Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 22. desember 2022.
Mál nr. S-264/2022:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Runólfi Helga Ísakssyni
(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hegningarauki. Rof á reynslulausn. Svipting ökuréttar.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir að aka í þrígang sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna.
Dómur
Mál þetta, sem var dómtekið 30. nóvember sl., var höfðað með tveimur ákærum lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, á hendur Runólfi Helga Ísakssyni, kt. […], […], Reykjavík, Fyrri ákæran er dagsett 26. ágúst 2022 „fyrir eftirtalin umferðarlagabrot:
I.
Með því að hafa mánudagsmorguninn 29. nóvember 2021 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, (í blóðsýni sem tekið úr ákærða vegna rannsóknar málsins mældist fenazepam 24 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 17 ng/ml.) frá dvalarstað sínum að […] á Akureyri og að leikskólanum við Naustaskóla og síðan suður Kjarnagötu, austur Lækjartún uns hann stöðvaði bifreiðina við hús nr. […].
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/20019.
II.
Með því að hafa mánudaginn 31. janúar 2022, ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (í blóðsýni sem tekið var úr ákærða vegna rannsóknar málsins mældist klónazepam 8,1 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 24 ng/ml.) suður Oddeyrargötu á Akureyri og austur Gilsbakkaveg þar sem hann stöðvaði bifreiðina við Heilsugæslustöðina á Akureyri.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/20019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 99. gr. og 101. gr. nefndra umferðarlaga.“
Seinni ákæran er dagsett 21. nóvember 2022 „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 19. júní 2022, ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna (í blóðsýni sem tekið var úr ákærða vegna rannsóknar málsins mældist amfetamín 80 ng/ml., etizólam 12 ng/ml., kókaín 72 ng/ml. og tetrahýdrókannabínól 1,8 ng/ml.) og ófær um að stjórna ökutækinu örugglega vegna töku slævandi lyfja (við rannsókn á blóðsýninu reyndust eftirtalin lyf vera í sýninu: alprazólam 23 ng/ml. og klónazepam 4,0 ng/ml) á bifreiðastæði við Ráðhús Akureyrar við Geislagötu, þar sem lögreglan stöðvaði frekari akstur hans.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar, samkvæmt 99. gr. og 101. gr. nefndra umferðarlaga.“
Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008.
Ákærði á að baki þó nokkurn sakaferil allt frá árinu 2009, samkvæmt sakavottorði dagsettu 23. ágúst 2022. Þá var ákærði síðast dæmdur í 11 mánaða fangelsi þann 10. apríl 2019 fyrir að aka sviptur ökurétti, undir áhrifum fíkniefna og fyrir misnotkun skjals. Ákærði gekkst síðan undir sátt þann 20. júní 2022 um greiðslu 270.000 kr. sektar fyrir vörslur fíkniefna. Brot þau sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir voru framin fyrir áðurnefnda sátt og verður refsing hans því ákveðin sem hegningarauki við hana með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði hefur margsinnis gerst sekur um umferðarlagabrot. Ákærði er nú sakfelldur fyrir að aka í þrígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að ákærði hafi ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í fimmta sinn og í áttunda sinn sviptur ökurétti.
Ákærða var 10. september 2020 veitt reynslulausn í tvö ár á eftirstöðvum refsingar, alls 780 dögum. Með brotum sínum nú hefur ákærði rofið skilyrði reynslulausnar og verða eftirstöðvar refsingar teknar upp og dæmdar með í þessu máli, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar. Í ljósi ofangreinds og að teknu tilliti til 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga, er refsing ákærða ákveðin fangelsi í 3 ár og 8 mánuði.
Með vísan til 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum. Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Runólfur Helgi Ísaksson, sæti fangelsi í 3 ár og 8 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði greiði 724.471 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Stefán Karls Kristjánssonar lögmanns, 111.600 krónur.