Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

23 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 7. gr. laga nr. 21/1992 — Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna

Landsréttur birt 17. febrúar 2023

474/2021

Menntasjóður námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður) gegn Ingveldi Ingólfsdóttur og Guðmundi Bergmann Jóhannssyni (Sigmundur Hannesson lögmaður)

Sakarefni málsins laut að ábyrgð I og G á námsláni sem stofnað var til með útgáfu skuldabréfs í september 2008. Fyrir lá að við gildistöku laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna 26. júní 2020 var skuldabréfið í vanskilum en bréfið var síðan gjaldfellt af hálfu M 30. október sama ár. I tók hvorki til varna í héraði né fyrir Landsrétti en G byggði á því að ábyrgð hans tæki aðeins til þess hluta lánsins sem hefði verið gjaldfallinn við gildistöku laganna. Um það vísaði hann til 1. mgr. ákvæðis II til bráðabirgða með lögunum þar sem segir að ábyrgð ábyrgðarmanns á námslánum í tíð eldri laga félli niður við gildistöku þeirra enda væri lánþegi í skilum við Lánasjóð íslenskra námsmanna. Með dómi Hæstaréttar 21. desember 2022 í máli nr. 34/2022 var því hafnað að túlka bæri fyrrgreint bráðabirgðaákvæði laganna svo að ábyrgð næði einungis til þess hluta láns sem hefði verið gjaldfallinn við gildistöku þeirra. Með vísan til þeirrar niðurstöðu breytti G kröfugerð sinni á þann veg að fallast á kröfur M um annað en málskostnað. Því til samræmis var málið dómtekið og dómur lagður á það í samræmi við samþykki hans, sbr. 1. mgr. 98. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í dómi Landsréttar var jafnframt fallist á kröfu M á hendur I þar sem fyrir lá að fyrrgreindu skilyrði laga nr. 60/2020 til niðurfellingar ábyrgðar væri ekki fullnægt en um það var jafnframt vísað til dóms Hæstaréttar í máli nr. 34/2022. Var I samkvæmt því gert að greiða umrædda ábyrgðarskuld óskipt með G ásamt nánar tilgreindum dráttarvöxtum. Með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 þótti rétt að fella málskostnað niður á báðum dómstigum.

Landsréttur birt 8. apríl 2022

330/2021

Menntasjóður námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður) gegn Kristni D. Grétarssyni (Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson lögmaður)
Lykilorð: Lánssamningur. Ábyrgð.

A gaf út skuldabréf til L, nú M, árið 2005 og gekkst K í sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu lánsins. M gjaldfelldi lánið 21. júlí 2020 vegna vanskila A á afborgunum 1. september 2019 og 1. mars 2020 og höfðaði síðan mál á hendur A og K til heimtu skuldar samkvæmt skuldabréfinu. K byggði á því að ábyrgð hans væri fallin niður með vísan til ákvæðis II til bráðabirgða í lögum nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna sem tóku gildi 26. júní 2020 og áttu að koma til framkvæmda 1. júlí sama ár. Með dómi héraðsdóms var A dæmd til að greiða M stefnufjárhæðina en K var sýknaður. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar 1. mgr. ákvæðis II til bráðabirgða væri skýrt eftir orðanna hljóðan yrði skilyrðið um að lánþegi væri ,,í skilum“ ekki túlkað öðruvísi en svo að með því væri átt við að lánþegi hefði greitt af láninu í samræmi við skilmála skuldabréfsins. Lagði rétturinn til grundvallar að A hefði ekki verið í skilum við L, nú M, við gildistöku laganna og því hefðu ekki verið uppfyllt skilyrði 1. mgr. ákvæðis II til bráðabirgða til niðurfellingar á ábyrgð K. Voru kröfur M á hendur K teknar til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júlí 2021

E-1742/2021

Menntasjóður námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn A o.fl og Málsmeðferð og dómkröfur aðila (Ívar Þór Jóhannsson lögmaður)

Talið var að ábyrgð ábyrgðarmanns á námsláni sem tekið var árið 2008, vegna ógjaldfallinna eftirstöðva, hafi fallið niður við gildistöku laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. maí 2021

