Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Grandleysi

Hæstiréttur birt 29. október 2025

8/2025

Rekstrarfélag Kringlunnar (Halldór Jónsson lögmaður) gegn IK Holdings ehf (Ásgeir Þór Árnason lögmaður)

Einkahlutafélagið IKH höfðaði mál á hendur RK, húsfélagi verslunarmiðstöðvar, til endurgreiðslu þess hluta húsgjalda sem það hafði innt af hendi á tilteknu tímabili sem þátt í kostnaði húsfélagsins vegna auglýsinga- og kynningarstarfsemi. Hæstiréttur féllst ekki á með IKH að með ákvæði í samþykktum húsfélagsins um að þessi kostnaður teldist sameiginlegur hefði það farið út fyrir heimildir sínar samkvæmt lögum nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Að sama skapi var ekki litið svo á að jafnræðis og meðalhófs hefði ekki verið gætt gagnvart IKH við ákvörðun húsgjalda að þessu leyti þannig að í bága færi við réttindi einkahlutafélagsins samkvæmt 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar. Að fenginni þeirri niðurstöðu kom til skoðunar hvort þinglýsing samþykkta húsfélagsins hefði verið skilyrði fyrir því að IKH yrði bundið af fyrrnefndu ákvæði þeirra. Ekki var fallist á að tilvísanir í þinglýstum eignaskiptayfirlýsingum hefðu með einhverjum hætti fullnægt kröfum laga til þinglýsingar samþykkta húsfélags. Á hinn bóginn taldi Hæstiréttur sannað að fyrirsvarsmaður IKH hefði þegar við kaup á eignarhluta félagsins vitað eða mátt vita að samþykktir húsfélagsins mæltu efnislega fyrir um að kostnaður af auglýsinga- og kynningarstarfsemi væri borinn uppi af eigendum sameiginlega og skipt samkvæmt ákveðnum hlutfallstölum. Gæti IKH því ekki borið fyrir sig að ákvæði samþykktanna á þessa leið hefðu ekki gildi gagnvart því. Var húsfélagið því sýknað af kröfum IKH um endurgreiðslu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. desember 2020

E-1362/2014

Dómur 22. desember 2020 og Mál nr. E-1362/2014: og Elísa Finnsdóttir og Gísli Finnsson (Oddur Þórir Þórarinsson lögmaður), db. Finnborgar Bettýjar Gísladóttur og Hansína Sesselja Gísladóttir (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður), Guðmundur Gíslason og Margrét Margrétardóttir (Guðjón Ólafur Jónsson lögmaður), Karl Lárus Hjaltested og Sigurður Kristján Hjaltested (Sigmundur Hannesson lögmaður) og Markús Ívar Hjaltested og Sigríður Hjaltested (Valgeir Kristinsson lögmaður) gegn Kópavogsbæ (Guðjón Ármannsson lögmaður) og og til vara og dánarbúi Þorsteins Hjaltested (Gísli Guðni Hall lögmaður)

Stefnendur höfðuðu mál til hagsbóta fyrir dánarbú SKLH þar sem K hefði ekki greitt eignarnámsbætur til réttmæts og lögmæts handhafa beins eignarréttar að jörðinni Vatnsenda. Kröfur stefnenda vegna eignarnáms árin 1992, 1998 og 2000 voru fyrndar en K var gert að greiða skaðabætur vegna eignarnáms á árinu 2007.

Hæstiréttur birt 27. mars 2018

42/2017

Græðisbraut ehf (Jón Magnússon lögmaður) gegn Eyja eignum ehf (Guðjón Ármannsson lögmaður)

