Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Skipulögð glæpastarfsemi

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. maí 2026 kl. 9:00

S-750/2026

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson saksóknari) gegn Árna Khanh Minh Dao (Friðrik Smárason lögmaður), Daníel Ramadhan Sigurgeirssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), Davíð Viet Quoc Davíðssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) og John Minh Tuan Dang (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Fjórir menn sakfelldir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í ótilgreindan tíma selt óþekkt magn af fíkniefnum af tilteknum tegundum og fyrir að hafa haft þær tegundir fíkniefna í vörslum sínum við handtöku. Voru allir dæmdir til fangelsisvistar en fullnustu refsingar tveggja þeirra frestað skilorðsbundið að hluta. Frávísunarkröfum ákærðu, sem byggðu á því að ákæru málsins væri ábótavant, var hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. apríl 2025

S-471/2025

saksóknara 16. janúar sama ár, á hendur Sigurði Kristinssyni, kt. […], […], Baldri Þór Sigurðarsyni, kt. […], óstaðsettur í hús, Sigfúsi Bergmann Svavarssyni, kt. […], […] Agurim Xixa, kt. […], óstaðs (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sigurði Kristinssyni (Hilmar Magnússon lögmaður), Sigfúsi Bergmann Svavarssyni (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður), Baldri Þór Sigurðarsyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), Agurim Xixa (Snorri Sturluson lögmaður), Elsu Ruth Róbertsdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og Y (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)

Fjórir ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, en sýknaðir af skipulagðri brotastarfsemi. Ein ákærðu sakfelld fyrir hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrot og einn ákærðu sýknaður fyrir hlutdeild í tilraun.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. desember 2024

S-4044/2024

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari) gegn Jóni Inga Sveinssyni (Björgvin Jónsson lögmaður), Pétri Þór Elíassyni (Ólafur V. Thordersen lögmaður), Árna Stefáni Ásgeirssyni (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður), Hauki Ægi Haukssyni (Oddgeir Einarsson lögmaður), Gunnlaugi J. Skarphéðinssyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður), Valgerði Sif Sigurðardóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður), Tinnu Kristínu Gísladóttur (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), Thelmu Rún Ásgeirsdóttur (Elimar Hauksson lögmaður), Andra Þór Guðmundssyni (Almar Þór Möller lögmaður), Önnu Maríu Haraldsdóttur (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Skarphéðni Jóhannssyni (Leó Daðason lögmaður), Björk Jónsdóttur (Leifur Runólfsson lögmaður), Daníel Karim Mikaelssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) og Gunnari Karli Pálmasyni (Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelld fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot, skipulagða brotastarfsemi, innflutning fíkninaefna, peningaþvætti og vopnalagabrot.

Hæstiréttur birt 31. janúar 2013

521/2012

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Andreu Kristínu Unnarsdóttur og X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl, Tómas Hrafn Sveinsson hdl, Oddgeir Einarsson hrl, Jón Egilsson hrl, Auður Björg Jónsdóttir hdl, Erlendur Þór Gunnarsson hrl, Eva Hrönn Jónsdóttir hdl, Björgvin Jónsson hrl, Arnar Þór Stefánsson hrl) (Valgeir Kristinsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

A, EV og J voru sakfelld fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili A, veist að B og þvingað hann með ofbeldi úr úr íbúðinni og því næst veist að A með margvíslegu ofbeldi. Ó var sakfelldur fyrir sama brot, enda var talið sýnt að hann hefði komið að skipulagningu líkamsárásarinnar auk þess sem hann greiddi fyrir inngöngu þeirra A, EV og J á heimili A. Ó var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa skilið A eftir meðvitundarlitla og liggjandi í blóði sínu án bjargar og læst útidyrum að heimili hennar er hann hafði sig á brott. Á hinn bóginn voru þau A, EV, J og Ó sýknuð af ákæru um kynferðisbrot þar sem háttsemi þeirra hefði haft þann tilgang einan að meiða A. Sömu ákærðu voru einnig sýknuð af ákæru um rán. Ákæruvaldinu var ekki talin hafa tekist sönnun um sekt X í líkamsárásinni. Þeir X og Y voru auk fyrrgreindra ákærðu ákærð fyrir brot gegn 175. gr. a. almennra hegningarlaga, með vísan til þess að þau væru öll meðlimir í eða hefðu tengsl við samtök, sem lögregla hér á landi og erlendis hefði skilgreint sem alþjóðleg glæpasamtök, og að háttsemi þeirra hefði verið liður í skipulagðri brotastarfsemi. Þetta var ekki talið sannað. Loks var A sakfelld fyrir umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Var refsing A ákveðin fangelsi í fimm ár og sex mánuði, EV og J fangelsi í fjögur ár og sex mánuði og Ó í fjögur ár. Þeim A, EV, J og Ó var gert að greiða A óskipt 2.000.000 krónur í skaðabætur.