E-6843/2020

Menntasjóður námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður) gegn A og B

Fallist var á greiðslukröfu stefnanda gagnvart stefnda, skuldara námsláns í vanskilum, á gjaldfelldum eftirstöðvum lánsins. Í ljósi ákvæðis nr. II til bráðabirgða við lög nr. 60/2020, sem tóku gildi áður en umrætt lán var gjaldfellt af hálfu stefnanda samkvæmt skilmálum sínum, var hins vegar talið að ábyrgð meðstefnda, ábyrgðarmanns þess sama láns, næði nú einungis til gjaldfallinna afborganna af láninu, sem ábyrgðarmaðurinn taldist þegar hafa greitt, en ekki til þess meginhluta lánsins sem taldist hafa verið í skilum áður en umrædd lög, sem fjalla m.a. um brottfall ábyrgða, tóku gildi og var hinn meðstefndi ábyrgðarmaður því sýknaður af dómkröfum stefnanda í málinu.

Landsréttur birt 25. október 2019

97/2019

Iðunn Eir Jónsdóttir (Björgvin Jónsson lögmaður, Gísli Tryggvason lögmaður, 2. prófmál) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður)

I höfðaði mál á hendur L og krafðist þess að verða sýknuð af kröfu L um endurgreiðslu þriggja lána, samtals að fjárhæð 1.444.918 krónur, sem I var sjálfskuldarábyrgðaraðili að og tekin voru á árunum 1990-1992 í gildistíð laga nr. 72/1982 um námslán og námsstyrki. Fyrir lá að endurgreiðsla lánanna átti að hefjast þremur árum eftir námslok lántakanda, sem skráð voru 3. ágúst 1994. Árið 1992 tóku gildi lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og kvað 18. gr. laganna á um að skuldari samkvæmt lögunum, sem væri jafnframt að endurgreiða námslán samkvæmt lögum nr. 71/1982 eða eldri lögum, skyldi fyrst endurgreiða að fullu lán sem tekin væru samkvæmt nýju lögunum. Byggði I á því að þágildandi ákvæði 18. gr. laga nr. 21/1992 væri óskuldbindandi fyrir ábyrgðarmenn án samþykkis þeirra, enda bryti ákvæðið gegn þeirri grundvallarreglu fjármunaréttarins að greiðslum frá skuldara skyldi fyrst ráðstafa til elstu skuldar, auk þess sem um væri að ræða afturvirka íhlutun löggjafans sem hefði íþyngjandi áhrif á stjórnarskrárvarin eignarréttindi I. Í dómi Landsréttar kom fram að með vísan til dóma Hæstaréttar í málum nr. 385/2017, 492/2017 og 622/2011 yrði talið að þótt þágildandi 18. gr. laga nr. 21/1992 raskaði friðhelgi eignaréttar ábyrgðarmanns yrði beiting hennar ekki í andstöðu við 72. gr. stjórnarskrárinnar svo lengi sem meðalhófs væri gætt. Þá var talið að ákvæði 18. gr. laganna hefði ekki sett I í slíka óvissu eða raskað kröfuréttarsambandi hennar við L með svo íþyngjandi hætti að í bága fari við 72. gr. stjórnarskrár. Með hliðsjón af framangreindu var dómurinn staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. febrúar 2019

E-1555/2018

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Garðari Steini Ólafssyni (Garðar Steinn Ólafsson lögmaður)

Fallist á dómkröfu stefnanda vegna námsláns stefnda. En ekki var fallist á að sú málsmeferð sem leiddi til gjaldfellingar námslánsins hefði verið óforsvaranleg.

