Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Kvittun
Stefnandi höfðaði mál til greiðslu eftirstöðva samnings. Fallist var á að stefndi hefði ábyrgst greiðslu eftirstöðvanna með yfirlýsingu í tölvuskeyti til fyrirsvarsmanns stefnanda.
Með kaupsamningi 10. september 2001 keypti A tvö hestpláss í hesthúsi af Á. Þegar A hugðist þinglýsa kaupsamningnum 28. desember 2007 hafði Á afsalað hesthúsinu, þ. á m. eignarhluta A, til þriðja aðila með afsali 2. desember 2007, sem hafði þegar afhent afsalið til þinglýsingar. A krafði Á um skaðabætur vegna vanheimildar hennar. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að óumdeilt væri í málinu að Á hefði undirritað kaupsamninginn og að hún hefði hvorki sannað að kaupsamningurinn hefði verið óskuldbindandi né að ákvæði hans um greiðslu kaupverðs væri rangt. Var héraðsdómur staðfestur um skaðabætur til handa A.
Sonur A lést í eldsvoða um borð í skipi í eigu Y. Í gildi var ábyrgðartrygging vegna útgerðar skipsins hjá T. A krafði T um bætur á þeim grundvelli að við andlát sonar síns hefði hún misst þá fjárhagslegu aðstoð sem hefði falist í því að hafa endurgjaldslaus afnot af íbúð hans. A hafði gefið fyrrverandi lögmanni sínum „fullt og ótakmarkað umboð“ til að annast hagsmuni sína vegna andláts sonar síns. Lögmaðurinn veitti viðtöku greiðslu frá T á dánarbótum að fjárhæð 1.206.481 króna 8. mars 2007 og ritaði án fyrirvara undir kvittun sem hann hafði fengið senda á starfsstöð sína með símbréfi. Í texta kvittunarinnar kom fram með skýrum hætti að fjárhæðin sem kvittað var fyrir væri lokagreiðsla vegna tjónsins og allar kröfur vegna málsins væru að fullu greiddar. Var fallist á þá niðurstöðu héraðsdóms að yfirlýsingin um lyktir málsins í kvittuninni væri við framangreindar aðstæður skuldbindandi fyrir A og yrði dómurinn því staðfestur um sýknu stefnda.