Hljóðupptökurnar sem vísað er til að framan eru mjög óskýrar og slitrótt það sem heyrist. Ýmislegt í upptökunum bendir til þess að ákærðu hafi báðir rætt um afhendingu fíkniefnanna sem hér um ræðir. Hins vegar er það sem fram kemur sundurlaust og er ekki með vissu hægt að slá neinu föstu um það hvort það tengist þessum ákærulið þannig að það verði notað sem sönnun um vörslur ákærða Geirs Hlöðvers á fíkniefnunum sem hér um ræðir, gegn eindreginni neitun hans frá upphafi. Meðákærði Sævar Þór hefur frá upphafi borið að ákærði Geir Hlöðver eigi ekki hlut að málinu. Ákærði Sævar Þór kom fíkniefnunum fyrir í bílskúr að Hvassaleiti 15 og hafði hluta þeirra með sér á brott þaðan, eins og lýst er í ákærunni.

Að öllu ofanrituðu virtu er ósannað gegn eindreginni neitun ákærða Geirs Hlöðvers að hann hafi sótt kókaínið á heimili meðákærðu Drafnar og greitt fyrir það og haft það í vörslum sínum eins og í þessum ákærulið greinir. Samkvæmt þessu ber að sýkna ákærða Geir Hlöðver af þessum ákærulið.

Ákærði Edvin Karl neitar sök á þeim forsendum að hann hafi ekki vitað að pokinn sem meðákærði Sævar Þór kom með og skildi eftir í bílskúrnum að Hvassaleiti 15 innihélt kókaín. Ákærða er gefið að sök að hafa veitt kókaíninu móttöku. Ekkert er fram komið um að ákærði hafi gert það. Meðákærði Sævar Þór kvað ákærða ekki hafa tekið við pokanum sem innihélt kókaínið og hann hafi ekki vitað hvert innihaldið var. Fram kom hjá ákærða að hann var við vinnu á heimili sínu er meðákærði Sævar Þór kom og bar upp erindið eins og rakið var. Ákærði fór strax eftir þetta aftur inn til sín að sinna vinnunni. Lögreglan kom mjög stuttu síðar og lagði hald á fíkniefnin í bílskúrnum, en í millitíðinni fór dóttir ákærða þangað, eins og rakið var, og sótti hjólið sitt. Ákærðu Edvin Karl og Sævar Þór eru æskukunningjar og engin fíkniefnatengsl á milli þeirra. Enginn aðdragandi var að heimsókn meðákærða Sævars Þórs þennan dag, sem hefði getað gefið ákærða Edvin Karli vísbendingu um hvað var á ferðinni. Er allt þetta er virt er það mat dómsins að gegn neitun ákærða sé ósannað að hann hafi vitað eða mátt vita að fíkniefni voru í pokanum sem meðákærði Sævar Þór kom fyrir í bílskúrnum. Samkvæmt þessu eru ekki fyrir hendi saknæmisskilyrði og ber að sýkna ákærða Edvin Karl af háttsemi sem í þessum ákærulið greinir.

Brot ákærðu Drafnar og Sævars Þórs samkvæmt þessum kafla  ákæru eru rétt færð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákæruliður III Sannað  er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í þessum ákærulið greinir og er brot hans rétt fært til refsiákvæða í ákærunni.

Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.

Ákæruliður IV Sannað  er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í þessum ákærulið greinir og er brot hans rétt fært til refsiákvæða í ákærunni.

Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.

Ákæruliður V Sannað  er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í þessum ákærulið greinir og er brot hans rétt fært til refsiákvæða í ákærunni.

Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.

Ákæruliður VI Ákærði Geir Hlöðver neitar sök samkvæmt þessum ákærulið og kveðst hvorki hafa komið að skipulagningu né innflutningi fíkniefna né stera sem hér um ræðir. Ákærði kvað Birgi Eyjólf Þorsteinsson, búsettan í Hollandi, vera æskukunningja sinn. Ákærði kvaðst hafa heimsótti Birgi í Hollandi. Í framburðarskýrslu Birgis hjá lögreglunni í Hollandi 7. desember 2011 kemur fram að ákærði hafi komið til hans um tveimur mánuðum fyrr og gist hjá honum. Ákærði kvaðst aldrei hafa gist hjá Birgi og ekki hafa heimsótt hann á þessum tíma. Ákærði kvað liðið eitt til eitt og hálft ár frá því hann heimsótti Birgi síðast ytra. Ákærði kvað ekki rétt það sem fram komi hjá meðákærða Sævari um að ákærði hafi gefið honum heimilisfang Birgis Eyjólfs í Hollandi. Meðákærði Sævar hafi aldrei flutt neitt til landsins fyrir sig. Spurður um tengsl við meðákærða Sævar kvaðst ákærði hafa þekkt hann úr kjötbransanum auk þess sem hann hafi selt sér fíkniefnin sem um getur í I. kafla ákæru, eins og lýst var að framan. Spurður um samskipti þeirra meðákærða Sævars sl. ár, greindi ákærði svo frá að ráða megi af símhlustunum að Sævar spyrji um sama hlutinn í nánast hverju einasta símtali, sem hafi verið mjög mörg. Þar komi fram að meðákærði Sævar sé að rukka ákærða fyrir fíkniefnin sem um getur í ákærulið I. Ákærði tók fram í þessu sambandi að aldrei væri í símtölum minnst á innflutning fíkniefna. Hann kvaðst hafa greitt Sævari nokkrum sinnum eins og ráða megi af hlustuðum símtölum. Ákærði mundi ekki hvort meðákærði Sævar kom á heimili ákærða í annað skiptið en er hann kom með fíkniefnin sem í I. kafla ákæru greinir. Ákærði kvaðst í einhver skipti hafa komið á heimili meðákærða Sævars með peninga til að greiða honum. Hann lýsti fundum þeirra í Breiðholti, utandyra, 26. september 2011, sem lögreglan fylgdist með. Þá hafi ákærði verið að greiða meðákærða Sævari 400.000 krónur og hann minnti að þá kunni að vera að hann hafi einnig afhent honum kókaín. Fram hafi komið hjá meðákærða Sævari að hann hafi verið á leið úr landi á þessum tíma. Ákærði var spurður hvers vegna hann hefði ekki greint frá því undir rannsókn málsins að öll símtöl þeirra meðákærða Sævars hefðu snúist um skuldina vegna fíkniefnanna í I. kafla ákæru. Ákærði kvaðst ekki hafa viljað bendla aðra við fíkniefnin sem fundust á heimili hans 30. júní 2011. Það sé skýringin á því hvers vegna hann nefndi meðákærða Sævar ekki þá. Ákærði bar í lögregluskýrslu, 9. nóvember 2011, um 2,5 milljóna króna skuld sína við meðákærða Sævar vegna fíkniefnanna sem um ræðir í I. ákærulið. Ákærði Geir Hlöðver kvaðst ekki hafa vitað að meðákærði Kristján hefði átt stera erlendis.