Hæstiréttur birt 1. nóvember 2018

492/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Guðrúnu Axelsdóttur (Ólafur Örn Svansson lögmaður, Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður, 3. prófmál)

L höfðaði mál gegn GA til heimtu skuldar samkvæmt átta skuldabréfum sem GR gaf út á árunum 1988 til 1989 og GA hafði gengist í sjálfskuldarábyrgð fyrir. Námslok GR voru árið 1991 og við þau voru lánin sameinuð í eitt lán. Árið 1993 hóf GR nám að nýju og gaf hann þá út annað skuldabréf til L. Höfðu lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna þá leyst af hólmi eldri lög nr. 72/1982 um námslán og námsstyrki. Í lögum nr. 21/1992 var mælt svo fyrir um að stæði lántaki í skuld við L vegna námslána sem tekin hefðu verið eftir reglum þeirra laga og einnig í skuld vegna námslána sem tekin höfðu verið eftir reglum eldri laga nr. 72/1982 skyldi skuldin sem lyti ákvæðum laga nr. 21/1992 fyrst endurgreidd að fullu og greiðsla af eldri skuldinni frestast þar til það hefði verið gert. L kvað að innheimta krafna samkvæmt skuldabréfinu frá 1993 hefði lokið án árangurs og í framhaldi af því hefði skuld samkvæmt eldra skuldabréfinu verið tekin aftur til innheimtu á árinu 2013. Ekkert fékkst hins vegar greitt af skuldinni og höfðað L því á árinu 2014 mál til heimtu skuldarinnar á hendur GA óskipt með GR og öðrum nafngreindum ábyrgðarmanni en málið var fellt niður. Höfðaði L síðan mál þetta á árinu 2016. Í dómi Hæstaréttar kom fram að fyrirmæli 18. gr. laga nr. 21/1992 tækju eingöngu mið af tilvikum þar sem skuld við L vegna námsláns eftir ákvæðum laga nr. 21/1992 fengist greidd að fullu en hvergi væri nokkuð sagt um afdrif eldri skuldar ef viðleitni til innheimtu þeirri yngri bæri ekki árangur og enn síður hvað þyrfti nánar að koma til svo að unnt væri að slá föstu að yngri skuldin fengist ekki greidd. Ófært væri að L gæti gagnvart ábyrgðarmanni á skuld sem stofnað var til í tíð laga nr. 72/1982 haft í þeirri aðstöðu sjálfdæmi um hvenær sá tími gæti talist vera kominn að hefja mætti innheimtu á henni vegna árangurslausrar innheimtu á yngri skuld. Yrði því að leggja til grundvallar að L hefði borið að gera það þegar eftirstöðvar kröfu hans á hendur GR samkvæmt skuldabréfinu frá 1993 voru allar gjaldfallnar vegna vanskila á greiðslu afborgunar á gjalddaga á árinu 2009. Þegar L höfðaði fyrrgreint mál á árinu 2014 hefði verið liðinn fjögra ára fyrningartími kröfu hans á hendur GA samkvæmt 3. tölulið 3. gr. þágildandi laga nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda. Var GA því sýknuð af kröfu L.

Hæstiréttur birt 1. nóvember 2018

385/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður) gegn Mörtu Gunnlaugu Ragnarsdóttur (Ragnar Halldór Hall lögmaður)

