Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

105 dómar fundust

Lykilorð: Meðlag

Landsréttur birt 20. mars 2026 kl. 4:23

628/2025

A (Helga Vala Helgadóttir Bachmann lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá tveggja barna sinna, C og D, lögheimili þeirra og meðlag. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að B færi ein með forsjá barnanna, lögheimili þeirra yrði hjá henni og A gert að greiða B einfalt meðlag með hvoru barni. Þá var hafnað kröfu um að kveðið yrði á um inntak umgengnisréttar barnanna við A. Í dómi Landsréttar var bent á að börn aðila væru nú á átjánda og fimmtánda aldursári. Fyrir lægi skýrsla dómkvadds matsmanns sem rætt hafi við börnin, sem og skýrsla sérfræðings í málefnum barna sem héraðsdómur hafi aflað til að kanna afstöðu barnanna. Í viðtölum við matsmann og sérfræðing hefðu börnin verið afgerandi um að þau vildu hvorki vera með A né eiga við hann samskipti og sama afstaða hefði komið fram er dómendur í héraði ræddu við börnin. Ekki væru forsendur til að líta fram hjá einarðri afstöðu þeirra að þessu leyti. Þótt taka mætti undir með dómkvöddum matsmanni að B hafi ekki stutt nægilega við börnin í að umgangast A gæti það ekki talist þjóna hagsmunum þeirra að A og B færu sameiginlega með forsjá þeirra eða að lögheimili þeirra yrði fært til A. Hið sama ætti við um þá kröfu A að kveðið yrði á um umgengni við börnin í dómi. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um annað en málskostnað, en málskostnaður var felldur niður á báðum dómstigum.

Landsréttur birt 16. desember 2025

602/2025

A (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Málið varðaði deilu A og B um forsjá, lögheimili og inntak umgengnisréttar vegna tveggja dætra þeirra, C og D, en með hinum áfrýjaða dómi hafði verið kveðið á um að forsjá skyldi vera sameiginleg og að lögheimili dætranna skyldi vera hjá B, auk þess sem kveðið var á um nánar tilgreint inntak umgengnisréttar. Í dómi Landsréttar var meðal annars litið til niðurstaðna dómkvaddra yfirmatsmanna um að tilfinninga- og umönnunartengsl stúlknanna við B hefðu verið sterkari en við A, en tengsl við A hefðu virst góð. Þá hafi yfirmatsmenn lýst því við skýrslugjöf í héraði að þeir teldu að lögheimili dætranna ætti að vera hjá B. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sameiginlega forsjá A og B, að lögheimili dætranna skyldi vera hjá B og um meðlagsgreiðslur. Dómur héraðsdóms um að regluleg umgengni skyldi vera þrír dagar í senn tvisvar sinnum í mánuði frá lokum skóladags á fimmtudegi og fram eftir sunnudegi var staðfestur, en þó þannig að það fyrirkomulag skyldi vara til haustsins 2029, en yrði frá þeim tíma tveir dagar í senn frá lokum skóladags á föstudegi og fram eftir sunnudegi. Þá ákvað Landsréttur einnig, öndvert við niðurstöðu hins áfrýjaða dóms, að regluleg umgengni skyldi falla niður um jól, áramót og páska. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um inntak umgengnisréttar að öðru leyti staðfest. Fyrir Landsrétti gerði B kröfu um ómerkingu hins áfrýjaða dóms að hluta, sem byggðist á því að í dómsorð héraðsdóms hefði skort tilgreiningu á niðurstöðu um meðlags- greiðslur og að niðurstaða um málskostnað hefði verið í ósamræmi við forsendur dómsins. Að því er varðaði álitaefni um meðlagsgreiðslur leit Landsréttur meðal annars til þess að forsendur dómsins væru skýrar, úrlausn um meðlag í málinu réðist af niðurstöðu um lögheimili, auk þess sem málið varðaði ríka hagsmuni þeirra barna sem í hlut áttu sem brýnt væri að leysa úr með skjótum hætti. Hvað varðaði álitaefni um málskostnað taldi Landsréttur að dómsorð væri skýrt um fjárhæð málskostnaðar og ótvíræðar ályktanir yrðu ekki dregnar af forsendum dómsins, auk þess sem héraðsdómi hefði ekki verið gagnáfrýjað. Var ómerkingarkröfu B því hafnað.

Landsréttur birt 16. desember 2025

55/2025

A (Leifur Runólfsson lögmaður, Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður, 3. prófmál) gegn B (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur þeirra, C, lögheimili hennar, meðlag og umgengni. Í dómi héraðsdóms var kveðið á um að forsjá og lögheimili C skyldi vera hjá B en niðurstaða héraðsdóms var byggð á því að forsjárhæfni A, sem hafði verið aðalumönnunaraðili C frá fæðingu, væri háð verulegum annmörkum. Var kveðið á um að A skyldi greiða B einfalt meðlag með barninu til 18 ára aldurs. Þá var kröfum málsaðila um að dómurinn kvæði á um inntak umgengnisréttar vísað frá dómi þar sem ekki lá fyrir að sáttameðferð hefði farið fram um umgengnisrétt barnsins við B áður en málið var höfðað. Við meðferð málsins hjá Landsrétti lögðu málsaðilar fram samning um fyrirkomulag umgengni C við B. Í dómi Landsréttar var rakið að í sálfræðilegri yfirmatsgerð sem aflað var fyrir réttinum kæmi fram að báðir málsaðilar væru með góða forsjárhæfni þótt minna hefði reynt á getu B að því leyti. Í yfirmatsgerðinni var ekki að öllu leyti fallist á niðurstöðu undirmatgerðar um takmarkanir á forsjárhæfni A en yfirmatsmenn töldu áfrýjanda úrræðagóða og sjálfstæða ásamt því að hún sýndi frumkvæði og dug við uppeldi barnsins. B, sem hafði frá fæðingu C notið takmarkaðrar umgengni við hana, upplýsti meðal annars í skýrslugjöf fyrir réttinum að markmið hans með málsókn á hendur A hefði fyrst og fremst verið til að tryggja umgengni barnsins við hann. Þá kom fram í dómi Landsréttar að samskipti A og B hefðu í gegnum tíðina verið erfið af ýmsum ástæðum en yfirmatsmenn og raunar málsaðilar sjálfir staðfest fyrir réttinum að samskiptin hefðu batnað töluvert og að umgengni hefði aukist. Í ljósi þess að viðhorf aðila til réttinda hvors annars og barnsins hefðu breyst til batnaðar frá því að dómur héraðsdóms féll var það mat Landsréttar að A og B væru líkleg til að geta unnið í sameiningu að velferð C og að farsælast væri fyrir barnið og málsaðila sjálfa að þau færu sameiginlega með forsjá þess. Um lögheimili C var litið til þess að það hafði frá fæðingu verið hjá A. Með vísan til tengsla A og C og með hliðsjón af yfirmatsgerð var talið skynsamlegast að viðhalda stöðugleika C og því ákveðið að lögheimili barnsins yrði hjá A. Þá var B gert að greiða A einfalt meðlag með barninu til 18 ára aldurs þess.