Ákærði Sævar játar sök að því er varðar innflutning á steralyfjum eins og hér er lýst, en neitar sök að því er varðar fíkniefnin sem hann hafi ekki vitað um og neitar sök að því er varðar þann hluta þessa ákæruliðar. Ákærði kvaðst flytja inn vörur frá Hollandi og flytja um það bil einn vörugám á mánuði til landsins. Hann kvaðst hafa verið í samskiptum við meðákærða Geir Hlöðver og m.a. keypt af honum eitt og eitt gramm af kókaíni. Þannig hafi samskipti þeirra hafist. Ákærði kvaðst hafa farið í frí til Hollands ásamt fjölskyldunni, en einum eða tveimur dögum fyrir utanferðina hefði meðákærði Geir Hlöðver afhent sér miða þar sem ákærði ritaði niður heimilisfang manns sem kallaður væri Fúsi. Er ákærði fékk upplýsingarnar, sem hann ritaði á miðann, hafi meðákærði afhent sér peninga en fundur þeirra hafi verið utandyra í Tindaseli. Fram kemur í gögnum málsins að lögreglan fylgdist með þessum fundi ákærðu og myndaði. Ákærði átti að mæta á heimili Fúsa á fimmtudagskvöldi klukkan 20. Hann lýsti því að erfiðlega hefði gengið að fá peninga hjá meðákærða til að komast í ferðina, en meðákærði Geir Hlöðver hefði skuldað ákærða peninga fyrir innflutning sterataflna einu sinni áður. Fyrir þetta hafi meðákærði Geir skuldað ákærða peninga en ekki hafði verið ákveðið hversu mikið ákærði fengi vegna þessa. Áður hafði hann fengið alls 1,3 milljónir króna, þar af hefði hann fengið afhentar í tvennu lagi 900.000 krónur svo ákærði kæmist í ferðina sem um ræðir í þessum ákærulið. Ákærði kvað samskipti þeirra meðákærða Geirs einkum hafa farið fram símleiðis og hann hafi hringt í meðákærða í símanúmer sem hann fékk uppgefið. Hann kvað samskiptin hafa verið tíð á þessum tíma og umræður þeirra hafi einkum snúist um peninga og fíkniefni sem ákærði fékk hjá meðákærða Geir til eigin neyslu. Þeir hafi aldrei rætt annað en innflutning stera samkvæmt þessum ákærulið. Fíkniefni hafi aldrei borið á góma og sig hafi aldrei grunað að annað en sterar væru í pökkunum. Ákærði kvaðst iðulega hafa hringt í meðákærða til að rukka hann en fremur illa gekk að innheimta skuldina. Meðákærði Geir hefði greitt í reiðufé og einu og einu grammi af kókaíni. Ákærði kvað framburð meðákærða Geirs rangan varðandi það að ákærði hefði komið með 500 g af amfetamíni á heimili hans í lok júní 2011. Ákærði kvaðst ekki vita hvað hann ætti að kalla svona sögu og neitaði þessu. Þá kvað ákærði framburð meðákærða Geirs rangan um það að hljóðrituð samtöl þeirra um peninga snúist um það að ákærði hafi verið að rukka inn greiðslu fyrir fyrrgreind fíkniefni. Ákærði kvaðst flytja inn laktósa, sem sé efni notað í matvöru. Meðákærði Geir hafi keypt 5-10 kg af laktósa, en ákærði kvað á allra vitorði að laktósi væri notaður sem íblöndunarefni fíkniefna.

Er út var komið kvaðst ákærði hafa farið með leigubifreið á staðinn sem var á miðanum frá meðákærða Geir. Þar hafi hann fengið afhentan einn kassa sem hann kvaðst hafa tekið með sér á hótelið. Daginn eftir kom fyrrgreindur Fúsi á hótelið til ákærða með tvo aðra kassa og afhenti. Ákærði kvaðst hafa komist að því við yfirheyrslur hjá lögreglunni að þessi maður heiti Birgir. Ákærði kvað sér hafa brugðið mjög er í ljós kom að kassarnir voru þrír, en hann hafi talið að einungis yrði einn kassi sendur með vörugáminum. Ákærði kvaðst ekki hafa treyst sér til þess að opna kassana í því skyni að ganga úr skugga um hvort í honum væru önnur efni en sterarnir. Hann kvaðst aldrei hafa hugsað um það að í kössunum kynnu að vera önnur efni og meðákærði hefði aldrei minnst á það. Ákærði kvaðst áður hafa verið búinn að hafa samband við Mikael Hoskins, mann sem hann hefur verið í sambandi við í Hollandi vegna innflutnings á vörum þaðan. Hoskins hefði sótt ákærða og fjölskyldu hans og ekið þeim um Holland og kassarnir verið með í ferðinni. Hoskins hefði skilið ákærða eftir á lestarstöð, en sjálfur haldið heim til sín með kassana sem hann hefði komið fyrir í vörugámi að beiðni ákærða. Hoskins hefði ekki vitað hvert innihald kassanna var. Ákærði kvað meðákærða Geir hafa greint frá því að í kössunum væru steratöflur, nýkomnar frá Póllandi og magnið væri ekki neitt, neitt, eins og meðákærði Geir lýsti. Ákærði kvaðst leysa út gáma sem fyrirtæki hans flutti til landsins. Ákærði kvaðst áður hafa flutt inn stera fyrir meðákærða Geir og hann hafi þá geymt sterapakkann í geymslu á heimili sínu. Hann kvaðst hafa reiknað með því að sami háttur yrði hafður á í það sinn sem hér um ræðir, enda meðákærði Geir ekki á landinu er gámurinn kom. Ákærði Sævar kvaðst frá upphafi hafa greint satt og rétt frá hjá lögreglu. Hann hefði ekki fyrr en á síðari stigum rannsóknarinnar fengið að vita hvaða fíkniefni voru í pökkunum. Hann hefði frá upphafi talið að einungis væru sterar í kössunum. Ákærði kvaðst ekki þekkja meðákærða Kristján Kröyer og ekki vita neitt um hans ætlaða hlut í málinu.