L höfðaði mál gegn M til heimtu skuldar samkvæmt níu skuldabréfum sem H gaf út á árunum 1986 til 1989 og M hafði gengist í sjálfskuldarábyrgð fyrir. Námslok H voru árið 1989 og við þau voru lánin sameinuð í eitt lán. Árið 1994 hóf H nám að nýju og gaf hún þá út skuldabréf til L sem M gekkst einnig í sjálfskuldarábyrgð fyrir. Höfðu lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna þá leyst af hólmi eldri lög nr. 72/1982 um námslán og námsstyrki. Í lögum nr. 21/1992 var mælt svo fyrir um að stæði lántaki í skuld við L vegna námslána sem tekin hefðu verið eftir reglum þeirra laga og einnig í skuld vegna námslána sem tekin höfðu verið eftir reglum eldri laga nr. 72/1982 skyldi skuldin sem lyti ákvæðum laga nr. 21/1992 fyrst endurgreidd að fullu og greiðsla af eldri skuldinni frestast þar til það hefði verið gert. L kvaðst hafa hætt tilraunum til innheimtu á skuld samkvæmt skuldabréfinu frá 1994 og í framhaldi af því hefði skuld samkvæmt eldra skuldabréfinu verið tekin aftur til innheimtu á árinu 2012. Ekkert fékkst hins vegar greitt af skuldinni og höfðað L því á árinu 2013 mál til heimtu hennar á hendur H og M en því var vísað frá héraðsdómi. Höfðaði L síðan mál þetta á hendur M á árinu 2016. Í dómi Hæstaréttar kom fram að fyrirmæli 18. gr. laga nr. 21/1992 tækju eingöngu mið af tilvikum þar sem skuld við L vegna námsláns eftir ákvæðum laga nr. 21/1992 fengist greidd að fullu en hvergi væri nokkuð sagt um afdrif eldri skuldar ef viðleitni til innheimtu þeirri yngri bæri ekki árangur og enn síður hvað þyrfti nánar að koma til svo að unnt væri að slá föstu að yngri skuldin fengist ekki greidd. Ófært væri að L gæti gagnvart ábyrgðarmanni á skuld sem stofnað var til í tíð laga nr. 72/1982 haft í þeirri aðstöðu sjálfdæmi um hvenær sá tími gæti talist vera kominn að hefja mætti innheimtu á henni vegna árangurslausrar innheimtu á yngri skuld. Yrði því að leggja til grundvallar að L hefði borið að gera það þegar eftirstöðvar kröfu hans á hendur H samkvæmt skuldabréfinu frá 1994 voru allar gjaldfallnar vegna vanskila á greiðslu afborgunar á gjalddaga á árinu 2002. Þegar L höfðaði fyrrgreint mál á hendur M árið 2013 hefði löngu verið liðinn fjögra ára fyrningartími kröfu hans á hendur henni samkvæmt 3. tölulið 3. gr. þágildandi laga nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda. Var M því sýknuð af kröfu L.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

372/2017

Jónína Björk Þorvaldsdóttir (Hlynur Jónsson hrl, Áslaug Árnadóttir hrl, 4. prófmál) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Lykilorð: Skuldabréf. Fyrning. Gjafsókn.

L krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður málskotsnefndar L þar sem ákvörðun stjórnar L var felld úr gildi og skuld J vegna námslána samkvæmt tveimur skuldabréfum felld niður. Vanskil urðu á endurgreiðslu J á námsláni frá og með gjalddaga í mars 2009, en J gaf út sérstakt vanskilaskuldabréf í mars 2015. Deildu aðilar einkum um fyrningarfrest skuldarinnar og við hvaða tímamark skyldi miða í því sambandi. Fallist var á með J að bæði skuldabréfin hefðu orðið gjaldkræf tveimur árum eftir ákvörðuð námslok, sem var sama tímamark fyrir bæði skuldabréfin. Á hinn bóginn var fallist á það með L að honum hefði verið rétt að ráðstafa greiðslum J samkvæmt 8. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna fyrst inn á eldra lánið. Það væri meginregla kröfuréttar að þegar kröfuhafi ætti margar kröfur á hendur sama skuldara ætti skuldarinn val um inn á hvaða skuld hann ráðstafaði greiðslu hverju sinni. Léti skuldari engin fyrirmæli fylgja greiðslu sinni bæri að miða við að hann eftirléti kröfuhafa frjálst val um inn á hvaða skuld greiðslunni skyldi ráðstafað. Með því að greiða athugasemdalaust greiðsluseðla sem L sendi hefði J samþykkt í verki fyrirkomulag innheimtunnar. Á meðan J greiddi inn á námslán sitt í samræmi við fyrirmæli 8. gr. laga nr. 21/1992 hefði hvorugt skuldabréfanna verið í vanskilum. Þá var vísað til þess að krafa L væri samkvæmt skuldabréfi sem samkvæmt 1. tölulið 4. gr. laga nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda fyrndist á 10 árum. Ekki var fallist á með J að rök stæðu til þess að fyrirmæli í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 21/1992 um aðfararheimild yrðu lögð að jöfnu við ákvæði áðurgildandi laga um lögtaksrétt þannig að 4 ára fyrningarfrestur 3. töluliðar 3. gr. laga nr. 14/1905 yrði talinn gilda um kröfuna. Þótti ljóst að kröfur L samkvæmt báðum skuldabréfunum væru ófyrndar. Í því ljósi hefðu ekki verið efni til þess að víkja til hliðar loforði J um greiðslu samkvæmt vanskilaskuldabréfinu á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga svo sem gert hafði verið í úrskurði málskotsnefndar L. Með vísan til alls framangreinds var úrskurður málskotsnefndar L því felldur úr gildi.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