Landsréttur birt 11. desember 2025

393/2025

A (Oddgeir Einarsson lögmaður) gegn B (Ólafur Hvanndal Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Í málinu deildu A og B, foreldrar stúlknanna C og D, um hvoru þeirra skyldi falin forsjá stúlknanna og hjá hvoru þeirra stúlkurnar skyldu hafa lögheimili, auk þess sem bæði kröfðust þess að dæmt yrði um inntak umgengni þeirra við dæturnar. Með hinum áfrýjaða dómi var kveðið á um að forsjáin skyldi vera sameiginleg, að lögheimili stúlknanna skyldi vera hjá A og að B skyldi að greiða einfalt meðlag með dætrunum, auk þess sem kveðið var á um nánar tiltekið inntak umgengnisréttar. Í dómi Landsréttar var litið til þess að í lögskýringargögnum með breytingalögum frá 2012 við barnalög nr. 74/2003 kæmi fram að sameiginleg forsjá foreldra kynni að eiga rétt á sér þótt foreldrar væru ekki sammála um allt og jafnvel þó að ágreiningur á milli þeirra væri slíkur að þeir þyrftu aðstoð við að leysa úr honum. Sameiginleg forsjá kynni að hafa jákvæð áhrif á samstarfsvilja foreldra, vera til þess fallin að hvetja til aukinnar samábyrgðar og þátttöku beggja foreldra og auka líkur á tengslum barns við þá báða. Þá leit Landsréttur til þeirrar niðurstöðu matsgerðar dómkvadds matsmanns að forsjárhæfni beggja foreldra væri góð og án alvarlegra athugasemda, en forsjárhæfni A væri að nokkru leyti sterkari. Að þessu gættu, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að A og B skyldu fara sameiginlega með forsjá dætra sinna. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að lögheimili dætranna skyldi vera hjá A. Var enn fremur staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að B skyldi greiða einfalt meðlag með dætrunum til 18 ára aldurs þeirra. Að lokum leit Landsréttur til þess að sú tilhögun umgengni C og D við A og B sem hafði verið ákveðin í héraðsdómi hefði í öllum meginatriðum gengið vel. Að því gættu, og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms þar um, var staðfest niðurstaða hans um inntak umgengnisréttar.

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

76/2025

Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, lögheimili, umgengni og meðlag. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B færu áfram sameiginlega með forsjá drengsins. Lögheimili C skyldi vera hjá B en hann dvelja viku og viku í senn hjá hvoru foreldri sínu. Þá var A gert að greiða einfalt meðlag með drengnum. Í dómi Landsréttar var talið að ekkert hefði komið fram sem væri til þess fallið að hnekkja því mati héraðsdóms að það væri C fyrir bestu að forsjá yrði áfram sameiginleg og lögheimili hans hjá B. Taldi rétturinn þvert á móti að ný gögn og skýrslur styrktu þá niðurstöðu. Var niðurstaða héraðsdóms er varðaði forsjá, lögheimili og meðlag því staðfest. Landsréttur taldi að það þjónaði best hagsmunum C og stöðugleika í lífi hans að leggja til grundvallar tillögu yfirmatsmanna um að hann yrði meira hjá B en í ríflegri umgengni við A. Var því mælt fyrir um að A nyti umgengni við C aðra hvora viku frá lokum skóla á fimmtudegi eða eftir atvikum klukkan 16 ef ekki væri skóladagur fram til mánudagsmorguns. Einnig var mælt fyrir um umgengni um sumar og á hátíðisdögum um jól og páska en aðilum að öðru leyti látið eftir að semja um umgengni drengsins sín á milli.

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

493/2025

A (Valgeir Kristinsson lögmaður, Þuríður Kristín Halldórsdóttir lögmaður, 2. prófmál) gegn B (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður, Ásta Björk Eiríksdóttir lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá C, lögheimili, meðlag og umgengni. Með vísan til forsendna héraðsdóms staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu að B skyldi fara með forsjá og lögheimili C og að regluleg umgengni og önnur umgengni skyldi vera með nánar tilgreindum hætti. Í dómi héraðsdóms kom fram að eftir skýringar yfirmatsmanna fyrir dómi þætti ekkert fram komið um að ekki mætti líta til yfirmatsgerðar um niðurstöðu málsins. Taldi héraðsdómur að það væri barninu fyrir bestu og mætti best hagsmunum þess að umgengni við A skyldi vera með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 23. október 2025

295/2025

Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá þriggja sona sinna, lögheimili og umgengni. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að B skyldi fara einn með forsjá drengjanna og að lögheimili þeirra yrði hjá honum. Í dómi Landsréttar var talið, meðal annars með vísan til matsgerðar sem lá fyrir í málinu, að forsjárhæfni B væri mun meiri en A. Við meðferð málsins og sönnunarfærslu fyrir Landsrétti kom ekkert fram sem var til þess fallið að hnekkja því mati héraðsdóms að það samrýmdist best högum og þörfum yngri drengjanna tveggja að B færi einn með forsjá þeirra og að lögheimili þeirra yrði hjá honum. Talið var að aðstæður elsta drengsins væru aðrar, en hann hafði flutt til A í byrjun júlí 2025 og hafið nám við framhaldsskóla í sveitarfélaginu. Þá hafði hann lýst eindregnum vilja til að búa áfram hjá A. Að teknu tilliti til atvika og aðstæðna elsta drengsins og vilja hans var það talið helst samræmast hagsmunum hans að A færi ein með forsjá hans og að lögheimili yrði hjá henni. Kveðið var á um inntak umgengni A við yngri drengina í dóminum, en það var ekki talið þjóna hagsmunum elsta drengsins að ákveða umgengni B við hann og var kröfu þar um hafnað.