Undir aðalmeðferðinni voru hljóðupptökur frá heimili ákærða Geirs bornar undir ákærðu Sævar og Geir, en af hálfu ákæruvaldsins voru upptökurnar taldar varpa ljósi á tengsl ákærða Geirs Hlöðvers við sakarefni þessa ákæruliðar. Fram kom hjá ákærða Sævari að umræður þeirra um peninga á upptökunum snúist um að ákærði hafi verið að reyna að fá hjá meðákærða Geir peninga vegna utanfararinnar, sem í þessum ákærulið greinir. Þá kom fram hjá ákærða Sævari að ekkert af því sem borið var undir hann geti varðað innflutning fíkniefna samkvæmt þessum ákærulið. Ástæðan væri sú að hann hefði aldrei rætt það við meðákærða Geir Hlöðver. Eina sem þeir ræddu varðandi innflutninginn sem hér um ræðir hafi verið sterar, aldrei fíkniefni.

Ákærði Geir Hlöðver neitaði ítrekað aðild sinni samkvæmt þessum ákærulið og kvað peningatal ákærðu snúast um það að meðákærði Sævar hafi stöðugt verið að rukka ákærða vegna fíkniefnanna sem í I. kafla ákæru greinir. Þá kom fram hjá báðum ákærðu að þeir heyrðu upptökurnar illa. Sumt heyrðist alls ekki og sumt sem nefnt var myndu þeir ekki og/eða gætu ekki skýrt, enda oft á tíðum mjög erfitt að fá samhengi út úr því sem þó heyrðist. Þeir skýrðu hvor með sínum hætti sumt af því sem borið var undir þá og er ekki ástæða til að rekja það frekar, en tekin verður afstaða til þessa í niðurstöðukaflanum vegna þessa ákæruliðar.

Ákærði Kristján játar aðild sína að sterainnflutningnum eins og hér er lýst, utan að hann kvaðst ekki hafa þegið boð meðákærða Geirs Hlöðvers. Ákærði lýsti því er hann fór til Hollands um einum mánuði áður en sterarnir bárust hingað til lands. Ytra hafi hann afhent manni sterana sem flytja átti hingað til lands, þótt hann hafi ekki vitað hvenær þeir kæmu eða hvernig þeir yrðu fluttir til landsins. Síðan hafi hann verið handtekinn og hafi hann þá reiknað með því að það væri vegna steranna.

Við skýrslutöku hjá lögreglunni, 18. nóvember 2011, lýsti ákærði Kristján því að hann hefði átt stera í Hollandi á þeim tíma sem hér um ræðir og meðákærði Geir Hlöðver hefði boðið sér að koma sterunum hingað til lands ásamt öðrum sterum sem Geir ætlaði að flytja til landsins að því er ákærða skildist.

Ekkert kom fram hjá Kristjáni um að hann eða Geir vissu um fíkniefnin sem voru með gáminum.

Hinn 22. nóvember 2011 gaf Kristján skýrslu hjá lögreglunni. Þá var hann spurður að því hvernig það hefði komið til tals milli þeirra meðákærða Geirs Hlöðvers að Geir væri með innflutningsleiðina sem hér um ræðir. Kristján kvaðst hafa sagt meðákærða Geir Hlöðveri að hann ætti stera úti og Geir sagt að hann gæti hugsanlega reddað þeim til landsins fyrir hann. Þeir hefðu ekki rætt þetta frekar, en ákærði kvaðst hafa afhent Hollendingi sterana ytra. Fyrir dómi kvað ákærði sér hafa verið greint frá því við skýrslutöku hjá lögreglunni að gámur, í eigu meðákærða Geirs, hefði komið til landsins. Lögreglan hefði greint sér frá því að meðákærði Geir ætti gáminn og að hann hefði því nefnt meðákærða Geir við skýrslutökurnar og greint frá eins og rakið var að framan. Það sé hins vegar ekki rétt eins og rakið var. Þetta skýri breyttan framburð hans varðandi meðákærða Geir Hlöðver. Aðspurður kvaðst ákærði kjósa að nafngreina ekki aðilann sem ræddi við hann um að koma sterunum hingað til lands. Hann kvaðst hafa afhent manni í Hollandi sterana til flutnings hingað til lands, en hann kvaðst ekkert vita um flutningsleiðina og ekki vita hver átti að greina frá því er sterarnir væru komnir til landsins.

Vitnið Birgir Eyjólfur Þorsteinsson gaf skýrslu símleiðis frá Hollandi. Hann kvað þá ákærða Geir Hlöðver æskuvini. Birgir kvað málavexti þá að maður hefði komið að máli við sig með tölvu sem innihélt stera. Birgir hefði verið beðinn um að koma sterunum fyrir í nýrri tölvu sem hann gerði, auk þess sem hann bætti í tölvuna fleiri sterum. Hann hafi afhent þetta manni sem kom á heimili hans og kynnti sig sem Sævar. Þá hafi hann verið spurður hvort hann gæti tekið við tveimur kössum til viðbótar og skutlað kössunum á hótelið þar sem Sævar dvaldi. Hann féllst á það og fékk kassana tvo í hendur klukkan sjö að morgni daginn eftir og fór með þá á hótel og afhenti Sævari, auk þess sem Birgir kvaðst hafa lánað Sævari 300 evrur, en fram kom að Sævar hafði talið að Birgir ætti að afhenda honum peninga sem ekki var. Birgir kvað sama aðila hafa beðið sig um þetta erindi og bað hann um að bæta við sterum í tölvuna, eins og rakið var. Hann kvaðst ekki hafa vitað af því að í pökkunum væri annað en sterar, fyrir utan munina sem þar voru. Birgir kvaðst ekki nefna nein nöfn í þessu sambandi. Hann var sérstaklega spurður hvort þessi aðili væri ákærði Geir Hlöðver, en Birgir endurtók það sem fram kom um að hann nafngreindi engan. Hann kvað engin fíkniefnatengsl milli þeirra ákærða Geirs Hlöðvers. Hann kvað dóminn verða að draga ályktun um það hvort þetta þýddi að ákærði Geir Hlöðver væri ekki maðurinn sem bað hann um erindið sem lýst var.