731/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Silvíu Rós Sigurðardóttur (Einar Hugi Bjarnason hrl, Þorsteinn I. Valdimarsson hdl, 1. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur S samkvæmt skuldabréfi sem hún gaf út til L vegna námslána. Bú S var tekið til gjaldþrotaskipta í desember 2014 og við lok þeirra 2. mars 2015 hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur S háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að S hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skuldar við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

730/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Skuldabréf Gjaldþrotaskipti Fyrning (Skúli Bjarnason hrl, Guðmundur Pétursson hdl, 4. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur J samkvæmt tveimur skuldabréfum sem hún gaf út til L vegna námslána. Bú J var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar 2013 og við lok þeirra 14. ágúst sama ár hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur J háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að J hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skulda við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

645/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Guðrúnu Ósk Ásmundsdóttur (Björn Jóhannesson hrl, Arnór Halldórsson Hafstað hdl, 2. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur G samkvæmt skuldabréfi sem hún gaf út til L vegna námslána. Bú G var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar 2013 og við lok þeirra 31. maí sama ár hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur G háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að G hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skuldar við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2017

644/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Kristni L. Aðalbjörnssyni (Óskar Sigurðsson hrl, Hulda Árnadóttir hdl, 1. prófmál)

L krafðist þess að viðurkennd yrðu slit á fyrningu kröfu sinnar á hendur K samkvæmt skuldabréfi sem hann gaf út til L vegna námslána. Bú K var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar 2013 og við lok þeirra 31. maí sama ár hófst nýr tveggja ára fyrningartími á kröfu L. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri réttur L til að fá slitið fyrningu kröfu sinnar á hendur K háður þeim skilyrðum að hann sýndi fram á annars vegar að hann hefði sérstaka hagsmuni af því og hins vegar að líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfunni á nýjum fyrningartíma. Að því er varðaði fyrra skilyrði þess ákvæðis vísaði Hæstiréttur til þess að líta yrði svo á að í tilvikum, þar sem krafa hefði ekki orðið til út af ólögmætri háttsemi skuldara, fæli skilyrðið einkum í sér að kröfuhafi þyrfti vegna sinna eigin aðstæðna að hafa svo að teljandi væri hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að tiltekin krafa yrði ekki látin falla niður fyrir fyrningu. Taldi Hæstiréttur aðstæður L ekki sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá yrði ekki framhjá því litið að L væri ríkisstofnun, sem fengi fé til að standa undir starfsemi sinni m.a. með framlögum ríkisins, þess sama og hefði í skjóli löggjafarvalds síns sett 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 án þess að undanþiggja áfrýjanda eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Þar sem því hefði ekki verið borið við að K hefði með ólögmætri háttsemi stofnað til skuldar við L taldi Hæstiréttur að skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 væru ekki uppfyllt og þurfti þá ekki að líta frekar til þess að L hefði á engan hátt leitt í ljós að líkur væru á að fullnusta kröfunnar gæti fengist á nýjum fyrningartíma.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. maí 2017

E-276/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Jónínu Björk Þorvaldsdóttur (Hlynur Jónsson hrl)
Lykilorð: Ógildingarmál.

Ekki var fallist á að námslánaskuld stefndu væri fallin niður vegna fyrningar. Felldur var úr gildi úrskurður málskotsnefndar Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá 25. janúar 2017 þar sem námslánaskuld stefndu samkvæmt tveimur skuldabréfum var felld niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. maí 2017

E-2472/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Guðrúnu Axelsdóttur (Jóhannes Stefán Ólafsson hdl)

Talið var að aðferð við innheimtu námslána sem var ákveðin í lögum um lánasjóðinn, gæti ekki skert réttindi ábyrgðarmanns sem gekkst í ábyrgð fyrir gildistöku viðkomandi ákvæðis. Var enda hvergi getið um stöðu ábyrgðarmanna undir þessum kringumstæðum í lögum eða lögskýringargögnum.

