Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lykilorð: Rof á reynslulausn

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2023

S-4444/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi) gegn Benjamín Magnúsi Óskarssyni (Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot. Ákærði rauf skilorð reynslulausnar og voru eftirstöðvar hennar dæmdar upp og refsing ákveðin í einu lagi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. maí 2023

S-2205/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Evaldas Visbergs (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Með broti sínu rauf ákærði skilyrði reynslulausnar og voru eftirstöðvar refsingar dæmdar upp. Dæmdur í 17 mánaða fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. maí 2022

S-20/2022

Ákæruvaldið (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Oliver Kristjánssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna og eignaspjöll. Rof á skilyrðum reynslulausnar vegna eldri dóma og eftirstöðvar refsingar dæmdar upp.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2006

357/2006

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Kristjáni Markúsi Sívarssyni (Hilmar Ingimundarson hrl) og X (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

K og X voru ákærðir fyrir að hafa 9. nóvember 2006 haft í vörslum sínum fíkniefni sem lögreglumenn fundu við leit á heimili K. X játaði að vera eigandi umræddra fíkniefna og að hafa beðið K um að geyma þau fyrir sig degi fyrir húsleitina. Að virtum framburði K og aðstæðum var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að honum hlyti að vera ljóst að pakkinn, sem hann tók að sér að geyma fyrir X, kynni að innihalda fíkniefni. Þrátt fyrir það hefði hann ekki kannað innihaldið heldur látið sér það í léttu rúmi liggja. Að þessu gættu og að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var talið sannað að K hefði gerst sekur um þá háttsemi sem hann var sakaður um í ákæru. Með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga og forsendna héraðsdóms var staðfest niðurstaða hans um að K skyldi sæta fangelsi í 12 mánuði, en ekki þótti fært að skilorðsbinda refsinguna vegna sakaferils K og þess að hann rauf reynslulausn með broti sínu. Með játningu X var talið ljóst að hann hefði haft umrædd fíkniefni í vörslum sínum 8. nóvember 2006 og afhent þau K þann dag. Hann var hins vegar ekki ákærður fyrir þá háttsemi heldur gefið að sök að hafa haft fíkniefnin í vörslum sínum 9. nóvember þegar húsleit fór fram á heimili K og miðaðist allur málatilbúnaður ákæruvaldsins við það. Af hálfu ákæruvaldsins var því haldið fram að X hefði haft vörslur fíkniefnanna síðastnefndan dag þar sem hann hefði verið eigandi þeirra og haft fullan aðgang að þeim. Ekki var talið að sýnt hefði verið fram á að X hefði dvalið á heimili K eða haft aðgang að því að eigin vild. Var því ekki fallist á að hugtakið varsla í 1. mgr. 2. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni tæki til þessara aðstæðna. Samkvæmt því var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu X af sakargiftum samkvæmt ákæru.