Vitnið Jens Gunnarsson rannsóknarlögreglumaður lýsti því er upplýsingar bárust lögreglu í mars/apríl 2011 um fyrirhugaðan mikinn fíkniefnainnflutning. Hafi verið rætt um 10 kg af fíkniefnum og að Geir Hlöðver Ericsson tengdist málinu. Hann lýsti rannsóknum í kjölfarið, m.a. símhlustunum og herbergishlustunum á heimili ákærða Geirs Hlöðvers. Hann lýsti hlustunum og því að lögreglan hefði beðið stóru fíkniefnasendingarinnar sem rædd var. Meðan beðið var komu upp tvö fíkniefnamál í júlí og september, sbr. ákæruliði I og II. Hann lýsti rannsókn þeirra mála og því að lögreglan hefði gert það sem unnt var til að koma í veg fyrir að sakborningar þar grunaði að verið væri að bíða stóru sendingarinnar, sbr. ákærulið VI. Hlustanir stóðu yfir mánuðum saman. Hann var spurður hvort rætt hefði verið um stera þann tíma sem hlustað var. Jens mundi eftir einu tilviki er ákærðu Geir og Kristján ræddu stera. Það hafi ekki tengst innflutningi stera heldur því að brotist hafði verið inn á heimili ákærða Kristjáns og þaðan stolið sterum. Hann kvað aldrei hafa komið fram í hlustunum að ákærðu Geir og Sævar Sverrisson ræddu saman um sterainnflutning. Þá hafi heldur ekki komið fram í símtölum þessara tveggja ákærðu að þeir ræddu með berum orðum um fíkniefnainnflutning. Hann lýsti því hvernig ákærði Sævar Sverrisson tengdist málinu en það hefði ekki verið fyrr en í júní 2011 eftir húsleit á heimili ákærða Geirs, þar sem lögreglan fann síma sem síðar kom í ljós að var aðeins notaður í samskiptum ákærðu Geirs og Sævars Sverrissonar. Lögreglan hafi metið það svo að með því að tengja saman símhlustun og herbergishlustun megi ráða að Sævar Sverrisson hafi verið að fara utan fyrir Geir til að ganga frá fíkniefnasendingu til landsins. Hann lýsti símtölum sem hlustuð voru milli ákærðu Geirs og Sævars Sverrissonar og að mikið hafi verið rætt um peninga auk þess sem fram kom að Sævar bað Geir um fíkniefni. Hann kvað Sævar hafa hringt oftar í Geir en öfugt.

Meðal gagna málsins eru lögregluskýrslur þar sem greint er frá því að lögreglan hafi talið að bankareikningur ákærða Geirs í Hollandi geymi innstæðu sem var ætlaður ágóði af fíkniefnasölu hans. Jens staðfesti þessa skýrslu og rannsókn reiknings sem reyndist vera í mínus.

Jens bar að ekki hefði tekist að leiða í ljós undir rannsókn málins hver hefði pakkað fíkniefnunum sem í þessum ákærulið greinir. Jens lýsti því að kannað hafi verið í Hollandi hvort unnt hefði verið að fá upplýsingar, til að mynda úr öryggismyndavélum, sem sýni er kössunum var komið fyrir í gámnum ytra. Það hafi ekki reynst unnt.

Jens kvað Sævar Sverrisson hafa verið samvinnuþýðan undir rannsókn málsins og hreinskilinn undir rannsókninni og þannig reynst gagnlegur með framburði sínum, einkum varðandi tengslin við meðákærða Geir Hlöðver og fyrirkomulag sendingarinnar frá Hollandi.

Fram kom hjá Jens að hann teldi að Sævar Sverrisson héldi utan upplýsingum um vitneskju sína af fíkniefnunum í sendingunni. Hann byggi þetta álit sitt ekki á gögnum málsins heldur á tilfinningu og reynslu sinni.

Jens kvað hlustun hafa verið í gangi á heimili Geirs á þeim tíma sem í I. kafla ákæru greinir. Ekkert hafi komið fram undir rannsókninni sem bendi til þess að Sævar Sverrisson hefði komið með fíkniefnin á heimili Geirs á þessum tíma, en Geir Hlöðver bar um þetta eins og rakið var að framan. Jens kvaðst hafa verið staddur í Fannafold 68 hinn 30. júní 2011, þegar 659 g af amfetamíni voru haldlögð. Aðspurður kvað hann fíkniefnin ekki hafa verið í vörslum ákærða Sævars Sverrissonar.

Undir aðalmeðferð málsins ritaði Jens ítarlega skýrslu eftir að hafa hlustað á hljóðupptökurnar sem hann kvaðst hafa gert að kröfu ríkissaksóknara, sem bað um að farið yrði yfir upptökur frá herbergishlustun á heimili ákærða Geirs. Farið var yfir valin samtöl að beiðni ríkissaksóknara og lýsti Jens þessu. Við þá vinnu kvað hann það hafa komið fram nýtt að Sævar Sverrisson hefði komið á heimili Geirs, sem lögreglan taldi áður ekki hafa verið þar sem lögreglan hafi ekki vitað af aðild hans að málinu fyrr en síðar. Hann kvaðst til að mynda telja sig þekkja rödd Sævars Sverrissonar á upptöku frá heimili ákærða Geirs frá 28. júní 2011.

Vitnið Börkur Árnason rannsóknarlögreglumaður lýsti vinnu sinni að rannsókn þessa ákæruliðar. Hann kvað ekki hafa tekist að upplýsa hver pakkaði fíkniefnunum ytra. Hann greindi frá vinnu sinni við símhlustanir og að allt hafi verið skráð niður sem talið var varða sakarefnið. Hann kvað ákærða Sævar Sverrisson hafa verið mjög samvinnuþýðan og ekkert í rannsókninni benda til þess að Sævar segði ósatt eða héldi einhverju undan.