G ehf., sem var rétthafi lóðar að Græðisbraut 1 í Vestmannaeyjum krafðist þess að staðfest yrði lögbann sem sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum lagði við frekari framkvæmdum E ehf. við að girða af lóð að Heiðarvegi 10 í sama bæ, en lóðirnar lágu hvor að annarri á nánar tilgreindu svæði. Þá krafðist G ehf. jafnframt viðurkenningar á því að E ehf. væri óheimilt án leyfis að reisa girðingu við lóðarmörk þeirrar lóðar sem hindraði nýtingu umferðar- og bílastæðaréttinda G ehf. á lóðinni. Byggði G ehf. kröfu sína á því að hann hefði með óþinglýstum kaupsamningi við B ehf. 13. desember 2011, sem var grundvallaður á samkomulagi frá í ágúst sama ár, keypt tiltekin bílastæða- og umferðarréttindi á leigulóð B ehf. við Heiðarveg 10. Bar E ehf. því m.a. við í málinu að þinglýst réttindi sín á grundvelli afsals um kaup á Heiðarvegi 10 hefðu hrundið réttindum G ehf. samkvæmt kaupsamningnum á grundvelli 2. mgr. 29. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978, enda hefði félagið verið grandlaust um tilvist réttinda G ehf. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að G ehf. hefði sýnt fram á að félagið hefði öðlast hlutbundin réttindi yfir lóðinni að Heiðarvegi 10 með framvísun samkomulagsins og kaupsamningsins frá 2011. Að því er varðaði álitaefnið hvort réttur E ehf. samkvæmt þinglýstu afsali fengi hrundið eldra rétti G ehf. samkvæmt kaupsamningi sem ekki hefði verið þinglýst vísaði Hæstiréttur til þess að fyrirsvarsmaður E ehf. hefði við kaupin kynnt sér aðstæður á vettvangi ásamt því að kynna sér efni lóðarleigusamnings um lóðina. Þótt hvorki í lóðarleigusamningnum né meðfylgjandi uppdrætti hefði verið getið um réttindi G ehf. hefði hinu selda verið lýst í afsalinu sem nánar tilgreindri fasteign ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum. Þá hefðu ummerki á vettvangi með augljósum hætti gefið til kynna að réttur til bílastæða austan nýbyggingar að Græðisbraut 1 tilheyrði þriðja aðila og að sá nyti aðgengis að þeim um lóðina að Heiðarvegi 10, enda ekki um aðrar leiðir að ræða. Hefði þetta gefið fyrirsvarsmanni E ehf. sérstakt tilefni til að kynna sér nánar og ganga úr skugga um hvort til staðar væru óþinglýst bílastæða- og umferðarréttindi yfir lóðinni. Það hefði hann ekki gert og því gæti hann ekki talist grandlaus í skilningi 19. gr. þinglýsingalaga. Af því leiddi að þinglýstur réttur E ehf. fékk ekki hrundið eldri óþinglýstum rétti G ehf. Var talið að G ehf. hefði gert sennilegt í skilningi 1. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl. að fyrirhugaðar framkvæmdir E ehf. myndu brjóta gegn lögvörðum hagsmunum sínum og þau fara forgörðum þyrfti félagið að bíða dóms um þau. Var lögbannið því staðfest. Að því virtu var jafnframt viðurkennt að E ehf. væri án samþykkis G ehf. óheimilt að reisa girðingu á mörkum lóðarinnar að Heiðarvegi 10, sem hindraði nýtingu G ehf. á réttindum félagsins yfir lóðinni samkvæmt kaupsamningi 13. desember 2011.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. október 2016

E-3922/2015

Festa - lífeyrissjóður (Hlynur Halldórsson hrl) gegn Landsbankanum hf (Gunnar Viðar hdl)
Lykilorð: Grandleysi. Skuldamál.

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu fjárhæðar, sem fyrir mistök var færð yfir til SpKef við slit Sparisjóðs Keflavíkur, samanber ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 22. apríl 2010, en stefndi yfirtók síðar réttindi og skyldur SpKef.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2007

E-5356/2006

Arngunnur Jónsdóttir og Helgi Rafnsson (Karl Axelsson hrl) gegn Birni Andrési Bjarnasyni (Jón Höskuldsson hdl) og Reykjavíkurborg (Benedikt Guðbjartsson hdl)

Stefnendur kröfðust þess aðallega að stefnda B yrði gert að fjarlægja viðbyggingu sem hann hafði reist ofan á hús sitt að viðlögðum dagsektum en til vara að dómurinn viðurkenndi að útgáfa byggingarleyfis af hálfu stefnda R til stefnda B hafi verið ólögmæt. Annmarkar á afgreiðslu málsins voru ekki taldir það miklir að stefnda B yrði gert að fjarlægja viðbygginguna en þar sem byggingarleyfið var ekki í samræmi við skilmála deiliskipulags og engin grenndarkynning hafði farið fram var fallist á varkröfuna og dæmt að útgáfa byggingarleyfisins hafi verið ólögmæt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. júní 2006

T-2/2006

Friðrik Valur Karlsson Arnrún Magnúsdóttir (Árni Pálsson hrl) gegn Íslandsbanka hf, útibú 565, nú Glitni banka hf og Sýslumanninum á Akureyri/til réttargæslu (Einar Páll Tamimi hdl) (Sigurður Eiríksson réttargæslumaður)
Lykilorð: Grandleysi. Þinglýsing.

Deilt um hvot skuldabréf sem þinglýst var á eign, en fallið hafði niður að þinglýsa við sameiningu eigna gengi fyrir yngri rétti við sölu eignarhlutans.