Landsréttur birt 25. september 2025

10/2025

A (Leifur Runólfsson lögmaður) gegn B (Gísli Kr. Björnsson lögmaður, Húnbogi J. Andersen lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barna sinna C og D, sem og lögheimili þeirra, umgengni og meðlag. Í dómi Landsréttar var rakið að sú niðurstaða leiddi af heildarmati á forsjárhæfni foreldra og þarfa barnanna að B færi ein með forsjá þeirra. Af því leiddi að lögheimili þeirra yrði hjá B. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um forsjá og skyldu A til að greiða B einfalt meðlag. A krafðist fyrir Landsrétti endurskoðunar á niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um rétt til umgengni við börnin. Krafðist hann þess að fá umtalsvert rýmri rétt til umgengni, auk þess sem hann sætti ekki eftirliti. Með dómi Landsréttar var talið að sá hluti hins áfrýjaða dóms er varðaði umgengni við börn málsaðila væri haldinn slíkum annmörkum að óhjákvæmilegt væri að ómerkja hann og vísa þeim þætti málsins til héraðsdóms til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.

Landsréttur birt 27. febrúar 2025

795/2024

A (Helga Vala Helgadóttir Bachmann lögmaður) gegn B (Elimar Hauksson lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um skipan lögheimilis dóttur þeirra, C, inntak umgengnisréttar þess foreldris sem ekki færi með lögheimili dóttur þeirra og greiðslu meðlags. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að í lífi B hefði ríkt óstöðugleiki hvað varðaði fjölskyldulíf og búsetu. Þá sýndu gögn málsins að skólasókn C hefði ekki verið sinnt nægilega vel þegar C dvaldi hjá B en fjarvistir frá skóla hefðu verið tíðari þegar C dvaldi hjá B en hjá A. Jafnframt hefði B ekki sinnt tómstundaiðkun C. Í dóminum var rakið að ef lögheimili C flyttist til A myndi það leiða til meiri festu og stöðugleika í lífi hennar. A og eiginkona hans, sem gegnt hefði mikilvægu uppeldishlutverki í lífi C, væru komin í framtíðarhúsnæði þar sem aðstæður væru góðar og tryggt yrði að C þyrfti ekki að skipta um grunnskóla, gæti myndað varanleg vinatengsl og samfella yrði í tómstundaiðkun hennar. Ráðstöfunin yrði jafnframt til þess að styrkja tengsl C við bróður sinn, þar sem systkinin myndu alast upp í sama sveitarfélagi og við sömu aðstæður að mestu leyti og ganga í sama grunnskóla. Jafnframt lá fyrir að C hefði þegar myndað góð félagsleg tengsl í heimabæ A og flutningur lögheimils hennar þangað ætti því ekki að valda henni miklu raski. Því þótti það henta best hagsmunum og þörfum C að lögheimili hennar yrði hjá A. Var B gert að greiða einfalt meðlag með C til A og kveðið var á um að umgengni B við C skyldi vera aðra hverja viku með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 12. desember 2024

531/2024

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn B (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, sem og lögheimili hans, umgengni og meðlag. Héraðsdómur hafði komist að þeirri niðurstöðu að forsjárhæfni A væri verulega skert en forsjárhæfni B væri góð. Þá hefði drengurinn sterkt tengsl við A og grunntengsl við B sem hefðu eflst eftir að hann var tekinn úr umsjá A. B væri líklegri til að viðhalda reglulegri umgengni drengsins við báða foreldra. Taldi héraðsdómur að hagsmunum drengsins væri best borgið með því að B færi með forsjá hans og lögheimili. Í dómi Landsréttar kom fram að þau gögn sem lögð hefðu verið fyrir réttinn, sem og viðtal dómenda við drenginn, bentu ekki til þess að samskipti aðila hefðu breyst svo máli skipti frá uppkvaðningu héraðsdóms. Þá veittu gögnin ekki vísbendingu um að drengurinn sætti ofbeldi á heimili B. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Landsréttur birt 20. nóvember 2024

781/2024

A (Oddgeir Einarsson lögmaður) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá og lögheimili sonar þeirra sem og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna og umgengni. Með úrskurði héraðsdóms var forsjá drengsins og lögheimili hans falið B. Þá var A gert að greiða B einfalt meðlag og kröfu um umgengni A við drenginn hafnað á þeim grundvelli að það væri drengnum fyrir bestu eins og á stæði. Landsréttur vísaði meðal annars til þess að þrátt fyrir að sonur málsaðila hefði allt frá í september 2023 verið vistaður utan heimilis A, og A jafnframt sætt gæsluvarðhaldi hluta þess tíma, yrði ekki talið að sú staða væri uppi að aðstæður drengsins kæmu niður á öryggi hans og stöðugleika. Í þeim efnum var einnig litið til gagna er vörðuðu aðstæður B. Landsréttur taldi að endingu að rök stæðu ekki til þess að raska högum drengsins með breytingu á skipan forsjár með úrskurði til bráðabirgða áður en fullnægjandi mat hefði farið fram á forsjárhæfni hvors málsaðila um sig og aðstæðum þeirra. Ákvæði hins kærða úrskurðar um skipan forsjár, lögheimilis og meðlags til bráðabirgða voru því felld úr gildi og kröfu A um að B skyldi ekki njóta umgengnisréttar við drenginn á meðan forsjármál aðila væri til meðferðar hjá dómstólum hafnað.

Landsréttur birt 3. júní 2024

379/2024

A (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um lögheimili barna þeirra, meðlag og umgengni. Með úrskurði héraðsdóms var tekin til greina krafa B um lögheimili barnanna til bráðabirgða þar til leyst hefði verið úr ágreiningi um lögheimili þeirra með dómi. Jafnframt var A gert að greiða einfalt meðlag með hvoru barni frá uppkvaðningu úrskurðarins og þá var kveðið á um umgengni A til bráðabirgða. Fyrir lá að börnin bjuggu hjá báðum foreldrum þar til þau slitu sambúð í október 2023. Skömmu síðar hafi B flutt með börnin af sameiginlegu heimili aðila en A hafi áfram búið þar og börnin notið umgengni við hann. Í úrskurði Landsréttar kom fram að sú ákvörðun B að flytja með börnin af fyrrum sameiginlegu heimili hennar og A hafi augljóslega haft röskun á högum þeirra í för með sér. Í ljósi þess skamma tíma sem liðinn var frá þeirri breytingu á högum barnanna og umgengni þeirra við A undanfarna mánuði þótti ekki hafa verið sýnt fram á að hagsmunir barnanna stæðu til þess að flytja þyrfti lögheimili þeirra til bráðabirgða til B á meðan mál aðila væri til meðferðar fyrir dómi. Taldi Landsréttur að slík röskun gæti ekki ein og sér réttlætt ákvörðun um að breyta skráningu á lögheimili barna til bráðabirgða. Var því hafnað kröfu B um að lögheimili barnanna yrði hjá henni til bráðabirgða og henni gert að greiða einfalt meðlag með hvoru barni frá uppkvaðningu úrskurðarins ásamt því að kveðið var á um umgengni hennar við börnin.