Gert var hlé á aðalmeðferðinni, m.a. í því skyni að gefa verjendum ákærðu kost á að kynna sér hljóðupptökur á þeim tíma og að beiðni ákæruvaldsins voru ritaðar orðrétt upp hlustanir á heimili ákærða Geirs. Við þá vinnu kvaðst hann hafa þekkt ákærða Sævar Sverrisson á þremur upptökum, en áður hafi þessi maður verið nefndur kk í skýrslum, þar sem lögreglan vissi ekki deili á honum. Þetta eru upptökur frá 28. júní, 19. júlí og 28. júlí 2011, þar sem hann kvaðst þekkja ákærðu Geir og Sævar Sverrisson ræða saman á heimili Geirs.

Vitnið Þorbjörn Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður lýsti rannsókn málsins og aðkomu sinni þar að. Hann lýsti vinnu sinni við hlustun símtala og herbergishlustana. Aðspurður kvaðst hann ekki minnast þess að í hlustunum hafi komið fram upplýsingar sem vörðuðu innflutning stera. Hann lýsti því að byggt hafi verið á upplýsingum um stóra fíkniefnasendingu. Hann lýsti því hvernig málið í ákærulið II kom upp og greindi frá netsamskiptum á heimili ákærða Geirs, sem hafi verið í netsamskiptum við Ameríkana. Hann lýsti samskiptunum þennan dag, þ.e. 29. september 2011, og ljóst var af samskiptunum að einhver aðili hefði komið til landsins með fíkniefni. Samskiptin hefðu, að mati lögreglu, snúist um það hvernig nálgast skyldi fíkniefnin. Að kvöldi þessa dags hefði þetta verið ljóst og ákærðu Geir Hlöðver og Sævar Þór fóru frá heimili Geirs að Víkurströnd 10, að heimili ákærðu Drafnar. Þorbjörn kvað ekki hafa komið fram hvort ákærði Geir Hlöðver og Sævar Þór fóru báðir þar inn eða einungis annar þeirra.

Þorbjörn kvað Sævar Sverrisson hafa verið mjög samvinnuþýðan undir rannsókn málsins, hann hefði veitt upplýsingar sem reyndust gagnlegar og lýsti hann þessu. Hann kvað ekkert hafa komið fram sem benti til þess að hann væri að fela nokkurn hlut í framburði sínum. Þorbjörn kvað ekki koma beint fram í hlustunum að til hafi staðið að flytja fíkniefni til landsins. Aðspurður kvað Þorbjörn ekkert í rannsóknargögnum málsins benda til þess að ákærði Sævar Sverrisson hafi verið að segja ósatt um að hann hafi ekki vitað af fíkniefnunum í sendingunni, heldur aðeins af sterunum eins og hann bar. Þorbjörn lýsti því er gámurinn var opnaður og hald var lagt á fíkniefnin. Gámurinn var fluttur innsiglaður til landsins.

Vitnið Elín Agnes Kristínardóttir lögreglumaður lýsti vinnu sinni við skoðun kassanna sem innihéldu fíkniefnin sem í þessum ákærulið greinir og hvernig efninu var komið fyrir. Hún lýsti því að ekki hefði fundist nothæft fingrafar.

Vitnið Svavar Rúnar Sverrisson, aðaleigandi fyrirtækisins sem ákærði Sævar Sverrisson starfaði hjá á þessum tíma, lýsti starfi ákærða Sævars hjá fyrirtækinu og tengslum við Holland, þaðan sem vörur væru fluttar.

Vitnið Michael Hoskins lýsti samskiptum sínum og ákærða Sævars Sverrissonar vegna tengsla fyrirtækjanna sem þeir starfa hjá. Hann kvaðst hafa hitt Sævar í Hollandi í september 2011. Vitnið hafi hitt Sævar á föstudegi og þá hafi Sævar spurt sig að því hvort hann væri til í að geyma tvo eða þrjá kassa í bíl sínum til að koma fyrir í gámi nk. mánudag, en gáminn átti að flytja hingað til lands. Sævar hefði greint frá því að í kössunum væri heimabíó og hátalari í hinum. Eftir þetta hefði hann sýnt Sævari og fjölskyldu hans nágrennið. Sævar tók lest til baka en vitnið kvaðst hafa geymt kassana í bifreið sinni yfir helgina, en á mánudeginum á eftir hefði hann komið kössunum í vörslu fyrirtækis, í því skyni að þeim yrði komið fyrir í gámi sem fluttur yrði til Íslands og ræddi hann þetta við nafngreindan mann. Hann viti ekki hver setti kassana í gáminn. Hann kannaðist við kassana sem lagt var hald á og kvað þá hina sömu og rætt er um að ofan.

Vitnið Paul Vos gaf símaskýrslu frá Hollandi. Hann lýsti kynnum sínum og ákærða Sævars Sverrissonar, en þau kynni væru vegna viðskipta og lýsti hann því. Paul kvaðst tvisvar sinnum hafa sett kassa í gám fyrir Sævar Sverrisson. Fyrra skiptið hafi verið fyrir u.þ.b. tveimur árum og síðara skiptið fyrir einu ári. Í annað skiptið voru það leikföng sem vitnið keypti fyrir Sævar og í síðara skiptið hafi hann fengið afhentan kassa sem hann viti ekki hvað innihélt.

Jakob Kristinsson prófessor skýrði og staðfesti matsgerðir Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði sem ritaðar voru eftir rannsókn fíkniefnanna sem hér um ræðir.

Niðurstaða ákæruliðar VI Innflutningur steralyfja Ákærði Sævar játar sök að því er varðar innflutning á steralyfjum sem í ákæru greinir. Hann neitar hins vegar sök að því er varðar innflutning fíkniefna og kvaðst ekki hafa vitað af þeim í sendingunni.

