Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lykilorð: Námssamningur

Hæstiréttur birt 18. júní 2015

822/2014

Árni Svavar Arnarson (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Isavia ohf (Andri Árnason hrl)

Á, sem I ohf. hafði vísað úr starfsþjálfun til flugumferðarstjóra, höfðaði mál á hendur I ohf. til heimtu skaðabóta vegna tjóns af völdum brottrekstursins og miskabóta vegna þess hvernig staðið hefði verið að honum. Talið var að ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 giltu um töku ákvarðana I ohf. um rétt eða skyldu manna innan hlutaðeigandi verksviðs. Þá var talið að Á hefði ekki staðist þær prófkröfur sem gerðar voru til árangurs í verklegum æfingum á námstímanum samkvæmt þeirri þjálfunaráætlun sem um nám hans gilti og að það úrræði að vísa Á úr námi af þeirri ástæðu hefði átt sér stoð í lögum. Í ljósi þeirra skilmála er giltu um námið og ástæðna sem lágu til grundvallar námslokum Á voru ekki talin skilyrði til að dæma honum bætur fyrir fjártjón. Á hinn bóginn var lagt til grundvallar að vegna þess hvernig staðið hefði verið að brottvísun Á úr náminu hefði hann orðið fyrir miska sem veitti honum rétt til bóta samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og voru þær ákveðnar 600.000 krónur.

Hæstiréttur birt 23. október 2014

141/2014

Landspítalinn (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Súsönnu Kristínu Knútsdóttur (Jón Sigurðsson hrl)

S, sem var hjúkrunarfræðingur og nemandi í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands, réð sig sem hjúkrunarfræðing í starfsnámi hjá L vorið 2011. Í ráðningarsamningi hennar kom fram starfsheitið hjúkrunarfræðingur og að starfshlutfall væri 80%. Skyldu laun greiðast samkvæmt nánar tilgreindum launaflokki og ráðning S vera tímabundin til 31. mars 2012. S krafði L um greiðslu fullra launa til samræmis við 80% starfshlutfall fyrir það tímabil sem hún hafði verið í starfsnámi hjá L og hélt fram að laun hennar hefðu verið skert frá því, sem samið hefði verið um. Í dómi héraðsdóms var krafa S tekin til greina með vísan til orðalags ráðningarsamnings aðilanna og tekið fram að L hefði verið í lófa lagið að útfæra efni samningsins með öðrum hætti en gert var, ef ætlunin hefði verið að semja um önnur kjör en þar væru ákvörðuð. Í dómi Hæstaréttar var á hinn bóginn talið, meðal annars með vísan til bréfasamskipta forstöðumanns fræðasviðs í ljósmóðurfræðum við Háskóla Íslands og framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs aðaláfrýjanda, svo og fyrirvara sem S hafði gert við ráðningarsamninginn, að S hafi verið ljóst að laun hennar yrðu ekki í samræmi við þau ákvæði samningsins að greitt yrði fyrir 80% starfshlutfall samkvæmt nánar tilgreindum launaflokki í kjarasamningi hjúkrunarfræðinga. Hún hafi þannig mátt vita að hluti starfstíma hennar yrði launalaus. Þá var ekki fallist á að L hefði, með því að greiða ljósmæðranemum í starfsnámi einungis fyrir hluta námstímans en nemum í skurð- og svæfingahjúkrun fyrir allan námstímann, mismunað þessum tveimur hópum með ólögmætum hætti, enda væri starfsnám þessara starfsstétta ósambærilegt. Var L því sýknaður af kröfu S.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2011

E-2824/2011

Lánasjóður íslenzkra námsmanna gegn Viðari, Má Matthíassyni, kveðinn og upp svohljóðandi
Lykilorð: Ábyrgð. Námssamningur.

Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda um að felldur yrði úr gildi úrskurður málskotsnefndar Lánasjóðs íslenzkra námsmanna.