Hæstiréttur birt 27. október 2016

119/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn A og B (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl)

A gaf út skuldabréf til L vegna námsláns árið 2005 og tókst B á hendur sjálfskuldarábyrgð á þeirri skuld. Bú A var tekið til gjaldþrotaskipta í september 2011 og lauk skiptum í júlí 2012 en L lýsti ekki kröfu í þrotabúið. L myndaði afborgun af skuldabréfinu með gjalddaga 1. mars 2014 sem A greiddi. A hafnaði frekari greiðsluskyldu þar sem hann taldi að skuld sín hefði fyrnst tveimur árum eftir að skiptum lauk á búi hans, samkvæmt 2., sbr. 3. mgr. 165 gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. L höfðaði í kjölfarið mál þetta til heimtu eftirstöðva skuldarinnar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með breytingum sem lögleiddar hefðu verið með 1. gr. laga nr. 142/2010 og hefðu falið í sér styttingu fyrningarfrests krafna á hendur þrotamanni og þrengri rétt kröfuhafa til þess að rjúfa fyrningu hefði verið miðað að því að auðvelda þeim einstaklingum sem sætt hefðu gjaldþrotaskiptum að koma fjármálum sínum á réttan kjöl. Hinsvegar hefði engin breyting verið gerð á því með hvaða hætti skuldari gæti rofið fyrningu á hendur sér sbr. 6. gr. laga nr. 14/1905 um fyrningu skulda og annarra kröfuréttinda. Með fyrirvaralausri afborgun A hefði hann rofið fyrningu kröfunnar og við hefði tekið nýr fyrningarfrestur í samræmi við 4. gr. laga nr. 14/1905. Hefði því krafa L verið ófyrnd þegar málið var höfðað og var A og B gert að greiða L umkrafða fjárhæð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2016

E-554/2016

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Sylvíu Rós Sigurðardóttur (Sigurður Árnason hdl)

Ágreiningur var uppi um hvort skilyrði 3. mgr. 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. um sérstaka hagsmuni af fyrningarslitum væri fullnægt, sem og skilyrði um hvort líkur mætti telja á að fullnusta gæti fengist á kröfu á fyrningartíma. Var hvorugu skilyrðinu talið fullnægt. Var kröfu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um fyrningarslit á kröfu á grundvelli námsláns því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2016

E-2226/2015

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Z (Björn Jóhannesson hrl)

Bú stefnda hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 3. mgr. 165 gr. laga nr. 21/1991, sbr. 1. gr. laga nr. 142/2010, fyrntust á tveimur árum allar kröfur sem hafði verið lýst við skiptin og ekki fengist greiddar nema kröfuhafi höfðaði mál á hendur þrotamanni innan fyrningarfrests og sýndi fram á að hann hefði sérstaka hagsmuni af því að rjúfa fyrningu kröfu sinnar, svo og að líkur væru á fullnustu kröfunnar á nýjum fyrningartíma. Því var hafnað að stefnandi, Lánasjóður íslenskra námsmanna, hefði sýnt fram á sérstaka hagsmuni sína af því að rjúfa fyrningu þeirrar kröfu sem hann lýsti við skipti á búi stefnda en fékk ekki greidda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2016

E-2225/2015

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Y (Óskar Sigurðsson hrl)

Bú stefnda hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 3. mgr. 165 gr. laga nr. 21/1991, sbr. 1. gr. laga nr. 142/2010, fyrntust á tveimur árum allar kröfur sem hafði verið lýst við skiptin og ekki fengist greiddar nema kröfuhafi höfðaði mál á hendur þrotamanni innan fyrningarfrests og sýndi fram á að hann hefði sérstaka hagsmuni af því að rjúfa fyrningu kröfu sinnar, svo og að líkur væru á fullnustu kröfunnar á nýjum fyrningartíma. Því var hafnað að stefnandi, Lánasjóður íslenskra námsmanna, hefði sýnt fram á sérstaka hagsmuni sína af því að rjúfa fyrningu þeirrar kröfu sem hann lýsti við skipti á búi stefnda en fékk ekki greidda.