Ákærði Kristján játar sök utan að hann kvaðst ekki hafa staðið að innflutningi steralyfjanna ásamt ákærða Geir Hlöðveri, sem ekki hafi boðið sér að flytja steralyfin hingað til lands eins og greinir í ákæru. Eins og rakið var greindi ákærði Kristján tvisvar sinnum frá því við skýrslutökur hjá lögreglunni að ákærði Geir Hlöðver gæti hugsanlega komið sterum til landsins fyrir hann og þá bar ákærði Kristján að honum hafi skilist á ákærða Geir Hlöðveri að hann hygðist einnig flytja aðra stera til landsins. Breyttur framburður ákærða Kristjáns um hlut ákærða Geirs Hlöðvers er ekki trúverðugur og verður ekki á honum byggt. Framburður ákærða Kristjáns hjá lögreglunni um þátttöku ákærða Geirs Hlöðvers verður lagður til grundvallar og fær hann stoð í framburði ákærða Sævars, eins og rakið var.

Ákærði Geir Hlöðver neitar sök.

Að öllu ofanrituðu virtu er sannað með skýlausri játningu ákærða Sævars fyrir dómi og með framburði ákærða Kristjáns hjá lögreglu og fyrir dómi að hluta, en gegn neitun hans að því er varðar ákærða Geir Hlöðver, en gegn neitun ákærða Geirs Hlöðvers að allir ákærðu hafi gerst sekir um innflutning steralyfjanna sem í þessum ákærulið greinir og eru brot þeirra rétt færð til refsiákvæða í ákærunni.

Innflutningur fíkniefna Ákærðu Geir Hlöðver og Sævar neita báðir sök. Upphaf rannsóknar þessa sakarefnis hófst í mars/apríl 2011, eftir að lögreglu bárust upplýsingar um fyrirhugaðan innflutning á miklu magni fíkniefna og var nefnt að ákærði Geir Hlöðver tengdist málinu. Má í þessu sambandi vísa til vitnisburðar Jens Gunnarssonar rannsóknarlögreglumanns. Samkvæmt vitnisburði hans og rannsóknargögnum var öllum tiltækum rannsóknaraðgerðum beitt, m.a. símhlustunum og herbergishlustunum á heimili ákærða Geirs Hlöðvers. Hlé var gert á aðalmeðferð málsins svo ákærðu og verjendur gætu kynnt sér upptökurnar að vild, en upptökurnar stóðu mánuðum saman. Þá voru að kröfu ákæruvaldsins endurrituð samtöl sem ákæruvaldið taldi til þess fallin að renna stoðum undir sakargiftir á hendur ákærðu. Er aðalmeðferð málsins var fram haldið voru símhlustanir og herbergishlustanir þær sem hér um ræðir bornar undir ákærðu eins og ástæða þótti. Það er mat dómsins að ekkert í þessum gögnum renni stoðum undir sakargiftir á hendur ákærðu, enda hefur ákærði Sævar borið frá upphafi að hann hafi ekki vitað af fíkniefnunum í pökkunum og því aldrei rætt um þau við ákærða Geir Hlöðver, sem frá upphafi hefur neitað sök. Ekki verður betur séð af gögnunum sem lýst var en að þetta sé rétt hjá ákærða Sævari.

Í 1. og 4. tölulið þessa kafla ákærunnar er rætt um tilgreindan aðila í Hollandi. Dómurinn telur að teknu tilliti til gagna málsins að skýra verði ákæruna svo að þessu leyti að þar sé átt við Birgi Eyjólf Þorsteinsson og verður afstaða tekin til þess hvort samskipti ákærðu við hann hafi verið svo sem í ákæru greinir.

Sannað er með skýlausri játningu ákærða Sævars að hann sá til þess að kössunum sem hér um ræðir var komið fyrir í vörugámnum til flutnings hingað til lands, eftir að hafa sótt kassana til Birgis Eyjólfs Þorsteinssonar í Hollandi en Birgir Eyjólfur vildi ekki nafngreina manninn sem fékk hann til þessa verks eins og rakið var en bar um það að engin fíkniefnatengsl væru milli þeirra ákærða Geirs Hlöðvers. Fram kom hjá Birgi Eyjólfi að hann taldi aðeins stera í kössunum. Fyrir liggur í málinu að ákærðu Sævar og Geir Hlöðver fóru leynt með samskipti sín. Til að mynda var notaður sérstakur sími og hafa báðir skýrt leyndina fyrir dóminum en hún var einkum vegna fíkniefnasamskipta þeirra eins og rakið var. Hlustanir stóðu yfir mánuðum saman. Þar kemur ekkert fram um fyrirhugaðan fíkniefnainnflutning sem hér um ræðir. Engin vitnisburður liggur fyrir um þátt ákærðu í fíkniefnahluta þessa ákæruliðar. Birgir Eyjólfur Þorsteinsson bætti við sterum í sendinguna eins og rakið var. Óupplýst er í málinu um það hver eða hverjir fengu hann til verksins ytra. Þá er óupplýst hver kom fíkniefnunum fyrir í pökkunum ytra og hver stóð á bak við sendingu þeirra hingað til lands. Gögn málsins, framburður og vitnisburður fyrir dómi eru ekki þannig að þau dugi til að sakfella ákærða Geir Hlöðver að þessu leyti gegn eindreginni neitun hans. Þótt ákærði Geir Hlöðver hafi ásamt meðákæru verið sakfelldur fyrir innflutning steralyfjanna leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að unnt sé að slá því föstu að hann hafi einnig staðið á bak við innflutning fíkniefnanna þar sem ekkert liggur fyrir um það eins og rakið hefur verið. Það er mat dómsins að ekki hafi tekist að upplýsa málið að þessu leyti. Að þessu og öðrum gögnum málsins virtum er ósannað gegn eindreginni neitun ákærða Geirs Hlöðvers að hann hafi átt þátt í innflutningi fíkniefnanna sem í þessum ákærulið greinir. Ber samkvæmt þessu að sýkna hann af þessum hluta ákærunnar.