Landsréttur birt 22. mars 2024

637/2023

Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, og umgengni. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að B færi ein með forsjá C og kveðið á um inntak umgengni A um jól og áramót. Í dómi héraðsdóms var sérstaklega horft til þess að samskiptum aðila hefði verið þannig háttað, bæði fyrir og eftir fæðingu C, að ólíklegt væri að þau gætu átt með sér þá foreldrasamvinnu sem væri nauðsynleg forsenda sameiginlegrar forsjár. Í dómi Landsréttar kom fram að þau gögn sem lögð hefðu verið fyrir Landsrétt eftir uppkvaðningu héraðsdóms bæru á ýmsan hátt merki þess að samskipti aðila færu batnandi og að þau hefðu getu til að eiga farsæla samvinnu um uppeldi og umönnun sonar síns. Í skýrslum aðila fyrir dómi hefði aftur á móti komið fram að samskipti þeirra um C væru skrifleg og að þau hittust aldrei. Þá yrði ráðið af sömu gögnum að takmarkað traust ríki á milli aðila. Telja yrði ljóst að sú skipan mála sem ákveðin var í hinum áfrýjaða dómi hefði að öðru leyti haft góð áhrif á samskipti aðila. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. nóvember 2023

E-5415/2022

A (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) gegn Innheimtustofnun sveitarfélaga (Fjölnir Ólafsson lögmaður)

Stefndi, Innheimtustofnun sveitarfélaga, var sýknaður af dómkröfum stefnanda um ógildingu á ákvörðun stefnda um það að skylda vinnuveitanda stefnanda til að halda eftir tiltekinni fjárhæð af mánaðarlaunum stefnanda næstu tvö árin, þó að hámarki 50% af launum, og um að standa stefnda skil á hinu afdregna fé. En fallist var á með stefnda að umrætt innheimtuúrræði vegna meðlagsskulda þannig framkvæmt í skjóli reglugerðar hefði skýra stoð í ákvæði laga nr. 54/1971, auk þess sem að ekki var fallist á að óverulegir stjórnsýsluréttarlegir formannmarkar gætu leitt til að fallast bæri á kröfur stefnanda, eins og hér stóð á.

Landsréttur birt 3. nóvember 2023

181/2023

A (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B skyldu áfram fara sameiginlega með forsjá dóttur sinnar, C, en lögheimili hennar vera hjá B og A skyldi greiða meðlag með barninu. Þá var umgengni A við barnið ákveðin með nánar tilgreindum hætti. Fyrir Landsrétti deildu A og B um lögheimili C og um meðlag og umgengni við barnið. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða héraðsdóms væri meðal annars grundvölluð á matsgerð dómkvadds matsmanns sem hefði komist að þeirri niðurstöðu að forsjárhæfni B væri góð en hnökrar væru á forsjárhæfni A. Fyrir Landsrétti hefði A aflað yfirmatsgerðar og væri þar komist að þeirri niðurstöðu að lögheimili barnsins væri mun betur fyrir komið hjá B og að ekkert hefði komið fram við athuganir matsmanna sem kallaði á að fyrirkomulagi umgengni yrði breytt. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Landsréttur birt 18. september 2023

529/2023

A (Stefán Þórarinn Ólafsson lögmaður) gegn B (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að breytt yrði því réttarástandi milli hans og B og þriggja barna þeirra, sem komið var á með úrskurði Landsréttar í máli nr. 329/2022. Einnig hafnaði héraðsdómur að svo stöddu kröfu A um að fresta meðferð forsjármáls milli A og B. Með gagnkæru kærði B þann hluta úrskurðar héraðsdóms sem laut að málskostnaðarkröfu hennar. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að raska ekki réttarástandi því sem komið var á til bráðabirgða með úrskurði Landsréttar í máli 329/2022. Kröfum A er lutu að forsjá barna aðila til bráðabirgða, lögheimili þeirra, meðlagsgreiðslum og umgengni var því hafnað. Landsréttur vísaði aftur á móti frá kröfu A um að forsjármáli hans og B yrði frestað þar sem kæruheimild skorti. Þá var ekki tekin efnisleg afstaða til málskostnaðarkröfu B fyrir héraðsdómi.

Landsréttur birt 23. júní 2023

87/2023

Lykilorð: Börn. Forsjá. Umgengni. Meðlag.
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, C, umgengni og meðlag. A og B bjuggu aldrei saman og fór A ein með forsjá C þar til hinn áfrýjaði dómur gekk. Með dómi héraðsdóms var ákveðið að A og B færu sameiginlega með forsjá drengsins og skyldi lögheimili hans vera hjá A og B gert að greiða meðlag með honum. Loks var kveðið á um inntak umgengni. Í dómi Landsréttar var rakið að í barnalögum nr. 76/2003 væru ekki reistar skorður við því að foreldri, sem aldrei hefði haft forsjá barns, öðlaðist með fulltingi dómstóla hlutdeild í forsjá þess þótt hitt foreldrið væri því andvígt. Skilyrði þess væri að þær aðstæður væru fyrir hendi að breytt skipan forsjár þjónaði betur hagsmunum barnsins. Í málinu var talið að verulegrar tortryggni gætti milli A og B og hefðu þau bæði kennt hinu um samskiptavanda þeirra og slæm áhrif þessa á C. Samkvæmt fyrirliggjandi matsgerð dómkvadds matsmanns byggju þau aftur á móti bæði yfir styrkleikum. C væri 12 ára og bæri ágætt skynbragð á eigin þarfir og langanir og bæri að taka réttmætt tillit til afstöðu hans. Ekkert hefði komið fram í málinu sem gæfi tilefni til að álykta að hann væri því andvígur að B axlaði þá ábyrgð sem fælist í forsjárskyldum foreldra. Þá virtist ágreiningur aðila ekki rista djúpt um meginatriði í uppeldi C. Taldi Landsréttur ekki efni til að hnekkja því áliti héraðsdóms að það þjónaði betur hagmunum C að A og B færu sameiginlega með forsjá hans. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um annað en reglulega umgengni B við C og umgengni um jól og áramót.

Landsréttur birt 22. mars 2023

155/2023

A (Þórdís Bjarnadóttir lögmaður) gegn B (Ólafur Hvanndal Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A á hendur B var vísað frá dómi. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið leitað sátta um forsjá barna málsaðila, lögheimili þeirra, greiðslur meðlags eða inntak umgengnisréttar fyrir málshöfðunina í skilningi 33. gr. a í barnalögum og var því kröfum málsaðila þar að lútandi vísað frá dómi. Að fenginni þeirri niðurstöðu þótti ljóst að ágreiningur aðila um forsjá barnanna væri ekki lengur til meðferðar hjá lögmæltum yfirvöldum í skilningi 2. mgr. 44. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og var því jafnframt vísað frá dómi kröfu aðila um veitingu leyfis til skilnaðar að borði og sæng.

