Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Skuld

Landsréttur birt 16. desember 2025

997/2024

Arctic Exposure ehf (Fjölnir Ólafsson lögmaður) gegn Kanyu Hanklang (Magnús Óskarsson lögmaður, Einar Oddur Sigurðsson lögmaður, 4 prófmál)

Ágreiningur málsaðila laut að því hvort K ætti kröfur á hendur A vegna fjögurra ljósmyndaferða sem farnar voru með ferðamenn til Scoresby-sunds á Grænlandi á árunum 2019 og 2022. Í málinu var upplýst að eiginmaður K fór í tvær slíkar ferðir árið 2019 og tvær árið 2022. Greindi aðila á um hvort K ætti kröfur á hendur A vegna ferðanna og þá eftir atvikum hver tölulegur grundvöllur þeirra væri, en eiginmaður K hafði framselt henni allar hugsanlegar kröfur á hendur A vegna ferðanna. Með hinum áfrýjaða dómi voru kröfur K að mestu teknar til greina. Landsréttur féllst á það með K að samkomulag hefði komist á milli eiginmanns hennar og fyrirsvarsmanns A þess efnis að hagnaði vegna ferðanna fjögurra skyldi skipt þannig að hvor um sig fengi sem grunngjald 25% af hagnaði hverrar ferðar en að það sem eftir stæði skyldi greiðast til þess sem í ferðina færi hverju sinni. Jafnframt féllst Landsréttur á með K að reikna skyldi hagnað af ferðunum með þeim hætti sem kröfur hennar byggðust á. Landsréttur féllst aftur á móti hvorki á að málatilbúnaður K væri svo vanreifaður að vísa ætti málinu frá dómi né að dómkrafa hennar væri niður fallin fyrir tómlæti. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um annað en málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. maí 2022

E-3567/2021

Blikksmiðja Guðmundar ehf (Leó Daðason lögmaður) gegn Hverfisstíg ehf, Gamma Capital Management hf og Friðriki Smára Eiríkssyni (Einar Brynjarsson lögmaður)

B byggði á því að stefndu A, G og F bæru óskipta skaðabótaábyrgð vegna tjóns sem hann hefði orðið fyrir þar sem þeir virtu ekki kyrrsetningargerð sýslumanns. Stefndi G var sýknaður vegna aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Eins og atvikum var háttað var ekki talið að B hefði sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni í skilningi skaðabótaréttar vegna hinnar meintu saknæmu háttsemi stefndu. Þegar af þeirri ástæðu voru stefndu A og F sýknaðir af kröfu hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2022

E-2927/2021

Aðaleign ehf gegn Te og kaffi hf (Snorri Stefánsson lögmaður)
Lykilorð: Leigusamningur. Skuld. Tómlæti.
Málaflokkur: Leiguréttur

Aðila greindi á um skyldu T sem leigutaka til að greiða A tiltekinn kostnað samkvæmt leigusamningi. Talið var að A hefði sýnt af sér verulegt tómlæti við innheimtu kröfu sinnar og var T sýknaður að kröfunni að virtum atvikum.