Rannsóknaraðilar hafa borið um mikilvægi framburðar ákærða Sævars Sverrissonar og jafnframt um það að ekkert í rannsóknargögnum bendi til þess að hann segi ósatt um það að hann hafi ekki vitað af fíkniefnunum. Má í þessu sambandi vísa til vitnisburðar rannsóknarlögreglumannanna Barkar Árnasonar og Þorbjörns Sigurðssonar sem rakinn var. Þá bar vitnið Jens Gunnarsson rannsóknarlögreglumaður um það að hann byggði álit sitt um að ákærði Sævar héldi undan upplýsingum um fíkniefnin á tilfinningu sinni en ekki á rannsóknargögnum. Að mati dómsins er framburður ákærða Sævars Sverrissonar trúverðugur. Gegn eindreginni neitun hans frá upphafi er ósannað að hann hafi skipulagt fíkniefnainnflutninginn ásamt ákærða Geir Hlöðveri sem er sýknaður af þessum hluta ákærunnar eins og rakið var. Ákærði Sævar er því sýknaður af þeim hluta þessa ákæruliðar sem lýtur að skipulagi fíkniefnainnflutningsins.

Ákærði Sævar tók að sér að koma kössunum hingað til lands og vissi að í þeim væru steralyf. Hann tók við kössunum ytra án þess að ganga úr skugga um það hvert raunverulegt innihald væri. Þetta gerði hann þrátt fyrir að honum hafi brugðið ytra er í ljós kom að kassarnir voru þrír eins og hann bar. Þótt hugur hans hafi ekki staðið til þess að flytja fíkniefni til landsins ber hann refsiábyrgð á flutningi efnanna til landsins í samræmi við ákæruna, að teknu tilliti til þess sem áður sagði um skipulag og hlut ákærða Geirs Hlöðvers, þar sem ákærði Sævar lét sér í léttu rúmi liggja hvað kassarnir innihéldu í raun og gekk ekki úr skugga um það og mátti því gera ráð fyrir hverju sem er í þessu efni.

Brot ákærða Sævars samkvæmt þessum ákærulið eru rétt færð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákæruliður VII Sannað er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í þessum ákærulið greinir og er brot hans rétt fært til refsiákvæða í ákærunni.

Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.

Ákæruliður VIII Sannað er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í þessum ákærulið greinir og eru brot hans rétt færð til refsiákvæða í ákærunni.

Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.

Ákæruliður IX Sannað er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í þessum ákærulið greinir og er brot hans rétt fært til refsiákvæða í ákærunni.

Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.

Ákærði Sævar Sverrisson hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Hann játar brot sín hreinskilnislega, eins og rakið var vissi hann ekki um fíkniefnin í gáminum, þótt hann sé sakfelldur fyrir þann innflutning. Ásetningsstig er því lágt er varðar fíkniefnin í VI. kafla ákæru. Hann hefur upplýst um aðild annarra eftir getu. Er þetta virt ákærða til refsilækkunar. Á móti kemur að magn fíkniefnanna samkvæmt ákærulið VI er mjög mikið. Refsing ákærða Sævars er ákvörðuð með hliðsjón 77. gr. almennra hegningarlaga og þykir þannig hæfilega ákvörðuð fangelsi í  4 ár og 6 mánuði.  Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga skal draga frá refsivist ákærða Sævars gæsluvarðhald sem hann sætti frá 11. október 2011 til 7. mars 2012.

Ákærði Geir Hlöðver hefur frá árinu 1989 hlotið 9 refsidóma fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnabrot, m.a. brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga. Síðast hlaut hann refsidóm 23. júní 2011, fangelsi í 2 ár fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og fíkniefna- og umferðarlagabrot. Fíkniefnin sem í I. kafla ákæru greinir voru ætluð í söluskyni og varðar brotið því aukinni refsingu, sbr. ítrekunarákvæði 8. tl. 5. gr. laga nr. 65/1974. Refsing ákærða er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlega og þykir refsing ákærða Geirs Hlöðvers þannig hæfilega ákvörðuð fangelsi í 2 ár. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga skal draga frá refsivist ákærða Geirs Hlöðvers gæsluvarðhald sem hann sætti frá 30. október 2011 til 8. desember 2011.

Ákærði Sævar Þór Óskarsson hlaut á árinu 2002, 2 ára fangelsisdóm fyrir fíkniefnabrot. Hann hefur síðan gengist undir þrjár lögreglustjórasáttir fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnabrot. Hann hefur játað brot sín greiðlega og er það virt til refsilækkunar. Refsing hans er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og þykir hæfilega ákvörðuð fangelsi í 9 mánuði.

Með vísan til tilvitnaðra lagaákvæða umferðarlaga í ákæru skal ákærði Sævar Þór sviptur ökurétti í 12 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærða Dröfn er sakhæf. Hún hlaut hinn 17. maí 2010, 4 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í 2 ár fyrir peningaþvætti og fleiri brot. Með broti sínu nú hefur hún rofið skilorð þessa dóms og er hann dæmdur upp og ákærðu gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing hennar hæfilega ákvörðuð fangelsi í 9 mánuði, en eftir atvikum þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og í dómsorði greinir.

Ákærði Kristján gekkst undir lögreglustjórasátt á árinu 2011 fyrir brot gegn lyfjalögum. Hann hefur játað brot sín greiðlega og nýtur þess við refsiákvörðun. Refsing hans er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og þykir þannig hæfilega ákvörðuð fangelsi í 2 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar eins og í dómsorði greinir.

Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, 181. gr. tollalaga nr. 88/2005, 4. mgr. 48. gr. laga nr. 93/1994 og 2. mgr. 68. gr. laga nr. 30/1963, eru dæmd upptæk 10.612,41 g af amfetamíni, 6,29 g af hassi, 2,27 g af tóbaksblönduðu hassi, 469,55 g af kókaíni, 11,01 g af maríjúana, 8.100 MDMA-töflur og 11,73 g af MDMA, 6 kannabisplöntur, 8.800 Metenolon töflur, 100 stykki af Nandrolon stungulyfi, 91 stykki af Primobolan stungulyfi, 100 Stanozolol töflur, 790 Sustanon ampúlur, 148 stykki af Testosteron stungulyfi, 1.800 Teostosteron töflur, 60 Danazol töflur og 60 millilítrar af Trenbolon stungulyfi, 71 millilítri af Deca-Durabolin stungulyfi, 900 Deca-Durabolin töflur, 76 Stanozolol töflur, 30 millilítrar af Metandrostentolon stungulyfi, 40 millilítrar af Metandrostentolon töflum, 10 millilítrar af Nandrolon stungulyfi, 6 millilítrar af Sustanon, 300 millilítrar af Testosteron stungulyfi, 90 millilítrar af Trenbolon stungulyfi, 70 millilítrar af Winstrol Depot/Stanazolol stungulyfi og 3 ampúlur af stungulyfinu Somatropin.