Landsréttur birt 25. janúar 2023

3/2023

A (Þorbjörn Þórðarson lögmaður) gegn B (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A krafðist þess að honum yrði falið lögheimili barns hans og B til bráðabirgða á meðan forsjármál milli aðila væri rekið fyrir dómi. Í úrskurði héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að við mat á kröfu A yrði ekki fram hjá því litið að gögn málsins og skýrslur fyrir dóminum bentu til þess að viss ósveigjanleika hefði gætt hjá A varðandi umgengni og samskipti B við barnið. Einnig var talið að A hefði að nokkru gert B erfitt fyrir að rækja umgengni sína hvað varðaði fyrirkomulag ferða barnsins milli foreldra. Þannig hefði regluleg umgengni B við barnið ekki komist á fyrr en með bráðabirgðaúrskurði sýslumanns í maí 2022. Í ljósi þeirrar forsögu taldi dómurinn að gefa yrði B og barninu ráðrúm til að treysta tengsl sín að nýju og jafnframt yrði að gefa barninu ráðrúm til að fóta sig í nýju umhverfi og átta sig betur á viðhorfum sínum til búsetu. Rök voru því ekki talin standa til þess að hrófla að svo stöddu við lögheimili barnsins hjá B. Þá var A gert að greiða B áfram meðlag með barninu, auk þess sem mælt var fyrir um tilhögun umgengni við barnið.

Landsréttur birt 30. september 2022

556/2022

A (Þyrí Halla Steingrímsdóttir lögmaður) gegn B (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá dóttur þeirra, umgengni og greiðslu meðlags. Í úrskurði héraðsdóms kom fram að við úrlausn bráðabirgðakröfu A um sameiginlega forsjá bæri fyrst og fremst að líta til þess hvort slíkt fyrirkomulag væri í þágu hagsmuna telpunnar, eða hvort hagsmunir hennar krefðust þess. Fyrir lá að telpan hefði alla tíð verið undir forsjá B einnar og haft heimili sitt hjá henni. Þættu ekki hafa verið færð fram rök um það af hálfu A að hagsmunir telpunnar krefðust þess að breyting yrði gerð á því, þannig að aðilar færu saman með forsjána meðan málinu væri ólokið. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar féllst Landsréttur á að ekki væru efni til að verða við kröfu A um breytta skipan forsjár barnsins til bráðabirgða. Þá kom fram í úrskurði Landsréttar að óháð sönnun um reglusemi A þætti umgengnisréttur hans hæfilega ákveðinn í hinum kærða úrskurði. Yrði samkvæmt því ekki fallist á að forsendur væru að svo stöddu til að ákvarða honum rýmri umgengnisrétt en þar var gert. Ákvæði hins kærða úrskurðar um meðlagsgreiðslur til B var staðfest.

Landsréttur birt 22. september 2022

123/2022

A (Jónína Guðmundsdóttir lögmaður) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar þeirra, C, umgengni og greiðslu meðlags. Í dómi Landsréttar kom fram að eins og ágreiningi aðila væri háttað kæmi ekki til þess að unnt væri að dæma sameiginlega forsjá. Jafnframt var rakið að af málsgögnum yrði ekki annað ráðið en að í fyrirliggjandi matsgerð dómkvadds matsmanns hafi verið fjallað um A á jákvæðari hátt en efni stæðu til. Þá virtist niðurstaða hins áfrýjaða dóms hafa haft góð áhrif á samskipti aðila og líðan drengsins. Samkvæmt framangreindu var staðfest niðurstaða héraðsdóms um forsjá, meðlag og umgengni A og B við C.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2022

E-5906/2021

Eiður Örn Ingvarsson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Innheimtustofnun sveitarfélaga (Fjölnir Ólafsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af dómkröfum vegna aðildarskorts stefnanda, sem hafði krafist þess að stefndi endurgreiddi sér fé sem stefndi hafði innheimt hjá vinnuveitanda stefnanda.

Landsréttur birt 24. júní 2022

63/2022

A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) gegn B (Leifur Runólfsson lögmaður, Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

Ágreiningur A og B laut að skipan lögheimilis dóttur þeirra, greiðslu meðlags með henni og inntaki umgengisréttar við það foreldri sem ekki skyldi fara með lögheimili hennar. Í dómi héraðsdóms var kveðið á um að lögheimili dóttur málsaðila skyldi vera hjá B. Þá var kveðið á um að umgengni A með dóttur aðila skyldi vera aðra hverja viku og að A skyldi greiða meðlag með henni. Í dómi Landsréttar var greint frá efni bréfs lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 6. maí 2022 þar sem rakin voru atvik þar sem lögreglan hafði afskipti af málefnum A. Þá var vísað til þess að við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti hefði komið fram að barnaverndaryfirvöld hefðu nýlega tekið málefni A á ný til skoðunar vegna atvika frá maí 2022 og farið þess á leit við B að dóttir málsaðila færi ekki í umgengni til A á meðan málefni hennar væru til skoðunar. Að gættum þeim gögnum sem lögð voru fyrir Landsrétt en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Landsréttur birt 24. júní 2022

