Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lykilorð: Réttmætar væntingar
Stefnandi krafðist ógildingar á stjórnvaldsúrskurði þar sem honum var synjað um endurnýjun á rekstrarleyfi til leigubifreiðaaksturs sökum refsidóms vegna vændiskaupa. Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda þar sem lög mæltu fyrir um að ekki mætti veita rekstrarleyfi af umræddum toga þegar umsækjandi hafði verið dæmdur fyrir brot sem féll innan vébanda kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Þá voru kröfur löggjafans hér um taldar samrýmanlegar stjórnarskrá.
A höfðaði mál gegn S og krafðist viðurkenningar á því að S hefði frá og með 1. janúar 2015 verið óheimilt að skerða örorkulífeyrisgreiðslur til hans með því að telja honum til tekna barnalífeyri frá Tryggingastofnun. Þá krafðist A jafnframt viðurkenningar á því að S væri skylt að greiða sér vangoldnar lífeyrisgreiðslur vegna skerðingarinnar. Vísaði Hæstiréttur fyrri dómkröfunni frá héraðsdómi enda fæli hún í sér málsástæðu að baki þeirri síðari. Ágreiningur aðila laut efnislega að því hvort stefnda hefði verið heimilt að skerða örorkulífeyrisgreiðslur til áfrýjanda með því að telja honum til tekna, í skilningi 1. mgr. 15. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 1. mgr. greinar 19.3. þágildandi samþykkta stefnda, barnalífeyri sem hann fékk greiddan frá Tryggingastofnun á grundvelli þágildandi 20. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Aðilar deildu meðal annars um hvort skerðingin hefði átt sér viðhlítandi stoð í lögum og hvílt á málefnalegum ástæðum, svo og hvort staðið hafi verið að henni með réttum hætti gagnvart A. Til grundvallar kröfum sínum vísaði A til eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og þeirrar verndar sem virk lífeyrisréttindi njóti á grundvelli hennar. Þá var deilt um það hvort ákvörðunin hefði samrýmst 76. gr. stjórnarskrárinnar. Hæstiréttur féllst ekki á að sú afstaða S að taka tillit til barnalífeyris almannatrygginga við ákvörðun örorkulífeyris honum til handa hefði farið í bága við lög nr. 129/1997 og samþykktir S eins og viðkomandi ákvæði yrðu almennt skýrð með hliðsjón af 72. gr. stjórnarskrár. Leggja yrði til grundvallar að það samrýmdist almennt stjórnarskrárgreininni að réttur sjóðfélaga til örorkulífeyris tæki mið af fjárhæð sem gerði hann jafnsettan og ef skerðing á aflahæfi hans hefði ekki orðið. Slík sjónarmið væru málefnaleg, samrýmdust jafnræði og brytu þess utan ekki í bága við 1. og 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrár. Á hinn bóginn taldi Hæstiréttur að hvað sem liði þeirri efnislegu niðurstöðu að S hefði samkvæmt lögum og samþykktum sínum almennt verið heimilt að taka tillit til barnalífeyris A frá Tryggingastofnun við ákvörðun heildartekna hans hefði S borið að vanda til málsmeðferðar við undirbúning ákvörðunar þess efnis. Honum hefði verið skylt að gæta þess að hún raskaði ekki hagsmunum lífeyrisþega í ríkari mæli en nauðsynlegt var og borið að upplýsa þá fyrir fram um tilefni og ástæður breyttrar framkvæmdar, enda um að ræða ákvörðun sem fól í sér breytingu á virkum réttindum sjóðfélaga, sem hann hafði notið um árabil. Umrædd ákvörðun, sem upphaflega var ranglega tekin á vettvangi Greiðslustofu lífeyrissjóða 19. mars 2015, ætti ekki rætur að rekja til afkomu S og að engin tryggingafræðileg athugun hafi legið henni til grundvallar. Óupplýst væri því í málinu hvers vegna S hefði á árinu 2015 breytt þeirri áralöngu framkvæmd að líta ekki til greiðslu barnalífeyris frá Tryggingastofnun við ákvörðun örorkulífeyris. Þá hefði undirbúningur og málsmeðferð stjórnar S sem staðfesti svokallaða ákvörðun greiðslustofunnar á fundi sínum 14. mars 2016 verið ófullnægjandi. Að þessu virtu og að gættum réttmætum væntingum A væri ekki unnt að líta svo á að S hefði lagt fullnægjandi grundvöll að ákvörðun um að skerða bætur til handa áfrýjanda með tilliti til þess barnalífeyris sem hann fékk þá greiddan frá Tryggingastofnun. Væri sú ákvörðun ólögmæt og gæti ekki, eins og að henni var staðið, haft þau réttaráhrif að skerða réttindi áfrýjanda til örorkulífeyris úr hendi S. Var því fallist á kröfu A um greiðsluskyldu S vegna vangoldinna lífeyrisgreiðslna.
Stefnda var heimilt að afturkalla tilboð sitt til stefnanda um ráðningu í tímabundið starf.
Ágreiningur málsins varðaði það álitaefni hvort heimilt hafi verið að fella útibú stefnanda, XTX Markets Limited, útibú á Íslandi, af grunnskrá virðisaukaskatts. Var það niðurstaða dómsins samkvæmt skýru orðalagi ákvæðis 7. mgr. 5. gr. laga nr. 50/1988 að ríkisskattstjóra hafi verið heimilt að úrskurða útibú stefnanda af virðisaukaskattsskrá um leið og ljóst var að skilyrði sem lögin mæla fyrir um voru ekki uppfyllt.