Útlagður sakarkostnaður ákæruvaldsins liggur fyrir samkvæmt yfirliti um sakarkostnað, dagsettu 17. janúar 2012.

Ákærða Dröfn greiði 284.000 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar.

Ákærðu Geir Hlöðver, Sævar Sverrisson og Kristján greiði óskipt 331.021 krónu vegna útlagðs sakarkostnaðar.

Ákærði Kristján greiði 70.053 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar.

Ákærði Sævar Þór greiði 24.230 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar.

502.000 króna málsvarnarlaun Jóhannesar Árnasonar héraðsdómslögmanns, skipaðs verjanda ákærða Edvins Karls,  greiðist úr ríkissjóði.

Ákærða Dröfn greiði Grími Sigurðarsyni héraðsdómslögmanni 542.788 króna málsvarnarlaun og 58.900 krónur vegna útlagðs kostnaðar. Þóknun lögmannsins er fyrir vinnu undir rannsókn málsins og dómsmeðferð.

Ákærði Geir Hlöðver greiði helming 2.510.000 króna málsvarnarlauna Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar hæstaréttarlögmanns á móti helmingi sem greiðist úr ríkissjóði. Þóknun lögmannsins er fyrir vinnu undir rannsókn málsins og dómsmeðferð.

Ákærði Kristján greiði 502.000 króna málsvarnarlaun Jóhannesar Karls Hermannssonar héraðsdómslögmanns.

Ákærði Sævar Sverrisson greiði 2.510.000 króna málsvarnarlaun Ómars Arnar Bjarnþórssonar héraðsdómslögmanns. Þóknun lögmannsins er fyrir vinnu undir rannsókn málsins og dómsmeðferð.

Ákærði Sævar Þór greiði 3/4 hluta 753.000 króna málsvarnarlauna Sigmundar Hannessonar hæstaréttarlögmanns á móti 1/4 hluta sem greiðist úr ríkissjóði. Þóknunin er fyrir vinnu lögmannsins undir rannsókn málsins og dómsmeðferð.

Tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun þóknunar lögmanna.

Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari flutti málið fyrir ákæruvaldið.

Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, Edvin Karl Benediktsson, er sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Ákærði, Sævar Sverrisson, sæti fangelsi í 4 ár og 6 mánuði. Frá refsivist hans dragist gæsluvarðhald sem hann sætti frá 11. október 2011 til 7. mars 2012.

Ákærði, Geir Hlöðver Ericsson, sæti fangelsi í 2 ár. Frá refsivist hans dragist gæsluvarðhald sem hann sætti frá 30. október 2011 til 8. desember 2011.

Ákærði, Sævar Þór Óskarsson, sæti fangelsi í 9 mánuði.

Ákærði, Sævar Þór Óskarsson, skal sviptur ökurétti í 12 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærða, Dröfn Erlingsdóttir, sæti fangelsi í 9 mánuði.

Ákærði, Kristján B. Kröyer Þorsteinsson, sæti fangelsi í 2 mánuði.

Fresta skal fullnustu refsivistar ákærðu Drafnar og Kristjáns skilorðsbundið í 2 ár frá birtingu dómsins að telja og falli refsing hvors um sig niður að þeim tíma liðnum haldi hvort um sig almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptæk eru dæmd 10.612,41 g af amfetamíni, 6,29 g af hassi, 2,27 g af tóbaksblönduðu hassi, 469,55 g af kókaíni, 11,01 g af maríjúana, 8.100 MDMA- töflur og 11,73 g af MDMA, 6 kannabisplöntur, 8.800 Metenolon töflur, 100 stykki af Nandrolon stungulyfi, 91 stykki af Primobolan stungulyfi, 100 Stanozolol töflur, 790 Sustanon ampúlur, 148 stykki af Testosteron stungulyfi, 1.800 Teostosteron töflur, 60 Danazol töflur og 60 millilítrar af Trenbolon stungulyfi, 71 millilítri af Deca-Durabolin stungulyfi, 900 Deca-Durabolin töflur, 76 Stanozolol töflur, 30 millilítrar af Metandrostentolon stungulyfi, 40 millilítrar af Metandrostentolon töflum, 10 millilítrar af Nandrolon stungulyfi, 6 millilítrar af Sustanon, 300 millilítrar af Testosteron stungulyfi, 90 millilítrar af Trenbolon stungulyfi, 70 millilítrar af Winstrol Depot/Stanazolol stungulyfi og 3 ampúlur af stungulyfinu Somatropin.

Ákærða Dröfn greiði 284.000 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar.

Ákærðu Geir Hlöðver, Sævar Sverrisson og Kristján greiði óskipt 331.021 krónu vegna útlagðs sakarkostnaðar.

Ákærði Kristján greiði 70.053 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar.

Ákærði Sævar Þór greiði 24.230 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar.

502.000 króna málsvarnarlaun Jóhannesar Árnasonar héraðsdómslögmanns, skipaðs verjanda ákærða Edvins Karls,  greiðist úr ríkissjóði.

Ákærða Dröfn greiði Grími Sigurðarsyni héraðsdómslögmanni 542.788 króna málsvarnarlaun og 58.900 krónur vegna útlagðs kostnaðar.

Ákærði Geir Hlöðver greiði helming 2.510.000 króna málsvarnarlauna Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar hæstaréttarlögmanns á móti helmingi sem greiðist úr ríkissjóði.

Ákærði Kristján greiði 502.000 króna málsvarnarlaun Jóhannesar Karls Hermannssonar héraðsdómslögmanns.

Ákærði Sævar Sverrisson greiði 2.510.000 króna málsvarnarlaun Ómars Arnar Bjarnþórssonar héraðsdómslögmanns.

Ákærði Sævar Þór greiði 3/4 hluta 753.000 málsvarnarlauna Sigmundar Hannessonar hæstaréttarlögmanns á móti 1/4 hluta sem greiðist úr ríkissjóði.

Tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun þóknunar lögmanna.

Guðjón St. Marteinsson