48/2022

A (Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður, Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður, 1. prófmál) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur þeirra, C, lögheimili hennar, meðlag og umgengni. Í dómi héraðsdóms var kveðið á um að forsjá C skyldi vera sameiginleg. Þá var kveðið á um að lögheimili C skyldi vera hjá B en A skyldi greiða meðlag með henni. Loks skyldi C njóta jafnrar umgengni við báða foreldra. Í dómi Landsréttar var rakið að í sálfræðilegri matsgerð kæmi fram að báðir aðilar væru hæfir til að fara með forsjá telpunnar. Með vísan til matsgerðarinnar sem og tveggja viðbótarmatsskýrslna var fallist á að báðir aðilar væru hæfir til að fara með forsjá telpunnar. Þrátt fyrir að A hefði framan af tálmað umgengni hefði hún að mestu lagað sig að niðurstöðu dómstóla, þótt hún hefði á stundum farið að ráðgjöf aðila sem hefðu ráðlagt henni á annan veg. Hún hefði lýst því yfir í skýrslu sinni fyrir Landsrétti að hún myndi una niðurstöðu Landsréttar. Því væri ekki tilefni til að gera upp á milli forsjárhæfi aðila. Aðilar hefðu sýnt að þau gætu átt í ágætum samskiptum ef þau snerust aðeins um dóttur þeirra. Taldi Landsréttur að ágreiningur aðila væri ekki líklegur til að koma í veg fyrir, hindra eða draga úr möguleikum telpunnar til að alast upp við þroskavænleg skilyrði, umfram það sem væri ef forsjá yrði óskipt. Aðilar höfðu farið sameiginlega með forsjá telpunnar frá fæðingu. Í niðurstöðu viðbótarmats sem aflað var fyrir Landsrétti kom fram að dóttir aðila hefði dafnað vel og sýnt góðar framfarir í líkamlegum og vitrænum þroska sem bæri með sér að hún byggi við hvetjandi og ástríkar aðstæður hjá foreldrum sínum. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms að ákvörðun um sameiginlega forsjá aðila yfir dóttur sinni væri til þess fallin að friður gæti skapast milli þeirra og að telpan fengi notið þess að eiga foreldra sem gætu átt í uppbyggilegu samstarfi um hagsmuni hennar, heilsu og velferð. Þá taldi Landsréttur að það fyrirkomulag á lögheimili og umgengni sem komst á með hinum áfrýjaða dómi hefði gefið góða raun. Væri ekkert fram komið í málinu sem gæfi tilefni til að raska því. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms að lögheimili telpunnar skyldi vera hjá B. Með sama hætti var staðfest niðurstaða hans um fyrirkomulag á umgengni og greiðslu meðlags.

Landsréttur birt 3. júní 2022

52/2022

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barna sinna sinna, C og D, umgengni og greiðslu meðlags. Í dómi héraðsdóms kom fram að með vísan til gagna málsins og matsgerða væru ekki efni til að gera upp á milli forsjárhæfni A og B. Eins og aðstæðum í málinu væri háttað hentuðu styrkleikar og veikleikar aðila í foreldrahlutverkinu börnunum á afar ólíkan hátt. Með dómi héraðsdóms var A falin forsjá dóttur þeirra, C, en B falin forsjá sonar þeirra, D, auk þess sem kveðið var á um meðlag og umgengni. Fyrir Landsrétti var einungis deilt um hvernig haga skyldi forsjá, lögheimili, meðlagi og umgengni vegna D. Í dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms að það væri D fyrir bestu að B færi með forsjá hans. Auk þess var staðfest niðurstaða héraðsdóms um meðlag með honum og umgengni A við hann.

Landsréttur birt 3. júní 2022

10/2022

A (Valborg Þ. Snævarr lögmaður) gegn B (Jón Auðunn Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá fjögurra barna sinna, C, D, E og F, lögheimili þeirra, meðlag og umgengni. Í dómi Landsréttar kom fram að af lýsingum A og B á ágreiningi sínum yrði ekki ráðið að hann væri mjög djúpstæður og var hann ekki talinn standa því í vegi að þeim yrði dæmd sameiginleg forsjá. Rétturinn vitnaði til niðurstöðu dómkvadds matsmanns um að bæði A og B væru hæf til að fara með forsjá barnanna en styrkleikar þeirra væru mismunandi. Börnin væru samkvæmt niðurstöðum matsmanns mjög tengd báðum foreldrum sínum og þau hefðu bæði sýnt þeim hlýju og umhyggju í uppeldinu. Þá fengju börnin mjög góð meðmæli frá kennurum og öðrum fagaðilum sem hefðu tjáð sig um þau. Jafnframt lægi fyrir að eftir fyrirhugaðan búferlaflutning A myndu foreldrar búa nálægt hvort öðru og skóla barnanna. Samkvæmt öllu þessu var talið börnunum fyrir bestu að A og B færu áfram sameiginlega með forsjá þeirra. Þá var ákveðið að lögheimili allra barnanna yrði hjá A og var B gert að greiða einfalt meðlag með hverju þeirra frá uppsögu dómsins en ekki þóttu efni til að ákveða meðlagsgreiðslur aftur í tímann. Þá var mælt fyrir um umgengni barnanna við málsaðila.

Landsréttur birt 14. mars 2022

83/2022

A (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi aðila um forsjá og lögheimili sonar þeirra, umgengni og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna. Aðilar undu niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að þau færu til bráðabirgða sameiginlega með forsjá sonar síns. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að lögheimili drengins skyldi til bráðabirgða vera hjá B. Þá úrskurðaði Landsréttur að A skyldi greiða einfalt meðlag með honum. Dómurinn taldi að ekki væru að svo stöddu efni til að hrófla við gildandi fyrirkomulagi á umgengni.

Landsréttur birt 5. nóvember 2021

484/2021

A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður) gegn B (Þórdís Bjarnadóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um lögheimili sonar síns, C, og um meðlag með drengnum. Í dómi Landsréttar kom fram að telja yrði B hæfari til að sinna grunnþörfum C að því er nám varðar og væru málsaðilar sammála um að hann skyldi sinna því umfram A. Þá væru aðilar sammála um að það væri C fyrir bestu að sækja skóla í námunda við heimili B þar sem hann ætti jafnframt sína bestu vini. Þegar horft væri til þessa, sem og stöðugleika í lífi C, yrði að telja honum fyrir bestu, sbr. 2. mgr. 34. gr. barnalaga nr. 76/2003, að lögheimili hans væri þar sem fyrrnefndum grunnþörfum sé helst sinnt, að heimildin samkvæmt 2. málslið 1. mgr. 28. gr. a sömu laga lægi þar sem daglegt líf C fer að mestu fram og að hann ætti þannig lögvarinn rétt til og greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem hann þyrfti þar á að halda. Ekki yrði talið að þessi niðurstaða gengi gegn vilja C til að búa hjá A enda myndi hún engu breyta um það samkomulag málsaðila að drengurinn dvelji til skiptis viku í senn hjá hvoru foreldri. Var því krafa B um að lögheimili C yrði hjá honum tekin til greina. Einnig var fallist á kröfu B um að A yrði gert að greiða einfalt meðlag með C til 18 ára aldurs en rétt þótti að miða upphaf þeirrar skyldu við dómsuppkvaðningu í Landsrétti.

Landsréttur birt 24. september 2021

245/2021

A (Þórður Már Jónsson lögmaður) gegn B (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá sonar síns, umgengni og meðlag. Með hinum áfrýjaða dómi var B falin forsjá drengsins auk þess sem kveðið var á um umgengni og meðlag. Í málinu lá fyrir matsgerð dómkvadds matsmanns sem aflað var undir rekstri málsins í héraði þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að B byggi yfir ríkari forsjárhæfni en A. Féllst Landsréttur á þá niðurstöðu héraðsdóms að ekki væru forsendur til að aðilar færu áfram saman með forsjá sonar þeirra. Í dómi Landsréttar kom fram að matsgerðinni hefði ekki verið hnekkt og á henni væru engir slíkir annmarkar að ekki yrði á henni byggt. Samkvæmt því yrði að leggja til grundvallar að hæfni foreldra og tengsl barns við báða foreldra mæltu með því að B yrði falin forsjáin. Sjónarmið um stöðugleika í tengslum og í uppeldi mæltu einnig með hinu sama. Áform B um fimm ára dvöl erlendis gætu ekki ein og sér leitt til þess að kröfu hennar um forsjá yrði hafnað. Var niðurstaða heildarmats á því hvað væri drengnum fyrir bestu að hagsmunir hans stæðu til þess að B færi með forsjána. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Landsréttur birt 17. september 2021

119/2021

A (Oddgeir Einarsson lögmaður) gegn B (Ólafur Örn Svansson lögmaður)
Lykilorð: Börn. Lögheimili. Umgengni. Meðlag.
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að lögheimili sonar A og B yrði hjá B, að A skyldi greiða með honum einfalt meðlag til 18 ára aldurs og að regluleg umgengni sonarins við A og B yrði jöfn. Á hinn bóginn var talið að í dómsorði hins áfrýjaða dóms hefði tilhögun umgengni ekki verið lýst þannig að kröfum 2. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála væri fullnægt. Úr því var bætt með dómi Landsréttar.

Landsréttur birt 8. september 2021

478/2021

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Helgi Birgisson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um forsjá og lögheimili dóttur þeirra, umgengni hennar við málsaðila og greiðslu meðlags með henni. Landsréttur vísaði til þess að af gögnum málsins yrði ráðið að aðilar hafi aðeins í eitt skipti verið boðaðir til sáttameðferðar áður en vottorð um sáttameðferð var gefið út. Það væri í andstöðu við fyrirmæli 5. mgr. 33. gr. a barnalaga. Af þeim sökum var málinu vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 8. september 2021

477/2021

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Helgi Birgisson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um forsjá og lögheimili tveggja barna þeirra, umgengni þeirra við málsaðila og greiðslu meðlags með þeim. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um forsjá barnanna, lögheimili þeirra og fyrirkomulag meðlagsgreiðslna. Héraðsdómur hafði hafnað kröfu A um umgengni en Landsréttur taldi mikilvægt að börnin nytu samvista við móður sína á meðan forsjármál aðila væri til lykta leitt og héldu þannig tengslum við báða foreldra. Var því mælt fyrir um umgengni barnanna við A með nánar tilgreindum hætti.

Landsréttur birt 14. júlí 2021

430/2021

A (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður) gegn B (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um lögheimili barns þeirra og umgengni. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að lögheimili barnsins skyldi vera hjá B þar til endanlegur dómur í forsjármáli aðila liggur fyrir. Þá staðfesti dómurinn niðurstöðu héraðsdóms um tímabundið fyrirkomulag á umgengni A við barnið og að henni yrði gert að greiða einfalt meðlag með barninu.

Landsréttur birt 25. júní 2021

381/2021

A (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) gegn B (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfum A um lögheimili barnsins C og meðlag til bráðabirgða var hafnað og kröfu B um að skorið yrði úr um umgengni við C var sömuleiðis hafnað. Niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu B sætti ekki endurskoðun fyrir Landsrétti. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var staðfest sú niðurstaða hans að synja kröfum A.

Landsréttur birt 12. mars 2021

612/2020

A (Valborg Þ. Snævarr lögmaður) gegn B (Katrín Theodórsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Í málinu deildu A og B um hvar lögheimili barns þeirra, C, ætti að vera. Undir rekstri málsins í héraði höfðu aðilar komist að samkomulagi um að fara sameiginlega með forsjá barnsins og sættu þeir sig við niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um hvernig umgengni skyldi háttað. Við meðferð málsins í héraði var aflað undir- og yfirmatsgerðar. Í hinum áfrýjaða dómi, sem var skipaður sérfróðum meðdómsmanni, var rakið að undir- og yfirmatsmönnum hefði borið saman um að A og B væru bæði hæf til að fara með forsjá barnsins og lögheimili, báðir foreldrar sinntu ummönnun barnsins vel og ekki væri unnt að gera greinarmun á líðan og umhirðu barnsins eftir því hjá hvoru foreldri það dveldi. Í hinum áfrýjaða dómi kom fram að tilfinningatengsl barnsins við aðila væru á meðal þess sem skipti einna mestu máli við mat á því hvar lögheimili barnsins skyldi vera til framtíðar litið. Við úrlausn málsins yrði að taka mið af forsögunni, ungum aldri barnsins og þeirri staðreynd að B hefði verið aðalumönnunaraðili barnsins þegar sterkustu geðtengslin hefðu verið að myndast. Í hinum áfrýjaða dómi kom fram að telja yrði að frumtengsl barnsins væru ótvírætt sterkari við B og fengi það stoð í undir- og yfirmatsgerð. Þá hefði það einnig þýðingu að C væri eina barn B en að á heimili A væru aftur á móti önnur börn á mismunandi aldri sem þyrfti að sinna. Einnig var rakið að ekki væri unnt að gera greinarmun á stöðugleika hjá aðilum þannig að það hefði þýðingu við mat á því hvar lögheimili barnsins ætti að vera og að ekkert væri komið fram í málinu um að B myndi ekki tryggja rétt barnsins til umgengni við A kæmi til þess að lögheimili barnsins yrði hjá henni. Á grundvelli heildstæðs mats á þeim þáttum sem líta bæri til var niðurstaða hins áfrýjaða dóms sú að það væri barninu fyrir bestu að lögheimili þess yrði hjá B. Var sú niðurstaða staðfest af Landsrétti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms.

Landsréttur birt 19. febrúar 2021

547/2020

A (Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður, Jónína Guðmundsdóttir lögmaður, 4. prófmál) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá barna sinna, umgengni og meðlag. Í dómi Landsréttar kom fram að gögn málsins og framburðir aðila fyrir dómi gæfu ótvírætt til kynna að samskiptavandi þeirra væri mikill og djúpstæður. Ekki væru því forsendur fyrir sameiginlegri forsjá. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að A hefði í gegnum tíðina borið mun meiri ábyrgð á uppeldi barnanna og væri þeim mjög náin. Þá létu bæði börnin eindregið í ljós vilja til að vera í umsjá A og eiga lögheimili hjá henni. Enn fremur hefði annað barnið átt við mjög alvarleg áfallastreitueinkenni að stríða að undanförnu og tengdist það meðal annars ótta þess við að fara í umsjá föður síns. Með hliðsjón af framangreindu var A falin forsjá barna þeirra. Þá taldi Landsréttur að það þjónaði ekki hagsmunum barnanna að kveða á um umgengni þeirra við B. Ákvæði hins áfrýjaða dóms um meðlag og lögheimili voru staðfest.

Landsréttur birt 11. desember 2020

356/2020

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur sinnar, umgengni og greiðslu meðlags. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður aðila fyrir dómi og gögn málsins bæru ótvírætt með sér að samskiptavandi aðila væri mikill og þau ræddu ekki saman um málefni barnsins. Væru því ekki forsendur fyrir því að þau færu saman með forsjána. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að báðir foreldrar væru hæfir til þess að fara með forsjá barnsins. Var það mat dómsins að það samrýmdist betur högum og þörfum barnsins að A færi ein með forsjá þess enda þótt fyrir lægi að hún hefði tálmað umgengni barnsins við B. Í ljósi þess að barnið hafði lítið umgengist B síðastliðin tvö ár og ekki myndað tengsl við sambýliskonu hans og hálfsystur sem byggju á sama heimili var talið nauðsynlegt að aðlögun ætti sér stað í sex mánuði frá uppkvaðningu dómsins. Í ljósi aðstæðna var það mat dómsins að nauðsynlegt væri að foreldrar nytu stuðnings eftirlitsaðila, sbr. 4. mgr. 47. gr. barnalaga nr. 76/2003, á aðlögunartímanum til að stuðla að því að umgengnin til lengri tíma yrði barninu áreynslulaus eða áreynslulítil.

Landsréttur birt 18. september 2020

130/2020

A (Björgvin Jónsson lögmaður, Ómar R. Valdimarsson lögmaður, 1. prófmál) gegn B (Katrín Theodórsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá dóttur sinnar, lögheimili og umgengni. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður aðila fyrir dómi og gögn málsins bæru með sér að samskiptavandi þeirra væri mikill og þau ræddu ekki saman um málefni dóttur þeirra. Jafnframt væri fram komið að ekki hefði dregið úr þeim vanda þeirra en samskiptin færu að mestu fram með aðstoð fjölskyldu B. Taldi Landsréttur að forsendur sameiginlegrar forsjár þeirra með stúlkunni væru því brostnar. Í málinu lá fyrir matsgerð um forsjárhæfni A og B sem aflað var undir rekstri málsins í héraði og var þar komist að þeirri niðurstöðu að báðir aðilar væru hæfir til að fara með forsjá stúlkunnar en að veikleikar væru í forsjárhæfni A. Féllst Landsréttur á það með héraðsdómi að það samræmdist best högum og þörfum stúlkunnar að B færi ein með forsjá hennar. Þá taldi Landsréttur ekki efni til að breyta því fyrirkomulagi um umgengni sem héraðsdómur ákvað. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Landsréttur birt 8. september 2020

435/2020

A (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður) gegn B (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um lögheimili barns þeirra, umgengni og greiðslu meðlags. Landsréttur taldi rétt að lögheimili barnsins yrði hjá A þar sem barnið hafði búið þar frá sambúðarslitum foreldranna. Þá var fallist á kröfu B um jafna umgengni hans við barnið þar til endanlegur dómur gengi í málinu og honum gert að greiða einfalt meðlag.

Landsréttur birt 31. ágúst 2020

450/2020

A (Katrín Theodórsdóttir lögmaður) gegn B (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu A um forsjá sona þeirra A og B, þar til endanleg ákvörðun um forsjá lægi fyrir, var hafnað en kröfu hennar um að ákveðið yrði hjá hvoru foreldri þeir skyldu eiga lögheimili til bráðabirgða var vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að að fenginni niðurstöðu um að hafna kröfu A um forsjá til bráðabirgða hefði dóminum borið að taka jafnframt afstöðu til ágreinings aðila um hvernig færi um lögheimili drengjanna á tímabilinu, með hliðsjón af 2. mgr. 35. gr. barnalaga nr. 76/2003. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

Landsréttur birt 31. ágúst 2020

392/2020

A (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Katrín Theodórsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem skorið var til bráðabirgða úr ágreiningi málsaðila um forsjá tveggja barna þeirra, lögheimili þeirra, umgengni þeirra við málsaðila og greiðslu meðlags með þeim. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki væri efni til þess að breyta tilhögun forsjár til bráðabirgða meðan mál út af ágreiningi aðila um forsjá og lögheimili barnanna væri til meðferðar fyrir héraðsdómi. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að lögheimili barnanna yrði á sama tíma hjá B sem og að börn málsaðila skyldu búa hjá þeim á víxl, viku í senn. Þá var A gert að greiða einfalt meðlag með hvoru barni um sig uns endanlega hefði verið leyst úr forsjárdeilu aðila fyrir dómi.

Landsréttur birt 6. desember 2019

542/2019

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður, Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður, 3. prófmál) gegn B (Hildur Sólveig Pétursdóttir lögmaður, Bjarki Már Baxter lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfest var sú niðurstaða héraðsdóms að A skyldi greiða B einfalt meðlag með börnum þeirra, C og D, frá 1. nóvember 2017 til fulls 18 ára aldurs þeirra. Krafa A um að gjafsóknarkostnaður hans vegna reksturs málsins í héraði yrði ákveðinn 2.000.000 króna var of seint fram komin og var henni vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 12. apríl 2019

795/2018

A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður, Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður, 1. prófmál) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

A og B deildu um forsjá og lögheimili tveggja barna sinna. Undir rekstri málsins gerðu þau sátt um forsjána. Börnin voru búsett hjá B. Í málinu lá fyrir matsgerð þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að börnin væru tengdari B en A. Í dómi Landsréttar, sem var skipaður sérfróðum meðdómanda, var vísað til þess að því myndi óhjákvæmilega fylgja röskun á stöðugleika í lífi barnanna ef krafa A yrði tekin til greina. Fallist var á það með héraðsdómi að það væri í bestu samræmi við hagsmuni barnanna að lögheimili þeirra yrði áfram hjá B. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um lögheimili barnanna og greiðslu meðlags með þeim.

Landsréttur birt 16. nóvember 2018

768/2018

Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að fela B forsjá tveggja dætra þeirra A þar til dómur gengur í forsjármáli þeirra. Hvað varðaði kröfu B um að úrskurðað yrði um lögheimili og meðlag var tekið fram að í hinum kærða úrskurði væri ósamræmi á milli forsendna úrskurðarins og úrskurðarorðsins. Yrði því ekki komist hjá því að ómerkja úrskurð héraðsdóms að þessu leyti og vísa þeim þætti málsins heim í hérað til löglegrar meðferðar.

Hleð fleiri dómum…